Morgunblaðið - 03.07.2005, Page 56

Morgunblaðið - 03.07.2005, Page 56
56 SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ War of the Worlds kl. 3.30 - 6 - 8.30 - 11 b.i. 14 Batman Begins kl. 5 - 7 - 9 og 11 b.i. 12 Inside Deep Throat kl. 10,15 Stranglega b.i. 16 ára Voksne Mennesker kl. 5.45 og 8 Crash kl. 5.45 - 8 og 10.15 b.i. 16 ÁLFABAKKI BATMAN EINS OG ÞÚ HEFUR ALDREI SÉÐ HANN ÁÐUR ! Nýr og miklu betri leðurblökumaður. H.L. / Mbl. Loksins, Loksins  M.M.M / Xfm 91,9  Kvikmyndir.is Gleymdu hinum. Þetta er alvöru Batman Ó.Ö.H / DV Gleymið öllum hinum Batman myndunum. Þessi er málið Andri Capone / X-FM 91,9 Þórarinn Þ / FBL  D.Ö.J. / Kvikmyndir.com “Einn af stærstu smellum ársins.”  B.B. Blaðið i f t r t ll r i . . . l i H.B. / SIRKUS T O M C R U I S E     MYND EFTIR Steven spielberg I N N R Á S I N E R H A F I N MYND EFTIR Steven spielberg I N N R Á S I N T O M C Powersýning í álfaba THE WAR OF THE WORLDS kl. 2 - 3.20 - 5.40 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára. THE WAR OF THE WORLDS VIP kl. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.30 BATMAN BEGINS kl. 2 -3.30 -4.30 -5 - 6.30 -7.30 -8 -9.30 -10.30 -10.50 B.i. 12 ára. A LOT LIKE LOVE kl. 6 - 8.15 - 10.30 SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 2 - 4 HÁDEGISBÍÓ 400 KR. MIÐAVERÐ Á A „Innrásin er girnileg sumar skemmtun, poppkorns mynd af bestu gerð!“ -S.V, MBL  „EKTA STÓRSLYSAMYND“ -Ó.Ö.H, DV  -KVIKMYNDIR.IS  -Ó.H.T, RÁS 2  „Innrásin er girnileg sumarskemmtun, poppkornsmynd af bestu gerð!“ -S.V, MBL  „EKTA STÓRSLYSAMYND“ -Ó.Ö.H, DV  -KVIKMYNDIR.IS  -Ó.H.T, RÁS 2  Í NÝLEGU viðtali sem tekið var við liðsmenn Hudson Wayne í tilefni af útgáfu umræddrar fyrstu breiðskífu þessarar þriggja ára gömlu sveitar þá lýsa þeir tón- list sinni – sum- part í gríni að virðist – sem „ís- lenskri þung- lyndistónlist“. Það er ekki svo fjarri lagi hjá þeim blessuðum. Í það minnsta er afar djúpt á hressleik- anum, enda hafa einmana bandítar með blóðbragð í munni litla ástæðu til að vera hressir. Þráinn söngvari segir nefnilega textana segja þessa sögu af átökum milli tveggja bandíta-flokka, og jafnvel þótt erfitt sé yfir höfuð að greiða þann þráð í býsna torræðum textum þá tekst Hudson Wayne með tregafullum og löðursveittum sléttu- tónum sínum að skapa einmitt slíka stemmningu. Eins og maður eigi leið um sjóðheita Texas auðnina nærri mexíkönsku landamærunum og finni þar fyrir hornreka íslenska gríngóa með gítara um háls og heiminn á herðum sér, sökkera fyrir skugga- hliðum lífsins, tregafullum örlaga- ballöðum. Og af þeim er hún einmitt uppfull, fyrsta breiðskífa Hudson Wayne, tregafullum örlagaballöðum, sem sverja sig í ætt við þær sem Nick Cave ruddi brautir með og aðrir – Tindersticks, Low, Spain – gerðu að sínum og þróuðu áfram. Eftir að hafa fetað mjög í fótspor þessa augljósu áhrifavalda á undangengnum smá- skífum eru Hudson Wayne einmitt að afreka hið sama hér; að gera þessa arfleifð Cave að sinni og þróa áfram – sem er vel. Áður leituðu þeir en nú hafa þeir fundið, að mestu. Og sá fundur sem mestan áhuga vekur, girnilegustu teiknin um hvert sveitin kann að vera að stefna, eru þau lög sem eru í kraftmeiri kantinum; lög á borð við besta lag plötunnar „Jer- ome“, „Desert/The Battle of the Bandidos“ og „Sentimental Sweat- er“; það er svolítið meira pönk í þess- um lögum, meiri villimennska innan um hinar fínustu melódíur. Í þessum lögum, sem og upphafslaginu „Tiger- man“, verður hvað skýrust sú sér- staða Hudson Wayne sem virðist vera í mótun og styrkurinn framyfir þær óteljandi sveitir sem hjakka fast- ar í Cave-bremsufarinu og komast ekki uppúr. Í „Sentimental Sweater“ má þannig greina einhverja virkilega girnilega og framandi samsuðu af Tindersticks og Strokes, eins ólíkar og þær ágætu sveitir nú eru. Þá virka Calexico-skotnu blásturskaflarnir einmitt í þeim lögum, sem svöl og kærkomin vindhviða í næstum óbæri- legri hitastækju sem annars hvílir yf- ir plötunni. Það er vonandi að þessir fersku vindar vísi hinum íslensku bandítum veginn úr auðninni á vit frekari ævintýra í ætt við ofannefnd lög. Þótt kápan sé vönduð og yfir með- allagi smekkleg þá er hún óþarflega keimlík kápum The Funerals enda er hönnuðurinn sá sami, Ragnar Kjart- ansson, liðsmaður The Funerals. Bandítabardagi Hudson Wayne verður seint talinn æsilegur og tíð- indamikill en eins og allir sannir bar- dagar sætir hann vissum tíðindum og skilur hann eftir sig sviðna jörð og blóði drifna slóð. Hornrekar norðursins TÓNLIST Íslenskar hljómplötur Fyrsta breiðskífa hljómsveitarinnar Hud- son Wayne. Sveitina skipa á plötunni: Þráinn Óskarsson, söngvari og gítarleik- ari, Birgir Viðarsson hljómborðsleikari og Helgi Alexander Sigurðsson bassaleikari og Þormóður Dagsson trommuleikari. Lagasmíðar og upptökustjórn: Hudson Wayne. Textar eru eftir Þráin. Hildur Guðnadóttir leikur á selló, Ólöf Arnalds fiðlu og syngur, Þorgeir Guðmundsson syngur og Áki Ásgeirsson leikur á tromp- et. Útgefandi 12 Tónar. Hudson Wayne – The Battle of the Bandidos  Ljósmynd/Höskuldur Jónsson Einmana og hornreka í auðninni – en þó á réttri leið. Skarphéðinn Guðmundsson Söngkonan og ÍslandsvinurinnPink bað kærasta síns til þriggja ára síðastliðna helgi. Verð- andi brúðguminn heitir Carey Hart og er mótorkross-appi. Bónorðið skrifaði Pink á spjald sem hún veifaði í áhorfendastúkunni á Pro 250-mótorkrossmótinu sem fram fór í Kaliforníu. Mun Hart hafa játast henni sam- stundis eftir að hann rak augun í spjaldið. Ekki hefur verið ákveðið hvar eða hvenær brúðkaupið mun fara fram en þetta er fyrsta hjónaband beggja. Pink er ein vinsælasta söngkona síðari ára og hefur unnið til þrennra verðlauna auk þess að selja ógrynnin öll af plötum. Hún hélt tónleika hér á landi í fyrra í Laugardalshöllinni. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.