Morgunblaðið - 23.07.2005, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Hjónin Auður Hallgríms-dóttir hjúkrunarfræð-ingur og Óðinn Gunn-arsson járnsmiður voru
í hópi 43 Íslendinga, sem þátt tóku í
fyrstu gönguferð ÍT-ferða um Júl-
íönsku alpana í Slóveníu í júnímán-
uði. Þrátt fyrir að vera forfallnir
gönguáhugamenn, hafa gönguferð-
irnar hingað til verið bundnar við
Ísland og þetta var því í fyrsta sinn
sem þau brugðu sér til útlanda til
að ganga, en alls ekki það síðasta.
„Þetta var frábær upplifun í alla
staði og fór langt fram úr vænt-
ingum enda er Slóvenía hreint
augnakonfekt. Ég hef gengið mikið
um dagana, en þetta gjörsamlega
toppar allt annað, kannski vegna
þess hve landið er ósnortið, en á
fimm daga göngu okkar um svæðið
hittum við ekki fyrir einn einasta
túrista á leiðinni,“ segir Auður, sem
er staðráðin í að panta sér göngu-
ferð til útlanda á næsta ári, en þá
væntanlega á nýjar slóðir.
Þjóðgarður og jökulvatn
Gengið var um Triglav-
þjóðgarðinn, nálægt landamærum
Austurríkis, og kostaði ferðin 105
þúsund krónur á manninn með öllu
inniföldu.
Slóvenía er lýðveldi, sem liggur
sunnan Alpanna í Mið-Evrópu.
Landið á landamæri að Ítalíu í
vestri, Austurríki í norðri, Ung-
verjalandi í norðaustri og Króatíu í
austri og suðri. Þar er að finna fjöll,
sólbakaðar strendur og gamlar
borgir auk halla í barokk- og got-
neskum stíl. Austasti hluti Alpa-
fjallanna er í Slóveníu og er Triglav
þar fjalla hæst, 2.864 metra hátt. Á
síðustu hundrað árum hefur Trig-
lav-fjallið orðið að þjóðar- og næst-
um því trúartákni Slóvena, en Trig-
lav-þjóðgarðurinn er í hjarta
Gorenjska fjallasvæðisins. Þar er
meðal annars stærsta jökulvatn í
Slóveníu, Bohinj-vatnið. Þjóðgarð-
urinn nær yfir 84.800 hektara
svæði með óteljandi giljum, ám og
lækjum, vötnum, frumskógi og
engjum.
Alvöru fornleifauppgröftur
– Hvernig var ferðatilhögunin?
„Flogið var með leiguflugi til
Trieste á Ítalíu þar sem rúta beið
hópsins, en frá flugvellinum er um
þriggja tíma akstur til Slóveníu.
Gengið var í fjalllendi í fimm daga.
Aldrei var gist á sama stað, heldur
var gengið á milli fjallaskála, sem
byggðir voru á tímum kommúnista.
Þetta eru A-laga hús á þremur
hæðum með gluggahlerum og
blómakerum fyrir neðan glugga og
á hverjum stað elduðu vertar fyrir
okkur kjarngóðan slóvenskan mat.
Fjórir innfæddir leiðsögumenn
fylgdu hópnum allan tímann og
skiptu okkur í þrjá hópa eftir getu,
en hópurinn samanstóð af fólki á
öllum aldri, allt upp í sjötugt, og
þannig fengu allir gönguferðir við
hæfi. Einn leiðsögumaðurinn var
fornleifafræðingur og fyrrum her-
maður og hafði sem slíkur unnið við
að grafa upp stríðsminjar frá fyrri
heimsstyrjöldinni. Hann bauð okk-
ur í fornleifauppgröft á stað sem
var einn blóðugasti orrustuvöllur
síðari heimsstyrjaldarinnar, þar
sem Hemingway skrifaði síðar bók
sína „Vopnin kvödd“. Þarna grófum
við upp þvílíkar minjar. Sumir í
hópnum fundu tölur af einkenn-
isfatnaði, aðrir skó og silfurhringi
og ég fann byssubelti með skotum í.
Göngumenn byrjuðu í 1.350
metra hæð og aldrei farið neðar, en
hæst var farið í 2.240 metra hæð.
Við byrjuðum að ganga í laufskógi,
síðan tók barrskógurinn við og frá
honum gengum við upp í kletta og
lággróður þar sem við könnuðumst
bæði við lyktina í loftinu og flóru á
borð við krækiberja- og bláberja-
lyng, blóðberg, fífla og blágresi.
Síðustu tvo dagana var gist við
Bledvatnið þar sem við leigðum
okkur m.a. hjól og hjóluðum í
kringum vatnið. Þarna drukkum
við bókstaflega í okkur friðsæld og
fegurð.“
Trússferðir um Ísland
Sumarfríin hjá þeim Auði og
Óðni snúast um göngur og halda
þau sér við efnið á veturna með því
að ganga á einhverja tinda í ná-
grenni höfuðborgarinnar. Hund-
arnir þeirra tveir, Jökull og Satan
fá ávallt að fylgja með í innanlands-
reisurnar enda góðir ferðafélagar.
Þegar Ferðablaðið náði tali af
Auði var hún að leggja í fjögurra
daga ferð um það svæði sem Aust-
firðingar kalla Gerpissvæðið og
liggur frá Eskifirði til Reyð-
arfjarðar. „Ég tilheyri nefnilega
gönguhóp sem til varð fyrir sex ár-
um eftir ferðafélagsferð um Fjörð-
ur með Valgarði Egilssyni. Hópur
þessi small svo vel saman að við
ákváðum að búa til gönguhóp, sem
síðan hefur skipulagt eina sameig-
inlega trússferð á ári. Í hópnum eru
um 25 manns, á aldrinum frá tíu
ára og upp í 75 ára. Við kaupum allt
hjá heimamönnum á hverjum stað
og fáum heimamenn sem leiðsögu-
menn því þá fær maður sögurnar
beint í æð og fær að upplifa það svo
sterkt á söguslóðum hvað fólk hef-
ur þurft að puða í lífinu. Í fyrra fór-
um við í fjögurra vikna ferð um
Hornstrandir, gengum frá Furu-
firði og niður í Ófeigsfjörð og
keyptum allt trússið af Pétri óðals-
bónda í Ófeigsfirði. Þarna var m.a.
að finna heimareyktan silung,
heimagerða kæfu, heimabakaðar
flatkökur og rúgbrauð, kanilsnúða
og vínarbrauð og heimagerða kjöt-
súpu. Við vorum í skýjunum með
þetta allt saman.“
HVAÐAN ERTU AÐ KOMA? | Úr gönguferð um náttúruparadís Júlíönsku alpana í Slóveníu
Íslensku göngugarparnir nutu kyrrðar og náttúrufegurðar í Slóveníu.
„Drukkum í
okkur fegurð
og friðsæld“
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Auður Hallgrímsdóttir og Óðinn Gunnarsson við Ledvica-vatn.
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
Bílaleigubílar
Sumarhús í
DANMÖRKU
www.fylkir.is sími 456-3745
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgreiðslugjöld á flugvöllum.)
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna
og minibus, 9 manna og rútur með/
án bílstjóra.
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af
öllum stærðum, frá 2ja manna og
upp í 30 manna hallir. Valið beint af
heimasíðu minni eða fáið lista.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshverfi
Danskfolkeferie orlofshverfi
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk gsm-símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á
heimasíðu; www.fylkir.is
Vika í Danmörku
www.hertz.is
19.350 kr. - ótakmarkaður akstur,kaskó, þjófavörn, flugvallargjaldog skattar.*Verð á viku miðað við 14 daga leigu.*
Opel Corsa eða sambærilegur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
28
90
9
06
/2
00
5
50 50 600
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
við að veita svigrúm fyrir rómantík
og næði handa nýgiftu parinu og
eru gististaðir valdir með sérstöku
tilliti til þess að „hver dagur eigi
sínar einstöku minningar“, eins og
segir á heimasíðu Stúdentaferða,
www.exit.is. Auk þess eru ævintýr-
in ekki langt undan og hæfa þessar
brúðkaupsferðir þeim sem vilja
gera annað og meira en að liggja
bara á ströndinni eða rölta á milli
veitingastaða.
Verð er á bilinu 90 þúsund krón-
ur á mann, upp í 350 þúsund fyrir
algjörar lúxusferðir og er flest allt
innifalið í því verði. Ferðirnar mið-
ast við að farið sé í eina til tvær
vikur en yfir sig ástfangnar turtil-
dúfur geta að sjálfsögðu framlengt
ferðina.
STÚDENTAFERÐIR bjóða upp á
öðruvísi brúðkaupsferðir til fram-
andi landa í samvinnu við Imag-
inative Traveller. Nú er hægt að
fara í ævintýra-brúðkaupsferð sem
býður upp á framandi upplifun, af-
þreyingu, lúxus og ævintýri, allt í
sömu ferðinni. Boðið er upp á ferð-
ir til staða eins og Indlands, Mar-
okkó, Borneó, Botswana, Tansaníu
og Ekvadors og er ferðalagið snið-
ið að þörfum brúðhjónanna hverju
sinni. Meðal þess sem er hægt að
gera er að skreppa til Galapagos-
eyjanna frá Ekvador, ferðast á fíls-
baki í Taílandi, sigla á lúxushúsbát
í Indlandi og njóta lífsins á hóteli
búnu til úr pálmalaufum í Kosta
Ríka.
Engar áætlaðar brottfarir eru að
þessum ferðum heldur fer ferða-
tilhögun algjörlega eftir óskum
brúðhjónanna. Ferðirnar miðast
Óhefðbundnar brúðkaupsferðir
BRÚÐKAUP
Nánari upplýsingar er að finna
hjá Stúdentaferðum.
Vefslóð: www.exit.is