Morgunblaðið - 23.07.2005, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 15
ERLENT
M
IX
A
•
fít •
5
0
7
6
5
Spennandi sumar framundan hjá Landsvirkjun
Sumarið er okkar tími!
Tilvalið að líta inn
Nánari upplýsingar um opnunartíma á www.landsvirkjun.is
og í síma 515 9000.
Sýningarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar.
Végarður í Fljótsdal
Kynnið ykkur Kárahnjúkavirkjun og
allt sem henni viðkemur í Végarði.
Tilvalið að koma þar við áður en
haldið er upp að Kárahnjúkum.
Sultartangastöð
ofan Þjórsárdals
„Andlit Þjórsdæla“ – áhugaverð
sýning um mannlífið í Þjórsárdal
í 1100 ár.
Blöndustöð í Húnaþingi
Þorir þú 200 metra niður í jörðina?
Hvað verður í göngum Blöndustöðvar
í sumar? Magnaður viðkomustaður.
Kröflustöð í Mývatnssveit
Allt um Kröfluelda í Gestastofu.
Kynnist eldsumbrotunum sem urðu
í nágrenni Kröflustöðvar 1975-1984.
„Hreindýr og dvergar“
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
sýnir magnaða tréskúlptúra
í Laxársstöð í sumar.
„Hvað er með Ásum?“
Frábær sýning Hallsteins
Sigurðssonar, sem hlotið
hefur einróma lof.
Ljósafosstöð í Soginu
„Ár og kýr“ Jóns Eiríkssonar komnar
suður. 365 kúamyndir sem hlotið hafa
verðskuldaða athygli.
Einnig ljósmyndasýning Guðmundar frá
Efri-Brú „Oft er í holti heyrandi nær“.
Hvernig verður rafmagn til?
Hvers vegna er rafmagn á Íslandi umhverfisvænna
en hjá öðrum þjóðum?
Laxárstöðvar í Aðaldal
Heimsókn til Landsvirkjunar er upplýsandi og skemmtileg
Genf. AP. | Sameinuðu þjóðunum
hefur á síðustu tíu dögum verið
heitið meira fé til neyðaraðstoðar í
Vestur-Afríkuríkinu Níger heldur
en á samanlögðum tíu mánuðunum
þar á undan. Þetta kom fram í máli
Jans Egelands, sem sér um að sam-
ræma hjálparstarf á vegum SÞ, í
gær.
Egeland sagði að menn hefðu
verið tregir til að láta fé af hendi
rakna vegna ástandsins í Níger,
jafnvel þó að SÞ hefðu í nóvember
sl. sent út beiðni um aðstoð. En
breyting hefur nú orðið á, eftir að
málefni Níger rötuðu á forsíður
heimsfjölmiðlanna. „Síðustu dagana
hefur heimurinn loksins vaknað, en
það þurfti myndir af deyjandi börn-
um til,“ sagði Egeland. „Það hefðu
ekki svo mörg börn í Níger þurft að
deyja.“
Hafa SÞ í þessari viku fengið lof-
orð upp á um 2,3 milljónir evra, um
180 milljónir ísl. kr., sem tvöfaldar
nánast þá upphæð sem í heildina
hefur nú verið heitið til aðstoðar í
Níger.
Rauði krossinn sendir
út neyðarbeiðni
Hungrið í Níger stafar af þurrk-
um í fyrra og óvenjumikilli
engisprettuplágu og á það raunar
einnig við um nágrannaríkin. Er tal-
ið að hungursneyð ógni lífi 2,5 millj-
óna manna, þar af 800.000 barna.
Alþjóða Rauði krossinn hefur nú
einnig sent út neyðarbeiðni þar sem
farið er fram á fjárframlög upp á
11,5 milljónir evra, um 850 milljónir
ísl. króna, til að afstýra hungurs-
neyð í Níger, Burkina Faso, Malí og
Máritaníu.
Reuters
Kona í Guidan Roumdji heldur um barn sitt, sem þjakað er af vannæringu.
Loforð um að-
stoð tóku kipp
KONA nokkur í Bretlandi er
loksins komin með bílpróf eftir
að hafa verið meira eða minna í
ökunámi frá árinu 1972.
Að því er segir í breska dag-
blaðinu Daily Mail var Venida
Crabtree ákveðin í að gefast
ekki upp þótt ökuprófunum lyki
ávallt með sama hætti ár eftir
ár og áratug eftir áratug, sem
sagt með falli. Var hún búin að
falla 104 sinnum og fara með
meira en jafnvirði þriggja millj-
óna króna í ökukennslu þegar
kraftaverkið gerðist. Þegar
Crabtree, sem er rúmlega
fimmtug, stóðst loksins ökupróf-
ið fyrr í þessum mánuði féll hún
hágrátandi um háls ökukennar-
anum.
Blaðið segir, að ástæðan fyrir
erfiðleikum Crabtree sé hvað
hún er slæm á taugum en hún
segir, að aðrir vegfarendur hafi
ekkert að óttast.
„Ég er nú einu sinni komin
með 33 ára reynslu undir stýri,“
segir hún.
Féll 104 sinnum
Róm. AP. | Nýjasta ritinu um Silvio
Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu,
er ætlað að koma í hillur þarlendra
bókaverslana nú í
þann mund sem
kosningabarátta
vegna þingkosn-
inga í landinu er
að hefjast.
Bókin er allt
annars eðlis en sú
sem kom út fyrir
síðustu kosningar
og forsætisráð-
herrann sendi inn
á hvert heimili í landinu, en þar var
saga hans og sigurganga rakin í máli
og glansmyndum. Nýja bókin heitir
„Berlusconi – ég hata þig“, og er
safn rúmlega 500 tilvitnana sem
birst hafa í fjölmiðlum þar sem for-
sætisráðherrann er móðgaður og
gert lítið úr honum.
Ætla mætti að pólitískir andstæð-
ingar hans hefðu haldið til haga öllu
því andstyggilega sem þótt hefur
ástæða til að herma upp á forsætis-
ráðherrann og staðið fyrir sam-
antektinni, en svo er ekki því það er
útgáfufyrirtæki í eigu Berlusconi
sjálfs sem gefur bókina út.
Meðal þeirra móðgana sem hafðar
hafa verið um Berlusconi og koma
fyrir í bókinni eru „trúður,“ „bófi,“
„forsætisráðherra-gosi,“ „aumk-
unarverður bullari,“ „mikilmennsku-
brjálæðingur,“ „öfgamaður,“ maður
sem talar eins og „full fótboltabulla“
og hagar sér „eins og talíbani.“
„Mannfræðilegt frávik“
Í bókinni eru ýmis ummæli höfð
eftir pólitískum andstæðingum for-
sætisráðherrans, þeirra á meðal
Antonio Di Pietro, sem unnið hefur
gegn spillingarmálum, en hann sagði
eitt sinn: „Berlusconi er eins og al-
næmi: Ef þú veist hvernig hann er,
þá forðastu hann.“ Giuseppe Giu-
letti, stjórnarandstöðuþingmaður
sagði: „Berlusconi er galinn og
mannfræðilegt frávik frá mannkyn-
inu.“ Pino Sgobio, annar stjórn-
arandstöðuþingmaður sagði: „For-
sætisráðherrann er andstæðan við
Hróa Hött.“
Talsvert hallar á Berlusconi í
skoðanakönnunum vegna kosning-
anna sem haldnar verða á Ítalíu á
næsta ári. Þrátt fyrir allt sem um
hann er sagt þykir hann snjall að
koma fram í fjölmiðlum, auk þess
sem hann er ríkasti maður landsins,
og er búist við að hann gefi ekkert
eftir í þeirri ströngu kosningabar-
áttu sem framundan er.
„Berlusconi – ég hata þig“
Silvio Berlusconi