Morgunblaðið - 23.07.2005, Page 4
4 LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ICELANDAIR bauð starfs-
mönnum í kaffi í góða veðrinu á
Reykjavíkurflugvelli í gær. Til-
efnið var að fagna lokum ferðar
Þristsins til Skotlands, Englands,
Danmerkur og Noregs á dög-
unum þar sem minnst var að 60
ár eru liðin frá fyrsta áætl-
unarfluginu milli Íslands og ann-
arra landa. Með í hópnum voru
fyrrverandi flugstjórar, þeir sem
flugu fyrstu ferðirnar fyrir Flug-
félag Íslands, þeir Jóhannes R.
Snorrason, Smári Karlsson og
Magnús Guðmundsson.
Á myndinni eru frá vinstri Jón
Karl Ólafsson, forstjóri Ice-
landair, Björn Thoroddsen, Hall-
grímur Jónsson, Björn Bjarn-
arson, Magnús Guðmundsson,
Hilmar Baldursson, Harald Snæ-
hólm, Smári Karlsson, Sverrir
Þórólfsson, Jóhannes R. Snorra-
son, Pétur Arnarson, Gunnar
Arthursson, Hannes Thorarensen
og Tómas Dagur Helgason. Auk
þessara tóku þátt í hluta ferð-
arinnar Jón Karl Snorrason og
Páll Stefánsson.
Ferðum Þristsins er ekki alveg
lokið í sumar því ráðgert er að
vélinni verði flogið til Akureyrar
á næstunni og hún sýnd þar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Leiðarlokum fagnað
ÁRNI Magnússon félagsmálaráð-
herra segir að ýmsir kostir komi til
greina varðandi hlutverk Íbúðalána-
sjóðs á markaði og meðal annars sé
spennandi að skoða hina svonefndu
heildsöluleið fyrir sjóðinn. Hins veg-
ar hafi hann ekki myndað sér end-
anlega skoðun á því hvernig breyt-
ingar á sjóðnum, ef til þeirra kæmi,
yrðu útfærðar.
„Ég hef ekki myndað mér skoðun
á því en hef verið að fara yfir hvernig
menn gera þetta í löndunum í kring-
um okkur, vegna þess að ég tel að
það sé skylda mín að halda áfram að
þróa þetta kerfi,“ segir Árni.
Hann segir að grundvallaratriðið
sé mjög skýrt, að tryggja fólki hér á
landi, óháð búsetu og félagslegum
aðstæðum, hagkvæmustu húsnæðis-
lán sem völ er á með tilliti til láns-
tíma, veðshlutfalls og ekki síst vaxta.
„Hvort við notum til þess nákvæm-
lega þau verkfæri sem við beitum í
dag, er ekki aðalatriði. Í því ljósi þá
finnst mér mjög spennandi að velta
fyrir mér hlutum eins og t.d. heild-
söluleiðinni. Það hafa menn gert í
Bandaríkjunum í áratugi með mjög
góðum árangri,“ segir Árni.
Í hinni svonefndu heildsöluleið
fælist að Íbúðalánasjóði yrði breytt í
þá veru að hann lánaði bönkunum fé
á hagstæðum kjörum en lánaði ekki
beint til einstaklinga sjálfur. Árni
segir að ef slíkar breytingar yrðu
gerðar yrði hins vegar alltaf tryggt
með lögum að allir sætu við sama
borð við lánveitingar, óháð því hvar
þeir búa og hver félagsleg staða
þeirra er. Hann segir að það mætti
hugsa sér að gera þetta í einhverjum
skrefum. „Mér finnst það mjög
spennandi viðfangsefni í framhaldi
af því sem við höfum verið að gera.“
Félagslegt hlutverk kostar sitt
En stendur til að breyta hlutverki
Íbúðalánasjóðs í þá veru að auka fé-
lagslegt hlutverk hans og lands-
byggðarinnar? „Við þurfum að halda
utan um það sérstaklega, en ég hef
sagt að ef það á eingöngu að vera
hlutverk Íbúðalánasjóðs, verða
menn að átta sig á því að meira op-
inbert fé þarf í það,“ segir Árni sem
vill þó ekki útiloka þann möguleika.
Hann telur hins vegar heppilegra að
halda áfram þeirri stefnu sem farin
hefur verið undanfarin ár, að nýta
stærð og styrk sjóðsins alls staðar,
þ.m.t. á höfuðborgarsvæðinu, til þess
að geta tekið þátt í félagslegu upp-
byggingunni án þess að til þurfi sér-
stakt framlag ríkisins.
Stutt saga bankanna á markaði
Árni segir að Íbúðalánasjóður sé
ekki orðinn óþarfur á markaðnum,
þótt til þess kunni að koma síðar.
Bankarnir hafi hins vegar einungis
verið í níu mánuði á þessum markaði.
„Eins og ég hef sagt áður þá finnst
mér að það þurfi að reyna meira á
það hvort bankarnir hafi úthald í
þetta vegna þess að það sem ég vil
alls ekki sjá er afturhvarf til þess
tíma þegar fólk gat ekki fengið lán til
húsnæðiskaupa nema á mjög háum
vöxtum,“ segir Árni og bendir á að
ávinningur þess að hafa sjóðinn
áfram á markaði sé ekki síst sá að
halda niðri vöxtum.
Ekki þörf á fleiri samningum
Guðmundur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir
að ekki sé þörf á fleiri lánasamning-
um við banka eða sparisjóði, en Árni
Magnússon félagsmálaráðherra
sagði í gær að hann ætti síður von á
að fleiri lánasamningar verði gerðir
nema að vel athuguðu máli.
Að sögn Guðmundar er staða
sjóðsins í augnablikinu þannig að
hann er ekki með laust fé nema inn-
an þeirra marka sem hann þarf að
hafa. Hann segist geta tekið undir
orð ráðherra um að eðlilegt sé að
menn fari með löndum meðan verið
sé að fara yfir þau álitamál sem upp
hafi komið, þótt hann telji að sjóð-
urinn hafi verið fullkomlega innan
síns lagaramma þegar hann gerði
lánasamninga við banka og spari-
sjóði. Meðan farið sé yfir málið sé
hins vegar eðlilegt að anda rólega.
„Enda ekkert sem knýr á um ann-
að,“ segir Guðmundur.
Árni Magnússon félagsmálaráðherra
Heildsöluleiðin
er spennandi
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
LÖGREGLAN í Kópavogi mældi
bíl á 176 kílómetra hraða á Reykja-
nesbraut við Smáralind um klukkan
hálf fjögur í fyrrinótt. Bíllinn var á
suðurleið og var lögreglunni í
Reykjavík tilkynnt um hraðakstur-
inn en ökumaðurinn virtist ekki
virða neinar umferðarreglur heldur
ók beint af augum án þess að
skeyta um umhverfið. Bíllinn mæld-
ist í kjölfarið á yfir 160 kílómetra
hraða á Sæbraut en ferð ökumanns-
ins endaði á kyrrstæðum bíl á
Laugarnesvegi og reyndist ökumað-
ur, sem er á þrítugsaldri, bæði ölv-
aður og réttindalaus. Samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar í
Reykjavík er það sjaldgæft að
menn mælist á svo miklum hraða í
þéttbýli – hvað þá tvisvar sama
kvöld. Slíkur akstur sé að sjálf-
sögðu vítaverður og geti haft alvar-
legar afleiðingar í för með sér.
Mál mannsins mun fara fyrir
dómara.
Hraðakstur í svartaþoku
Lögreglan á Akureyri mældi bíl á
134 kílómetra hraða á Öxnadals-
heiði um klukkan hálf tólf í fyrra-
kvöld. Svartaþoka var á heiðinni og
skyggni svo lítið að rétt sá á milli
stikna, sem eru með 50 metra milli-
bili. Maðurinn, sem var á fimmtugs-
aldri, gaf þá skýringu á hraðakstr-
inum að hann væri þreyttur og á
heimleið.
Lögreglan stöðvaði 5 aðra öku-
menn vegna hraðaksturs á heiðinni
á milli klukkan níu og hálf tólf í
fyrrakvöld.
Þótti lögreglumönnum nóg um
hraðann enda óku þeir sjálfir á 50
til 60 kílómetra hraða og þótti nóg
vegna lélegs skyggnis.
Réttindalaus og ölvaður
ökumaður á ofsahraða
„VIÐ höfum áhyggjur,“ segir Sig-
urður Helgason, verkefnisstjóri Um-
ferðarstofu, spurður um viðbrögð
stofnunarinnar við fregnum af ofsa-
akstri á Reykjanesbraut og Sæbraut
í fyrrinótt.
„Þetta eru frekar einangruð tilvik
en öll slík tilvik eru þess eðlis að það
skiptir miklu máli að koma í veg fyrir
þau,“ segir Sigurður og bætir því við
að þegar menn aki á slíkum ofsa-
hraða megi ekkert út af bregða ef
ekki eigi illa að fara. Það að keyra á
lítinn stein geti endað með ósköpum.
„Almennt eru mótorhjólamenn
eins og aðrir ökumenn með sína hluti
í lagi en það er alltaf þannig að þegar
menn eru komnir á kraftmikil tæki
er viss hluti sem vill láta gamminn
geisa. Þá gera menn sér ekki grein
fyrir því hvaða hættur það getur haft
í för með sér.“
Banaslys á björtum dögum
Nú þegar veður er eins og best
verður á kosið og fólk í auknum mæli
að leggja land undir fót er mikilvægt
að ökumenn haldi einbeitingu sinni
og virði umferðarreglur enda eru
júlí- og ágústmánuður einna hættu-
legustu mánuðir ársins í umferðinni
að sögn Sigurðar.
„Það hljómar kannski furðulega
en flest banaslys verða á björtum og
sólríkum dögum.
Það er ljóst að við þurfum alltaf að
hafa vara á okkur – ekki síst þegar
veröldin er svo falleg eins og nú,“
segir Sigurður og bætir við: „En hún
getur orðið skelfileg ef menn gæta
ekki að sér.“
„Ekkert má út
af bregða“
Eftir Þóri Júlíusson
thorirj@mbl.is
LÖGREGLAN í Keflavík mældi bif-
hjól á 228 kílómetra hraða á Reykja-
nesbraut við Vogaveg um klukkan 11
í fyrrarkvöld. Ökumaðurinn sinnti
ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og
hann var á það miklum hraða að ekki
tókst að ná númerinu á hjólinu né
heldur að bera kennsl á ökumanninn.
Samkvæmt uppýsingum lögreglunn-
ar í Keflavík er því lítið hægt að að-
hafast í þessu máli og allt útlit fyrir
að umræddur ökuníðingur hafi kom-
ist undan armi laganna.
Ökumaður bifhjólsins var í hópi
bifhjólamanna sem óku eftir vegin-
um til vesturs og sinnti enginn öku-
mannanna merkjum lögreglu um að
nema staðar.
Slapp undan armi laganna