Morgunblaðið - 23.07.2005, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 43
ÁTTA íslenskir skákmenn taka
þátt í öflugu alþjóðlegu móti sem
fram fer þessa dagana í Kaup-
mannahöfn.
Fimm félagar úr
skákdeild Hauka
eru í þeim hópi,
þ.e. Þorvarður F.
Ólafsson (2131),
Heimir Ásgeirs-
son (2118), Sverr-
ir Örn Björnsson
(2054), Ingi
Tandri Trausta-
son (1560) og
Einar Gunnar
Einarsson (1320). Gengi Hauka-
manna hefur verið prýðilegt og
flesta vinninga þeirra hefur Sverrir
Örn og Heimir en báðir hafa 4½
vinning og eru í 34.-54. sæti af 216
keppendum. Á heimasíðu skákdeild-
ar Hauka, www.haukar.is/skak/, er
að finna nokkra pistla eftir Svein
Arnarsson um mótið.
Stigahæstir íslensku skákmann-
anna eru félagarnir úr Taflfélaginu
Helli, Sigurbjörn Björnsson (2346)
og Sigurður Daði Sigfússon (2344).
Sigurbjörn, sem sendir reglulega
pistla frá mótinu á Skákhorn skák-
manna á Netinu, hefur 5 vinninga og
er í 14.-33. sæti á mótinu. Honum
hefur tekist að leggja minni spá-
mennina að velli en í fimmtu umferð
mætti hann með hvítu rússneska
stórmeistaranum Anton Shomoev
(2514) og þegar hvítur hafði leikið
13. gxh5 svaraði Rússinn honum
með krók á móti bragði:
13... Rdf3+!
Nú gengur ekki fyrir hvítan að
leika 14. Rxf3 vegna þess að drottn-
ingin hans fellur eftir 14...Rxf3 15.
Hxf3 Dxh4. Sigurbjörn barðist þó
áfram:
14. Hxf3 Dxg5+! 15. Bxg5 Rxf3+
16. Kg2 Rxh4+ 17. Bxh4 en eftir
17...gxf5 18. Be7 fxe4 19. Bxd6
exd3 20. Bxf8 Kxf8 21. cxd3 Bd7
voru stöðuyfirburðir svarts of miklir
til að hvítur gæti ráðið við þá. Lok
skákarinnar urðu þessi:
22. Re4 Bc6 23. Kh3 Ke7 24. Hf1
Hh8 25. Rg5 Be8 26. Kg4 b5 27. Bb3
Bxb2 28. h4 f6 og hvítur gafst upp.
Sigurður Daði Sigfússon hafði að
loknum fimm umferðum fjóra vinn-
inga þegar hann mætti bandaríska
stórmeistaranum Nick DeFirmian
(2555) í bráðskemmtilegri skák.
Hvítt: Sigurður Daði Sigfússon
(2344)
Svart: Nick DeFirmian (2555)
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bc4 e6 7. Bb3
Rbd7 8. f4 Rc5 9. Df3 b5 10. f5
Nigel Short tefldi svona í heims-
meistaraeinvígi hans gegn Garry
Kasparov árið 1993. Garry lék þá
10...Bd7 en fékk verra tafl í fram-
haldinu. Nick kaus að svara sókn
hvíts með öðrum hætti en kom þá
ekki að tómum kofanum hjá Sigurði
Daða.
10...e5 11. Rde2 Rxb3 12. axb3 b4
13. Rd5 Rxd5 14. exd5 Be7 15. O-O
O-O 16. Rg3 Bb7
Nú virðist sem svartur hafi komið
ár sinni ágætlega fyrir borð þar eð
hann hefur biskupaparið og getur
farið að sauma að d5 og c2 peðum
hvíts. Sigurður Daði lumar hinsveg-
ar á snjallri tilfærslu hróksins á a1
og við það fær hvítur stórhættulega
sókn.
17. Ha4! Db6+
17... a5 hefði verið svarað með 18.
c3 og hvítur stendur betur.
18. Be3 Db5 19. c4! bxc3 20. f6!
Bxf6 21. Rh5 Bd8
Hvítur hefur leikið hverjum
þrumuleiknum á fætur öðrum sem
hefur knúið svartan til að grípa til
nauðvarnar. Hinn eðlilegi 21... Be7
gekk ekki upp vegna 22. Hg4 g6 23.
Rf6+ og hvítur vinnur.
22. Hg4 f5 23. Hxg7+ Kh8
Höfundur þessara lína fylgdist
með skákinni í beinni útsendingu á
Netinu þegar hér var komið sögu.
Hann velti tveim möguleikum fyrir
sér, leiknum sem var leikið og 24.
Dg3. Í fljótu bragði sá hann ekki
vinning fyrir hvítan og fór að sinna
öðrum hugðarefnum. Næstu nótt
átti hann erfitt með svefn og fór að
hugsa um stöðuna. Hægt og sígandi
kviknaði ljós og vinningsleiðin
fannst í skúmaskotum heilabúsins.
24. Dh3?
Þessi leikur dugar bara til jafn-
teflis en 24. Dg3! hefði unnið þar
sem eftir 24...Bf6 25. Hxf5 cxb2 26.
Hxh7+ Kxh7 27. Rxf6+ mátar hvít-
ur. Greinarhöfundur var nokkuð
ánægður að hafa fundið þessa vinn-
ingsleið í morgunsárið en svo þegar
hann kveikti á tölvunni sinni kom í
ljós að Netverjar á skákhorninu
höfðu bent á þetta meðan á skákinni
stóð. Á þeirri öld skákforrita sem við
lifum og hrærumst í, liggja þeir, eins
og greinarhöfundar, sjálfsagt undir
grun um að hafa notið aðstoðar
tölvuforrits til að finna vinningsleið-
ina!
24... Dxf1+! 25. Kxf1 cxb2
Nú hótar svartur að fá sér aðra
drottninguna og á hvítur þá ekkert
betra en þráskák.
26. Hxh7+ Kxh7 27. Rf4+ Kg8
28. Dg3+ Kh7 29. Dg6+ Kh8 30.
Dh6+ og jafntefli samið enda þrá-
skákar hvítur.
Sigurður Daði tefldi aftur Sozin-
árásina gegn Sikileyjarvörn í næstu
umferð en laut þá í lægra haldi gegn
Færeyingnum Helga Dam Ziska
(2177). Fyrrverandi sjómaðurinn,
Rúnar Berg, og nú félagi í Taflfélagi
Vestmannaeyja, hefur staðið sig
með mikilli prýði á mótinu. Hann
hefur gert jafntefli við margan skák-
manninn með FIDE stig og mun
sjálfsagt fá há byrjunarstig þegar
hann kemst sjálfur á FIDE stigalist-
ann.
Efstir á mótinu með sex vinninga
eru Rússarnir Konstantin Sakaev
(2669), Igor Kurnosov (2549), Anton
Shomoev (2514), Arseny Kargain
(2408) og hinn ódrepandi Viktor
Kortsnoj (2615). Skólastjóri Hróks-
ins, Henrik Danielsen (2511), kemur
í humátt á eftir ásamt nokkrum öðr-
um skákmönnum með 5½ vinning.
Hægt er fylgjast með gangi mála á
mótinu á heimasíðu þess,
www.politikencup.dk/.
Dagur byrjar vel
á HM barna og unglinga
Heimsmeistaramót barna – og
unglinga fer fram þessa dagana í
Belfort í Frakklandi. Dagur Arn-
grímsson hóf keppni af krafti í flokki
18 ára og yngri en í annarri umferð
lagði hann að velli ísraelska alþjóð-
lega meistarann Maxim Rodstein
(2454) og gerði svo jafntefli við Þjóð-
verjann Georg Maier (2437). Að
loknum þrem umferðum hefur hann
2½ vinning og er á meðal efstu
manna. Í flokki 12 ára drengja og
yngri hefur Hjörvar Steinn Grétars-
son 2 vinninga af þrem mögulegum
en Atli Freyr Kristjánsson, Sverrir
Þorgeirsson og Hallgerður Helga
Þorsteinsdóttir hafa einn vinning í
sínum flokkum. Daði Ómarsson,
Elsa María Þorfinnsdóttir og Jó-
hanna Björg Jóhannsdóttir hafa ½
vinning í sínum flokkum.
Margt hefur drifið á daga íslenska
hópsins en svo virðist sem skipu-
lagningu mótsins sé verulega ábóta-
vant. Aðstæður íslensku keppend-
anna virðast hinsvegar færast nú til
betri vegar en Smári Rafn Teitsson,
annar af tveim fararstjórum, ritar á
hverjum degi pistla um mótið sem
birtast á heimasíðu Skáksambands
Íslands, www.skaksamband.com.
Vefsíðan www.skak. fylgist einnig
með mótinu á hverjum degi og upp-
lýsir lesendur sína um úrslit hverrar
umferðar.
Íslenskir skákmenn í víking
SKÁK
Kaupmannahöfn, Danmörk
POLITIKEN CUP 2005
16.-24. júlí 2005
HELGI ÁSS GRÉTARSSON
daggi@internet.is
Dagur
Arngrímsson
Fellihýsi
Conway Caravan. Conway Cara-
van 12 ft. árg. '93. Ísskápur, gas-
hitun, rafmagn, vatnsdæla. Afar
vandaður vagn með sígildri og
fallegri innréttingu. Verð 420 þús.
stgr. Upplýsingar í síma 587 3008/
699 3008 Árni.
Palomino Colt árgerð 1999.
Hann er með fortjaldi og upp-
hækkaður á nýjum fólksbíladekkj-
um. Hann er með svefntjöld og
búið að færa geyminn út. Upplýs-
ingar í síma 894 8299.
Tjaldvagnar
Tjaldvagn
Til sölu tjaldvagn Camp-let App-
olo Lux, árg. 2000. Vagninn er í
góðu standi og selst ásamt fylgi-
hlutum á góðu verði.
Uppl. veitir Már í síma 487 5000
og eftir kl. 16:00 í síma 894 9420.
Vélhjól
Honda Shadow 1100 Sabre 2000
árgerð. Ekið 3.600 mílur. Með
aukakrómi. Til í að skoða skipti
á Racer. Uppl. í s. 663 8662.
Húsviðhald
Flísa- og parketlagnir, málning
Getum tekið að okkur flísalagnir,
parket, málningu og annað við-
hald. Sími 824 7587 eða 863 2520.
TBV verktakar ehf.
Hreingerningar
Fyrirtæki, stofnanir og heimili
Við hreinsum allar tegundir af
gardínum. Gerum tilboð.
Upplýsingar í síma 897 3634.
Varahlutir
Jeppapartasala Þórðar,
Tangarhöfða 2, sími 587 5058
Nýlega rifnir Patrol '95. Legacy
'90-'99, Grand Vitara '00, Kia
Sportage '02, Pajero V6 92', Terr-
ano II '99, Cherokee '93, Nissan
P/up '93, Vitara '89-'97, Impreza
'97, Isuzu pickup '91 o.fl.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
TJALDVAGN
TIL SÖLU
Ársgamall
Ægistjaldvagn með
fortjaldi og auka dýnum
Upplýsingar í símum
896 3109 og 562 1771
Smáauglýsingar
sími 569 1100
UM síðustu mánaðamót opnaði KB
banki hraðbanka í anddyri Hóla-
skóla – Háskólans á Hólum. Hrað-
bankinn er liður í aukinni þjónustu
við ört vaxandi byggð og aukinn
ferðamannastraum að Hólum.
„Undanfarin ár hefur starfsemi á
Hólum aukist mikið. Samhliða þró-
un
Hólaskóla sem háskólastofnunar
hefur nemendafjöldi tvöfaldast á
fáum árum og því hefur byggðin á
Hólum vaxið hratt. Einnig hefur
orðið mikil fjölgun ferðamanna sem
sækir heim þennan sögustað. Hér
koma m.a. til umfangsmiklar
fornleifarannsóknir. Allt þetta
kallar á meiri þjónustu á staðnum.
Opnun hraðbankans er mikilvægur
liður í að mæta þeirri þörf.
KB-banki og Hólaskóli hafa haft
gott samstarf um árabil. Öflug
þekkingarstarfsemi er ein meg-
inforsenda nýsköpunar í atvinnu-
og menningarlífi þjóðarinnar og því
er stuðningur og þjónusta við upp-
byggingu hennar afar mikilvæg,“
segir m.a. í fréttatilkynningu.
Jóel Kristjánsson, útibússtjóri KB banka á Sauðárkróki (t.v.), og Skúli
Skúlason, rektor Hólaskóla, við nýja hraðbankann í anddyri skólans.
Hraðbanki á Hólum
STURLA Böðvarsson samgönguráð-
herra hefur óskað eftir birtingu á eft-
irfarandi:
Í Morgunblaðinu í dag, 22. júlí, er
grein eftir alþingismanninn Hjálmar
Árnason. Ber hún yfirskriftina
„Landhelgisgæslan velkomin á Suð-
urnes.“ Þar leggur þingmaðurinn
rétt eina ferðina land undir fót af
Suðurnesjum til Reykjavíkurflug-
vallar í þeim tilgangi að leggja hann
niður og færa hann með manni og
mús í sína heimabyggð.
Þessi óskhyggja þingmannsins er
góðra gjalda verð væri hún ekki
byggð á ótrúlegum misskilningi frá
öllum hliðum. Þingmaðurinn virðist
hafa gleymt að við erum nýbúin að
fengnum öllum leyfum borgaryfir-
valda að endurbyggja Reykjavíkur-
flugvöll eftir ströngustu reglum um
flugöryggi.
Í upphafi greinarinnar segir þing-
maðurinn: „Nú hefur samgönguráð-
herra lýst því yfir að flugmálayfir-
völd geti ekki fallist á að nýbygging
Landspítala – háskólasjúkrahúss
verði reist þar sem áætlað er, skv.
ákvörðun skipulagsyfirvalda Reykja-
víkurborgar. Rök ráðherrans eru
m.a. þau að sjúkrahúsið muni
þrengja óeðlilega að starfsemi Land-
helgisgæslunnar á Reykjavíkurflug-
velli.“ Þessi tilvitnun þingmannsins í
afstöðu mína er óskiljanleg. Ég hef
aldrei látið slík orð falla. Þvert á
móti.
Áformaðar byggingar á lóð sjúkra-
hússins falla vel að starfsemi flug-
vallarins og eru í fullu samræmi við
endurbyggingu Reykjavíkurflugvall-
ar. Auk þess er unnið hörðum hönd-
um af Vegagerðinni við að færa
Hringbrautina til þess að fella sem
best saman flugvallarsvæðið og fyr-
irhugaðar byggingar Landspítalans.
Það sama má segja um framkvæmdir
á vegum Knattspyrnufélagsins Vals
sem eru skipulagðar í góðu samræmi
við þarfir flugvallarins, en þingmað-
urinn nefnir það svæði einnig.
Til viðbótar við þennan misskiln-
ing þingmannsins kallar hann eftir
auknum kostnaði okkar vegna starf-
semi varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli þegar hann segir; „Við blasir að
Íslendingar munu þurfa að taka í
verulegum mæli við rekstri Keflavík-
urflugvallar.“ Hver segir það? Er
einhver að óska eftir því? Er það ekki
svo að kostnaður varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli er vegna samn-
ings um varnir okkar og NATO-þjóð-
anna? Trúlega er þingmaðurinn að
rugla saman óskyldum málum. Ör-
yggisnefnd Félags íslenskra atvinnu-
flugmanna, FÍA, hefur réttilega gert
alvarlegar athugasemdir við þau
áform að leyfa Háskólanum í Reykja-
vík að byggja inn á öryggissvæði
Reykjavíkurflugvallar. Undir þær
athugasemdir hef ég tekið enda með
öllu ófært að byggja húsnæði fyrir
háskólastarfsemi inni á öryggissvæði
flugvallar og í mikilli nálægð við flug-
hlöð Landhelgisgæslunnar þar sem
björgunarþyrlurnar athafna sig.
Ég vil af þessu tilefni segja við
þingmanninn Hjálmar Árnason, ekki
meir, ekki meir.
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra
Leiðrétting vegna grein-
ar Hjálmars Árnasonar
alþingismanns