Morgunblaðið - 07.07.2005, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 181. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Elvis í
Egilshöllinni?
Skarphéðinn Guðmundsson fann
rokkkónginn í Grafarvogi | Menning
Viðskipti | Færeyskir gullleitarmenn Ofgnótt peninga Vel að sér
um alla hluti Íþróttir | Gerrard áfram á Anfield Atli Eðvaldsson
tekur við Þrótti Málið | Frekjukast Svölu Stefani hannar tískufatnað
BUSH Bandaríkjaforseti átti 59 ára afmæli í
gær og var haldin veisla til heiðurs honum í
Fredensborg í Danmörku. Margrét drottning
fylgdist með forsetanum blása á kertin. | 13
Reuters
Blásið á 59 kerti í Danmörku
HJÖRTUR Gíslason, skurðlækn-
ir á Landspítala – háskólasjúkra-
húsi, er á leið til Noregs með
haustinu til að aðstoða frændur
okkar við að léttast. Mun hann
dveljast ytra í a.m.k. hálft ár í
þeim tilgangi að koma starfinu á
legg, stjórna því og kenna. Norð-
menn horfa til Íslands og ís-
lenska módelsins varðandi offitu-
aðgerðir, sem hefur að sögn
Hjartar gefið góða raun. Um er
að ræða hjáveituaðgerð þar sem
tengt er framhjá 95% magans og
hluta mjógirnisins, en fram að
þessu hafa Norðmenn notað sult-
araðgerð við offitu sem, að sögn
Hjartar, hefur ekki skilað nægi-
lega góðum langtímaárangri.
Ráðgert er að afgreiða um þús-
und sjúklinga á ári í undirbún-
ingsmeðferð fyrir aðgerðina. | 4
Sker upp herör
gegn offitu í Noregi
„EF ekki er hægt að treysta því að blaða-
maður tryggi trúnað geta blaðamenn ekki
sinnt starfi sínu, fjölmiðlar geta þá ekki ver-
ið frjálsir,“ sagði Judith Miller, 57 ára gam-
all blaðamaður hjá bandaríska blaðinu The
New York Times, fyrir rétti í Washington
gær. Hún var dæmd í fangelsi fyrir að neita
að gefa upp nöfn á heimildarmönnum, að
sögn AP-fréttastofunnar.
Málið snýst um skrif Millers í tengslum
við rannsókn á því hvaða embættismaður
stjórnar George W. Bush forseta hafi lekið í
fjölmiðla nafni á einum liðsmanni leyniþjón-
ustunnar, CIA. Um er að ræða Valerie
Plame, eiginkonu Josephs Wilsons, fyrrver-
andi sendiherra, sem gagnrýnt hafði stefnu
Bush gagnvart Írak. Skömmu síðar var
nafni Plame lekið í fjölmiðla.
Refsivert getur verið að birta nöfn CIA-
manna sem taka þátt í aðgerðum. Miller
skýrði ekki sjálf frá nafni Plame en hefur
skrifað um rannsóknina á upplýsingalekan-
um. Hún hefur hins vegar neitað að segja
saksóknara sem rannsakar lekann, Patrick
Fitzgerald, frá heimildum sínum.
Cooper slapp á síðustu stundu
„Blaðamenn hafa ekki leyfi til að heita al-
gerum trúnaði – enginn hefur leyfi til þess í
Bandaríkjunum,“ sagði Fitzgerald í vik-
unni. Thomas F. Hogan dómari tók málið
fyrir í gær og ákvað að reyna að þvinga
Miller til sagna með því að fangelsa hana.
Miller stóð á fætur þegar niðurstaðan var
ljós, faðmaði verjanda sinn og var leidd út.
Mun hún sitja inni þangað til málið verður
tekið fyrir á öðru dómsstigi í október nema
hún ákveði að leysa frá skjóðunni.
Matthew Cooper, blaðamaður á vikurit-
inu Time, átti einnig á hættu að verða
dæmdur í fangelsi fyrir sömu sakir og Mill-
er. En Cooper sagðist hafa skipt um skoðun
þegar hann, rétt áður en hann kom fyrir
dómarann í gær, fékk óvænta upphringingu
frá heimildarmanni sínum. Hafi hann tjáð
honum að hann mætti ljóstra því upp hvar
hann hefði fengið upplýsingarnar.
Neitar að
segja til
heimildar-
manna
Bandarísk blaðakona
í fangelsi fyrir að
neita að rjúfa trúnað
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Reuters
Judith Miller, blaðamaður við bandaríska
dagblaðið The New York Times.
ÖRYGGISGÆSLA vegna heimsóknar
George W. Bush Bandaríkjaforseta til Dan-
merkur var ein sú viðamesta sem hefur verið
viðhöfð þar í landi. Bush var að heimsækja
Danmörku í fyrsta sinn og kom þangað síð-
degis á þriðjudag, ásamt Lauru konu sinni og
Jennu dóttur sinni, og fór þaðan um hádegi í
gær, beint á þriggja daga leiðtogafund G8-
ríkjanna sem hófst í Gleneagles í Skotlandi í
gær.
Til marks um þá gríðarlegu öryggisgæslu
sem var viðhöfð vegna komu Bush til Dan-
merkur var gerð sprengju- og vopnaleit á leik-
skólanum Børnehuset í Holte, sem Laura
Bush heimsótti í gær í boði Önnu-Mette
Rasmussen, eiginkonu danska forsætisráð-
herrans, en Børnehuset er vinnustaður Ras-
mussen. Áður en Laura Bush mætti á leik-
skólann fóru sprengjuleitarhundar um
húsnæði hans auk þess sem vopnaleit var gerð
á börnunum sjálfum og í nestisboxum þeirra.
Vopnaleit
á dönskum
leikskóla-
börnum
GYLFI Arnbjörnsson, sem var
framkvæmdastjóri Eignarhalds-
félags Alþýðubankans (EFA) þeg-
ar Baugur keypti Vöruveltuna hf.
sem rak verslanir 10–11, kannast
ekki við lýsingu Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar, forstjóra Baugs, á
þeirri atburðarás sem lauk með
kaupum á Vöruveltunni 1999. EFA
hafi ekki gert tilboð í hlutafé í
Vöruveltunni.
Þá hafi krafa EFA við kaup á
hlut í Vöruveltunni m.a. verið sú
að tryggja dreifða eignaraðild.
„Síðan gerðist bara eitthvað allt
annað.“ Opinberlega hafi það ekki
verið viðurkennt að Baugur væri
eignaraðili að fyrirtækinu. „Ég
taldi það hins vegar svo vera. Ég
mat málið þannig að í gangi væri
leppun á þessu eignarhaldi sem við
hjá EFA hefðum verið flæktir inn í
að ósekju,“ segir Gylfi.
Ásakanir í garð Jóns Ásgeirs
lúta m.a. að því að hann hafi verið
búinn að kaupa Vöruveltuna þegar
Baugur keypti hana en leynt því
fyrir öllum, m.a. stjórn Baugs, að
því er fram kemur í bréfi Jóns Ás-
geirs til ríkislögreglustjóra er birt
var í Morgunblaðinu sl. laugardag.
Ekki boðaðir á hluthafafund
Í bréfinu segir m.a. að eftir að
EFA hafi gert tilboð í hlutafé í
Vöruveltunni hafi hann haft frum-
kvæði að því að kanna hvort Baug-
ur gæti eignast fyrirtækið. Það
hafi gengið eftir en hann hafi sjálf-
ur þurft að greiða mismuninn á til-
boði Eignarhaldsfélagsins og
Baugs, um 135 milljónir króna.
Gylfi segir að Eignarhaldsfélag-
ið hafi aldrei gert slíkt tilboð.
„Þessa lýsingu sem Jón Ásgeir er
með þarna, hana kannast ég ekki
við.“
Að sögn Gylfa keypti EFA
ásamt lífeyrissjóðum 35% hluta-
fjár í Vöruveltunni í nóvember
1998 fyrir milligöngu Íslands-
banka. EFA hafi þá verið tjáð að
aðrir eigendur væru Fjárfar ehf.
og að eigendur þess væru Árni
Samúelsson, hjá Sambíóunum,
Sigfús R. Sigfússon í Heklu, Sæv-
ar Jónsson kaupmaður og Trygg-
ingamiðstöðin. Auk þess ætti
Helga Gísladóttir, annar stofnandi
þess, 25% hlut. Gylfi segir að EFA
hafi m.a. gert þá kröfu við kaupin
að þegar Vöruveltan yrði skráð á
markað myndi Fjárfar verða leyst
upp og eigendur þess hver um sig
yrðu beinir eignaraðilar að félag-
inu. Með þessum hætti átti að
tryggja dreifða eignaraðild. Þegar
EFA kom að fyrirtækinu hafi hins
vegar verið búið að taka ákveðnar
ákvarðanir og haldnir hluthafa-
fundir sem EFA fékk ekki boð um.
Svo hafi virst sem allt aðrir eig-
endur væru að fyrirtækinu en
EFA hefði verið greint frá. Gylfi
segist hafa metið það svo að fyrir
utan 35% hlut EFA og lífeyrissjóð-
anna, væri það í eigu Baugs með
einum eða öðrum hætti.
Gylfi Arnbjörnsson, áður framkvæmdastjóri EFA, um kaup Baugs á 10–11
Leppun eignarhalds sem
EFA flæktist að ósekju inn í
Kannast ekki | 10
Kannast ekki við lýsingu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á atburðarásinni
Viðskipti, Íþróttir og Málið