Morgunblaðið - 04.07.2005, Side 35
Frá leikstjóra Bourne Identity
400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningar merktarmeð rauðu
Sýnd kl. 6 og 8
553 2075☎
- BARA LÚXUS
Bourne Identity
„Þrælgóð skemmtun“
Ó.Ö.H - DV
Blaðið
Blaðið
ÞÞ - FBL
Miðasala opnar kl. 17.00
Hinn eini rétti
hefur aldrei verið
eins rangur!
Frábær
gamanmynd
sem fór beint á
toppinn í USA.
Sýnd kl. kl. 6, 8.30 og 10.40
„Skotheld frá A-Ö
Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
„Þrælgóð skemmtun“
Ó.Ö.H - DV
Missið ekki af svölustu mynd
sumarsins með heitasta pari heims!
AÐSÓKNARMESTA MYND ÁRSINSyfir 38.000 gestir
x-fm
Sýnd kl. 6 og 9 B.i 10 ÁRA Sýnd kl. 5.40 og 8 B.i 16 ÁRA
JANE
FONDA
JENNIFER
LOPEZ
kl. 10.10 B.i 16 ÁRA
ÞÞ - FBL
Bourne Identity
Blaðið
„Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i 14 ára
Ó.Ö.H - DV
Síðustu sýningar
Síðustu sýningar
Sýnd kl. 10.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 B.i 14 ára
T O M C R U I S E
MYND EFTIR
Steven spielberg
I N N R Á S I N
E R
H A F I N
YFIR 30.0
00 GESTIR
POWERSÝNINgá stærsta thxtjaldi landsins
kl. 10.20
„Innrásin er girnileg
sumarskemmtun,
poppkornsmynd
af bestu gerð!“
-S.V, MBL
„EKTA STÓRSLYSAMYND“
-Ó.Ö.H, DV
-KVIKMYNDIR.IS
-Ó.H.T, RÁS 2
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2005 35
„ÞETTA var alveg með ólíkindum.
Fullt upp um alla stiga og upp í rjáfur
í Smáralindinni og það á einni
stærstu ferðamannahelgi ársins,“
sagði Einar Bárðarson hjá Concert
ehf., sem flutti norsku glysrokkarana
í Wig Wam til landsins. „Þetta kom
þeim sjálfum líka á óvart, ánægjulega
auðvitað.“ Áætlað er að hátt í fimm
þúsund manns hafi séð sveitina í
Vetrargarðinum í Smáralind á laug-
ardag en miðarnir 750 sem í boði voru
á Gaukinn um kvöldið seldust upp.
„Þar var sama uppi á teningnum,
alveg ótrúleg stemning. Þessir gæjar
eiga hug og hjörtu Íslendinga. Ef þeir
fengu tólf stig frá okkur í Evróvisjón
fá þeir 14 stig fyrir þetta, ekki spurn-
ing“ sagði Einar jafnframt. Eðlilega
brennur það á svekktum aðdáendum
sem ekki sáu goðin um helgina hvort
Einar hyggist fá þá aftur hingað til
tónleikahalds. „Við ætlum að reyna
að koma þeim aftur til Íslands í
ágúst,“ segir hann en bendir á að það
geti orðið erfitt – þeir hafi verið með
60 gigg í júní um alla Skandinavíu og í
Þýskalandi. Félagi „strákanna“ í Wig
Wam, Eiríkur Hauksson, kom fram
með þeim á Gauknum svo þetta var
alvöru Evróvisjón-stemning, sam-
kvæmt því sem Einar segir.
Hann segir hafa komið á óvart
hversu öflugir Wig Wam voru í töku-
lögum, en að sögn náðu þeir upp ríf-
andi stemningu með ýmsum þekktum
rokkslögurum. „Svo rifnaði auðvitað
þakið af húsinu þegar þeir tóku In
My Dreams (Come On).“
Tónlist | Gríðarleg stemning á Gauknum og í Smáralind
„Wig Wam: Fjórtán stig!“
Morgunblaðið/ÞÖK
Komu, sáu og sigruðu. Ef ekki í Kænugarði, þá í Vetrargarði.
Morgunblaðið/Eggert
Baksviðs á Gauknum. Wig Wam-liðar hressir að vanda.
Í NÝLISTASAFNINU opnaði um helgina sýningin
WELOVEICELAND. WeLove er hópur erlendra og ís-
lenskra listamanna sem kemur saman á Íslandi í „nafni vin-
áttunnar til að lifa, skapa og elska. Sköpunarferlið er jafn
mikilvægt og sjálf útkoman. Við vinnum með kaótík, hraða,
greddu og glimrandi fjör. Í hópnum eru bæði villtir náttúru-
unnendur og tryllt partýdýr.“
Hópurinn dvaldi í viku á Seyðisfirði og vann úr reynslunni
þaðan auk ýmislegs annars. Innan hópsins starfar gjörn-
ingahópurinn Dreamachine sem flutti uppákomuna Chanel
Fuck the Cats á opnuninni á laugardag.
Sýningin stendur til 24. júlí.
Við elskum Ísland
Frá sýningunni WELOVEICELAND sem stendur yfir í Nýló.
Morgunblaðið/ÞÖK
Svanhvít Tryggvadóttir og Adda Sigurdórsdóttir.
SÁLARSÖNGVARINN Luther
Vandross er látinn, aðeins fimm-
tíu og fjögurra ára að aldri.
„Hann var tónlistarmaður sem
gat ekki annað en gefið allt sem
hann átti til,“ sagði vinkona hans
til tuttugu ára, söngkonan Ro-
berta Flack.
Dánarorsök hefur ekki verið
gefin upp en Vandross fékk al-
varlegt hjartaáfall fyrir tveimur
árum og mun aldrei hafa náð sér
almennilega.
Hann seldi 25 milljón plötur á
ferlinum. Þrátt fyrir áfallið hélt
hann áfram að taka upp tónlist
en kom þó aldrei aftur fram op-
inberlega. Síðasta plata hans,
Dance With My Father, vann til
fernra Grammy-verðlauna en það
voru sannarlega ekki fyrstu verð-
launin sem Vandross fékk fyrir
tónlist sína.
Hann kom fyrst fram sem bak-
raddasöngvari fyrir David Bowie
á áttunda áratugnum en síðan þá
lá leiðin aðeins upp á við. Fyrsta
sólóplatan kom út 1981 og fyrstu
Grammy-verðlaunin duttu inn ár-
ið 1990 fyrir lagið Here and Now,
en fimm í viðbót árið eftir fyrir
The Power Of Love.
Luther Vandross látinn
Reuters