Morgunblaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 36
36 SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
við lækkun Reykjanesbrautar sé
um 600 millj. kr. Að okkar mati er
einn helsti ávinningur lækkunar
brautarinnar sá að veglagningin
BÆJARSTJÓRN Garðabæjar
var ekki sátt við þá útfærslu á tvö-
földun Reykjanesbrautar í gegnum
bæinn sem Vegagerðin kynnti og
hefur til þessa ekki viljað gefa út
leyfi til framkvæmdarinnar.
Ástæðan er einkum sú að með
fram brautinni áttu að koma gríð-
armiklir og landfrekir hljóðvarn-
argarðar til að uppfylla úrskurð
umhverfisráðherra frá 14. júlí 2003
um hljóðvist þar sem Reykjanes-
brautin liggur næst íbúðahverfum.
Eftir einarða afstöðu hagsmuna-
félags Garðabæjar, sem hefur látið
mál þetta mjög til sín taka, ákvað
samgönguráðherra að láta kanna
kostnað við lækkun vegarins.
Verkfræðistofan Línuhönnun var
fengin til verksins og í greinargerð
stofunnar er m.a. sýnt fram á
hvernig nota megi styrktan jarð-
veg í hljóðmanir, en þannig verða
þær fyrirferðarminni beggja vegna
vegarins. Fram kemur í samantekt
Línuhönnunar að kostnaðarauki
verður varanlegri
með tilliti til um-
ferðaraukningar
næstu árin og ára-
tugina. Miðdeilir,
eða 11 metra breið
graseyja milli ak-
reina í lækkaðri
legu, gefur kost á
þreföldun eða sex
akreinum síðar meir
án þess að raska
hönnunarforsendum
um hljóðvist braut-
arinnar. Í dag er
umferð um 23.000
bílar á sólarhring. Mikil aukning
er fyrirsjáanleg næstu árin og
mikil uppbygging í Hafnarfirði og
eins suður með sjó mun auk ann-
ars leiða til þess að umferðin nær
60.000 bíla markinu innan fyr-
irsjáanlegrar framtíðar. Sá um-
ferðarþungi krefst þreföldunar
vegarins.
Í hönnnunarforsendum er gert
ráð fyrir umferðarhraða um 80
km/klst. Engu að síður sýnir
reynslan annars staðar af höf-
uðborgarsvæðinu að þar sem veg-
ur er beinn og breiður, og umferð
gengur greiðlega fyrir sig án
ljósastýrðra gatnamóta, verður
meðalhraði meiri en 80 km/klst.,
jafnvel þó svo að svokallaður
skiltaður hraði sé lægri. Lækkuð
lega tekur því betur á þeirri há-
vaðaaukningu sem til komin er
vegna raunverulegs ökuhraða.
Þessu til viðbótar má nefna að
núverandi hæðarlega Reykjanes-
brautarinnar frá Vífilsstaðavegi
að Arnarnesvegi var ákveðin á
sínum tíma til að koma fyrir und-
irgöngum Hnoðraholtsbrautar.
Skipulag Garðabæjar, m.a. með
tengingu Hnoðraholts um Vetr-
arbraut, gerir þessi undirgöng
óþörf. Ekkert kallar því á áfram-
haldandi uppbyggða Reykjanes-
braut á þessum kafla annað en sá
kostnaður sem felst í því að
lækka veginn og fella brautina
betur að eðlilegri landhæð. Það
er okkar skoðun að með þeim 600
milljónum sem lækkun Reykja-
nesbrautarinnar á umræddum
kafla hefur í för með sér sé verið
að koma í veg fyrir enn meiri
kostnaðarauka í framtíðinni með
meiri og landfrekum hljóðvörnum
þegar brautin verður þrefölduð.
Ódýrasta lausnin er ekki endilega
alltaf sú besta. Einnig vegur það
þungt í okkar huga að stofn-
brautir á höfuðborgarsvæðinu
séu þannig hugsaðar að flutnings-
geta þeirra sé sem mest, en á
sama tíma verði þær felldar
þannig inn í byggðina að truflun á
daglegu lífi fólks í aðliggjandi
íbúðabyggð verði sem minnst.
Lækkun brautarinnar kemst nær
því að fullnægja þeim mark-
miðum og er því skynsamleg.
Einar Sveinbjörnsson og Sigur-
laug Garðarsdóttir Viborg
fjalla um vegamál í Garðabæ
’Að okkar mati er einnhelsti ávinningur
lækkunar brautarinnar
sá að veglagningin
verður varanlegri
með tilliti til umferð-
araukningar næstu
árin og áratugina.‘
Einar
Sveinbjörnsson
Höfundar eru bæjarfulltrúar
B-lista, óháðra og Framsókn-
arflokks í Garðabæ.
Sigurlaug
Garðarsdóttir Viborg
Tvöföldun Reykjanes-
brautar um Garðabæ
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Aðalstræti - til leigu
Erum með til leigu tvær fallegar skrifstofuhæðir í þessu nýlega
húsi við Ingólfstorg. Hvor hæð er um 190 fm. og skiptast þær í
þrjár skrifstofur, kaffistofu og opin rými. Auðvelt er að bæta við
fleiri skrifstofum. Lyfta er upp á báðar hæðir. Allur frágangur á
lögnum og innréttingum er til fyrirmyndar. Loft eru niðurtekin.
Allar lagnir eru fyrir hendi. Bjart og gott húsnæði.
Teikningar og nánari upplýsingar á skrifstofu Eignamiðlunarinnar.
Nánari upplýsinga veita Sverrir Kristinsson og
Jason Guðmundsson lögg. fasteignasalar
VANTAR
Básbryggja – glæsileg eign
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Baugakór – glæsilegar íbúðir
Vesturbær - 2ja herb. - laus strax
Vantar 2ja-3ja herb. íbúð í 101 - 107 - 104 - 105 eða 108 hverfi
fyrir ákveðna kaupendur. Hafið samband við sölumenn okkar.
Vorum að fá í sölu 55 fm íbúð á frábærum útsýnisstað í litlu fjölbýli. Góðar sval-
ir. Parket. Laus strax. Sölumenn sýna.
Í einkasölu nýtt fjórbýlishús á frábærum stað. Um er að glæsilega efri hæð 154
fm, ásamt 22 fm bílskúr. Verð fullbúin án gólfefna kr. 35,5 millj. Neðri hæðirnar
eru 115 fm og 119 fm og afhendast þær fullbúnar og verð á þeim kr. 25,5 millj.
og 26,5 millj. Sérinngangur er í allar íbúðirnar. Allt utanhús verður frágengið
sem og lóð og bílastæði.
Í einkasölu sérlega glæsileg
150 fm íbúð í litlu fjölbýli.
Íbúðin er hæð og ris með
mikilli lofthæð sem gerir
íbúðina sérlega skemmti-
lega. Sérhönnuð lýsing frá
Lúmex. Vönduð viðarrimla-
gluggatjöld. Gegnheilt park-
et. Mustangflísar. Stórar
sólarsvalir. Eign í sérflokki.
Verð 32,5 millj.
Arnarbakki 2, atvinnuhúsnæði
Til sölu gott 110 fm atvinnuhúsnæði við Arnarbakka. Afar snyrtilegt.
Reknir eru tveir skyndibitastaðir í húsnæðinu í dag. Mikið af tækjum
staðarins fylgja. Gott tækifæri fyrir fjárfesta. Verð 13,5 milljónir.
Ingi Björn, sími 820 3155.
Hamarshöfði fyrir fjárfesta
Til sölu afar gott 297,2 fm at-
vinnuhúsnæði á besta stað á
Höfðanum. Húsnæðið er í góðri
útleigu til traustra aðila (10 ára
leigusamningur), leigutekjur
tæplega 300 þús. Gott lán áhvíl-
andi. Verð 30 millj. Allar nánari
upplýsingar sjá www.holl.is
Hverafold - Nýtt
Til leigu ca 55 fm (brúttó) á eftir-
sóttum stað á efstu hæð í versl-
unarmiðstöðinni við Hverafold
skrifstofuhúsnæði sem skiptist í
opið rými ásamt geymslu. Hent-
ar fyrir allt að fjórar starfsstöðvar
í opnu vinnurými. Laust strax.
Sanngjörn leiga.
Ingi Björn, sími 8203155
Skúlagata - atvinnuhúsnæði
Til leigu stórglæsilegt 150 fm
skrifstofuhúsnæði með sjávarút-
sýni á besta stað miðsvæðis í
Reykjavík. Þrjár góðar skrifstof-
ur og opið rými. Harðviðarpark-
et. Húsnæði í alfaraleið fyrir
metnaðarfull fyrirtæki. Laust
strax.
Ingi Björn, sími 820 3155
Smiðjuvegur - til leigu
Til leigu 210 fm skrifstofu-/versl-
unarhúsnæði/lagerhúsnæði
með góðum innkeyrsludyrum.
Hentar vel til ýmiss konar rekst-
urs, t.d. fyrir litla heildsölu með
verslunarplássi og lager.
Ingi Björn, sími 820 3155
Hvort sem þú þarft að selja eða
leigja atvinnuhúsnæði eða fyrirtæki
þá ertu í góðum höndum hjá Inga B.
Albertssyni.
Nú er góður sölutími sölutími fram-
undan - ekki missa af honum.
Vandaðu valið og veldu fasteigna-
sölu sem er landsþekkt fyrir traust
og ábyrg vinnubrögð.
Franz Jezorski, hdl. og
lögg. fasteignasali
ATVINNUHÚSNÆÐI
FYRIRTÆKJASALA
Verslun: Erum með fjársterkan kaupanda að
góðri verslun með barnavörur.
Frekari upplýsingar
veitir Ingi Björn í síma 595 9011.
Fréttir
í tölvupósti