Morgunblaðið - 23.07.2005, Page 2
2 LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„SKJÓTA TIL AÐ DREPA“
Lögreglumenn í Lundúnum skutu
í gær grunaðan hryðjuverkamann til
bana. Er hann sagður tengdur
sprengjutilræðunum á fimmtudag
en þó líklega ekki einn fjögurra
meintra tilræðismanna. Lögreglan
hefur nú skipanir um að „skjóta til
að drepa“ ef talið er að menn hafi
sprengiefni á sér.
Methagnaður Burðaráss
Burðarás skilaði 24,5 milljarða
króna hagnaði á fyrri helmingi árs-
ins. Þar af var hagnaður á öðrum
ársfjórðungi 19,9 milljarðar og er
þetta meiri hagnaður en dæmi eru
um hjá íslenskum fyrirtækjum á
hálfu ári.
Handahófsleit í New York
Yfirvöld í New York hafa ákveðið
að framvegis verði leitað af handa-
hófi í farangri þeirra sem ferðist
með jarðlestakerfi borgarinnar.
Lögreglustjórinn heitir því að húð-
litur eða hugsanleg trúarbrögð muni
ekki stjórna því hverjir verði látnir
sæta leitinni.
Flugfélagið fær nýjar vélar
Flugfélag Íslands stefnir að því að
fá tvær 39 sæta flugvélar af gerðinni
Dash 8 - 200. Vélar þessar geta tekið
á loft af stuttum flugbrautum og
verða þær mest í flugi til Grænlands
og í leiguflugsverkefnum.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Umræðan 30/33
Úr verinu 11 Kirkjustarf 24
Viðskipti 14 Minningar 35/41
Erlent 15/18 Skák 43
Minn staður 19 Myndasögur 44
Akureyri 22 Dagbók 44/47
Landið 22 Víkverji 44
Árborg 23 Velvakandi 45
Suðurnes 23 Staður og stund 46
Ferðalög 24/25 Bíó 50/53
Daglegt líf 26 Ljósvakamiðlar 54
Menning 27 Staksteinar 55
Forystugrein 28 Veður 55
* * *
Kynning – Morgunblaðinu fylgir
afmælisblað Heilsustofnunar NLFÍ.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
LISTAVERKIÐ „Klyfjahesturinn“
eftir Sigurjón Ólafsson verður af-
hjúpað á nýju torgi sem gert hefur
verið á Hlemmi í Reykjavík.
Klyfjahesturinn stóð áður við
Sogamýri. Upphaflega stóð til að
verkið stæði við Hlemm og hefur
Klyfjahesturinn því loks náð á
þann áfangastað sem honum var
ætlaður á sjötta áratug síðustu ald-
ar. Íbúum höfuðborgarsvæðisins er
boðið til athafnar á Hlemmi kl. 13 í
dag þegar nýtt leiðakerfi Strætó
bs. verður formlega tekið í notkun.
Björk Vilhelmsdóttir, stjórn-
arformaður Strætó bs., mun flytja
ávarp, Ásgeir Eiríksson fram-
kvæmdastjóri kynnir nýtt leiða-
kerfi og Ármann Kr. Ólafsson
stjórnarmaður ræðir um mikilvægi
samræmds leiðakerfis fyrir allt
höfuðborgarsvæðið. Boðið verður
upp á léttar veitingar og skemmti-
atriði á Hlemmi.
Morgunblaðið/Sverrir
Klyfjahesturinn á Hlemmi
ARNA Schram,
blaðamaður á
Morgunblaðinu,
tók við for-
mennsku í Blaða-
mannafélagi Ís-
lands á
stjórnarfundi í
gær eftir að Ró-
bert Marshall hafði sagt af sér for-
mennsku í félaginu vegna nýs
starfs sem hann hefur tekið við hjá
365 miðlum. Stjórn BÍ féllst á af-
sögn Róberts og þakkaði honum vel
unnin störf í þágu félagsins.
„Ég hlakka til að takast á við
þetta ábyrgðarmikla starf, en mörg
brýn verkefni eru framundan og
ber þar sennilega hvað hæst gerð
kjarasamninga sem verða lausir í
vetur. Þá hefur félagið hvatt til fag-
legrar umræðu um fjölmiðla og
vinnubrögð þeirra meðal fé-
lagsmanna, og mun ég áfram leggja
áherslu á slíka umræðu.“
Arna Schram
formaður BÍ
TVEIR fulltrúar Fjármálaeftirlits-
ins (FME) fylgdust með fundi
stofnfjáreigenda Sparisjóðs Hafn-
arfjarðar í fyrrakvöld. Jónas Fr.
Jónsson, forstjóri Fjármálaeftir-
litsins, segir að FME sé að fylgj-
ast með því hvort virkur eignar-
hlutur hafi myndast í
sparisjóðnum. „Við erum að meta
hvort það hafi myndast virkur
eignarhlutur,“ segir hann. „Það að
mæta á stjórnarfundinn [í fyrra-
kvöld] var partur af því mati.“
Í lögum um fjármálafyrirtæki er
kveðið á um það að aðili sem hygg-
ist eignast virkan eignarhlut í fjár-
málafyrirtæki skuli leita samþykk-
is Fjármálaeftirlitsins fyrirfram.
Inntur eftir því hvort FME hafi
komist að einhverri niðurstöðu í
þessum efnum vildi Jónas einvörð-
ungu segja að málið væri í skoðun.
Fundurinn í fyrrakvöld var
haldinn að beiðni fimm stofnfjár-
aðila. Á honum var greint frá því
að stjórnin hefði samþykkt sölu á
15 stofnfjárhlutum. Með sölunni
hefur orðið samþjöppun í stofn-
fjáreigendahópnum, skv. upplýs-
ingum Morgunblaðsins, því það
voru ekki bara nýir aðilar sem
keyptu stofnfjárhlut, heldur einnig
eldri stofnfjáreigendur. Stofnfjár-
eigendur voru alls 47, en eru nú
eitthvað færri, skv. upplýsingum
Morgunblaðsins.
Fylgist með myndun nýs
eignarhlutar hjá SPH
FYRRVERANDI formaður og vara-
formaður stjórnar Sameinaða lífeyr-
issjóðsins (SL) höfðu ekki umboð til
að gera viðauka við ráðningarsamn-
ing framkvæmdastjóra án aðkomu
annarra stjórnarmanna. Þetta er mat
Fjármálaeftirlitsins en það hefur lok-
ið skoðun á starfslokum fyrrverandi
framkvæmdastjóra sjóðsins, Jóhann-
esar Siggeirssonar.
Forsaga málsins er sú að þegar
samið var um að Jóhannes myndi
hætta störfum hjá SL kom í ljós að í
maí 2000 höfðu þáverandi formaður
og varaformaður gert viðauka við
ráðningarsamning framkvæmda-
stjórans sem fól í sér að við starfslok
fengi hann auk uppsagnarfrests
greidd laun til tveggja ára. Jóhannes
á því rétt á fullum launum til þrjátíu
mánaða en þau nema 43 milljónum
króna.
Vissu ekki af viðaukanum
Ólafur H. Steingrímsson, stjórnar-
maður SL til átta ára, segir að árið
2000 hafi formanni og varaformanni
verið falið að leiðrétta kjör fram-
kvæmdastjóra í samræmi við
launaþróun. Það hafi verið gert en
stjórninni hafi hins vegar ekki verið
kunnugt um þennan viðauka. „Það
var ekki fjallað sérstaklega um þetta
ákvæði svo við vissum ekkert af því
fyrr en núna í vor þegar ganga átti frá
starfslokum framkvæmdastjórans,“
segir Ólafur og bætir við að hann
hefði aldrei samþykkt þennan við-
auka. „Auðvitað áttu formaður og
varaformaður að bera þetta undir alla
stjórnina.“
Ólafur segir að stjórnin hafi leitað
til lögfræðinga til að athuga hvort
henni væri stætt á að rifta þessum
samningi. „Við fengum þau svör að
það væri ekki hægt enda væri það
beinlínis rangt að við færum að ganga
á bak orða manna sem voru löglega
kjörnir í stjórnina á þessum tíma.“
Ólafur bendir á að samningurinn sem
gerður var við Jóhannes hafi ekki ver-
ið til í vörslu lífeyrissjóðsins. „Að
mínu viti bar Jóhannesi sem fram-
kvæmdastjóra skylda til þess að láta
endurskoðanda vita af þessum samn-
ingi en gerði það aldrei.“
Að því er fram kemur á vefsíðu SL
telur Fjármáleftirlitið að við endur-
skoðun á ráðningarsamningi fram-
kvæmdastjórans í maí árið 2000 hafi
ekki verið fylgt ákvæðum 29. gr. laga
129/1997 sem kveða á um að stjórn líf-
eyrissjóðs eigi að ákveða laun og
ráðningarkjör framkvæmdastjóra.
Hins vegar verði ekki gripið til frek-
ari aðgerða þar sem fyrningarfrestur
vegna brotanna er liðinn.
Nýjar verklagsreglur SL
Stjórn SL samþykkti á fundi sínum
í júní sl. nýjar verklagsreglur um
ráðningu og starfskjör framkvæmda-
stjóra. Skýrt er tekið fram að greiða
eigi atkvæði um allar breytingar á
starfskjörum framkvæmdastjóra og
færa í fundargerð allt sem þau varð-
ar.
FME gagnrýnir starfsloka-
samning framkvæmdastjóra
Stjórn vissi ekki
af 43 milljóna
greiðslum
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
HALLGRÍMUR Gunnarsson, fyrr-
verandi stjórnarformaður Samein-
aða lífeyrissjóðsins, telur að hann
og Guðmundur Hilmarsson, fyrr-
verandi varaformaður, hafi haft
fullt umboð til að ganga frá kjara-
samningi við framkvæmdastjóra
sjóðsins. Fjármálaeftirlitið hefur
gert alvarlega athugasemd við að
stjórn sjóðsins hafi ekki vitað af
ákvæðum um starfslokasamning
framkvæmdastjórans sem Hall-
grímur og Guðmundur gengu frá
árið 2000 og telur að um lögbrot
hafi verið að ræða.
Hallgrímur segist hafna því enda
hafi ekki verið venjan á þeim tíma
að fara jafnformlega með mál af
þessu tagi eins og krafist sé í dag.
„Þegar þetta mál fór af stað höfðum
við samband við núverandi stjórn-
armenn og báðum um að fá upplýs-
ingar um í hverju fyrirspurnir eft-
irlitsins fælust og fá afhent gögn um
málið. Því neitaði stjórn sjóðsins,“
segir hann.
Hallgrímur segist einnig hafa far-
ið fram á að sjá svar stjórnarinnar
áður en það var sent til Fjármálaeft-
irlitsins en því hafi einnig verið
hafnað. Þá hafi Fjármálaeftirlitið
ekki óskað eftir að fá að heyra hlið
Hallgríms og Guðmundar á málinu.
Hallgrímur bendir á að kjara-
samningur framkvæmdastjórans
hafi verið til hjá endurskoðanda og
að núverandi formaður stjórnar
sjóðsins hafi gengið frá breytingum
á samningnum nokkrum sinnum.
Stjórninni hafi því átt að vera full-
kunnugt um efnisatriði samnings-
ins.
Höfðum fullt umboð til að
ganga frá samningnum
TÓNLISTARMAÐURINN og
Stuðmannavinurinn Long John
Baldry er látinn eftir fjögurra mán-
aða spítalalegu vegna lungnasjúk-
dóms. Long John Baldry er Íslend-
ingum að góðu kunnur fyrir
samstarf sitt við Stuðmenn en hann
söng m.a. lagið fræga She Broke My
Heart á fyrstu plötu Stuðmanna.
Baldry heimsótti Ísland síðast um
verslunarmannahelgina í fyrra þeg-
ar hann tróð upp ásamt Stuðmönn-
um í Fjölskyldu- og húsdýragarðin-
um en 18 þúsund manns komu á
tónleikana. Jakob Frímann Magnús-
son kynntist Baldry árið 1973 og tók
við hlutverki Eltons John sem hljóm-
borðsleikari í hljómsveit Baldrys.
„Þetta er tvímælalaust sá tónlistar-
maður sem hafði mest áhrif á mig af
öllum sem ég hef kynnst og starfað
með um ævina. Við félagarnir í Stuð-
mönnum hlustuðum mikið á hljóm-
plötur hans á okkar mótunarárum.“
segir Jakob Frímann.
Baldry allur
♦♦♦