Morgunblaðið - 03.07.2005, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 49
DAGBÓK
EM á Tenerife.
Norður
♠G96
♥543 N/AV
♦75
♣ÁK875
Vestur Austur
♠ÁK542 ♠83
♥109 ♥872
♦Á108 ♦DG6432
♣G64 ♣D3
Suður
♠D107
♥ÁKDG6
♦K9
♣1092
Spil dagsins er frá leik Hollands (Or-
ange Team I) og Zimmermanns í 16-
liða úrslitum opnu sveitakeppninnar á
Kanaríeyjum. Sagnir voru eins á báð-
um borðum:
Vestur Norður Austur Suður
– Pass Pass 1 grand
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Í sæti suðurs voru Zimmermann og
Verhees, og það er athyglisvert að báð-
ir skyldu kjósa að vekja á grandi frekar
en einu hjarta. En látum það vera og
veltum fyrir okkur spilamennskunni.
Hvernig myndi lesandinn spila ef út
kemur spaðaás og svo smár spaði í öðr-
um slag?
Sagnhafi horfir á átta slagi og Louk
Verhees ákvað að reyna strax við þann
níunda með því að djúpsvína fyrir DG í
laufi.
Ekki gekk það. Austur fékk slaginn
á laufdrottningu og spilaði tígli í gegn-
um kónginn. Vörnin fékk þannig 11
slagi – einn á lauf, sex á tígul og fjóra á
spaða. Sjö niður og 350 í AV.
Zimmermann fékk út lítinn spaða í
byrjun. Honum leist ekki á djúpsvín-
inguna í laufi og spilaði þess í stað öll-
um hjörtunum. Það reyndist rétt
ákvörðun, því vestur var með öll lyk-
ilspilin og gat engan veginn staðist
þrýstinginn. Vestur henti fyrst tveimur
tíglum, en í fimmta hjartað mátti hann
ekkert spil missa. Hann kaus að kasta
laufi í þeirri von að makker ætti Dxx,
en það þýddi að sagnhafi fékk fimm
laufslagi og ellefu slagi í allt: 460 í NS.
Níu slaga munur á spilaleiðum!
E.s. Það hefði vissulega verið betri
vörn hjá vestri að kasta spaða í síðasta
hjartað.
En sagnhafi ætti þó að lesa rétt í
stöðuna og spila litlum tígli undan
kóngnum, því vestur færi varla að
henda fríspaða ótilneyddur.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
70 ÁRA afmæli. Í dag, 3. júlí, ersjötug Erla Magnúsdóttir,
Mýrarási 2, Reykjavík. Hún tekur á
móti ættingjum og vinum í dag kl. 15–
18 í Safnaðarheimili Árbæjarsóknar,
Rofabæ.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
60 ÁRA afmæli. Bjarnveig Skaftfeld verður sextug 4. júlí nk. og Skúli Ragn-arsson verður sextugur 17. júlí nk. Þau ætla að halda upp á þennan merk-
isáfanga saman laugardaginn 9. júlí nk. og gleðjast með vinum og vandamönnum
heima á Ytra-Álandi, við söng og dans, yfir þjóðlegum veitingum og hefst sam-
kvæmið kl. 20. Dansskórnir mega gjarnan vera með frjálslegu sniði því sveiflan
verður tekin í tjaldi á hlaðinu. Vonast þau til að sem flestir sjái sér fært að koma
og samgleðjast með þeim.
80 ÁRA afmæli. Í dag, 3. júlí, eráttræður Ólafur Sig-
urgeirsson. Ólafur og kona hans, Sal-
vör Sumarliðadóttir, búa á dval-
arheimilinu Ás, Klettahlíð 18,
Hveragerði.
ÞÓRA Einarsdóttir óperusöng-
kona hefur að undanförnu verið að
syngja í afar sérstæðri óperu,
Dagbók Önnu Frank eftir Grigori
Frid, en verkið er byggt á heims-
frægri dagbók gyðingastúlkunnar
hollensku. Þóra syngur eina hlut-
verk óperunnar, Önnu Frank. Það
er Musik Theater Werkstadt-
leikhúsið í Wiesbaden sem setur
sýninguna upp, og henni hefur
verið ákaflega vel tekið. Gagnrýn-
endur hafa keppst við að mæra
frammistöðu Þóru og þykja söng-
ur hennar og túlkun mikill sviðs-
sigur fyrir hana.
Axel Zibulski gagnrýnandi
Wiesbadener Kurier tekur svo
djúpt í árinni að segja að eig-
inlegur styrkur verksins liggi í
stórfenglegri túlkun Þóru. „Söng-
konan er sannfærandi sem ung-
lingsstúlka en býr þó yfir þeim
þroska raddarinnar sem gerir
henni kleift að syngja samfellt í
rúman klukkutíma.
Fyrst ber að nefna frábæran
textaframburð, sem er nauðsyn-
legt grundvallaratriði í þessari óp-
eru, en framburðurinn kemur þó
aldrei niður á vel mótuðum laglín-
unum…“
Elisabeth Risch gagnrýnandi
Frankfurter Allgemeine Zeitung
tekur í sama streng og segir að
líklega yrði óperan sett upp mun
oftar ef til boða stæðu sópr-
ansöngkonur eins og Þóra. „Hún
er afar úthaldsgóð og tónviss í til-
finningaþrunginni og áherslumik-
illi sönglínu, sem liggur oftast á
óþægilegu sviði og markast af
krómatískri- og heiltóna tónlist –
og það með útgeislun og útliti
unglingsstúlku. …“
Frumsýning á Önnu Frank var í
Wiesbaden 15. júní, en aðeins
fimm dögum áður stóð Þóra á
sviðinu í Ríkisóperunni í Darm-
stadt, þar sem hún söng í óp-
erunni Platée eftir Rameau, þar
sem hún fór með tvö hlutverk. Um
þá sýningu skrifaði Benedikt Ste-
geman í Frankfurter Allgemeine
Zeitung: „[…] hins vegar voru
mörg leikræn glansnúmer í sýn-
ingunni. Með þægilegri og bjartri
sópranrödd tókst Þóru Ein-
arsdóttur á áhrifaríkan hátt að
gera alla orðlausa af undrun í hinu
tvöfalda hlutverki sínu: Fyrst sem
rafmögnuð og kynþokkafull Amor
í forleiknum, en síðar leikur hún í
hinni eiginlegu óperu hina nið-
urbældu þjónustustúlku gyðj-
unnar.“
Þá hefur Þóra einnig verið að
syngja í Siegfried, annarri af fjór-
um óperum Niflungahrings Wagn-
ers, og farið þar með hlutverk
skógarfuglsins. Umsagnir um
frammistöðu hennar í því hlut-
verki hafa verið á sömu lund og
gagnrýnendum verið tíðrætt um
fegurð svífandi silfraðrar söng-
raddar hennar.
Þóra Einarsdóttir var aðeins 23
ára þegar hún debúteraði við
Glyndebourne Festival Opera eftir
söngnám hér heima, en fyrsta
hlutverk hennar hér heima og
frumraun á sviði var í Rigoletto í
Íslensku óperunni fimm árum áð-
ur.
Þóra hefur sungið víða síðan og
óperuhlutverkin hafa hrannast
upp. Hún hefur sungið í óp-
eruhúsum á Norðurlöndunum, á
Englandi, í Sviss og í Þýskalandi,
þar sem hún býr nú. Hlutverkin
eru orðin á fjórða tug og spanna
vítt svið allt frá Rameau til Birt-
wistle en þó með sérstakri áherslu
á Mozart, en Þóra hefur nú sungið
yfir hundrað sinnum í óperum
Mozarts. Þóra syngur á næstunni
hlutverk Woglinde í Götterdäm-
merung og hefur þar með sungið í
öllum fjórum óperum Niflunga-
hringsins eftir Wagner en hring-
urinn verður fluttur í heild sinni á
næsta leikári í ríkisóperunni í
Wiesbaden.
Þóra
mærð í
hlutverki
Önnu
Frank
Ljósmynd/Martin Kaufhold
Þóra Einarsdóttir fékk einróma lof fyrir söng og leik í hlutverki Önnu Frank.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is