Morgunblaðið - 23.07.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 197 . TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Enn á
leiðinni
Pálmi Gunnarsson 40 ár
í bransanum | Menning
Lesbók, Börn og Íþróttir
Lesbók | Að lesa veður af trjám Af óperuhúsum í Rússlandi
og Reykjavík Börn | Nýtt Harry Potter-æði Íþróttir | Þórdís
Geirsdóttir með örugga forystu Isinbajeva yfir fimm metrana
LAXVEIÐIMENN á Vesturlandi hafa
haft ástæðu til að kætast í sumar, en
metveiði er nú þar í ýmsum ám.
Veiðst hafa um 2.100 laxar í Þverá og
Kjarrá það sem af er sumri, en í fyrra
veiddust þar alls 1.380 fiskar, að sögn
Jóns Ólafssonar leigutaka ánna. Með-
altalsveiði undanfarinna 20 ára yfir allt
laxveiðitímabilið er um 1.900 fiskar
þannig að árnar eru nú þegar komnar
vel yfir það. „Meðalveiði á hvern stang-
ardag í Þverá/Kjarrá er 4,11 laxar,“
sagði Jón. Hann sagði að tveggja ára
lax hefði vantað í veiðina í sumar en
fiskurinn hefði verið afskaplega vænn.
Veiði hefur einnig verið með besta
móti í Norðurá. Um hádegi í gær voru
komnir á land 2.063 laxar úr Norðurá
allri, að sögn Mjallar Daníelsdóttur, sem
rekur veiðihúsin við Norðurá og Hítará.
Til samanburðar var heildarveiðin allt
tímabilið í fyrra 1.389 laxar. „Það verð-
ur veisla hérna þegar veiðin verður
komin í 2.500 laxa,“ sagði Mjöll glöð í
bragði.
Frábær
laxveiði á
Vesturlandi
Morgunblaðið/Einar Falur
Á leið heim! Lax stekkur í Sjávarfoss í Langá.
MIKIL skelfing greip um sig í
Lundúnaborg í gær eftir að lög-
reglumenn skutu til bana á Stock-
well-brautarstöðinni mann, sem
staðfest er að tengist sprengjutil-
ræðunum á fimmtudag. Stuttu síð-
ar var annar maður handtekinn í
húsi við Stockwell í suðurhluta
London. Húsleit var gerð á svæð-
inu. Var manninum haldið vegna
gruns um að undirbúa, hvetja til og
standa fyrir hryðjuverkum. Hann
var yfirheyrður á Paddington
Green-lögreglustöðinni.
Óttast nýja stefnu
Fulltrúar breskra múslíma segj-
ast óttast það að lögreglan hafi tek-
ið upp stefnu sem miði að því að
„skjóta og drepa“ og segjast þeir
hafa fengið margar fyrirspurnir
frá múslímum sem viti ekki hvern-
ig þeir eigi að haga sér til að forð-
ast það að vera skotnir.
Án efa rétta leiðin
Ken Livingstone, borgarstjóri
Lundúnaborgar, segir þetta þó „án
efa“ vera réttu leiðina til að eiga við
grunaða sjálfsmorðsárásarmenn.
„Þegar við erum að eiga við menn
sem ætla að fremja sjálfsmorðs-
árás geta þeir kveikt á sprengibún-
aðinum séu þeir enn með meðvit-
und,“ sagði hann. „Þess vegna er
án efa nauðsynlegt að skjóta til að
drepa við þessar aðstæður.“
Ian Blair, yfirmaður lögreglunn-
ar í London, sagði manninn ekki
hafa hlýtt boðum lögreglumanna,
þeir hefðu elt hann inn á brautar-
stöðina á harðahlaupum og þar
hefði hann verið skotinn fimm
skotum.
Myndir af mönnunum, sem tald-
ir eru hafa reynt að fremja hryðju-
verkin á fimmtudag, voru birtar í
gær. Þær eru teknar úr eftirlits-
myndavélum á lestarstöðvunum
þremur og í strætisvagninum þar
sem hvellhetturnar sprungu.
„Nauðsynlegt að
skjóta til að drepa“
Lögreglumenn skutu grunaðan hryðjuverkamann til bana í
Lundúnum – annar handtekinn á sömu slóðum stuttu síðar
Eftir Jóhönnu Sesselju Erludóttur
jse@mbl.is
Reuters
Vopnaðir lögreglumenn standa vörð á meðan húsleit stendur yfir í tengslum við sprengjuárásirnar sem átt
hafa sér stað í Lundúnum. Lögreglumenn skutu einn mann til bana í gær og handtóku annan.
Hryðjuverkin í London | 18
London. AP. AFP. |
Hryðjuverkin í London
gætu kostað borgina
300 milljónir punda,
eða um 34 milljarða ísl.
króna, í tekjur af ferða-
mönnum að því er þar-
lend ferðaþjónustufyr-
irtæki halda fram.
Verslunarrekstur
hafði loks komist í eðli-
legt horf eftir árásirnar 7. júlí, þegar
hryðjuverkamenn létu til skarar skríða á
ný. Eftir árásirnar nú á fimmtudag féll
fjöldi viðskiptavina verslana í höfuðborg-
inni um 27%, miðað við sama dag fyrir
ári, og er búist við að tekjur af ferðaþjón-
ustu verði a.m.k. tveimur prósentustigum
undir áætlun fyrir árið 2005.
Óttast menn nú að ferðalangar líti ekki
lengur á sprengingar sem einstakan at-
burð heldur yfirvofandi hættu og leggi
því síður leið sína til London. Það að
sprengingarnar á fimmtudag áttu sér
ekki stað á háannatíma, eða á fjölförnum
leiðum samgöngukerfisins, eykur enn á
þá upplifun ferðamanna að þeir séu
hvergi öruggir.
Engin röskun hjá flugfélögum
Sprengjuárásirnar virðast ekki hafa
haft neikvæð áhrif á flug Icelandair og
Iceland Express til og frá London að sögn
forsvarsmanna flugfélaganna. Enginn
hefur afbókað flug en nokkrir hafa fengið
að breyta flugi og þá flogið nokkrum dög-
um seinna en áætlað var. Bæði flugfélögin
felldu niður breytingargjald vegna
hryðjuverkanna á fimmtudag. „Mér er
óhætt að segja að líkt og um daginn þá
virðist þetta ekki hafa nein áhrif á okkar
bókanir eða áætlanir,“ segir Guðjón Arn-
grímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.
Óttast efna-
hagsáhrif
árásanna
Kaíró. AP. | Þrjátíu manns, hið minnsta, fórust í
sprengingum í Sharm el-Sheikh, fjölsóttum
ferðamannastað í Egyptalandi, seint í gær-
kvöldi. Að minnsta kosti 110 eru særðir.
Margar sprengingar samtímis
Talsmenn lögreglu á staðnum segja fleiri en
eina sprengju hafa sprungið og það nær sam-
stundis um klukkan kortér yfir eitt í nótt að
staðartíma í nágrenni við nokkur hótel.
Ekki var ljóst hversu margar sprengjurnar
voru, en talið er að þær hafi verið á bilinu þrjár
til sjö. Var þeim að öllum líkindum beint að
Ghazala Gardens- og Möwenpick-hótelunum á
ströndinni við Naama-flóa og gamla markaðs-
svæðinu í nágrenni við þau.
Sjónarvottar segja Ghazala Gardens-hótelið
mikið skemmt. „Það er algjörlega ónýtt, mikið
brunnið,“ sagði Amal Mustafa, sem ók þar hjá.
Óstaðfestar fregnir herma að þrjár sprengj-
ur hafi sprungið við hótelin og fjórar á mark-
aðssvæðinu. Hugsanlegt er að um bílsprengjur
hafi verið að ræða en það var ekki staðfest.
Sprengjurnar skóku Sharm el-Sheikh, þenn-
an fjölsótta ferðamannastað syðst á Sínaí-
skaganum við strönd Rauða hafsins. Fjöldi er-
lendra ferðamanna er á staðnum og er talið að
einhverjir þeirra séu meðal látinna.
Eldtungur á himninum
Sjónarvottar segja rúður hafa nötrað í hús-
um í töluverðri fjarlægð frá sprengjustaðnum.
„Húsið skalf og ég sé eldglæringar og heilmik-
inn reyk,“ sagði Akram al-Sherif, sem búsettur
er í nokkurra kílómetra fjarlægð frá þeim stað
sem sprengingarnar áttu sér stað.
Khaled Sakran sagðist hafa orðið vitni að
einni sprengingunni á markaðssvæðinu. „Ég
sá eldtungur fara um himininn,“ sagði hann.
„Því næst lýstist himinninn upp á ný og ég
heyrði aðra sprengingu.“
Í október á síðasta ári urðu sprengingar á
þessu saman svæði sem urðu þrjátíu og fjórum
að bana.
30 féllu í sprenging-
um í Egyptalandi
Röð sprenginga varð við hótel á ferðamanna-
staðnum Sharm el-Sheikh á Sínaískaga