Morgunblaðið - 23.07.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 23
MINNSTAÐUR
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
SUÐURNES
Hveragerði | „Ég hef gefið þessu góðan
tíma að undanförnu og mála mikið úti, var
við Mývatn sem er ótrúlegur staður til að
mála og svo var ég inni á fjöllum og málaði
til dæmis Jarlhetturnar. Það er lang-
skemmtilegast að vera úti ef maður getur
komið því við,“ sagði Jón Ingi Sigur-
mundsson listmálari sem opnar mál-
verkasýningu í Eden í Hveragerði næst-
komandi þriðjudag, klukkan 20.30. Myndir
Jóns Inga hafa vakið athygli en nýlega
birtist mynd eftir hann í alþjóðlegu mynd-
listartímariti, International Artist, en það
þykir mikil viðurkenning að fá birtar
myndir í því tímariti og umfjöllun um þær.
Jón Ingi, sem er mikill tónlistarmaður og
stjórnaði kór Fjölbrautaskólans um árabil,
hefur fengið tvo bæjarfulltrúa úr Árborg,
vana söngmenn, þá Þorvald Guðmundsson
og Ásmund Sverri Pálsson til að syngja dú-
ett við opnun sýningarinnar.
Á sýningunni í Eden eru olíu- pastel og
vatnslitamyndir sem allar eru málaðar á
þessu og síðasta ári. Myndefnið er að mest-
um hluta landslag, oft málað á staðnum
eða í vinnustofu. Myndefnið er sótt víðs
vegar að af landinu, stundum eru þetta
þekktir staðir og stundum lækur eða tjörn
eða gömul hús. Inni á milli eru svo blóma-
myndir og stemningsmyndir.
Áhugasamir geta kynnt sér vefsíðuna
www.joningi.com.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Sýning Jón Ingi Sigurmundsson með tvær
mynda sinna, af gömlum húsum á Eyr-
arbakka og vatnslitamynd frá Þingvöllum.
Skemmti-
legast að
mála úti
Njarðvík | Í bátasmiðju Mótunar ehf. í Njarðvíkum er nú verið að ljúka
smíði Gáskabáts sem fer til Grænlands en hann fékk vinnuheitið Hrein-
dýrabáturinn og er eins og Gáski 1100-bátarnir. Hann er smíðaður fyrir
Stefán Magnússon, hreindýrabónda í Grænlandi.
Stefán hyggst nota hann sem útsýnisbát fyrir ferðamenn, flytja veiði-
menn og þann afla sem þeir þurfa að koma til byggða auk þess sem hann
mun annast sjúkraflutninga og þjónusta jarðvísindamenn sem eru við nikk-
elleit í Grænlandi.
Báturinn gengur 27 sjómílur og verður með aðstöðu fyrir 12 manns auk
áhafnar, annað rými verður nýtt undir flutninga.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Hreindýrabátur Starfsmenn Mótunar við bátinn sem þeir hafa verið að
smíða og nú hefur verið sjósettur. Hann verður í ferðum við Grænland.
Smíða bát fyrir
hreindýrabónda
Selfoss | „Við byrjuðum hérna 1.
júní og verðum með opið til 15.
ágúst en þá tekur við starfsemi
heimavistar Fjölbrautaskólans.
Þetta hefur farið vel af stað, við
fáum til okkar ferðamenn á bíla-
leigubílum og fólk sem vill hugsa
um sig sjálft,“ segja Erna Gunn-
arsdóttir og Erla Þorsteinsdóttir
sem ásamt eiginmönnum sínum eru
eigendur íbúðahótelsins Fosstúns
við Eyraveg á Selfossi. Húsið er í
göngufæri frá miðbænum á Selfossi
og með mjög gott aðgengi fyrir alla.
Í húsinu eru 32 íbúðir, 30 og 40
fermetrar að stærð, með gistiplássi
fyrir 72. Íbúðirnar eru leigðar út
með öllum búnaði sem þarf til dval-
ar og í hverri íbúð er svefnpláss fyr-
ir 2 til 4. Síðan er aðgengi að þvott-
vél og þurrkara og tölvutenging er í
hverri íbúð. Verð á gistingu er 7.000
krónur nóttin fyrir minni íbúðirnar
og 9 þúsund fyrir þær stærri.
Skipt um starfsvettvang
Gestir þeirra Ernu og Erlu sem
dvelja í lengri tíma fá þrif og skipti
á rúmfötum. „Fólk sem kemur þarf
ekki að koma með neitt með sér
nema matinn,“ segir Erna og þær
vekja athygli á að íbúðirnar séu
eins og sumarhús með þjónustu.
Fólk getur verið mjög frjálst í
Fosstúni en hver íbúð hefur sjálf-
stæðan inngang og svo er vakt í af-
greiðslunni allan sólarhringinn sem
er mikið öryggisatriði fyrir gestina.
Í næsta nágrenni eru verslanir og
veitingastaðir og stutt í sundlaug-
ina á staðnum. Margar fjölskyldur
á Selfossi og í næsta nágrenni hafa
nýtt sér Fosstún þegar stór-
fjölskyldan kemur í heimsókn og
gistipláss vantar.
Þær Erna og Erla störfuðu á
skrifstofu byggingafyrirtækisins
JÁ-verktaka á Selfossi sem fjöl-
skyldur þeirra voru aðaleigendur
að. Þar sáu þær um allt skrifstofu-
og mannahald. Fyrirtækið var síð-
an selt fyrir nokkru og fjölskyld-
urnar sneru sér að öðrum verk-
efnum og rekstur íbúðahótelsins
Fosstúns yfir sumartímann er eitt
þeirra. Fjölskyldurnar byggðu hús-
ið og leigja það út til Fjölbrauta-
skóla Suðurlands yfir vetrartím-
ann. „Okkur þótti alltaf vænt um
mannskapinn í fyrirtækinu,“ segir
Erla en skrifstofa fyrirtækisins var
miðja í öllu sem sneri að starfs-
mönnum svo sem við launa-
greiðslur og ýmis samskipti starfs-
manna. Hún bendir á að þó allur
rekstur þurfi svipaðar áherslur þá
sé það talsverð breyting að reka
ferðaþjónustufyrirtæki.
Í æfingabúðum í sumar
„Það má segja að við séum í æf-
ingabúðum, núna fyrsta sumarið.
Við erum svona að átta okkur á
þeirri stöðu sem við erum í hérna
og hvernig best er að snúa sér í
þessu. Það er margt sem maður
þarf að læra en við byggjum þjón-
ustu okkar á almennri íslenskri
gestrisni,“ segir Erna en fjölskyld-
urnar vinna við reksturinn og
skipta með sér sumrinu og börnin
taka þátt í vinnunni sem inna þarf
af hendi.
„Verkefni haustsins og vetrarins
verður að kynna okkur fyrir mark-
aðnum og koma okkur vel á fram-
færi fyrir næsta sumar,“ segir Erla.
Báðar eru þær sammála um að um-
sýslan í kringum íbúðahótelið og
gestina sé skemmtilegt starf. „Okk-
ur leiðist sko alls ekki í þessu. Það
er mjög gefandi að umgangast fólk
og kynnast viðhorfum þess, hvað-
anæva úr heiminum,“ segja þær
Erna og Erla í íbúðahótelinu Foss-
túni á Selfossi.
Reka íbúðahótel í húsnæði sem verður heimavist Fjölbrautaskólans í vetur
Fólk er frjálst í Fosstúni
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Sumar Erna Gunnarsdóttir og Erla Þorsteinsdóttir reka íbúðahótelið
Fosstún á Selfossi í sumar. Þær eru ánægðar með nýjan starfsvettvang.
Eftir Sigurð Jónsson
Reykjanesbær | „Þetta skapar
aukna möguleika fyrir fyrirtækið en
það skiptir mig líka máli að unnið sé
að framleiðslu skólamáltíða á réttan
hátt. Það hefur svo mikið forvarnar-
gildi fyrir ungdóminn,“ segir Axel
Jónsson, framkvæmdastjóri og aðal-
eigandi Matarlystar-Atlanta ehf., en
bæjarráð Reykjanesbæjar hefur að
tillögu Ríkiskaupa ákveðið að ganga
til samninga við fyrirtækið um fram-
leiðslu matar fyrir grunnskóla bæj-
arins og mat sem sendur er heim til
aldraðra bæjarbúa.
Matarlyst-Atlanta rekur útsend-
ingareldhús og veitingastað við Iða-
velli í Keflavík. Axel Jónsson
breyttri rekstri fyrirtækisins fyrir
sjö árum þegar Atlanta hætti að
fljúga til landsins og nýta þjónustu
fyrirtækisins. „Við þurftum að gera
eitthvað við áhöld og aðstöðu og þá
fór ég að þróa þetta verkefni, skóla-
matinn,“ segir Axel. Síðan hefur
hann unnið að því að prédika mik-
ilvægi þess að framleiða góðan mat
fyrir skólabörnin og hagkvæmni
þess að gera það í miðlægum eldhús-
um. Fékk hann í fyrstu litlar und-
irtektir. Síðan náðust samningar við
Hafnarfjarðarbæ um framleiðslu á
mat í tvo skóla og síðan hefur verk-
efnið verið í stöðugri framþróun, að
sögn Axels.
Síðasta vetur var matur sendur í
sjö skóla á höfuðborgarsvæðinu og í
Grindavík. Nú bætast væntanlega
við fimm grunnskólar í Reykja-
nesbæ auk nokkurra grunnskóla og
leikskóla á höfuðborgarsvæðinu
þannig að næsta vetur má búast við
að fyrirtækið framleiði mat fyrir
fimmtán skóla. Reiknar Axel með að
framleiddir verði um 2.500 mat-
arskammtar á dag, fyrir skólana og
önnur mötuneyti sem eru í við-
skiptum hjá fyrirtækinu.
Fjórir aðilar buðu í skólamatinn í
Reykjanesbæ, Sláturfélag Suður-
lands, IGS á Keflavíkurflugvelli og
HÁ-veitingar í Stapanum. Ríkiskaup
lögðu mat á tilboðin út frá verði, fjöl-
breytileika matseðla, hollustu,
menntun og reynslu bjóðenda. Fékk
tilboð Matarlystar hæstu einkunn,
út frá þessum forsendum, og ákvað
bæjarráð að ganga til samninga við
fyrirtækið.
Verðið lækkar í áskrift
Starfsfólk skólanna í Reykja-
nesbæ mun áfram sjá um, ásamt
starfsmanni verktaka, að útdeila
mat og sjá um að allt fari vel fram
meðan á máltíðum stendur og allt
fyrirkomulag máltíða verður með
líku sniði og verið hefur, segir í frétt
um þetta á vef Reykjanesbæjar.
Helstu breytingarnar gagnvart for-
eldrum eru þær að ekki þarf að
kaupa matarkort á bæjarskrifstof-
unum heldur verða viðskiptin við
verktakann.
Nýjung er að boðið verður upp á
áskrift samhliða matarkortunum.
Stök máltíð mun áfram kosta 235
krónur en máltíð í áskrift verður
boðin á 185 krónur. Þetta er um það
bil 20% lækkun frá núverandi verði.
Matarlyst-Atlanta styðst við ráð
Lýðheilsustöðvar um næring-
arinnihald matarins og næring-
arfræðingur reiknar út næring-
argildi fæðisins á matseðlinum.
Matseðillinn er birtur á vef fyr-
irtækisins, skolamatur.is, nokkrar
vikur fram í tímann.
Axel segir að samhliða þeirri
aukningu sem nú verður í eldhúsinu
hafi verið ákveðið að hætta veitinga-
rekstri í Matarlyst á Iðavöllum og
nýta plássið til að stækka eldhúsið.
Samið við Matarlyst-Atlanta um skólamat í Reykjanesbæ
Eldhúsið framleiðir mat
fyrir 2.500 manns á dag
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Skólamatur Verkefnin aukast hjá
Axel Jónssyni í Matarlyst-Atlanta.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is