Morgunblaðið - 03.07.2005, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 43
AUÐLESIÐ EFNI
HEIÐAR Helguson, lands-liðs-
maður í knatt-spyrnu, samdi í
vikunni við enska úrvals-deildar-
liðið Fulham, og mun leika með
þeim í 4 ár. Heiðar er 3. íslenski
knatt-spyrnu-maðurinn sem leikur í
ensku úrvals-deildinni. Hinir eru
Englands-meistarinn Eiður Smári
Guðjohnsen hjá Chelsea og
Hermann Heiðarsson hjá Charlton.
Heiðar hefur leikið með enska 1.
deildar-liðinu Watford í í 5 ár, og
segist vera mjög glaður að vera
kominn í deild þeirra bestu.
Heiðar í
úr-vals-deild
Heiðar Helguson
ÞRETTÁN pakist-anskir menn
verða hand-teknir á ný eftir að hafa
verið sýknaðir af kæru um
hóp-nauðgun.
Mál fórnar-lambsins Mukhtar
Mai hefur vakið
heimsathygli, en
henni var nauðgað
árið 2002. Þorps-
ráð heima-bæjar
hennar fyrir-skipaði
nauðgunina sem
refsingu fyrir ástar-
samband sem 13
ára bróðir hennar átti að hafa átt í.
Fyrst voru 14 menn ákærðir en
undir-réttur sýknaði 8 og dæmdi 6
til dauða. Mai áfrýjaði, en þá voru
5 sýknaðir, vegna skorts á sönn-
unar-gögnum, og dauða-dómi þess
sjötta var breytt í lífs-tíðar-fangelsi.
Mai áfrýjaði þá til Hæsta-réttar
Paki-stans sem ætlar að rétta
aftur yfir öllum mönnunum.
Enn réttað yfir
nauðgurum
Mukhtar Mai
DEMÓ-KRATAR í Banda-ríkjunum
gagn-rýna George W. Bush Banda-
ríkja-forseta fyrir ræðu hans sem
sjón-varpað var um öll Banda-ríkin
á þriðju-dags-kvöld.
Þar reyndi for-
setinn að fá þjóðina
til að vera sam-
mála stefnu sinni í
mál-efnum Íraks.
Lítið nýtt kom fram í
ræðu Bush, sem
vildi fyrst og fremst
að stappa stálinu í
Banda-ríkja-menn vegna þessa
langa stríðs. Hann talaði ekkert um
breytta stefnu eða hvernig ætti að
ná settu marki í Írak. Demó-kratar
gagn-rýndu for-setann fyrir að not-
færa sér minn-inguna um 11. sept-
ember, jafn-vel þó engin tengsl
hefðu verið á milli árásar-innar og
inn-rásarinnar í Írak.
Bush stappar
stálinu í
þjóðina
Bush í ræðu-
stól.
GOÐIN fimm í
hljóm-sveitinni Duran
Duran héldu tónleika sína
í Egils-höll á fimmtdags-
kvöld. Stemmningin þótti
ólýsanleg og sungu 10
þúsund áhorfendur stöð-
ugt með. Hljóm-sveitin lék
öll sín þekktustu lög, en
hún var ein allra vin-
sælasta hljóm-sveit 9.
ára-tugarins. Goðin voru í
góðu formi og söngvarinn
Simon Le Bon stakk sér í
mann-hafið.
Fimm-menning-arnir
gerðu margt á Íslandi.
Simon LeBon sigldi um
Faxa-flóa og John Taylor
fór í Bláa lónið. Þeir voru
ánægðir með dvölina og
segjast ætla að koma
aftur til Íslands.
Duran
Duran á
Íslandi
Simon LeBon í góðu
formi.
TÍU tón-leikar voru haldnir í
ríkustu löndum heims og
Suður-Afríku undir nafninu
Live 8 í gær.
Milljónir manna hlustuðu á
marga frægustu tónlistar-
menn í heimi og fræddust
um vanda-mál þróunar-
landanna. Vonast er til að
tón-leikarnir setji pressu á
leið-toga ríkjanna til að
semja um skuldir, að-stoð og
við-skipti við Afríku.
Sjón-varps-stöðin Sirkus
sendi út frá Live 8 hér-lendis
frá há-degi til mið-nættis, þar
sem margir þekktir Ís-
lendingar komu fram. 75%
lands-manna gátu séð at-
burðinn sem er lang-stærsta
út-sending allra tíma. Í
gegnum sjón-varp, út-varp,
Netið og far-síma náði hún til
um 5,5 millj-arða manna,
eða 85% allra í heiminum.
Stærsta
út-sending
allra tíma
Bob Geldof er skipu-leggj-
andi Live 8-tón-leikanna.
Á NORÐUR-LÖNDUM hefur vakið athygli
hversu mikið Ís-lend-ingar fjár-festa í
nor-rænni ferða-þjónustu.
Jóhannes Kristjánsson og Pálmi
Haraldsson eigendur lág-far-gjalda-
flug-fé-lagsins Iceland Express, keyptu um
daginn Sterling flug-félagið og í vikunni bættu
þeir danska flug-félaginu Mærsk við. Þeir
félagar eru himin-lifandi með fjár-festinguna,
en saman-lagt hafa þeir nú um 2.000 manns
í vinnu, eiga 32 Boeing-þotur, fljúga til 89
áfanga-staða og ætti árs-veltan að vera upp á
60 milljarða króna.
Einnig hefur Andri Már Ingólfsson hjá
Heims-ferðum keypt sænsku ferða-skrif-
stofuna Solresor og dótturfélag hennar Solia
í Noregi, sem fjórfaldar veltu fyrir-tækisins
sem nú er stærsta sjálf-stæða ferða-skrif-
stofa í einka-eigu í Skandi-navíu.
Íslendingar í útrás
DOKTOR Kristín Ingólfsdóttir,
prófessor í lyfja-fræði, tók í gær við
embætti rektors Há-skóla Íslands.
Kristín er 28. rektor skólans og
fyrsta konan sem gegnir embætt-
inu. Hún var kosin af nem-endum
og starfs-fólki HÍ úr hópi 4 pró-
fessora. Kristín sagði í ræðu sinni
að hlut-verk Há-skóla Íslands væri
að vera í fremstu röð. Hún vill að
gæði skólans séu mæld með
af-köstum í vísindum, einsog gert
er í Evrópu og Banda-ríkjunum, og
lagði því áherslu á að það þyrfti að
finna fé til rann-sókna-starfs.
Páll Skúlason, frá-farandi rektor,
sagði að háskóla-fólk styðji
Kristínu ein-dregið og var viss um
að hún yrði glæsi-legur full-trúi
há-skólans.
Páll Skúlason og Kristín við at-höfnina.
Nýr rektor Há-skóla Íslands
GERHARD Schröder,
kanslari Þýska-lands, gekk
á föstu-daginn á fund
for-seta landsins, Horst
Köhler, og bað um að þing
yrði rofið og boðað til
kosninga í landinu í haust.
For-setinn hefur 3 vikur til
að ákveða sig.
Þýska þingið lýsti van-
demó-krata-flokkurinn, sem
er í stjórnar-and-stöðunni,
um 17% meira fylgis en
Jafnaðar-manna-flokkur
Gerhards Schröders.
For-maður hans er
Angela Merkel, helsti
kepp-inautur Gerhards
Schröders í næstu
kosn-ingum.
Þannig vildi Gerhard
Schröder ná fram haust-
kosningum í von um að fá
endur-nýjað um-boð frá
kjós-endum til að halda
áfram efna-hags-umbótum
sínum, sem ekki hafa
gengið nógu vel.
Sam-kvæmt skoðana-
könnunum nýtur Kristi-legi
trausti á stjórn Gerhards
Schröders er það felldi til-
lögu hans um trausts-yfir-
lýsingu á ríkis-stjórnina.
En Gerhard Schröder
lagði til-löguna sjálfur fyrir
þingið í gær og hvatti stjórn-
ar-þing-menn til að greiða
ekki atkvæði til þess að
þetta yrði niður-staðan.
Gerhard Schröder meðal stuðnings-manna.
Schröder vill haust-kosningar