Morgunblaðið - 03.07.2005, Page 48
48 SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 helmingur, 4
greind, 7 víðan, 8 upp-
námið, 9 skepna, 11 kropp,
13 gubbaði, 14 kjáni, 15
andvari, 17 ójafna, 20
gruna, 22 eldiviðurinn, 23
svipuðum, 24 ræktuð lönd,
25 hagnaður.
Lóðrétt | 1 kaupið, 2 ber, 3
gadd, 4 hár, 5 krók, 6 stíl-
vopn, 10 gól, 12 dreitill, 13
sómi, 15 strita, 16 hyggur,
18 stormurinn, 19 sár, 20
ofnar, 21 bára.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hlédrægur, 8 vitur, 9 ildis, 10 kyn, 11 trana, 13
gerpi, 15 spors, 18 órögu, 21 ket, 22 kokka, 23 raust, 24
græðlings.
Lóðrétt: 2 létta, 3 dýrka, 4 æsing, 5 undir, 6 hvöt, 7 usli, 12
nýr, 14 eir, 15 sekk, 16 orkar, 17 skarð, 18 ótrúi, 19 örugg,
20 urta.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Undirvitund hrútsins hefur víkkað
um nokkurt skeið. Það skýrir allar
villtu og skrýtnu hugmyndirnar sem
láta á sér kræla í kolli hans núna.
Það er framfaraskref. Taktu lífinu
með ró.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið hefur áttað sig á því smám
saman að nýr og frábrugðinn lífsmáti
er hugsanlega innan seilingar.
Kannski kemur sú uppgötvun á
óvart, en er engu að síður jákvæð? Er
það ekki?
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Margir í tvíburamerkinu hafa gert
róttækar breytingar á starfsvett-
vangi eða lífsstefnu á undanförnum
árum, eða eru í þann mund að gera
það. Tvíburinn sættir sig ekki við
kúgun.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Íhaldssamt lífsviðhorf krabbans er að
breytast og heldur áfram að taka
breytingum. Skoðanir hans eru meira
að segja að taka nýja stefnu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Náin kynni hafa ýtt undir breytingar
á lífi ljónsins upp á síðkastið. Ekki er
víst að þessu sambandi sé ætlað að
endast, ljónið á hins vegar að læra af
því. Öll sambönd taka enda um síðir.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Úranus, pláneta breytinga, hefur ver-
ið beint á móti meyjarmerkinu um
nokkurt skeið. Það kemur svo sann-
arlega róti á parasambönd, meyjan
vill ekki láta halda aftur af sér. Hún
vill vera frjáls. Úps.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vogin hefur velt því fyrir sér upp á
síðkastið hvernig hún á að fara að því
að vinna skynsamlegar, í stað þess að
vinna sífellt meira. Hún vill bera það
sama úr býtum en leggja minna á sig.
Eða bera meira úr býtum fyrir sama
vinnuframlag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Skapandi hugmyndir sporðdrekans
hafa verið með ólíkindum hin síðari
ár. Hann fer vaxandi á öllum sviðum.
Óvænt barnalán gæti sett strik í
reikninginn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Fjölskyldumynstur bogmannsins
hefur tekið miklum breytingum hin
síðari ár. Sumar þeirra hafa komið
honum úr jafnvægi; tengsl hafa
rofnað.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Stutt skrepp og ferðalög fela í sér
ýmislegt óvænt. Steingeitin lærir
margt af kynnum sínum við ókunnugt
fólk og framandi menningarheima.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Starfsgrundvöllur vatnsberans hefur
verið ójafn á síðari árum. Á endanum
lagast þær aðstæður samt. Þar að
auki fær vatnsberinn meira frelsi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ekki verða hissa þótt vaxandi frels-
isþrá blundi innra með þér. Óvíst er
að allir verði jafnhrifnir. Notaðu
tækifærið og pældu í sjálfum þér,
kíktu í sjálfshjálparbækur.
Stjörnuspá
Frances Drake
Krabbi
Afmælisbarn dagsins:
Góðlegt viðmót gerir að verkum að
fáir átta sig á ákveðni þinni. Þú setur
markið hátt og kraftur þinn og agi gera
þér kleift að ná árangri. Innst inni leitar
þú sannleikans og vilt fá spurningum
þínum svarað.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Sæluhelgin á Suðureyri verður haldin í 10.skiptið dagana 7.–10. júlí. Stærsti at-burður helgarinnar er Mansakeppnin, enhún hefur verið haldin árlega frá árinu
1988. Ævar Einarsson, einn af forsprökkum
Sæluhelgarinnar og formaður Mansavinafélags-
ins, fræðir okkur um viðburðinn.
„Sæluhelgin stendur alla helgina, frá fimmtu-
degi sunnudags. Mansakeppnin er haldin á laug-
ardeginum og er hún veiðikeppni fyrir börn undir
12 ára aldri. Þá fara allir krakkarnir niður á höfn
til að veiða marhnúta og veitt eru ýmiskonar verð-
laun.“ Í fyrra voru verðlaun meðal annars veitt
fyrir stærstu og minnstu veiðina en einnig fyrir þá
furðulegustu, sem kom í hlut Hörpu Rúnar Hilm-
arsdóttur en hún veiddi mink.
„Dagskráin í ár verður fjölbreytt að vanda.
Leikritið Ronja ræningjadóttir verður frumsýnt í
flutningi leikfélagsins „Hallvarður súgandi“, en í
því eru um 20 krakkar á grunnskólaaldri. Það
verða einnig tónleikar í boði. Þurrkverkstónleikar
í flutningi Apolló eru á fimmtudaginn (en eins og
glöggir menn vita er það hljómsveit Helga Þórs
Arasonar sem keppti í Idol-stjörnuleit á Stöð tvö í
vetur) og dúettinn Mona Lisa tekur lagið en stúlk-
urnar í dúettnum sömdu Sæluhelgarlagið að
þessu sinni „Sæluminningar“. Dansleikir verða á
laugardeginum, bæði fyrir yngra og eldra fólkið
þar sem Delta 44 frá Flateyri leikur fyrir dansi.
Hverjum er boðið á Sæluhelgi?
„Sæluhelgin er fyrst og fremst fjölskylduhátíð
þar sem fjölskyldan kemur saman og á góða helgi
og eru allir velkomnir. Í fyrra komu um 2.000
utanbæjargestir sér fyrir í þorpinu. Aðstaðan er
ekki alveg eins og best verður á kosið þar sem við
erum ekki með neitt tjaldstæði en þá eru heima-
menn þeim mun gestrisnari og bjóða fólki að
tjalda í garðinum hjá sér. Eitt árið var nú einnig
tjaldað í kirkjugarðinum.“
Ekki fylgir sögunni hvort ferðalangarnir urðu
fyrir ónæði af hendi „gestgjafanna“ en Ævar er
snöggur að benda á að engin leiði eru í garðinum.
„Svo má ekki gleyma söngvarakeppninni sem
er á lokadeginum en í fyrra var Helgi einmitt kos-
inn „bjartasta vonin“ og fékk farandbikarinn
„Rabbabikarinn“ að launum. Bikarinn heitir
þessu nafni í minningu Rafns Jónssonar trommu-
leikara.“
Það má því segja að Sæluhelgin hafi komið
Helga Þór á framfæri og aldrei að vita nema að
næsta Idol-stjarna líti dagsins ljós á Sæluhelginni
2005 á Suðureyri.
Boðið verður upp á Sæluhelgarmerki á þúsund
krónur og gilda þau alla helgina, á alla viðburði, í
leiktæki fyrir börnin og ferðir eins og fjallgöngur.
Nánari upplýsingar um helgina er að finna á vefn-
um www.sudureyri.is.
Fjölskylduhátíð | Sæluhelgi á Suðureyri 7.–10. júlí
Kom Idol-stjörnu á framfæri
Ævar Einarsson er
fæddur 20. apríl árið
1957 á Suðureyri. Hann
starfar sem verkstjóri í
fiskverksmiðjunni Ís-
landssögu og Klofningi.
Ævar er upphafsmaður
Mansakeppninar sem
hófst árið 1988 og hef-
ur hann verið formaður
Mansavinafélagsins frá
upphafi. Ævar er í sam-
búð og býr á Suðureyri.
www.sudureyri.is
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Tónlist
Rangárþing ytra | Kirkjukór Odda og
Þykkvabæjar heldur tónleika í Oddakirkju á
Rangárvöllum, 7. júlí kl. 20.30. Tónleikarnir
eru öllum opnir. Aðgangseyrir er 500 kr.
Hallgrímskirkja | Mattias Wager kl. 20
Skálholtskirkja | Blokkflaututónlist frá
endurreisnartímanum og ensk samtíma-
tónlist kl. 17.
Myndlist
Austurvöllur | Ragnar Axelsson. Ljós-
myndasýningin „Andlit norðursins“ til 1.
sept.
Árbæjarsafn | Gunnar Bjarnason sýnir í
Listmunahorninu forn vinnubrögð í tré og
járn.
Bragginn – Öxarfirði | Fagurlist yst sem
innst. Innsetningar, málverk, skúlptúr. 300
kr. Til 16. júlí.
Café Karólína | Vilhelm Anton Jónsson
(Villi naglbítur) sýnir til 22. júlí.
Deiglan | Kristján Pétur Sigurðsson til 24.
júlí.
Eden, Hveragerði | Hilmar J. Höjgaard til
10. júlí.
Galíleó | Árni Björn Guðjónsson sýnir um
20 olíumyndir af íslensku landslagi. Sýn-
ingin stendur til 29. júlí.
Gallerí BOX | Sigga Björg Sigurðardóttir til
9. júlí.
Gallerí Gyllinhæð | Marie-Anne Bacquet
og Marie Greffrath til 10. júlí.
Gallerí Tukt | Iðunn Árnadóttir til 9. júlí.
Gerðuberg | Menningarmiðstöðin Gerðu-
berg er lokuð frá 1. júlí til 15. ágúst vegna
sumarleyfa. www.gerduberg.is.
Grafíksafn Íslands | Arnór G. Bieltvedt
sýning á málverkum og teikningum til 10.
júlí. Opið frá kl. 14–18.
Götur Reykjavíkur | Margrét H. Blöndal til
1. ágúst.
Hafnarbakkinn í Reykjavík | Kristinn
Benediktsson „Fiskisagan flýgur“, ljós-
myndasýning til 31. ágúst.
Hafnarborg | Wilhelm Sasnal, Bojan Sarce-
vic, Elke Krystufek, On Kawara til 21 ágúst.
Hrafnista, Hafnarfirði | Trausti Magn-
ússon sýnir málverk og ljósmyndir í menn-
ingarsal til 23. ágúst.
Hönnunarsafn Íslands | Circus Design í
Bergen. Til 4. sept.
Jónas Viðar Gallerí | Undir Hannesi. Sam-
sýning 10 listakvenna til 17. júlí.
Kaffi Mílanó | Jón Arnar sýnir olíumyndir.
Myndefnið er borgarlíf, tónlist og náttúran.
Kaffi Sel | „Ástin og lífið“. Gréta Gísladótt-
ir sýnir á Kaffi Seli við golfvöllinn á Flúðum.
Sýningin stendur til 3. júlí.
Ketilhúsið, Listagili | Í minningu afa. Sýn-
ing á kínverskri myndlist til 24. júlí.
Kling og Bang gallerí | John Bock til 26.
júlí.
Kringlan | World Press Photo. Sýning á
bestu fréttaljósmyndum ársins 2004. Til
24 júlí.
Laxárstöð | Sýning Aðalheiðar S. Eysteins-
dóttur, Hreindýr og dvergar í göngum Lax-
árstöðvar.
Listasafn ASÍ | Ólafur Árni Ólafsson, Libia
Pérez de Siles de Castro til 3. júlí.
Listasafn Íslands | Dieter Roth til 21.
ágúst.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Gabríel
Kuri, Jennifer Allora og Guilliermo Calza-
dilla, Brian Jungen, Hekla Dögg Jónsdóttir,
John Latham, Kristján Guðmundsson til 21.
ágúst.
Listasafn Reykjanesbæjar | Á sumarsýn-
ingu má nú sjá sænskt listgler. Um er að
ræða rúmlega 60 verk eftir 50 helstu gler-
listamenn Svía, úrval hins besta úr heimi
nytjaglers og skúlptúrglers. Sýningin kem-
ur frá Hönnunarsafni Íslands.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Dieter
Roth, Peter Fischli, David Weiss, Haraldur
Jónsson, Urs Fischer, til 21. ágúst.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sumarsýning Listasafns Íslands.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sum-
arsýning – Aðföng, gjafir og lykilverk eftir
Sigurjón Ólafsson. Safnið er opið milli
klukkan 14 og 17.
Listhús Ófeigs | Hafsteinn Austmann til 8.
júlí.
Norræna húsið | Andy Horner til 28.
ágúst.
Nýlistasafnið | Thomas Hirschhorn til 24.
júlí.
Pakkhúsið | Sigurður Mar Halldórsson –
ljósmyndasýning. Sýningin nefnist Horn-
firðingar. Til 9. júlí.
Ráðhús Reykjavíkur | Anna Leós sýnir til
10. júlí.
Safn | Carsten Höller til 10. júlí.
Skaftfell | Vesturveggurinn. Kolbeinn Hugi
sýnir til 10. júlí.
Suðsuðvestur | Sólveig Aðalsteinsdóttir
sýnir þrettán ljósmyndir og tvo skúlptúra.
Opið fimmtud. og föstud. frá 16–18 og um
helgar frá 14–17.
Vatnstankarnir við Háteigsveg | Finnbogi
Pétursson. Sjá nánar www.or.is.
Þjóðminjasafn Íslands | Skuggaföll.
Portrettmyndir Kristins Ingvarssonar.
Þjóðminjasafn Íslands | Story of your life –
ljósmyndir Haraldar Jónssonar.
Leiklist
Skemmtihúsið | Ferðir Guðríðarkl. 18 til
enda ágúst.
Listasýning
Árbæjarsafn | Samsýning á bútasaumi,
Röndótt – Köflótt, í Kornhúsinu. Opið í
sumar frá kl. 10–17.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning á
efni sem tengist ferðamönnum í Reykjavík,
svo sem póstkortum, útgefnu efni og skjöl-
um sem varpa ljósi á sýn ferðamanna á
Reykjavík og það hvernig Reykjavík hefur
kynnt sig fyrir ferðamönnum frá 18. öld til
dagsins í dag. Aðgangur er ókeypis.
Listasafnið á Akureyri | Skrýmsl – Óvættir
og afskræmingar til 21. ágúst.
Norska húsið í Stykkishólmi | Sýning til-
einkuð samfelldum veðurathugunum á Ís-
landi í 160 ár (til 1. ágúst).
Svartfugl og hvítspói | Sveinbjörg Hall-
grímsdóttir með grafíksýninguna Blæ til 17.
júlí.
Vinnustofa Katrínar og Stefáns | Sýning á
batikverkum í Hlaðbæ 9, Reykjavík. Sýn-
ingin er til 3. júlí frá kl. 14–20.
Söfn
Árbæjarsafn | Útiminjasafn með fjöl-
breyttum sýningum, leiðsögumönnum í
búningum og dýrum í haga.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Á Borg-
arskjalasafni Reykjavíkur stendur yfir sýn-
ingin Through the Visitor’s Eys, þar sem
fjallað er um þróun ferðaþjónustu í Reykja-
vík og hvernig ferðamenn upplifðu borgina.
Textar á íslensku og ensku. Sýningin er á 1.
hæð Grófarhúss, Tryggvagötu 15 og er opin
alla daga. Aðgangur er ókeypis.
Ráðhús Þorlákshafnar | Á sýningu í Ráð-
húsi Ölfuss gefur að líta margar tegundir
uppstoppaðra fiska, bæði vel þekktar teg-
undir og furðufiska.
Víkin, Sjóminjasafnið í Reykjavík, |
Grandagarði 8. Fyrsta sýning safnsins
„Togarar í hundrað ár“ stendur nú yfir.
Sögu togaraútgerðar á Íslandi eru gerð skil
í munum og myndum. Kaffistofan býður
upp á ilmandi kaffi og fallegt útsýni yfir
Reykjavíkurhöfn. Opnunartími: 11–17. Lokað
mánudaga.
Þjóðmenningarhúsið | Norrænt bókband
2005. Á sýningunni er áttatíu og eitt verk
eftir jafnmarga bókbindara frá Norður-
löndunum. Opið frá kl. 11–17.
Mannfagnaður
Niðjar Kristjönu og Gests | Niðjar Krist-
jönu J. Einarsdóttur og Gests Árnasonar
frá Ólafsfirði munu hittast að Dæli helgina
8.–10. júní. Nánari upplýsingar veitir Guð-
laug Björgvinsdóttir í síma 892 9093.
Námskeið
Árbæjarsafn | Örnámskeið í flug-
drekagerð, tálgun, þæfingu, glímu og kveð-
skap. Námskeiðin eru ætluð börnum í fylgd
með fullorðnum og eru kl. 13–16. Tálgun:
5.7, 13.7. Glíma: 9.7., 14.7. Þæfing: 6.7.
Kveðskapur: 23.7. Verð 1.000–2.500 á
mann. Upplýsingar og skráning í síma 411–
6320.
www.ljosmyndari.is | Á vegum www.ljos-
myndari.is verður í haust boðið upp á fjöl-
breytt ljósmyndanámskeið bæði fyrir staf-
rænar myndavélar svo og filmuvélar.
Skráning og nánari upplýsingar um nám-
skeiðin á www.ljosmyndari.is.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos