Morgunblaðið - 23.07.2005, Side 22
22 LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
LANDIÐ
Listasumar | Laugardagur 23. júlí
Café Karólína kl. 14.00. Opnun á
sýningu Eiríks Arnars Magn-
ússonar. Listagilið. Ljósmyndasýn-
ingin Íslendingar opnuð á veggnum
milli Ketilhússins og Listasafnsins.
Galleri Box,
Listagili kl. 20.00.
„Sum-
arhappening“
Habbý og Jóna
Hlíf verða með
gjörning og
textaverk. DJ
Take me home,
heldur uppi stuði.
Sunnudagur
24. júlí. Ket-
ilhúsið kl. 20.30.
Emilíana Torrini kynnir nýju plöt-
una „Fishermans Woman.“ Miðasala
á midi.is og við innganginn. Miða-
verð 2.500 kr.
Síðasti sýningardagur: Ketilhúsið:
Kínversk sýning. Deiglan: Kristján
Pétur Sigurðsson.
Sumartónleikar | Fjórðu Sum-
artónleikar í Akureyrarkirkju verða
haldnir á sunnudag, 24. júlí, kl. 17.
Flytjendur að
þessu sinni verða
Sigurður Flosa-
son saxófónleik-
ari og Gunnar
Gunnarsson org-
elleikari.
Þeir leika ís-
lensk ættjarð-
arlög í eigin út-
setningum, en
þar gegnir spuni
stóru hlutverki. Á efnisskránni eru
hefðbundin ættjarðarlög, en einnig
einsöngslög með þjóðlegu ívafi. Þá
eru flutt dægurlög sem á síðari árum
hafa fest í sessi sem ættjarðarlög,
svo sem„Ísland er land þitt“ og
„Fylgd“.
Sigurður og Gunnar hafa vakið at-
hygli fyrir diska sem nutu mikilla
vinsælda og hlutu jákvæða dóma.
Gunnar og Sigurður hafa auk þess
báðir gefið út diska í eigin nafni og
leikið inn á fjölda diska með öðrum.
Laufáshópurinn mun m.a. baka
miðaldabrauð á hlóðum, hita jurtate
og vinna að vattarsaumi og tré-
skurði. Skrifari, eða leturgerðar-
kona, sýnir sitt sérhæfða handverk
og hefur til sölu. Einn megintil-
gangur heimsóknar hinna dönsku
gesta er þó að sækja brennistein til
Mývatnssveitar og gera tilraun til
að hreinsa hann en brennisteinn var
mikilvæg verslunarvara á miðöld-
um.
Fornleifarannsóknirnar á Gásum
síðustu sumur hafa m.a. leitt í ljós
að hreinsun brennisteins hafi átt
Gásir | Andi miðalda mun svífa yfir
verslunarstaðnum á Gásum á
sunnudag, 24. júlí. Hópur danskra
handverksmanna frá Middelalder-
centret í Nykøbing verður á svæð-
inu og mun ásamt félögum úr Lauf-
áshópnum endurskapa lífið eins og
það gæti hafa verið á blómatíma
Gása. Í danska hópnum eru kaup-
menn og handverksfólk en einnig
bogskytta, sem mun gefa fólki kost
á að reyna sig við bogfimi, sauma-
kona og fleiri sem gefa staðnum al-
þjóðlegt yfirbragð eins og líklegt er
að hafi verið meðan verslað var þar.
sér stað þar en það er athygli vert
þar sem heimildir segja að það hafi
ekki verið reynt fyrr en á 18. öld á
Íslandi. Við hreinsun margfaldaðist
brennisteinninn í verði.
Unnið verður að fornleifaupp-
greftri staðarins, sem nú er í gangi
fimmta sumarið í röð, meðan á dag-
skránni stendur og munu fornleifa-
fræðingarnir svara spurningum
gesta. Minjasafnið á Akureyri
skipuleggur rannsóknirnar og
kynningu staðarins ásamt Gása-
félaginu en Fornleifastofnun Ís-
lands sér um fornleifauppgröftinn.
Andi miðalda svífur yfir verslunarstaðnum á Gásadegi
Gera tilraun til að
hreinsa brennistein
BJÓRFRAMLEIÐSLA stöðvaðist
hjá Vífilfelli á Akureyri í gær eftir
að kaldavatnsstofnlögn fór í sund-
ur austan við húsnæði fyrirtæk-
isins. Baldur Kárason bruggmeist-
ari sagði að vatnsleysið hefði verið
bagalegt á þessum mesta ann-
atíma. Um nokkuð fjárhagslegt
tjón væri að ræða, þar sem hver
klukkutími í framleiðslustöðvun sé
ansi dýr, ekki síst þegar þarf að
vinna hann upp í aukavinnu.
„Einnig fór sandur inn á vatns-
kerfið, þannig að það þarf að
hreinsa það allt út, hreinsa síur og
annað slíkt.“ Þrátt fyrir þetta
óhapp sagði Baldur að ekki væri
hætta á að viðskiptavinir fyrirtæk-
isins fengju ekki sinn bjór. „Við
þurfum að vinna þetta fram-
leiðslutap upp á morgun, (í dag) og
í næstu viku.“
Ólafur Héðinsson, verkstjóri hjá
Norðurorku, sagði að stofnlögnin
hefði bilað í fyrrinótt og farið í
sundur við greiningu við heim-
taugina að Vífilfelli og flæddi tölu-
vert vatn upp á yfirborðið. Viðgerð
hófst strax í gærmorgun og stóð
hún enn yfir seinni partinn í gær.
Bjórframleiðslan
stöðvaðist
Morgunblaðið/Kristján
Vatnsleki Starfsmenn Norðurorku voru mættir snemma í gærmorgun til
að gera við vatnslögnina en þá flæddi töluvert vatn upp á yfirborðið.
Álversnefnd | Á fundi bæjarráðs
Akureyrar var til umfjöllunar sam-
komulag (Joint Action Plan) milli
Fjárfestingarstofunnar, Akureyr-
arbæjar, Húsavíkurbæjar, Sveitar-
félagsins Skagafjarðar, At-
vinnuþróunarfélags Eyjafjarðar,
Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga
og Alcoa Inc, varðandi álver á Norð-
urlandi. Þar kom fram að til þess að
hafa umsjón með vinnu samkvæmt
samkomulaginu verði sett á stofn
fimm manna nefnd, sem tilnefnd
verði af Fjárfestingarstofunni, Ak-
ureyrarbæ, Húsavíkurbæ, Sveitar-
félaginu Skagafirði og Alcoa. Bæj-
arráð samþykkti að óska eftir því að
stjórn samtakanna Ný sókn á Norð-
urlandi tilnefni fulltrúa Akureyr-
arbæjar í samstarfsnefndina. Val-
gerður H. Bjarnadóttir óskaði
bókað: „Ég er andvíg því að álver
verði reist á Norðurlandi og greiði
því ekki atkvæði með þessari til-
lögu.“
Stykkishólmur | Orkuveita Reykjavíkur hefur
keypt hitaveitu og vatnsveitu Stykkishólms af
Stykkishólmsbæ. Undirritaður var samningur
um kaupin við athöfn í ráðhúsinu í Stykkis-
hólmi í gær. Í kjölfarið mun hitunarkostnaður í
bænum lækka um 35%.
Verðmæti Orkuveitu Stykkishólms var met-
ið á 615 milljónir króna og þegar búið er að
draga frá skuldir og taka tillit til lækkunar á
gjaldskrá fær sveitarfélagið um 50 milljónir
króna við söluna. Lækkun á verði heita vatns-
ins er metin um 200 milljóna króna virði fyrir
íbúa bæjarins.
Orkuveitan mun taka við rekstri hitaveit-
unnar hinn 1. september. Þá mun orkuverð
lækka til samræmis við það sem gildir á höf-
uðborgarsvæðinu. Verð á vatni til húshitunar
mun þá lækka úr 101 kr á rúmmetra niður í lið-
lega 65 kr. Um er að ræða 35% lækkun á hús-
hitunarkostnaði.
Í samningnum er kveðið á um að Orkuveita
Reykjavíkur muni beina verkefnum tengdum
Heilsuborgarverkefninu að Stykkishólmi að
svo miklu leyti sem það er talið henta, en heita
vatnið í Stykksihólmi er talið hafa einstaka eig-
inleika.
Búsetuskilyrðin bætt
Í ávarpi Rúnars Gíslasonar forseta bæjar-
stjórnar Stykkishólms kom fram að samkomu-
lagið við Orkuveitu Reykjavíkur mun skipta
miklu máli fyrir íbúa staðarins. Orkuverð verð-
ur sama og í Reykjavík. „Allir vilja bera sig
saman við það verð. Sami húshitunarkostnaður
í Stykkishólmi og Reykjavík var draumur sem
virtist svo fjarlægur en er nú orðinn að veru-
leika,“ sagði Rúnar.
Rúnar greindi frá því að hitaveitan hefði ver-
ið mjög brothætt fyrirtæki. „Treyst hefur ver-
ið á eina borholu og eina dælu og því fylgir ekki
mikið öryggi. Þá hefur vatnið í borholunni
minnkað og komið er að þeim tímamótum að
tryggja öryggi rekstur hitaveitunnar. Það er
verkefni nýrra eigenda.“
Þessi samningur er stórt skref í að bæta bú-
setuskilyrðin í Hólminum og styrkir áform um
að gera Stykkishólm að heilsubæ, að sögn Rún-
ars.
Alfreð Þorsteinsson, formaður stjórnar
Orkuveitu Reykjavíkur, sagði að með undirrit-
un samningsins væri Stykkishólmur kominn á
höfuðborgarsvæðið að þessu leyti. Stykkis-
hólmur er orðinn partur af þjónustu Orkuveitu
Reykjavíkur. Góð reynsla væri af samstarfi við
nærliggjandi svæði við Reykjavík. Það væri
grundvallaratriði að fólki fyndist það vera hluti
af heildinni og nyti sömu góðu þjónustu og aðr-
ir á sama veitusvæðinu. Hann fullvissaði
heimamenn um að Orkuveitan mundi standa
sig vel við að þjónusta þá og tryggja þeim ör-
yggi bæði með hitaveitu og vatnsveitu.
OR kaupir hita- og vatnsveitu Stykkishólms
Hitunar-
kostnaður
lækkar um
þriðjung
Eftir Gunnlaug Árnason
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Samkomulag Alfreð Þorsteinsson, formaður
stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, og Rúnar
Gíslason, forseti bæjarstjórnar Stykkishólms,
takast í hendur eftir undirritun samninga.
Stykkishólmur | Erla Frið-
riksdóttir sem verið hefur
markaðsstjóri Smáralindar í
Kópavogi, hefur tekið við
starfi bæjarstjóra í Stykk-
ishólmi. Óli Jón Gunnarsson,
sem hefur verið bæjarstjóri
frá árinu 1999 lét af störfum í
gær, eftir að hafa skrifað und-
ir samning um sölu á hita-
veitu Stykkishólms til Orku-
veitu Reykjavíkur.
Stykkishólmur fékk kaup-
staðarréttindi árið 1987 og er
Erla fjórði bæjarstjórinn og
fyrsta konan sem gegnir því
embætti. Fyrsti bæjarstjóri
var Sturla Böðvarsson og
Ólafur Hilmar Sverrisson tók
atburðina í starfi nefndi hann
samninginn við Orkuveitu
Reykjavíkur og svo söluna á
Hótel Stykkishólmi. „Báðar
þessar sölur hafa mjög já-
kvæð áhrif fyrir bæjarsjóð og
um leið fyrir samfélagið. Ég
kom að uppbyggingu hitaveit-
unnar og það hefur gengið
hraðar að ná orkuverðinu nið-
ur, en ég átti von á,“ sagði Óli
Jón. Hann sagði að það hefði
komið sér á óvart þegar hann
flutti í bæinn hvað ferða-
mennskan væri miklu meiri
en hann átti von á og í fram-
tíðinni ætti sá þáttur í at-
vinnumálum Hólmara eftir að
aukast enn meira.
við af honum. Þegar Erla tók
við lyklunum af Ráðhúsinu
sagði hún að afskaplega
skemmtilegt væri að vera
komin aftur á heimaslóðir.
„Ég hlakka til að taka við
nýja starfinu sem gerir mikla
kröfur til mín. Ég er að færa
mig yfir á nýjan starfsvett-
vang sem gefur mér nýja
reynslu,“ segir Erla. Eitt af
fyrstu verkum nýja bæj-
arstjórans er að skrifa undir
samning við Skipavík um
byggingu nýs leikskóla.
Óli Jón Gunnarsson þakk-
aði fyrir sex góð ár í Hólm-
inum. Þegar hann var spurð-
ur um eftirminnilegustu
Erla Friðriksdóttir tekur við starfi bæjarstjóra
„Skemmtilegt að vera
komin heim aftur“
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Bæjarstjóraskipti Óli Jón Gunnarsson afhenti Erlu Friðriksdóttur lykla að skrifstofu bæj-
arstjórans í ráðhúsinu í Stykkishólmi. Erla er fyrsta konan í stöðu bæjarstjóra í Stykkishólmi.