Morgunblaðið - 23.07.2005, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 47
DAGBÓK
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Þórsmerkurferð 10.
ágúst, leiðsögumaður Hólmfríður
Gísladóttir. Þátttakendur hafi með
sér nesti til dagsins, séu vel skóaðir
og í skjólfatnaði. Skráning í s. 562–
2571 og á Aflagranda. Lagt af stað kl.
9.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Veiðivötn 27. júlí, dagsferð, laus sæti.
9.–13. ágúst Gæsavatnaleið, Askja,
Kverkfjöll. Gist í svefnpokaplássi í
fjallaskálum í 3 nætur en 4. nóttina á
hóteli. Ekið um Þjórsárdal og
Sprengisand til Nýjadals, Gæsavatna-
og Trölladyngjuleið, Öskju, Hvanna-
linda og Kverkfjalla. Uppl. og skrán-
ing í s. 588–2111.
Hæðargarður 31 | Út í bláinn. Fjöl-
skylduganga Laugardals- og Háaleit-
ishverfis frá Hæðargarði 31 alla laug-
ardagsmorgna kl. 10, hvernig sem
veður er. Að lokinni göngu er boðið
upp á teygjuæfingar og vatn.
Staður og stund
http://www.mbl.is/sos
Í LISTASAFNI Ísafjarðar verður
opnuð í dag sýning á verkum Katr-
ínar Elvarsdóttur. Sýningin ber
heitið „Heimþrá“.
„Þetta er röð ljósmynda, mynd-
brota, sem sýna hluti sem flestir
kannast við úr sínu lífi,“ sagði Katrín
í samtali við blaðamann.
„Þetta tengist mjög mínum per-
sónulegu minningum, sem er það
sem ég vísa í með heiti sýning-
arinnar: þrá í minningu, ekki endi-
lega þessi dæmigerða heimþrá þeg-
ar mann langar að vera heima hjá
sér frekar en einhvers staðar annars
staðar, heldur þessi þrá sem maður
ber til minninga. Ég hef búið í mörg-
um löndum og finn fyrir vissri þrá til
þeirra staða sem ég hef verið, en oft
í litla og fáránlega hluti – kannski
ekki það augljósasta.“
Myndirnar eru teknar bæði hér-
lendis og erlendis en Katrín segir þó
að myndirnar gætu flestar verið
teknar hvar sem er. „Þó er kannski
augljóst hvað er tekið á Íslandi, jafn-
vel ef það er bara smáatriði úr um-
hverfinu, því maður sér yfirleitt eitt-
hvað íslenskt í því.“
Í húsi minninganna
Segja má að þema sýningarinnar
passi skemmtilega við sýningarstað-
inn, en Katrín er fædd og uppalin á
Ísafirði: „Ég fæddist á sama stað og
sýningin er haldin, gamla sjúkrahús-
inu á Ísafirði sem nú er búið að
breyta í listasafn. Þetta er hús sem
Guðjón Samúelsson byggði 1925 og
mér hefur alltaf þótt afskaplega
vænt um þetta hús. Ég man eftir því
sem krakki að koma hingað þegar
bróðir minn fæddist og átti hér fleiri
slík auknablik. Þegar ég síðan sá hve
endurbæturnar á staðnum voru vel
heppnaðar sýndi ég því mikinn
áhuga að fá að sýna hérna. Sýningin
tengist samt ekki endilega þessum
stað, frekar en öðrum stöðum, þó
hann tengist þessari tilfinningu sem
ég er að tala um.“
Katrín útskrifaðist frá Art Insti-
tute of Boston árið 1993 og á að baki
fjölda samsýninga í Danmörku,
Bandaríkjunum og á Íslandi.
Heimþrá er 14. einkasýning Katr-
ínar og verður sýningin opnuð kl. 16.
Hún mun standa fram á haust en op-
ið verður virka daga kl. 13–19 og á
laugardögum kl. 13 til 16.
Einnig er væntanleg á næstunni
bók sem er samstarfsverkefni Katr-
ínar og Mattiasar Hemstock. Bókin
ber titilinn „Mórar -Nærvídd“ og er
gefin út af 12 tónum: „Í bókinni
koma saman hljóðverk og ljós-
myndasería. Þar verða svarthvítar
myndir sem ég tók um allt land af
ýmiss konar minjum sem allar eru
manngerðar. Þar eru t.d. hús, verk-
smiðjur, skip eða vegir. Mattias fór
með mér og tók upp hljóðin á þess-
um sömu stöðum og blandar saman
við þau raftónlist.“
Mynd af þrá
Eitt verkanna á sýningunni.
NÚ hafa smábarnabækurnar um Emmu og Tuma eftir
Gunillu Wolde verið gefnar út í þriðja skipti á Íslandi.
Þessar einföldu og sniðugu bækur standa enn fyrir sínu
og eru áreiðanlega við það að heilla enn eina kynslóðina.
Ég man að þegar ég var lítil fannst mér alltaf gaman að
skoða þessar bækur og þá voru bækurnar Emma öf-
ugsnúna og Tumi bregður á leik í sérstöku uppáhaldi.
Í raun eru þessar fjórar bækur sem ég skoðaði ósköp
ólíkar.
Tumi er lítill er sniðug bók þar sem ólík orð og hugtök
eru útskýrð með einföldum, hversdagslegum athöfnum
Tuma. Þessi bók hefur engan söguþráð, en af henni má
læra orðaforða og auka skilning á umhverfinu.
Tumi bakar fer á frekar óáhugaverðan hátt í gegnum
það ferli þegar Tumi bakar köku. Hann brýtur egg og
hrærir o.s.frv. án þess að nokkuð óvænt komi upp. Þetta
finnst mér frekar óspennandi bók, en dóttir mín vill vel
hlusta á hana. Satt er að börn hafa gaman af að sjá
hversdagslegar athafnir, en hveitipoki, sleif og skál eru
ekki hluti af þeirra áhugaheimi. Tumi hefði kannski frek-
ar átt að drífa sig í bað og bursta tennurnar.
Emma meiðir sig er frábær bók. Hún segir söguna af
því þegar Emma dettur niður úr tré á leikskólanum og
fær skurð á höfuðið. Það er mikið drama í lífi minnstu
barnanna í hvert skipti sem þau meiða sig og þau ættu að
geta lifað sig vel inn í þessa „átakamiklu“ bók.
Í bókinni Emma gerir við ákveður Emma að gera við
nokkur af leikföngunum sínum. Hér eru myndir af mörg-
um leikföngum sem gaman er að skoða, benda á og
nefna, mun frekar en fyrrnefnt bakaradót í bókinni um
Tuma. Og í lokin meiðir litli bróðir sig svo Emma þarf
líka að „gera við“ hann. Það er skemmtilegur endir á
skemmtilegri bók, auk þess sem þessu tilheyra hin
áhugaverðu fyrirbæri: tár og plástrar.
Sem fullorðinn lesandi með hlustanda í kjöltunni kann
ég betur að meta sögurnar um Emmu, þar sem hún er
uppátektasamari, húmorískari, dramatískari og hvetur
börnin til að vera dugleg, hugrökk og góðhjörtuð. Tuma-
bækurnar eru ópersónulegri og kenna börnunum frekar
um umhverfið sitt en sjálf sig og tilfinningar sínar, sem
er þó auðvitað nauðsynlegt líka.
Bæði bækurnar um Emmu og Tuma eru bendibækur
af einföldustu gerð, en í tilfellum þessara fjögurra bóka
virðast bækurnar um Emmu vera fyrir aðeins eldri börn.
Textinn er lengri, frásögnin flóknari og þar með verður
samspilið við myndir bókarinnar flóknara. Prenttækni
hefur fleygt fram á undanförnum árum og þar með hafa
myndskreytingar barnabóka þróast mjög mikið. Mynd-
irnar í þessum bókum eru frekar gamaldags þegar á það
er litið, en það er ekkert sem skemmir ágæti þeirra. Mið-
að við aldur bókanna eru kynjahlutverkin hins vegar
óvenju óhefðbundin. Í Emma meiðir sig er fóstran sem
fer með hana til læknisins karlmaður. Og þegar Tumi
bakar er það pabbi hans sem aðstoðar hann. Þessu stigi
hafa sumar íslenskar bækur ekki enn náð.
Klassík litlu krúttanna
BARNABÆKUR
Texti og myndir: Gunilla Wolde. 20-24 bls. JPV 2005
Tumi er lítill, Tumi bakar, Emma meiðir sig, Emma gerir við.
Tumi og Emma
Hildur Loftsdóttir
Ársrit Ungmennasambands Austur-
Húnvetninga, Húnavaka, er nýkom-
ið út í 45. sinn og flytur að þessu
sinni fjölbreytt
efni um mannlíf
fyrr og nú í hér-
aðinu. Sérstaka
athygli vekur að í
Húnavöku eru
birtar sjö verð-
launaritgerðir
grunnskólanema
úr ritgerða-
samkeppni sem
félagið Húnavaki stóð fyrir en það
er eitt af félögunum sem mynda
landssamtökin – Landsbyggðin lifi –
sem stóð að sams konar sam-
keppni í skólum í dreifbýli. Verk-
efnið fólst í því að nemendur voru
beðnir að skrifa um hvað væri
hægt að gera fyrir heimabyggðina.
Í ávarpi Stefáns Á. Jónssonar rit-
nefndarformanns Húnavöku kemur
ennfremur fram að félaginu hafi
þótt ritgerðirnar það athyglisverðar
og vel unnar að eðlilegt væri að
þær kæmu fyrir sjónir héraðsbúa
en ekki var fært að birta nema sjö í
Húnavöku þar sem lengd ritsins
leyfði ekki meira.
Stefán segir ennfremur: „Meðal
þess sem kemur fram í ritgerðum
nemendanna og sýnir að þeir tóku
verkefnið alvarlega er t.a.m.:
„Svona verkefni kemur manni til að
hugsa.“ Annar talar um að flytja
vinnuna til fólksins. Sá þriðji spyr
hvað hægt sé að gera til að bæta
lífið í kringum okkur. Sá fjórði segir
að fólkið í héraðinu þurfi að standa
saman við að byggja sýsluna upp.
Einnig benda þeir á og rökstyðja í
ritgerðum sínum, fjölda hugs-
anlegra verkefna og sum allnýstár-
leg sem vissulega vekja til umhugs-
unar. Sumir bera saman kosti og
galla þess að búa úti á landi en
telja jafnframt upp mikla kosti við
að búa í Húnavatnssýslu, sam-
göngur, heilbrigðisþjónusta og
grunnskólar væru í góðu lagi en
framhaldsskóla vantaði. Menningar-
starfsemi væri töluverð en mætti
þó vera fjölbreyttari. Einnig kom
fram að atvinnulífið væri ekki nógu
fjölbreytt, það þyrfti verulega að
bæta. Margir þeirra nefna sér-
staklega að gott sé að búa hér og
þeir vildu gjarnan búa hér í framtíð-
inni en fyrst þyrftu þeir að fara í
framhaldsskóla og mennta sig. Eftir
það gætu þeir jafnvel komið heim
og stofnað fyrirtæki. Ungt fólk þyrfti
að vera bjartsýnt og það þyrfti að
komast í tísku að búa og starfa úti
á landi.“
Alls eru 50 greinar, ljóð, viðtöl,
þættir og fréttapistlar í Húnavöku
og er þar af mörgu að taka. Þjóð-
legur fróðleikur á sinn hlut en einn-
ig greinar um menn og málefni,
ferðasögur, ljóð eftir Húnvetninga,
hugleiðingar, smásögur og fjölmargt
fleira.
Húnavaka er 265 bls., prýtt
fjölda mynda og Ásprent sá um
prentun.
Ritnefnd Húnavöku skipa Jóhann
Guðmundsson, Unnar Agnarson,
Páll Ingþór Kristinsson, Ingibergur
Guðmundsson, Magnús B. Jóns-
son. Ritstjórn annaðist Stefán Á.
Jónsson.
Héraðsrit
ÚRVAL menningarviðburða á
Akureyri verður með fjölbreytt-
ara móti um helgina.
Á laugardegi
Eiríkur Arnar Magnússon opn-
ar kl. 14 sýningu á verkum sínum
á Café Karólínu.
Ljósmyndasýningin Íslend-
ingar opnar á veggnum milli Ket-
ilhússins og Listasafnsins.
Í Gallerí Box kl. 20 verður
„Sumarhappening“ þeirra Habbý
og Jónu Hlífar á meðan DJ Take
me home spilar tónlist.
Á sunnudegi
Miðaldadagur verður frá kl. 13-17 á verslunarstaðnum Gásum.
Í Akureyrarkirkju verða sumartónleikar þeirra Sigurðar Flosasonar saxó-
fónleikara og Gunnars Gunnarssonar orgelleikara.
Í Ketilhúsi kl. 20.30 kynnir Emiliana Torrini nýja plötu sína, „Fisherman’s
Woman“ og kostar aðgöngumiðinn 2.500 kr.
Loks verður síðasti sýningardagur í Ketilhúsi á kínverskri list.
Morgunblaðið/Ómar
Dagskrá Listasumars
ÞAU Guðrún Gunnarsdóttir og Val-
geir Skagfjörð halda tónleika í
Hóladómkirkju á sunnudag.
Guðrún og Valgeir hafa und-
anfarna mánuði haldið tónleika í
kirkjum víðsvegar um landið. Syng-
ur Guðrún meðal annars lög af plöt-
unni „Óður til Ellyjar“ frá árinu
2003, sem hún hlaut tónlist-
arverðlaun fyrir árið 2004, og sóló-
plötu sinni „Eins og vindurinn“ sem
gefin var út um síðustu jól en á síð-
astnefndu plötunni var að finna lög
og texta eftir Valgeir.Einnig verða
á efnisskrá gamlir og nýir sálmar.
Tónleikarnir hefjast kl. 14 og er
aðgangur ókeypis. Guðrún Gunnarsdóttir
Sunnudagstónar í
Hóladómkirkju