Morgunblaðið - 23.07.2005, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 25
FERÐALÖG
Farfuglaheimilið í Reykjavík
hlýtur gæðavottun
Farfuglaheimilið í Reykjavík hlaut í vik-
unni gæðavottun Hostelling Int-
ernational samtakanna, svo nefnda
„HI Quality“ vottun,
sem veitt er fyrir gæði
í aðbúnaði, þjónustu og
innra gæðaeftirlit.
Rúmlega 5.000 far-
fuglaheimili í yfir 60
löndum eru starfrækt
innan samtakanna og
eiga þau öll að uppfylla lágmarks
staðla í aðbúnaði, en fyrir nokkrum ár-
um var farið af stað með sérstakt til-
raunaverkefni á sviði allsherjar gæða-
stjórnunar sem nýtast á þeim sem
lengra eru komin til að styrkja enn
frekar gott starf.
Farfuglaheimilinu í Reykjavík var boðin
þátttaka í hópi 12 ólíkra farfuglaheim-
ila viðs vegar að um heiminn, sem
hafa síðan unnið að því síðan að inn-
leiða gæðakerfi hvert á sínum stað.
Farfuglaheimilið í Reykjavík er það
fyrsta á Norðurlöndum til að fá þessa
vottun og uppfylla þar með strangar
kröfur um gæði og innra eftirlit.
Hjólaferð um Svalvoga
Vesturferðir bjóða tvisvar í sumar upp
á dagsferðir um Svalvoga. Svalvoga-
hringurinn býður upp á hrikalegt út-
sýni og mikið fuglalíf.
Vesturferðir eru í samstarfi við líkams-
ræktartröllið Stebba Dan um að leið-
segja í ferðunum. Lagt er af stað frá
Upplýsingamiðstöð ferðamála/
Vesturferð um klukkan 9 og haldið
með rútu að flugvellinum í nágrenni
Þingeyrar þar sem hópurinn gerir sig
ferðbúinn. Hjólað er um söguslóðir
Gísla Súrssonar og síðan hinn hrika-
lega veg um Svalvoga sem sumir kalla
hættulegasta veg landsins. Ferðin
endar á Þingeyri þar sem slakað verð-
ur á í sundlauginni áður en haldið er til
baka til Ísafjarðar. Vesturferðir bjóða
farþegum að leigja hjól á tilboðsverði
fyrir ferðina, annars kemur fólk með
sína eigin fáka.
Næst verður farið laugardaginn laug-
ardaginn 6. ágúst.
Starfsmenn Farfuglaheimils Reykjavíkur hampa vottuninnni.
Nánari upplýsingar um
Farfuglaheimilið í Reykjavík
www.hostel.is
Nánari upplýsingar um ferðina
og bókanir eru á heimasíðu
Vesturferða
www.vesturferdir.is
Allar nánari upplýsingar veita
starfsmenn Vesturferða í
síma 4565111 eða á netfanginu
info@vesturferdir.is.
20.–24. júlí
Hvammstangi
Unglistahátíð.
22.–23. júlí.
Ísafjörður
Stóra púkamótið í fótbolta.
22.–24. júlí
Reykjadalur
Harmonikuhátíð á Breiðumýri.
22.–24. júlí
Grundarfjörður
Á góðri stundu á Grundarfirði.
Fjölskylduhátíð með fjölda dag-
skráratriða.
22.–24. júlí
Borgarfjörður
Reykholtshátíð. Sígild tónlist í
sögulegu umhverfi.
22.–24. júlí
Fáskrúðsfjörður
Franskir dagar. Fjölskylduhá-
tíð þar sem áhersla er lögð á
tengsl byggðarinnar við Frakk-
land.
23. júlí.
Akranes
Kleinumeistaramót Íslands á
Safnasvæðinu á Görðum.
23. júlí
Bjarnarfjörður
Kotbýli kuklarans. Galdrasýning.
opnuð á Klúku í Bjarnarfirði.
24. júlí
Stykkishólmur
Sumartónleikar í Stykkishólms-
kirkju.
24. júlí
Árbæjarsafn
Ólafsvaka. Færeyskur dagur.
24. júlí
Dalir
Stórhátíð í Hjarðarholtskirkju í
tilefni af 100 ára afmæli.
26. júlí
Snæfellsnes
Gengið um slóðir Þórðar á Dag-
verðará í Þjóðgarðinum Snæ-
fellsjökli.
Á FERÐ UM LANDIÐ
Litríkar vinkonur á Frönskum dög-
um á Fáskrúðsfirði í fyrra.
Franskir dagar og kleinumót
ERTU á leiðinni til
Hollands?
Ef svo er þá er eft-
irminnileg upplifun
að fá sér drykk á
hreyfanlegu hjóla-
kaffihúsi.
Allt að sautján
manns komast fyrir á
hjólakaffihúsinu í
einu, hver gestur hef-
ur sinn hjólahnakk og
petala, og er það knú-
ið áfram á því að allir
hjóli saman. Ekki
þurfa þó allir gest-
irnir að hjóla og hægt
er að stíga af og á
kaffihúsið þegar
menn vilja.
Sniðugt er að leigja
eitt hjólakaffihús fyr-
ir partíið og hjóla
ásamt veislugest-
unum góðan spotta
meðan öltunnan á hjólinu er tæmd.
Um leið og hjólað og drukkið er
geta menn hlustað á uppáhalds tón-
listina sína og rabbað við hjólafélag-
ana.
Að leigja venjulegt sautján manna
hjólakaffihús kostar 50 evrur, 3.400
kr. á klukkutímann, eða 175 evrur
yfir daginn. Einnig er hægt að velja
um að kaupa 30–50 lítra bjórkúta
með hjólinu og/eða aðra drykki.
Einn gesta þarf að gegna hlut-
verki hjólastjóra og barþjóns
Einnig er hægt að leigja svokallað
VIP-hjólakaffihús sem tekur nítján
manns í sæti og er tilvalið fyrir brúð-
kaupsveisluna.
Með leigu á slíku hjólakaffihúsi er
nokkuð öruggt að veislan verður
óvenjuleg. Aldrei er þó of varlega
farið þegar bjór og hjól eru annars
vegar og því er vissara að mæta með
hjálm í hjólaveisluna og hafa í huga
að hjólreiðar undir áhrifum áfengis
stangast víða á við lög.
HJÓLREIÐAR | Hreyfanleg veisla
Hjólakaffihúsið er allsérstakt farartæki sem hlýt-
ur að vekja eftirtekt gesta og gangandi.
Nánari upplýsingar um hollenska
hjólakaffihúsið má finna á
www.fietscafe.com
Hjólakaffihús
í Hollandi
„STÓRA eplið sem aldrei sefur“ er
stundum haft um Nýju Jórvík.
Flestir þekkja hins vegar borgina
undir nafninu New York og er hún
mjög vinsæll áfangastaður hjá
ferðamönnum.
Flugleiðir eru með beint flug dag-
lega til New York í sumar og einnig
verður reglulegt flug í vetur. Því er
líklegt að margir Íslendingar muni
leggja leið sína þangað. Það er alltaf
gott að skipuleggja sig áður en farið
er í ferðalagið og ákveða hvað skal
sjá, sérstaklega ef farið er í stutta
borgarferð, svo hér eru nokkrar
ábendingar.
Á vef Flugleiða, er að finna netsmelli frá 45.000 þús-
und krónum ef pantað er tímanlega. Athugið að nets-
mellir og tilboð eru birt án skatta.
Þá eru ýmis fyrirtæki í New York sem sérhæfa sig í
áhugaverðum skoðunarferðum.
Gray line New York býður upp á strætóferðir um
borgina, sem m.a. liggja framhjá Frelsisstyttunni og
Empire State-byggingunni.
New York City Vacation Packages býður upp á
sömu ferðir ásamt tveggja nátta gistingu fyrir um 35
þúsund krónur.
Hægt er að fara á slóðir Carrie Bradshaw og félaga
hennar úr Beðmálum í borginni í samnefndri leiðsögn.
Farið er á veitingastaði og í skó-
verslanir þáttaraðarinnar auk
þess sem vinnustaðir aðalpersón-
anna eru heimsóttir og gefnar
upplýsingar um það sem gerðist
bak við tjöldin við upptöku þátt-
anna (blessuð sé minning þeirra).
Aðrir geta skellt sér í „Rock’n-
’Roll walking tour“ á slóðir Led
Zeppelin, The Ramones, Andy
Warhol, Velvet Underground og
Madonnu í East Village. Þar er
hægt að sjá hvar þau spiluðu,
lifðu, versluðu og tóku myndir
fyrir plötuumslögin sín, á meðan
litríkrar tónlistarflóru Lower
Eastside er notið.
New York-borg heldur svo
uppi opinberri ferðamannasíðu þar sem er að finna
upplýsingar um helstu viðburði næstu mánaða. Mikið er
um að vera eins og fjöldi tónlistarhátíða, menningar-
samkoma og tískuatburða er til vitnis um.
NEW YORK
New York-pæjurnar úr Beðmálum í
borginni. Nú er hægt að fara á slóðir
þeirra í sérstökum skoðunarferðum.
Frekari uppýsingar um ferðir Flugleiða:
www.icelandair.is
Nánari upplýsingar um strætóferðir um borgina:
www.coachusa.com
Ferðir á slóðir Carrie Bradshaw:
www.nyctourist.com
Nánari upplýsingar um New York:
www.nycvisit.com
Vertu Carrie eða Warhol
í nokkrar klukkustundir
Reuters