Morgunblaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 41 MINNINGAR Við munum vel hversu yndislega var tekið á móti okkur systkinunum þegar við komum inn í fjölskyld- una og okkur fannst við strax vera hluti af henni. Hjá Konna afa og Helgu ömmu leið okkur alltaf vel og Brynjar gleymir aldrei sumr- inu þegar farið var öll kvöld á gömlu Lödunni að vitja um í Vötnunum. Svo þegar heim var komið voru skráðar aflatölur eins og hjá sönnum kvótakóngum. Við vonum að Konni afi okkar hvílist nú vel eftir þessi erfiðu veik- indi. Við munum alltaf eiga okkar góðu minningar um hann og kveðj- um hann nú og þökkum fyrir allt sem hann gaf okkur; það er og verð- ur okkur ómetanlegt. Hjörtur, Brynjar og Íris Ósk. Þeim fækkar ört sem hófu lífs- gönguna á fyrstu tugum síðustu ald- ar. Á þeim árum er hugsjónir alda- mótamannanna voru að rætast og ungmenna- og samvinnufélög náðu að setja mark sitt hvað best á sam- félagið. Kjörorðið var Íslandi allt. Nýfengið fullveldi vakti þjóðinni eldmóð og framfarakraft. Konráð Gíslason var barn þessa tíma og mótaðist ungur að lífsvið- horfum við hugsjónir og iðju þeirra manna, sem oft voru nefndir Vor- menn Íslands. Kunningsskapur okkar Konráðs hófst á mannfundum þar sem gleði ríkti, mikið var sungið og glösum lyft enda var Konráð félagslyndur og mannblendinn. Þegar ábyrgð og önn hins daglega lífs féll meira að áttum við oft og marga alvarlegri fundi um málefni sveitar og héraðs, um mál- efni Kaupfélags Skagfirðinga og samvinnufélaganna í landinu. Þá var ótalin landsmálabaráttan og stúss fyrir Framsóknarflokkinn. Við allt þetta félagsmálastarf breyttist kunningsskapur okkar í vináttu. Konráð var mikill málafylgjumað- ur jafnt í ræðu sem riti og hafði jafn- an leiðandi áhrif ef hann beitti sér. Hann var lengi fulltrúi Akra- hrepps í sýslunefnd og fór þar fyrir liði um samgöngumál héraðsins. Hann hafði gjarna þann hátt á að bjóða þeim alþingismönnum sem næstir honum stóðu heim til sín og hóaði þá um leið í nána samstarfs- menn. Á þessum fundum voru málin rædd og ýtt fram oft svo árangur bar. Eins þótt þingmenn kæmu ekki við sögu kallaði Konráð oft til sín nána félaga til skrafs og ráða um hin ýmsu mál. Þetta var hans háttur við vinnslu mála enda voru í hans ranni jafnan ráðin góð ráð. Hann sá líka á mörgum sviðum mál þroskast frá orðum til athafna. Má þar nefna vöxt og viðgang KS og uppbyggingu Varmahlíðar sem hann var ætíð ein- arður baráttumaður fyrir. Enn er þó ótalið það félagsstarf sem ég held að honum hafi verið hvað kærast og veitt lífsfyllingu. Það var áratuga starf með karlakórnum Heimi þar sem hann söng 1. tenór. Sögu Karla- kórsins Heimis tók Konráð saman í tilefni af 60 ára starfi kórsins. Það sem nú hefur verið drepið á eru tómstunda- og aukastörf. Hann var bóndi að ævistarfi, góður rækt- unarmaður, fóðraði vel og hafði góð- an arð af búinu. Konráð kvæntist Helgu Bjarnadóttur, sérstakri dugn- aðar og ágætis manneskju, sem bjó þeim og börnum þeirra fagurt heim- ili jafnframt því að vera kennari og síðar skólastjóri við Akraskóla. Bæði hlutverkin leysti hún af hendi með KONRÁÐ GÍSLASON ✝ Konráð Gíslasonfæddist á Frosta- stöðum í Akrahreppi 2. janúar 1923. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri 24. júní síð- astliðinn og var jarð- sunginn frá Sauðár- krókskirkju 2. júlí. sóma. Er börn þeirra voru uppkomin seldu þau bú og jörð í hendur syni sínum og fluttu til Varmahlíðar þar sem þau reistu sér íbúðar- hús. Kenndi þá Konráð um nokkurt skeið við Steinsstaðaskóla. Mörg síðustu árin átti hann við vanheilsu að búa. Helga kona hans annaðist hann og studdi jafnan af stakri umhyggju sem gerði honum m.a. kleift að syngja með sínum góðu félögum í karlakórnum árum lengur en ella. Hafi hún þökk fyrir. Síðustu orustuna háði Konráð á sjúkrahúsinu á Akureyri. Það var löng og hörð barátta er stundum gaf vonir en dapraðist í annan stað. All- an þann tíma dvaldi kona hans við sjúkrabeðinn og sýndi þá enn sinn mikla styrk og æðruleysi. Að morgni Jónsmessunnar réðust úrslit. Kon- ráð Gíslason gekk á vit hins ókunna. Þar fór maður er átti traust og virð- ingu þeirra sem best hann þekktu. Blessuð sé minning Konráðs Gísla- sonar. Konu hans, börnum og öllum ástvinum bið ég blessunar Guðs. Gunnar Oddsson. Í dag verður borinn til moldar Konráð Gíslason, fyrrverandi bóndi á Frostastöðum í Skagafirði, og því komið að því að kveðja góðan vin í síðasta skipti. Kynni okkar Konráðs hófust fljót- lega eftir að við fjölskyldan komum í Skagafjörð vorið 1981 og ég gerðist skólastjóri á Hólum í Hjaltadal. Svo vildi reyndar til að sonur Konráðs, Bjarni Stefán, var í hópi fyrstu nem- enda minna þar og þá fann ég mjög sterkt fyrir því hversu fjölskyldan á Frostastöðum bar mikinn og góðan hug til Hóla. Konráð sjálfur lauk bú- fræðiprófi frá Bændaskólanum á Hólum 1942 og minntist veru sinnar þar ætíð með gleði og þakklæti. Sagði hann mér að námsdvölin þar hefði reynst sér drjúgt veganesti í fjölbreyttu ævistarfi. Hug hans má meðal annars merkja af því að hann sagði ávallt: „Ertu að fara heimeft- ir?“ þegar spurt var um hvort verið væri að fara heim að Hólum. Mér sem nýfluttum í Skagafjörð er þetta orðtak minnisstætt. Ég mat það mikils og hugurinn sem því fylgdi greyptist inn í vitundina. Við héldum síðan áfram samskipt- um eftir að við báðir höfðum skipt um búsetu. Hann hafði brugðið búi og þau Helga flutt í Varmahlíð. Og þegar leiðin lá þar um var svo sjálf- sagt að koma við hjá þeim hjónum, þiggja góðgerðir og eiga stutt spjall. „Það er allt í lagi að koma seint,“ sagði Helga þegar við Ingibjörg lit- um þar við eitt sinn undir miðnættið. Heimili þeirra var svo einstaklega þrungið hlýju og gestrisni og þegar kvatt var og þakkað fyrir góðgerðir vorum við þegar farin að hlakka til að koma aftur. Konráð var mikill söngmaður, glettinn og hrókur alls fagnaðar en einarður og heill í samskiptum. Heimsóknirnar voru einnig sér- staklega ánægjulegar fyrir þá sök að við höfðum báðir sömu áhugamál. Konráð hafði brennandi áhuga á fé- lagsmálum og fylgdist vel með stjórnmálum en í honum áttu sam- vinnuhugsjónin og félagshyggjan öflugan talsmann. Það var gott að eiga Konráð sem vin og ráðgjafa og félagsstarfi Vinstri-grænna í Skaga- firði var mikill styrkur að leiðsögn hans og margháttuðum stuðningi. Með Konráði sjáum við nú á bak einum af frumkvöðlum síðustu aldar sem ruddu brautina fyrir framförum þjóðarinnar á tuttugustu öldinni. Þeir sem unnu óskiptir með hug og hönd að hag héraðs síns, að heill ætt- jarðarinnar. Er ég þess fullviss að hann mun í einlægni geta tekið undir kveðju Magnúsar Gíslasonar frá Vöglum til Skagfirðinga: Meðan „Vötnin“ ólgandi að ósum sínum renna iðgrænn breiðist gróður um sléttur, hæð og laut geislar árdagssólar á bröttum tindum brenna, blessun Drottins ríkulega falli þér skaut. Í lok Sæluviku, 30. apríl sl. eftir söngdagskrá í Miðgarði, stóðum við hjónin upp frá kaffiborðinu á heimili Konráðs og Helgu í Varmahlíð, end- urnærð af gestrisni þeirra. Við ætluðum að kveðja inni í stofu en þá stóð Konráð á fætur. „Ég fylgi ykkur til dyra.“ Nú fylgjum við hon- um til dyra og þökkum hlýjar minn- ingar um góðan vin og félaga sem bæði leiddi og miðlaði samferðafólk- inu ríkulega af hugsjónum og bar- áttuþreki. Helgu og fjölskyldu sendum við innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Konráðs Gíslasonar frá Frostastöðum. Ingibjörg Kolka og Jón Bjarnason. Gatan okkar, Furulundur hefur skipt um svip. Skuggi saknaðar hvíl- ir yfir. Vinur okkar Konráð Gíslason hefur kvatt. Stríðinu er lokið og það er viss léttir, þótt vonin lifði lengi um annan endi. Þrátt fyrir árin 82 kom þessi endir allt of fljótt, því elliárin geta verið svo góð og gaman að lifa þau. Og elliárin voru Konráði á margan hátt góð, þótt veikindakaflar skyggðu oft á þá voru hinar stund- irnar honum þeim mun meira virði. Hann átti góða og samhenta fjöl- skyldu sem umvafði hann kærleika. Hann fylgdist vel með dægurmálum, hann átti sín áhugamál og hann átti marga vini og kunningja sem oft litu inn og þá voru dægurmálin rædd. Já, hjá þeim hjónum var meira en venjulegur gestagangur, oft margir á dag og allir urðu að þiggja veit- ingar. Þar naut hún sín fullkomlega hin sanna íslenska gestrisni, hjónin voru samtaka í því að taka vel á móti gestum. Við Konráð vorum nágrannar á uppvaxtarárunum. Oft kom ég í Ey- hildarholt og jafnan hlakkaði ég til samfunda á því fjölmenna og glað- væra heimili, en svo skildi leiðir í bili. Fyrir 20 árum lágu leiðir okkar saman á ný hér í Varmahlíð og varð hann þá næsti nágranni minn. Þetta nágrenni við þau hjónin varð með þeim hætti að betra er ekki hægt að kjósa sér. Við áttum saman margar ánægjustundir, bæði á heimili hans og mínu, sem ég mun lengi sakna. Fyrir þessar stundir og alla okkar samveru vil ég þakka af heilum hug og jafnframt vil ég þakka þér, Helga mín, og færa þér og allri þinni fjöl- skyldu hjartanlegar samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning Konráðs. Sigurpáll Árnason. Elskuleg móðir okkar, tendamóðir, amma og langamma, ÁSTA LAUFEY HARALDSDÓTTIR frá Reyni, Krókatúni 18, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju þriðju- daginn 5. júlí kl. 14.00 Helga Jónsdóttir, Diðrik Jóhannsson, Elísabet Jónsdóttir, Jóhann Jóhannsson, Guðrún H. Jónsdóttir, Guðmundur Stefánsson, Haraldur Jónsson, Sólveig Jóhannesdóttir, Guðmundur Páll Jónsson, Sigurlína Júlíusdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elsku afi, nú hefur þú fengið hvíldina sem þú þráðir svo mikið síð- ustu árin. Ég held að þér sé lýst best af því síðasta sem þú sagðir við mig, lást sárkvalinn í rúm- inu þínu og spyrð mig um heilsuna hjá mér. Þessi orð lýsa þér best held ég, alltaf að hugsa um þína nánustu, hvernig þeim líður og að þeir hafi nóg fyrir stafni. Það var alltaf jafn gaman að koma til þín því þú varst með nýja sögu að segja í hvert skipti sem ég kom á meðan heilsan leyfði. Eins man ég þegar þú varst að leyfa mér að keyra bílinn þinn fyrsta árið sem ég var með bílpróf. Allir voru að segja mér hvað þú værir bílhræddur og að ég yrði að fara varlega með þig í bílnum en aldrei varð ég var við að þú treystir ekki honum nafna þínum. En nú er kominn tími til að kveðja og ég ætla að gera það með þínum orðum: Bless, elsku nafni minn. Þinn Ragnar. Elsku afi. Mér þykir það svo leitt að hafa ekki getað kvatt þig áður en RAGNAR KRISTÓFERSSON ✝ Ragnar Kristó-fersson fæddist á Klúku í Fífustaðadal í Ketildalahreppi í Arnarfirði 1. ágúst 1916. Hann lést á dvalarheimili aldr- aðra Hornbrekku 26. júní síðastliðinn og var útför hans gerð frá Ólafsfjarðar- kirkju 2. júlí. þú fórst, að hafa ekki getað faðmað þig og sagt þér að ég elska þig. Það er erfitt að vera svona langt í burtu þegar svona nokkuð gerist. Mín eina hugg- un er að nú þjáist þú ekki lengur. Ég á margar góðar minningar frá Ólafs- firði með þér og ömmu. Minningar sem ég er þakklát fyrir og geymi á sérstökum stað í hjarta mér. Það sem mér þótti gaman að fá að vera í kringum þig og hjálpa þér í fjárhús- unum eða að fá að fara með þér á traktornum niður túnið til að ná í fiskinn úr netunum. Ég hef lært hjá þér að vera sterk og að gefast ekki upp. Í minningunni sem ég á um þig í huga mér, þá ert þú frammi í Garði, úti á túni, sterkur og uppréttur, alltaf jafn beinn í baki. Þú varst jafnframt alltaf svo góður við okkur barnabörnin þín. Ég man þau skiptin er ég bankaði á öxlina á þér og sagði „áttu nammi“ og þú fórst í skápinn þinn, sem var svo leyndardómsfullur, og náðir í súkku- laði eða brjóstsykur og sagðir í gamni: „Ekki segja henni ömmu þinni.“ Elsku afi, ég trúi því að þú sért hérna einhvers staðar nálægt og að þú munir vaka yfir mér og vernda. Megi guð vera með ömmu og öll- um heima og gefa þeim styrk. Þín afastelpa, Fríða Dögg. Við viljum kveðja vin okkar og fyrrum samstarfsmann Rúnar Gunnarsson og þakka honum fyrir frábæra samveru þann alltof stutta tíma sem við þekktum hann. Hann starfaði með okkur í Vínbúðinni í Smáralind um tveggja ára skeið og strax við fyrstu kynni kom í ljós að þar var á ferð- inni drengur góður í alla staði. Hann var frábær starfsmaður og góður vinur okkar allra. Ætíð í góðu skapi og brosmildur. Við þökkum þér Rúnar fyrir að hafa gefið okkur öllum jákvæðni og trú á hið góða í lífinu. Aðstandend- um sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Minningin um ein- stakt ljúfmenni lifir í hjörtum okkar. Starfsfólk Vínbúðarinnar í Smáralind. RÚNAR GUNNARSSON ✝ Rúnar Gunnars-son fæddist í Reykjavík 2. nóvem- ber 1966. Hann lést 21. júní síðastliðinn og var útför hans gerð frá Fríkirkj- unni í Reykjavík 30. júní. Bréf til látins manns Ég veit þú fékkst engu, vinur, ráðið um það, en vissulega hefði það komið sér betur, að lát þitt hefði ekki borið svo bráðan að. Við bjuggumst við að hitta þig oft í vetur. Og nú var um seinan að sýna þér allt það traust, sem samferðafólki þínu hingað til láðist að votta þér. Það virtist svo ástæðulaust að vera að slíku fyrst daglega til þín náðist. (Tómas Guðm.) Minningin um Rúnar Gunnarsson lifir. Hann var góður vinur vina sinna og hvers manns hugljúfi. Við biðjum góðan Guð sérstak- lega að styrkja Sigga frænda, Evu og Rúnar litla á þessum erfiðu tím- um. Öðrum ættingjum og vinum vott- um við okkar innilegustu samúð. Einar, Ragnar og Ingibjörg, Sunna, Ingimundur Ellert (Elli) og Aðalheiður, Fjalarr og Elín. Elskulegur faðir minn, EINAR TORFASON frá Haga, Hornafirði, er látinn. Jarðarförin fer fram frá Hafnarkirkju þriðju- daginn 5. júlí kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hans láti Björgunarfélag Hornafjarðar njóta þess. Vilhjálmur Einar Einarsson og aðstandendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.