Morgunblaðið - 23.07.2005, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 27
MENNING
Toshiba Satellite
Pro L10-103
Verð: 109.700 kr.
Toshiba skólafartölvur
SKEIFUNNI 17 SÍMI: 550 4000 WWW.TAEKNIVAL.IS
SAMSTARFSAÐILAR:
Penninn - Akureyri - www.penninn.is / Tölvuþjónusta Vesturlands - Borgarnes - tvest@simnet.is
Netheimar - Ísafjörður - www.netheimar.com / Eyjatölvur - Vestmannaeyjum - www.eyjatolvur.com
Tölvuþjónusta Vals - Keflavík - tvals@mi.is / Tölvu- og tækjabúðin - Ólafsvík
Martölvan - Höfn í Hornafirði - www.martolvan.is
FARTÖLVUR
Toshiba Qosmio
F10-136 1.7Ghz
Verð: 219.700 kr.
Toshiba Satellite
M40-133
Verð: 159.700 kr.
TÓNLISTARVEISLAN heldur
áfram á Sumartónleikum Skálholts
nú um helgina.
Að þessu sinni kemur fram Bach-
sveitin í Skálholti undir stjórn Stanl-
ey Ritchies, en hann er einn af helstu
frumkvöðlum heims í flutningi bar-
okktónlistar á upprunaleg hljóðfæri
og spilar á fiðlu. Þá munu einsöngv-
ararnir Ágúst Ólafsson og Guðrún
Jóhanna Ólafsdóttir syngja með
sveitinni.
Þetta er í fyrsta sinn sem Ritchie
leiðir Bachsveitina og það kom til af
tilstilli Höllu Steinunnar Stef-
ánsdóttur, meðlimi sveitarinnar og
fyrrum nemanda Ritchies.
„Ég er ánægður með heimsóknina
til Íslands og hlakka til tónleikanna,“
sagði Ritchie í samtali við Morg-
unblaðið í gær. „Það verður ein-
staklega gaman að flytja þessa efnis-
skrá, hún er lífleg og falleg.“
Ritchie er prófessor við Tónlist-
arháskólann í Bloomington, Indíana í
Bandaríkjunum og segist njóta þess
að kenna, en þó sé enn skemmtilegra
þegar hann fær tækifæri til að spila á
fiðluna.
Síðustu mánuði hefur hann verið
upptekinn í ýmsum tónlistarverk-
efnum. Hann stýrði Bloomington
Early Music hátíðinni í maí og áður
en hann kom hingað til lands var
hann að störfum á Ítalíu.
Á fyrri tónleikunum í dag verður
flutt efnisskrá undir yfirskriftinni
Gullöldin í Dresden en þá hljóma
verk eftir tónskáldin Schütz, Verac-
ini og Zelenka. Á þeim seinni verða
flutt verk eftir Händel.
Ritchie hefur sérhæft sig í flutn-
ingi tónlistar á upprunaleg hljóðfæri
og nýtur þess alltaf jafn mikið.
„Ég kynntist þessum geira í
kringum 35 ára aldur þegar ég var
kominn vel á veg í mínum starfsferli.
Fyrst brást ég við eins og margir nú-
tímahljóðfæraleikarar gera og taldi
hljóm upprunalega hljóðfærisins
ekkert líkjast fiðlu,“ lýsir Ritchie. En
ég hélt áfram að kynna mér hljóð-
færin og það opnaðist fyrir mér al-
veg nýr heimur. Þegar ég fór að
kynnast bókmenntum og sögu bar-
okktímans skildi ég tónlistina mun
betur.“
Ritchie hefur starfað sem tónlist-
armaður í 50 ár og segir tónlistina
alltaf vera jafn ferska. Fólk finni
ætíð nýjar leiðir til að nálgast tón-
verk og það skiptir hann miklu máli.
„Tónlist er ekki einungis tónlist
heldur líka saga og menning hinna
ýmsu þjóða,“ segir hann.
Ritchie segist alltaf hafa haft mik-
inn áhuga á því hvað greini tónskáld
að. „Það er gaman að velta því fyrir
sér hvernig hægt sé að láta verk eftir
Mozart hljóma eins og Mozart eða
hvenær verk eftir Brahms hljómi líkt
og Brahms?“
Í dag mun Bachsveitin ásamt
Ritchie gera sitt besta að láta tónlist-
ina líkjast því sem tónskáldin höfðu í
huga en þó undir áhrifum sem fylgja
nýjum tímum og flytjendum.
Tónleikar | Þriðja helgi Sumartónleika í Skálholti helguð gullöldinni í Dresden
„Tónlist er líka
saga og menning“
Bachsveitin í Skálholti ásamt Stanley Ritchie (fyrir miðju) og Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur.
Eftir Völu Ósk Bergsveinsdóttur
valaosk@mbl.is
Í ár eru liðin hundrað ár fráfæðingu tónskáldsins, flautu-og píanóleikarans Árna
Björnssonar (1905–1995) eins af
frumkvöðlum íslensks tónlistarlífs.
Hann fæddist og ólst upp í Lóni í
Kelduhverfi, en sýndi fljótt org-
elinu í stofunni meiri áhuga en bú-
skapnum. Um formlegt tónlist-
arnám í æsku var ekki að ræða en
þrátt fyrir það var Árni þegar á
unglingsárunum farinn að stjórna
kórum víða um héraðið.
Leiðin lá síðan til Reykjavíkur
þar sem hann á árunum 1930–1935
stundaði nám í Tónlistarskólanum í
píanóleik, tónfræði og hljómfræði
hjá dr. Urbancic og Franz Mixa.
Einnig lærði hann að leika á flautu
og var einn af stofnfélögum Hljóm-
sveitar Reykjavíkur, sem var und-
anfari Sinfóníuhljómsveitar Íslands
(1950). Hann vann fyrir sér með
kennslu og lék á píanó við ýmis
tækifæri og í danshljómsveitum.
Hann stundaði framhaldsnám við
Royal College of Music í Manchest-
er á árunum 1944–1946 og kenndi
eftir það við Tónlistarskólann í
Reykjavík ásamt því að semja tón-
list. Árni lagði drög að óperu sem
var byggð á Gunnlaugs sögu Orms-
tungu. Sú ópera hefði orðið fyrsta
íslenska óperan ef honum hefði
auðnast að ljúka við hana. Af því
varð þó ekki, því 1952 varð Árni
fyrir fólskulegri líkamsárás, sem
olli heilaskemmdum og batt enda á
starfsferil hans. Hann hélt þó áfram
að semja, en stíllinn breyttist.
Systir Árna var Björg Björns-dóttir (1913–1993), organisti
og kórstjóri, vel þekkt og virt.
Áhugi Bjargar á tónlist kom
mjög snemma í ljós og sagði hún
sjálf að líklega hefði hún fengið
söngáhugann með móðurmjólkinni
enda var mikið sungið í Lóni.
Eitthvað lærði Björg á hljóðfæri í
heimahúsum, en mest munaði um
tveggja vetra dvöl í Reykjavík á
fjórða áratug síðustu aldar. Þá var
hún á heimili Árna G. Eylands og
víðar og naut tilsagnar Árna
Björnssonar bróður síns.
Björg var kórstjóri og organisti í
50 ár. Hún var organisti í Garð-
skirkju frá árinu 1945 til dauða-
dags hinn 9. júní 1993 og einnig á
Skinnastað frá 1952. Auk þess
sinnti hún oft söngkennslu og kór-
æfingum í nágrannabyggðarlög-
unum. Árið 1946 sigraði Björg í
sönglagakeppni um hver á landinu
kynni flest lög, en það var Rík-
isútvarpið sem stóð fyrir keppninni.
Árið 1978 var Björg sæmd ridd-
arakrossi Hinnar íslensku fálka-
orðu fyrir frábær tónlistarstörf.
Á morgun ætla Keldhverfingar
að minnast þessara barna sinna
með glæsilegum tónleikum í Skúla-
garði. Þar verður flutt tónlist eftir
Árna, en líka sungin tvö lög eftir
Björgu.
Katrín Eymundsdóttir sveit-arstjóri í Kelduhverfi segir að
hugmyndin um að minnast systk-
inanna með tónleikum hafi kviknað
við það að hún heyrði lag í útvarp-
inu. „Þar var Jón Árni Sigfússon
harmónikkuleikari í Mývatnssveit
að spila lag eftir Árna. Mér fannst
lagið svo skemmtilegt, og fór að
hugsa um að gaman væri að minn-
ast þessara góðu Keldhverfinga
sem voru fæddir og uppaldir hér,
en fóru í burtu og gerðu garðinn
frægan.“ Katrín hafði sambandi við
nöfnu sína, dóttur Árna, og komst
að því að á árinu var einmitt liðin
öld frá fæðingu hans. „Við fórum af
stað með þetta og fengum til liðs
við okkur Lúðrasveit Þingeyinga,
en Árni samdi mörg skemmtileg
lúðrasveitalög. Sveitin er með í
heimsókn hjá sér gestahljómsveit
frá Eistlandi og hún spilar líka með.
Svo koma dóttursynir Árna hingað
frá London og spila á tónleikunum
með föður sínum.“
Dóttursynirnir sem Katrínnefndi eru Íslendingum ekki
ókunnir þótt þeir hafi búið erlendis,
en þeir eru synir Bjargar, dóttur
Árna og Andrews Cauthery. Halli
Cauthery nam fiðluleik við skóla
Yehudi Menuhins, lauk meist-
araprófi í tónvísindum frá Cam-
bridge-háskóla árið 2000, og starf-
ar nú sjálfstætt í London sem
fiðluleikari, en kennir jafnframt
tónfræði við gamla skólann sinn,
Yehudi Menuhin-skólann.
Gunnar bróðir hans er leikari að
mennt, og lék ungur eitt aðal-
hlutverkið í íslensku kvikmyndinni
Benjamín Dúfa. Hann hefur leikið í
vinsælum þáttaröðum hjá BBC.
Gunnar nam leikhús- og kvik-
myndafræði við háskólann í Bristol,
þar sem hann lék í fjölmörgum sýn-
ingum. Hann samdi leikritið Fall
sem hann setti sjálfur á svið í Brist-
ol og fékk frábæra dóma.
Á tónleikunum koma þeir bræður
fram með föður sínum, sem er óbó-
leikari, ásamt lúðrasveitunum,
Kirkjukór Garðskirkju, sem Björg
Björnsdóttir stjórnaði sjálf lengst
af; Karlakórnum Hreimi og píanó-
leikaranum Aladár Rácz.
Tónleikarnir í Skúlagarði á
morgun hefjast kl. 15.
Tónlistarsystkina úr Kelduhverfi minnst
’Mér fannst lagið svoskemmtilegt og fór að
hugsa um að gaman
væri að minnast þessara
góðu Keldhverfinga sem
voru fæddir og uppaldir
hér, en fóru í burtu og
gerðu garðinn frægan.‘
AF LISTUM
Bergþóra Jónsdóttir
begga@mbl.is
Systkinin Árni Björnsson og Björg Björnsdóttir í Lóni.