Morgunblaðið - 23.07.2005, Síða 51
og eru í dag, held ég, orðnar 9 tals-
ins.“
Mannakorn áttu síðan heiðurinn
að fjöldamörgum ástsælustu lögum
Íslendinga og sendi frá sér smelli á
smelli ofan.
Brunaliðið kveikir
í landsmönnum
Þá gerðist það að Jón Ólafsson bjó
til hljómsveitina Brunaliðið, sem átt
hefur fáa sína líka hvað vinsældir
varðar: „Það band skaust upp á
stjörnuhimininn með einu lagi: „Ég
er á leiðinni“ eftir Magnús Eiríks-
son. Það lag varð alveg óhugnanlega
vinsælt á rosalega stuttum tíma.“
Alls sendi Brunaliðið frá sér þrjár
plötur, þá fyrstu, jólaplötu og fljót-
lega þriðju plötuna, en ekki varð
meira úr sveitinni. Bandið var ekki
hvað síst merkilegt fyrir það að vera
í raun fyrsta hljómsveitin sem sett
var saman í því augnamiði að búa til
metsöluhljómsveit: „Útgefandinn
smíðaði þetta konsept, hóaði saman
fullt af skrautfjöðrum og hnoðaði
saman í eitt band. Við vorum líka svo
heppin að fá þessi fínu hit-lög á
fyrstu plöturnar. Það munar auðvit-
að um það þegar þú ert með eitthvað
sem steinliggur og ég efast um að
það séu mörg lög sem eiga eftir að
toppa vinsældir „Ég er á leiðinni“
jafnlangan tíma og það var í gangi.“
Ásamt Pálma voru í hljómsveitinni
þau Ragga Gísla, Magnús Eiríks,
Maggi Kjartans, Laddi, Diddú,
Þórður Árnason og Sigurður Karls-
son.
Um þetta leyti tók Pálmi ýmis
hliðarstökk. Hann spilaði í hljóm-
sveitinni Póker með Pétri heitnum
Kristjánssyni og í hljómsveitinni
Friðryk. „Friðryk var hörku rokk-
sveit. Við gerðum eina plötu sem
mér þykir mjög vænt um í dag.“
Jafnframt gaf Pálmi út sólóplötur
um þetta leyti: „Þetta voru plötur
sem Jón Ólafsson vildi endilega að
ég gerði. Þær voru að mörgu leyti
ágætar en að öðru leyti kannski ekki
voða góðar, þó það hafi verið margt
skemmtilegt á þeim.“
Gleðibankaförin mikla
Ein af stærstu stundum Pálma er
tvímælalaust sögulegur flutningur
ICY-hópsins á Gleðibankanum í
Evróvisjónkeppninni í Bergen 1986:
„Gleðibankinn var í raun Manna-
kornslag sem átti ekki að fara í neina
söngvakeppni. Við tókum þetta lag
upp á einu kvöldi og fannst það voða
sniðugt popplag og ætluðum að setja
það á Mannakornsplötu.“ segir
Pálmi frá. „Ég held ég sé að fara rétt
með þegar ég segi að Elsa heitin,
konan hans Magga Eiríkssonar, tók
þetta lag, því henni fannst það svo
skemmtilegt, og sendi kassettuna
inn í keppnina án okkar vitundar.
Við vorum síðan allt í einu kölluð til
leiks.“
Allt Ísland var gripið Evr-
óvisjónæði: „Þetta var allt saman
óvenjustórt og magnað: Að vera allt í
einu að syngja fyrir nokkur hundruð
milljón manns. Öll umgjörðin og læt-
in í kringum þetta voru náttúrulega
yfirgengileg og merkilegt að maður
skyldi sleppa hér um bil óskaddaður
frá þessu.“
Óþreytandi að spila
Eftir heimkomuna virðist sem
meiri ró hafi færst yfir feril Pálma.
Hann heldur áfram að vinna við tón-
list og Mannakorn lifa áfram, þó að
hljómsveitin hafi fengið að lúlla inni
á milli, eins og Pálmi orðar það, enda
var það síðast í fyrra að hljómsveitin
sendi frá sér plötu. „Það var ein af
okkar betri plötum og við erum að
taka meira upp. Við höldum þessu
áfram á meðan við nennum,“ bætir
Pálmi við kankvíslega.
Í dag fæst Pálmi við ýmis verk-
efni. „Ég er að hlúa að djassáhuga
mínum. Við erum með band hérna
fyrir norðan sem heitir Park Project
og erum að þróa það. Við höfum
prufukeyrt það á tónleikum og erum
að fara til Danmerkur í haust í tón-
leikaferð.“
Félagsskapurinn
mikilvægastur
Þegar Pálmi er beðinn um að
nefna það sem hæst stendur upp úr á
ferlinum er hann ekki lengi að hugsa
sig um: „Ég hef oft hugsað út í þetta.
Ég enda alltaf á því að segja að það
sem lifir sterkast eftir þennan tíma
er liðið sem ég er búinn að spila með.
Það hefur skipt sköpum fyrir mig að
hafa fengið að vinna með góðu tón-
listarfólki, fá uppeldi hjá toppmanni
eins og Magnúsi heitnum Ingimars,
hitta síðan og eignast fyrir persónu-
legan vin og félaga einn af betri laga-
smiðum landsins, Magnús Eiríksson,
og síðan að vinna með öllu hinu æð-
islega fólkinu sem ég hef verið svo
heppinn að fá að flytja tónlist með.“
Vinafundur á Vopnafirði
Vegleg dagskrá verður á Vopna-
fjarðardögum um helgina og er tón-
listarafmæli Pálma þar í brennidepli.
„Það er meiningin að skoða þennan
feril minn. Það verður voða gaman
að standa í þessu. Krakkarnir á
staðnum verða með sitt sérkvöld og
ætla að fara í gegnum ferilinn og
flytja lögin mín. Síðan mætir her-
skari af liði þarna austur.“ Manna-
korn verða á sínum stað og gömlu
refirnir úr Foxes ætla að spila sam-
an í fyrsta skipti í nærri fjörutíu ár:
„Við verðum með djass- og blús-
kvöld á hótelinu og þarna verða þeir,
flottu tónlistarmennirnir: Eyþór
Gunnarson, Gunnlaugur Briem,
Magnús Eiríksson, Ellen Kristjáns-
dóttir, Agnar Már Magnússon,
Benedikt Brynleifsson og Rúnar
Georgsson. Það er ekki annað hægt
en að það komi einhver skemmtileg-
heit út úr þessu.“
Ísland var gripið Evróvisjón-æði
1986 þegar ICY hópurinn fór til
Noregs með lagið um Gleðibank-
ann. Árangurinn varð þó ekki jafn-
góður og vonir stóðu til.
Pálmi hlaut mikla skólun í hljóm-
sveit Magnúsar Ingimarssonar
snemma á ferlinum.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Túlkun Pálma Gunnarssonar á hlutverki Júdasar í söngleiknum Jesus
Christ Superstar gerði hann þjóðfrægan á einni nóttu. Á myndinni er
Pálmi fyrir miðju.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 51
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16
H.L. MBL -H.L. MBL- . .
Sýnd kl. 8 og 10
T O M C R U I S E
Sýnd kl. 12.50, 3, 8 og 10.15 B.i 14 ára
Sýnd kl. 1, 3, 5 og 6 íslenskt tal
MYND EFTIR Steven spielberg
„Innrásin er
girnileg
sumarskemmtun,
poppkornsmynd
af bestu gerð!“
-S.V, MBL
I N N R Á S I N E R H A F I N
„EKTA
STÓR-
SLYSAMYND“
-Ó.Ö.H, DV
-KVIKMYNDIR.IS
-Ó.H.T, RÁS 2
-Blaðið
Ekki missa af einni skemmtilegustu mynd sumarsins.
-KVIKMYNDIR.IS
BLÓÐUG, BRÚTAL OG BRILLIANT!
Þorir þú í bíó?
Frá framleiðanda Texas Chainsaw Massacre
Kemur magnaðasta hrollvekja ársins!
Fór beint á toppinn í USA
Byggt á sannri sögu
Sýnd kl. 8 Sýnd kl. 10.10 B.i 14 Sýnd kl. 3 og 5.30 B.i 10 ÁRA
-Blaðið
-Þ.Þ. FBL
-Blaðið
T.V. kvikmyndir.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 B.I. 16
Þ.Þ. FBL
BLÓÐUG, BRÚTAL OG BRILLIANT!
-S.V. Mbl.
-Steinunn
/Blaðið
SÍÐUS
TU SÝ
NING
AR
Sýnd kl. 12.50, 3, 5.30, 8 og 10.15
Miðasala opnar
kl. 14.30
Sýnd kl. 3.30, 6, 8.30 og 11
SKEMMTILEGASTA STÓRMYND
SUMARSINS.
FÓR BEINT Á TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
Nú eru það fangarnir
gegn vörðunum!
SKEMMTILEGASTA STÓRMYND
SUMARSINS.
FÓR BEINT Á TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
Nú eru það
fangarnir gegn
vörðunum!
. .
553 2075☎
- BARA LÚXUS
* TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU
TILBOÐ400 KR.
400 KR. Í BÍÓ!*
YFI
R
30.
000
GE
STI
R
400 KR. Í BÍÓ!*