Morgunblaðið - 03.07.2005, Side 50

Morgunblaðið - 03.07.2005, Side 50
50 SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Sumarkvöld við orgelið í Hallgrímskirkju 3. júlí kl. 20.00: Sænski spunasnillingurinn Mattias Wager leikur verk m.a. eftir Bach, Pärt og Mozart af fingrum fram Þriðjudagstónleikar Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70, 105 Rvík. www.lso.is - lso@lso.is 5. júlí kl. 20:30 Tríó Trix Sigríður Bjarney Baldvinsdóttir fiðla, Vigdís Másdóttir víóla og Helga Björg Ágústsdóttir selló flytja Serenöðu op. 10 eftir Dohnányi og Strengjatríó í a moll eftir Max Reger. ÍSLENSKUR kaupsýslumaður í Litháen hefur fest kaup á verki eft- ir einn kunnasta listamann Litháa, Maríu Teresu Rozanskaite. Þau skilyrði voru sett við kaupin, að verkið yrði aldrei flutt úr landi og að einn mánuð á hverju ári yrði það sýnt almenningi í listasafni í Lithá- en. Verkið heitir 1941, og lýsir sýn listakonunnar á eigin ævi og örlög þjóðar sinnar. Ferill Maríu Teresu Rozanskaite hófst á sjöunda áratug síðustu aldar, á blómaskeiði lithá- íska málverksins. Listamenn höfðu sagt skilið við raunsæisstefnu eft- irstríðsáranna, og litríki og djarfar pensilstrokur einkenndu stór og mikil verk þeirra. En þótt form og stíll hefðu tekið þessum breyt- ingum, var tjáningarfrelsi enn ekki ómælt, og listamenn þurftu að una því að eftirlit var haft með efni verka þeirra. María Teresa Roz- anskaite fann sína eigin leið í list- rænni tjáningu; – leið sem hvorki var samstíga sovétlistinni né kvist- ur af þjóðlegum litháískum meiði. Hún var einn fyrsti listamaður þjóðar sinnar til að skapa klippi- myndir og að setja saman myndir úr margvíslegum efniviði. Þessar aðferðir voru ekki viðurkenndar af sovéskum yfirvöldum og því skóp hún sín stóru verk einvörðungu fyr- ir sjálfa sig og vini, og hafði engin tök á að koma þeim á framfæri við almenning. Í samsettu verkunum fléttar Rozanskaite jafnan þrjár sögur: sögu þjóðar sinnar, eigin sögu og listasöguna. Verkið 1941 þykir eitt það mik- ilvægasta á listferli hennar, en það var gert árið 1972. Þar lýsir hún endurminningum sínum átta ára gamallar, þegar hún var send með fjölskyldu sinni í útlegð til Síberíu eftir hernám Sovétríkjanna á Lithá- en, árið 1941. Um 17.500 manns voru fluttir nauðungarflutningum frá Litháen austur til Síberíu. Á myndinni sést rauður lest- arvagn, og á honum stendur hvítum stöfum, á rússnesku nafn áfanga- staðarins og sá tími sem fjölskyldan dvaldi þar. Þrjár höfuðlausar verur standa á brautarpallinum huldar svörtu klæði. Þær eru tákn sorg- arinnar. Ein þeirra er hulin að hluta, og bakhluti hennar sést ber. Nakinn plastbúkur liggur á jörðinni rétt hjá. Líta má svo á að verurnar séu konur, en þeim hefur verið mis- þyrmt hrottalega. Stórt gat í miðri mynd truflar ekki aðeins flæði myndflatarins, heldur sýnir líka hve brothætt lífið er andspænis eyðing- aröflunum. Á vinstri hönd sést hvar dúkkur og dótabrot hrynja undan faldi huldu verunnar. Líkamar fólks voru vanvirtir, menning þjóð- arinnar var vanhelguð, og jafnvel rúmi og minningum manneskjunnar var misboðið. Meira að segja him- inninn er sundurtættur í skær- bleikum, gulum og dökkbláum lit- um. Myndin af litla barninu er kannski einasta vonin í myndinni, jafnvel þótt það sé umlukið svartri hulu. Lifir það af? Mun gullna áran í kringum það vernda það? Það veit enginn. En María Teresa Rozanskaite lifði af, og í dag er hún í röð fremstu listamanna þjóðar sinnar og tilnefnd til Þjóðarverðlaunanna litháísku. Hún sinnir listinni enn, skapar jöfnum höndum málverk, innsetningar og hluti sem afhjúpa glataðar sögur. Byggt á grein eftir litháíska listfræðinginn Laima Kreivyta. Kaupir litháíska gersemi FIMM indversk- ar dansmeyjar dansa hér hinn sígilda dans „Bharat- anatyam“ á menningarhátíð nokkurri í borg- inni Chandigarh í vikunni. Dans þessi nýtur mik- illar hylli þar um slóðir. Dansað á Indlandi Reuters mbl.is smáauglýsingar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.