Morgunblaðið - 23.07.2005, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
BRESKA lögreglan birti í gær
myndir úr eftirlitsmyndavélum af
fjórum mönnum, sem eru taldir
hafa reynt að fremja hryðjuverk í
London í fyrradag. Nokkru áður
skutu lögreglumenn mann á Stock-
well-jarðlestastöðinni og hefur lög-
reglan staðfest, að það hafi tengst
hryðjuverkatilraununum í þremur
jarðlestum og einum strætisvagni í
fyrradag.
Ian Blair, yfirmaður lögreglunn-
ar, sagði á fréttamannafundi í gær,
að rannsókninni miðaði vel og voru
á fundinum birtar myndir af fjór-
um mönnum, sem nú er leitað.
Virtust þeir allir af asísku bergi
brotnir og skoraði Blair á þá, sem
þekktu til þeirra, að láta lögregl-
una vita. Varaði hann jafnframt
fólk við að nálgast mennina, sæi
það til þeirra. Á sama tíma og fund-
urinn stóð yfir var lögreglan með
húsleit á þremur stöðum í London.
„Lögðust ofan á
hann og skutu“
Lögreglan hefur ekki upplýst
hvaða maður var skotinn á Stock-
well-stöðinni en farþegar í lest,
sem þar beið, segjast hafa séð
mann, að því er virtist Asíumann, í
þykkum frakka hlaupa inn á stöð-
ina með þrjá óeinkennisklædda
lögreglumenn á hælunum.
„Einn þeirra var með skamm-
byssu, líklega sjálfvirka, og þegar
þeir náðu manninum, felldu þeir
hann til jarðar, lögðust ofan á hann
og skutu fimm skotum,“ sagði
Mark Whitby, einn farþeganna.
Margaret Gilmore, fréttamaður
á BBC, breska ríkisútvarpinu,
sagði, að lögreglumennirnir hefðu
verið að elta mann, sem legið hefði
undir grun. Hefðu þeir skipað hon-
um að nema staðar en hann hlaupið
af stað. Sagði hún, að lögreglan
hefði verið búin að lýsa yfir, að ekki
yrði hikað við að beita skotvopnum
gegn þeim, sem taldir væru hættu-
legir.
Einn farþeganna í lestinni
kvaðst hafa séð sprengjubelti á
manninum, sem var skotinn, og
hefðu staðið út úr því ótal vírar. Þá
fullyrti Neil Bennett, glæpamála-
fréttamaður hjá BBC, að maðurinn
hefði verið eltur vegna upplýsinga
úr eftirlitsmyndavélum frá því á
fimmtudag.
Heimagerðar sprengjur
Mikil rannsókn fer nú fram á til-
ræðunum í fyrradag og þá sérstak-
lega á því, sem mennirnir skildu
eftir, á bakpokum og sprengjun-
um, sem sprungu ekki. Kom það
fram hjá lögreglunni í gær, að um
hefði verið að ræða heimagerðar
sprengjur. Þá var einnig skýrt frá
því, að enginn hefði slasast í tilræð-
unum í fyrradag. Eina tilfellið, sem
upp kom, var astmakast hjá einum
farþega.
Ókunn samtök
lýsa ábyrgð
Hópur tengdur hryðjuverka-
samtökunum al-Qaeda lýsti í gær
yfir ábyrgð á hryðjuverkatilraun-
unum í fyrradag en hann kvaðst
einnig hafa staðið fyrir morðunum
í London 7. júlí. Sagði hann á vef-
síðu sinni, að ekki yrði látið staðar
numið fyrr en allur herafli „villu-
trúarmannanna“ væri farinn frá
Írak. Í fyrradag hafði þessi sami
hópur í hótunum við þau Evrópu-
ríki, sem eru með her í Írak, og gaf
þeim einn mánuð til að flytja hann
burt.
Ekkert er vitað um þessi samtök
og efast margir sérfræðingar um,
að þau séu í raun til sem sérstakur
hópur. Minna þeir á, að þau hafi
lýst yfir ábyrgð á umfangsmiklu
rafmagnsleysi í Bandaríkjunum og
Bretlandi 2003 en hryðjuverk áttu
enga sök á því, heldur tæknilegar
bilanir.
Myndir af fjórum eftir-
lýstum mönnum birtar
Grunaður sjálfsmorðsárásarmaður skotinn á jarðlestarstöð
Lögreglan segir rannsókn á hryðjuverkatilraununum miða vel
Reuters
Myndir af mönnunum fjórum, sem lögreglan í Bretlandi lýsir eftir.
Fyrri myndin í efri röð var tekin á Warren Street-stöðinni og sú við
hliðina á ótiltekinni stöð. Í neðri röð er mynd af manni, tekin á lest-
arstöð við Westbourne Grove og áður en hann fór til Shepherd’s Bush
þar sem eitt tilræðanna í jarðlestunum átti sér stað. Síðasta myndin er
af grunuðum tilræðismanni á efri hæð strætisvagnsins í Hackney.
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
London. AFP. | Fulltrúar breskra múslíma
sögðust í gær óttast að breska lögreglan
hefði tekið upp þá stefnu að „skjóta til að
drepa“, í kjölfar þess að maður var skotinn
til bana á Stockwell-lestarstöðinni í gær-
morgun. Breska múslímaráðið krafðist þess í
gær að lögregla gerði grein fyrir því hvers
vegna maðurinn sem fjölmiðlar sögðu vera
„grunaðan hryðjuverkamann“ var skotinn til
bana.
Inayat Bungawala, talsmaður múslím-
aráðsins, sagði að múslímar væru nú „varir
um sig og áhyggjufullir“. Sagðist hann hafa
fengið fyrirspurnir frá kvíðnum múslímum
um það hvernig þeir skuli haga sér. Einn
hafi til dæmis spurt sig: „Hvað ef ég er með
bakpoka?“
Bungawala segir nauðsynlegt að lögregla
greini frá því sem gerðist á Stockwell-stöð-
inni í gærmorgun og hvers vegna maðurinn
var skotinn til bana. „Við fáum símtöl frá
mörgum múslímum sem hafa áhyggjur af
því sem þeir kalla „skjóta til að drepa“-
stefnu,“ segir Bungawala. „Það kunna vel að
vera gildar ástæður fyrir því að lögregla
taldi nauðsynlegt að skjóta manninn fimm
sinnum með þeim afleiðingum að hann dó.
En [lögregla] verður að skýra frá þessum
ástæðum.“
Reuters
Lögregla ræðir við mann á Stockwell-lest-
arstöðinni í gær. Áður hafði lögregla skotið
þar grunaðan hryðjuverkamann til bana.
Áhyggjur af
því að lög-
regla „skjóti
til að drepa“
BRESK dagblöð fjölluðu í gær um mikilvægi
þess að íbúar Lundúna leyfðu óttanum ekki að
ná tökum á sér, þrátt fyrir hryðjuverkatilraun-
irnar sem gerðar voru í borginni í fyrradag.
Var borgarbúum hrósað fyrir æðruleysi og
staðfestu, en jafnframt var bent á að erfiðara
yrði að ýta óttanum frá sér eftir því sem atvik-
um af þessu tagi fjölgaði. Nú reyndi því enn
meira á styrk og hugrekki borgarbúa en áður.
Fyrirsagnir blaðanna í gær sögðu sína sögu
um stöðu mála. „Bretland verður ekki sigrað“
sagði á forsíðu Daily Express. Daily Mirror
birti myndaseríu af gríðarlegum viðbúnaði lög-
reglu og sprengjusveita á götum borgarinnar
undir yfirskriftinni: „Verður líf okkar svona
framvegis?“ Og Independent birti samskonar
myndaseríu undir yfirskriftinni „Borg óttans.“
Daily Mail birti í gær viðtal við Abisha
Moyo, 28 ára gamlan bankastarfsmann, sem
stóð andspænis einum mannanna sem talinn er
hafa reynt að gera árás í neðanjarðarlest ná-
lægt Sheperd’s Bush-lestarstöðinni í fyrradag.
„Það kom reykur út úr bakpokanum“
Moyo lýsti því sem svo að hann hafi heyrt
hvell í lestarvagninum þar sem hann var
staddur, litið við og séð mann með útréttar
hendur liggja á gólfinu ofan á meðalstórum
bakpoka. „Hann var með lokuð augu og það
kom reykur út úr bakpokanum,“ sagði Moyo.
„Sumar stelpurnar öskruðu og fólk hljóp í átt-
ina frá honum. Ég hélt að hann hefði kannski
verið skotinn, fór til hans og spurði hvort það
væri í lagi með hann. Hann lét eins og hann
heyrði ekki í mér og var áfram með augun lok-
uð.“
Moyo færði sig þá, eins og aðrir í vagninum,
yfir í næsta vagn og fylgdist þaðan með mann-
inum setjast upp. „Hann virtist alveg ringl-
aður og í mjög miklu uppnámi. Hann kom svo
þangað sem við vorum, en skildi bakpokann
eftir, settist niður í vagninum okkar í smá
stund og gekk svo til baka. Þá sá ég að vírar
komu undan bolnum hans, sem voru eins og
vírar á heyrnartólum nema að það stóðu kop-
arþræðir út úr þeim. Þá áttaði ég mig og hugs-
aði: Guð minn góður, hann er sjálfsmorðs-
sprengjumaður.“
Moyo segir að maðurinn hafi síðan stokkið
út úr lestinni og að farþegar hafi hvatt hver
annan til að láta hann eiga sig því hann gæti
verið vopnaður.
Fólk hefur áhyggjur en
„verður“ að „komast til vinnu“
Fólk á götum Lundúna í gær sagðist margt
taka lestir og strætisvagna óhikað, enda „yrði“
það að „komast til vinnu“. Aðrir sögðust
áhyggjufullir og kusu frekar að hjóla. Einn
þeirra, David Roberts, sagðist í viðtali við
fréttastofu AFP ekki geta hugsað sér að fara í
neðanjarðarlest núna með börnin sín tvö. „Ég
hefði of miklar áhyggjur af öryggi þeirra.“
Sergio Zini, 51 árs byggingaverktaki, kaus
hins vegar að taka lestina en sagðist hafa farið
fyrr af stað en venjulega til að vera ekki á ferð-
inni á mesta annatíma. „Samt horfði ég mikið í
kringum mig og á fólk sem mér fannst grun-
samlegt.“
Reynir enn frekar á styrk Lundúnabúa
Vitni lýsir því þegar hann stóð andspænis
meintum sprengjumanni í fyrradag
Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur
bab@mbl.is
New York. AP. | Borgaryfirvöld í New York í
Bandaríkjunum hafa ákveðið að framvegis
verði leitað af handahófi í farangri farþega í
neðanjarðarlestakerfi borgarinnar. Lögreglu-
stjórinn í New York, Raymond Kelly, heitir því
að húðlitur manna eða hugsanleg trúarbrögð
muni ekki stjórna því, hverjir verða látnir sæta
leitinni.
Michael Bloomberg, borgarstjóri í New
York, tilkynnti ákvörðun borgaryfirvalda í
fyrrakvöld en tilkynningin kom í kjölfar frétta
frá London um að þar hefðu illvirkjar reynt að
standa fyrir hryðjuverkum í annað sinn á
tveimur vikum.
Kelly lögreglustjóri sagði að farþegum yrði
frjálst að snúa frá vildu þeir ekki að leitað yrði í
farangri þeirra. Engum verður hins vegar
hleypt um borð í lestirnar neiti þeir því að leit-
að verði í farangri þeirra.
Um 4,5 milljónir manna nota neðanjarðar-
lestarkerfið í New York á degi hverjum að
sögn BBC. Bloomberg borgarstjóri sagðist
gera sér grein fyrir því að fólk myndi verða
fyrir óþægindum en ekki var að sjá í gær, að
fólk kippti sér upp við þessa ráðstöfun. „Þeir
hefðu átt að taka þetta upp fyrir löngu, strax
eftir 11. september [2001],“ sagði einn farþegi,
Ron Freeman, í samtali við AP. „Ég veit ekki
hversu mikið gagn þetta mun gera en ef fólki
finnst það njóta meira öryggis, þá er þetta í
lagi,“ sagði annar New York-búi, Greg Morg-
an.
Taka upp handa-
hófsleit á farþegum
Reuters
Bandarískur lögreglumaður leitar á manni á neðanjarðarlestarstöð við 42. stræti.