Morgunblaðið - 23.07.2005, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 45
DAGBÓK
Þetta er listform sem er alveg þess virðiað menn gefi því gaum,“ segir ÞórdísClaessen en hún hefur í undirbúningiútgáfu á bók með ljósmyndum af
götulistaverkum, graffítí, sem skreytt hafa höf-
uðborgina undanfarin ár.
Þórdís hefur um nokkurra ára skeið stundað
það að ljósmynda götulistaverk í Reykjavík
með það í huga að setja saman bók. „En ég sé
fram á það núna að klára verkefnið,“ segir
hún.
Fanga myndirnar í bókinni að mörgu leyti
borgarstemmninguna í Reykjavík, að sögn Þór-
dísar. „Bókin ætti að gefa ágæta mynd af því
sem hefur verið að gerast hér á götunum síð-
ustu árin. Að vísu er þetta ekki tæmandi út-
tekt því að það er ekkert hægt að gera slíkt.
En hún spannar mjög vítt svið, allt frá verkum
sem eru mjög flókin og tekur langan tíma að
gera og síðan kannski bara setningar sem
skrifaðar eru á vegg eða karaktera sem teikn-
aðir eru.“
Bókin hefur fengið titilinn Icepick eða Ísnál-
in á íslensku. Og hún verður gefin út erlendis,
ef allt gengur eftir. „Ég hef fundið fyrir meiri
og meiri áhuga erlendis á því sem er að gerast
hér á landi í þessum efnum, þannig að mér
finnst ég svolítið vera komin í landkynning-
arpakkann líka. Ég hef verið að skrifa greinar
í tímarit erlendis um götulist hérlendis, það er
eins og fólk sé að vakna og uppgötva Ísland
fyrir eitthvað fleira en Sigurrós og Björk og
Gullfoss og Geysi.“
Þórdís segir götulistina dansa á línunni milli
þess að vera listform og skemmdarverk. „Og í
raun er hún hvort tveggja í senn. Sem skýrir
auðvitað að hluta til hvers vegna graffítí sem
listform á undir högg að sækja. En það eru
skemmtilegar og flottar hliðar á þessu formi
og ég hef sjálf meiri áhuga á þeim þætti, list-
inni í þessu,“ segir hún.
Þórdís segir að mörg verk taki talsverðan
tíma í undirbúningi. „Það er oft lagður mikill
metnaður í þessi verk,“ segir hún. „Og það er í
þessu eins og mörgu öðru að það er gjarnan
borin virðing fyrir hinum stærri og flóknari
verkum. Mörg verk eru síðan unnin í góðri
samvinnu við eigendur húsa og fyrirtækja. Það
er að færast í aukana að samtök og fyrirtæki
biðji um og kaupi verk af götulistarfólki.“
Þórdís segir alls konar fólk stunda götulist.
Tilgangur manna með verkunum sé misjafn,
sumir vilji koma á framfæri pólitískum skila-
boðum, t.d. að þeir séu á móti Íraksstríðinu,
aðrir vilji merkja sér svæði eða virkja lista-
manninn í sér. Hún segist hins vegar ekki sjálf
hafa stundað þetta listform. „Ekki ennþá. En
það kynni að koma til þess. Ég teikna nú að-
allega og set saman í tölvu. En það væri gam-
an að draga upp einhverja fallega fígúru ein-
hvers staðar,“ sagði Þórdís Claessen.
Götulist | Þórdís Claessen undirbýr útgáfu á bók um íslensk götulistaverk
Skemmdarverk eða listform?
Þórdís Claessen er
fædd 5. desember 1974
í Reykjavík. Hún er
grafískur hönnuður, út-
skrifaðist úr Listahá-
skóla Íslands árið 2001.
BA-ritgerð hennar
fjallaði um hella-
málverk og hvaða
merkingu það hefur
haft fyrir manninn í
gegnum tímans rás að
krota á veggi einhvers konar skilaboð. Þórdís
hefur starfað á auglýsingastofunni Hvíta hús-
inu en hún rekur nú íslensku bolabúðina
Ósóma við Laugaveg.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Þakkir fyrir pistil
KÆRI Víkverji. Takk fyrir pistil
þinn í dag þar sem fjallað er m.a.
um Heiðmörkina. Ég og konan mín
förum nokkuð oft á svæðið ofan
Elliðavatns. Það er afleitt ástandið í
dag og hefur verið undanfarnar vik-
ur. Göngustígarnir eru eyðilagðir
fyrst og fremst af torfæruhjólum
upp á síðkastið en snemma í vor var
greinilegt að farið hafði verið á
hestum um sömu stíga.
Hestafólki mættum við á göngu
okkar á svæðinu í fyrra og þegar við
fundum að athæfinu fengum við for-
mælingar á móti. Það þarf ekki að
fara mörgum orðum um hættuna
sem skapast við umferð torfæru-
hjóla og hesta þar sem einungis er
gert ráð fyrir gangandi fólki.
Nú fyrir nokkrum dögum kom
svo á móti okkur bifreið á göngu-
stígnum við Vígsluflöt! Eftirlit virð-
ist ekkert með svæðinu og viðhald
lítið og má þar til dæmis nefna að
afar sjaldan eru vegir þarna hefl-
aðir.
Salernin sem eru á svæðinu hafa
verið lokuð í langan tíma og því ekki
til nokkurs gagns. Þegar reynt er
að hringja í eftirlitsmann svæðisins
er aðeins boðið upp á símsvara.
Þessu vil ég koma á framfæri við
þig, Víkverji, með þakklæti fyrir
pistla þína.
Með kveðju
Gunnar Gunnarsson
Urðarási 3, 210 Garðabæ.
Simbi er týndur!!
SIMBI er 6 ára fress, gulur og hvít-
ur. Hann er með svarta ól og er
eyrnamerktur: G9243 og er nokkuð
feldmikill en nettur. Simbi sást síð-
ast við Suðurvang í Hafnarfirði að
kvöldi til 20. júlí. Hann er mann-
blendinn og blíðlyndur, gæti því
hafa farið upp í bíl og farið yfir í
annað hverfi og villst. Einnig gæti
hann hafa lokast einhvers staðar
inni af forvitni. Þess vegna viljum
við biðja alla að hafa augun opin.
Hans er sárt saknað! Ef þið hafið
einhverjar upplýsingar um hvar
hann er, endilega látið vita í síma:
555 3077, 696 9800 eða 696 9801.
Lyklakippa fannst
ÉG fann lyklakippu á miðvikudag-
inn við Hafnarbraut í Kópavogi. Á
kippunni eru bíllyklar, húslyklar og
fleira.
Valborg, s. 8958581.
Velvakandi
Svarað í síma 569 1100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
100 ÁRA afmæli. Í dag föstudag-inn 23. júlí er 100 ára Elísabet
Benediktsdóttir, Álfheimum 36,
Reykjavík, Elísabet er að heiman.
EM ungmenna.
Norður
♠D976
♥875
♦G74
♣874
Vestur Austur
♠1085 ♠K42
♥G10 ♥9642
♦D862 ♦Á1093
♣10965 ♣DG
Suður
♠ÁG3
♥ÁKD3
♦K5
♣ÁK32
Á Evrópumóti ungmenna fékk Belg-
inn Steven De Donder lauftíuna út
gegn þremur gröndum. Setjum okkur
í hans spor.
Til greina kemur að gefa fyrsta
slaginn, en veikleikinn í tígli mælir á
móti því, svo við skulum gera eins og
De Donder, drepa með kóng og spila
spaðagosa.
Austur horfir nokkra stund á gos-
ann, en dúkkar svo réttilega.
De Donder tók næst á ÁK í hjarta
og sá vestur fylgja með tíu og gosa,
en austur sýna fjórlit. AV höfðu fram
að þessu gefið talningu samvisku-
samlega, svo De Donder þóttist viss
um hjartaleguna. Hann ákvað því að
leika biðleik, spilaði hálaufi og meira
laufi.
Vestur átti slaginn og tók hinn frís-
laginn á lauf. Austur var undir mikl-
um þrýstingi og neyddist til að fara
niður á Á10 í tígli til að geta haldið
valdi á hálitunum:
Norður
♠D97
♥8
♦G7
♣--
Vestur Austur
♠108 ♠K4
♥-- ♥96
♦D862 ♦Á10
♣-- ♣--
Suður
♠Á3
♥D3
♦K5
♣--
Þetta er staðan og vörnin hefur
fengið tvo slagi.
Vestur spilaði tígli, sem austur tók
og spilaði aftur tígli. Þar kom áttundi
slagur sagnhafa, en sá níundi var vel
undirbúinn, því nú spilaði De Donder
hjartadrottningu og hjarta til austurs,
sem varð að spila spaða frá kóngnum í
tveggja spila endastöðu.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Opið hús sunnudag 24 júlí kl. 14 til 17
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Vel staðsettur 39 fm sum-
arbústaður á eins hektara
eignarlandi stutt frá Laug-
arvatni í landi Lækja-
hvamms (Grafaland 6).
Húsið er með 2 svefnher-
bergjum, kamína í stofu,
mjög stór nýbyggð verönd
og lóðin er með miklum
náttúrulegum gróðri. Mjög
friðsæll og fallegur staður.
Verð kr. 9,0 millj. með innbúi. Upplýsingar veitir Skúli í síma 862-4019
SUMARBÚSTAÐUR Í BLÁSKÓGARBYGGÐ
EIRÍKUR Arnar
Magnússon opnar í dag,
laugardag, sýningu á
verkum sínum í Café
Karólínu í Listagilinu á
Akureyri.
Þetta er fyrsta einka-
sýning Eiríks en til
sýnis eru þrykkimyndir
unnar út frá æting-
artækni.
„Myndirnar eru unn-
ar þannig að byrjað er
með koparplötu með
verndarhúð yfir. Mynd-
in er síðan rist í húðina
og koparplatan því
næst sett í sýrubað til
meðhöndlunar. Yfirleitt
er blek notað til að
þrykkja síðan myndinni af kop-
arplötunni yfir á blað, en ég ákvað að
nota enga liti og prenta hrátt á papp-
írinn svo úr verður upphleypt mynd,
nokkurs konar rismynd.“
Gegnumgangandi þema í myndum
Eiríks á sýningunni eru reiðhjól: „Ef
ég á að segja alveg eins og er veit ég
ekki hvernig á því stendur. Ég heill-
aðist af forminu á reiðhjólinu og á
margar æskuminningar tengdar
hjólinu. Reiðhjólið táknar kannski
fyrir mig framþróun því maður get-
ur bara hjólað áfram á reiðhjóli en
ekki afturábak.“
Eiríkur vinnur myndirnar í tölvu,
speglar og gerir symmetrísk form.
Listamaðurinn er fæddur á Ak-
ureyri 1975. Hann stundaði nám á
listasviði Fjölbrautaskólans í Breið-
holti og nam við Myndlistarskólann
á Akureyri. Hann stundar nú mynd-
listarnám við Listaháskóla Íslands
og er þetta hans fyrsta einkasýning.
Sýningin opnar kl. 14 en hún mun
standa til 26. ágúst.
Næstu listamenn sem sýna í Café
Karólínu eru Arnar Tryggvason,
Margrét M. Norðdahl og Aðalheiður
Eysteinsdóttir.
Form reiðhjólsins
ORGELLEIKARINN Nigel Potts
verður gestur tónleikaraðarinnar
Sumarkvöld við orgelið um helgina,
í Hallgrímskirkju.
Tónleikar Nigels verða á laug-
ardag kl. 12 og sunnudag kl. 20 og
flytur hann fjölbreytta efnisskrá.
Meðal verka sem flutt verða eru
verk eftir Gigout, Dubois og Guill-
mant sem þekktir eru sem þrír af
helstu organistum Parísarborgar á
síðari hluta 19. aldar.
Einnig má geta Fúgu í g-moll K
401 eftir Mozart og hins kunna
verks Finlandia eftir Sibelius, í um-
ritun Herbert Austin Fricker, sem
verða leikin.
Nigel Potts er tónlistarstjóri og
organisti St. Peter’s by the Sea
biskupakirkjunnar í Bay Shore,
New York. Hann söng í drengjakór
dómkirkjunnar í Wellington á Nýja-
Sjálandi og nam síðan á orgel við
kirkjuna. Hann lauk námi frá tón-
listarháskólanum í Wellington og
frá Trinity College of Music í Lund-
únum. Árið 1992 hlaut hann styrk
úr sjóði Gillian Weir og stundaði
nám við Royal Academy of Music.
Lék hann meðal annars við St.
Paul’s dómkirkjuna, í Westminster
Abbey og Southwark Cathedral.
Árið 2002 lauk Nigel meistaranámi
í tónlist frá kirkjutónlistardeild
Yale-háskóla undir leiðsögn Thom-
as Murrey.
Franski orgelskólinn
á Sumarkvöldi
Tónleikar Sigurðar
og Gunnars á
sunnudagskvöld
Mistök urðu til þess að grein um
tónleika Sigurðar Flosasonar og
Gunnars Gunnarssonar í Akureyar-
kirkju á sunnudag var birt of
snemma, og gaf greinin því til kynna
að tónleikarnir væru á föstudags-
kvöld. Hið rétta er vitaskuld að tón-
leikarnir eru á sunnudag, eins og all-
ir tónleikar í sumartónleikaröð
Akureyrarkirkju. Er velvirðingar
beðist á þessari villu.
LEIÐRÉTT