Morgunblaðið - 23.07.2005, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 53
BATMAN EINS OG ÞÚ HEFUR ALDREI SÉÐ HANN ÁÐUR !Létt og skemmtileg rómantísk gamanmynd með Óskarsverðlaunaleikkonunni, Kim Basinger
og hinum kynþokkafulla John Corbett úr “Sex and the City þáttunum.”
tt til r tí r r l l i i, i i r
i f ll r tt r t it tt .
Nýjasti teiknimyndasmellurinn frá höfundum og framleiðendum „Shrek“ og „Sharktale“
Ekki missa af einni skemmtilegustu mynd sumarsins.Sýnd með ensku tali.
B.i. 14 ára.
KEFLAVÍKAKUREYRI
með ensku tali
DARK WATER kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.20 B.i. 16 ára.
DARK WATER VIP kl. 8 - 10.20 B.i. 16 ára.
THE PERFECT MAN kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10
THE WAR OF THE WORLDS kl. 8 - 10.30 B.i.14
MADAGASCAR m/ensku tali kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10
MADAGASCAR m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6
BATMAN BEGINS kl. 2 - 5 - 8 - 10.40 B.i. 12
BATMAN BEGINS VIP kl. 2 - 5 B.i. 12
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 2
ÁLFABAKKI
b.i. 12
b.i. 12
DARK WATER kl. 8 - 10.20
MADAGASCAR m/íslensku tali kl. 2 - 4 - 6
MADAGASCAR m/ensku tali kl. 2 - 4 - 6
WAR OF THE WORLDS kl. 8 - 10.20
DARK WATER kl. 8 - 10
THE PERFECT MAN kl. 2 - 6 - 8
MADAGASCAR m/ensku tali kl. 4 - 10
MADAGASCAR m/íslensku tali kl. 2 - 4 - 6
Sýnd bæði
með íslensku
og ensku tali.
Nýjasti teiknimyndasmellurinn frá höfundum og framleiðendum „Shrek“ og „Sharktale“
Ekki missa af einni skemmtilegustu mynd sumarsins.Sýnd bæði með íslensku og ensku tali.
T O M C R U I S E
-Ó.H.T, RÁS 2
MYND EFTIR Steven spielberg
I N N R Á S I N E R H A F I N !
Hillary Duff Heather Locklear Chris Noth
Honum stendur ekki á sama.
MAGNAÐUR OG SÁLFRÆÐILEGUR DRAUGATRYLLIR FRÁ
MEISTARALEIKSTJÓRANUM WALTER SALLES (MOTORCYCLE DIARIES)
MAGNAÐUR OG SÁLFRÆÐILEGUR DRAUGATRYLLIR
FRÁ MEISTARALEIKSTJÓRANUM WALTER SALLES (MOTORCYCLE DIARIES)
Þrælskemmtileg rómantísk gamanmynd um dóttur
sem reynir að finna draumaprinsinn
fyrir mömmuna.
Með hinni sætu og frísklegu Hillary Duff, hinn flottu Heather
Locklear og Chris Noth úr “Sex and the City” þáttunum.
SUMAR
RÁÐGÁTUR
BORGAR
SIG EKKI
AÐ UPPLÝSA
HÁDEGISBÍÓ ALLAR MYNDIR KL. 12 LAUGARDAG OG SUNNUDAG Í KRINGLUNNI
MEÐ ÓSKARSVERÐLAUNHAFANUM
JENNIFER CONNELLY
I I
H.B. / SIRKUS
Andri Capone / X-FM 91,9
D.Ö.J. / Kvikmyndir.com
Þórarinn Þ / FBL
B.B. Blaðið
Kvikmyndir.is
Ó.Ö.H / DV
M.M.M / Xfm 91,9
H.L. / Mbl.
HLJÓMSVEITIN Grafík heldur tónleika á
Ísafirði í kvöld. Eflaust eru margir bæj-
arbúar sem hafa hlakkað til þessa viðburðar
í 20 ár, en svo langt er liðið síðan Grafík
tróð þar síðast upp.
Hljómsveitin, sem setti mark sitt svo um
munaði á tónlistarlíf Íslands um miðjan 8.
áratuginn lék sitt síðasta lag árið 1987 en
kom aftur saman á síðasta ári þegar haldnir
voru tvennir tónleikar til minningar um
trommuleikara sveitarinnar, Rafn Jónsson.
Eftir þá tónleika fóru aðilar að gefa sig
fram við forkólfa hljómsveitarinnar og held-
ur hún nokkra tónleika í sumar: „Þetta hef-
ur vafið aðeins upp á sig. Við vorum beðin
um að spila meira þótt það hafi nú aldrei
staðið neitt sérstaklega til. Hljómsveitin var
loks fengin til að spila á Þjóðhátíð og varð
það úr að halda um leið nokkra tónleika, á
Ísafirði, Akureyri og í Reykjavík,“ segir
Helgi Björnsson, en hann var aðalsöngvari
hljómsveitarinnar um þriggja ára skeið.
Þúsund sinnum segðu Grafík
Andrea Gylfadóttir var næsti söngvari
hljómsveitarinnar og munu þau bæði syngja
saman á tónleikunum í sumar. Hljómsveitin
verður meira eða minna í upprunalegri
mynd: Rúnar Þórisson verður á gítar, Jak-
ob Magnússon á bassa, Hjörtur Howser á
hljómborði og Egill Rafnsson fer í fótspor
föður síns, Rafns Jónssonar, við trommu-
settið.
Grafík hóf göngu sína á Ísafirði kringum
1980. Fyrsti söngvari sveitarinnar var Ólaf-
ur Guðmundsson, sem reyndar er frændi
Andreu. Þá var gefin út platan Út í kuldann
en lagið Video-video af þeirri plötu naut
mikilla vinsælda. Ómar „Ramó“ Óskarsson
söng þá fyrir hljómsveitina um stutt skeið
en Ísfirðingurinn Helgi Björnsson tók við af
honum, nýútskrifaður úr leiklistarnámi. Það
var þá sem lögin „Húsið og ég (Mér finnst
rigningin góð)“, „Þúsund sinnum segðu já“,
„16“ og „Tangó“ slógu í gegn. Þá tíð sem
Andrea var með hljómsveitinni var síðan
gefin út ein plata og stóðu þar hæst smell-
irnir „Prinsessan“ og „Presley“.
„Það er svolítið gaman af því,“ segja þau
Helgi og Andrea, „að við störfuðum með
hljómsveitinni hvort á sínum tímanum, og
þegar því lauk hjá okkur vorum við hvort í
sínu bandinu sem bæði voru í fram-
varðasveit íslenskrar tónlistar á sínum
tíma.“ Segja má að það hafi verið gegnum
Grafík að Helgi og Andrea, sem bæði voru
með klassíska listræna menntun að baki,
voru leidd inn í íslenskt popptónlistarlíf og í
kjölfarið bæði fyrir löngu orðin með ástsælli
listamönnum þjóðarinnar.
Það er ekki að greina neina samkeppni
hjá þeim: „Við erum búin að þekkjast allan
þennan tíma, og meira að segja fyrir tíma
Grafíkur,“ segir Andrea. „Við tökum lög
hvort frá sínu tímabili með hljómsveitinni,
bökkum hvort annað upp og tökum eitthvað
af lögum saman. Þetta verður mikið stuð og
mikil stemning.“
Og nóg er af smellunum sem komið hafa
úr smiðju Grafíkur: „Uppistaðan hjá okkur
verður náttúrlega Grafík,“ segir Helgi. „Það
er ótrúlega mikið af efni þaðan, sem fólk
kannast við þegar það heyrir lagið, þó það
kveiki kannski ekki á perunni þegar það sér
titilinn á blaði, eins og oft vill verða.“
„Síðan blöndum við öðrum lögum inn í
þetta; spiluðum náttúrlega koverlög á sín-
um tíma og héldum alltaf jafnhendis tón-
leika og dansiböll. Við spiluðum því þau lög
sem voru vinsælust á þeim tíma, svona 80’s
bland í poka sem læðist með. Kannski smá
Bowie, Dire Straits og fleira stöff sem var
vinsælt þarna á árunum kringum ’85 til
’87.“ Helgi er jafnvel að gæla við að syngja
eitt af sínum fyrstu frumsömdu lögum, lagið
Tampax, og stenst ekki mátið að flytja byrj-
unina á laginu: „Tampax, I don’t need you.
Tampax, I don’t want you“ og skellihlær.
Nostalgían
Þau Andrea og Helgi dauðhlakka til að
koma og spila á Ísafirði: „Það vill svo
skemmtilega til að það verður þarna fót-
boltamót, svokallað Púkamót. Þangað koma
örugglega margir af gömlu knattspyrnu-
kempunum sem voru þarna á sínum tíma.
Þegar ég var að spila með Grafík ’83–’84
var einmitt fótboltalið Ísafjarðar í fyrstu
deild og mikil stemning í kringum liðið,“
segir Helgi. „Þetta hittir ansi skemmtilega
á og ég held það verði mikil nostalgía svíf-
andi yfir vötnunum þarna fyrir vestan.
Félagsheimilið í Hnífsdal var aðal-
ballstaðurinn á sínum tíma og mikil stemn-
ing í kringum böllin þar. Það er mjög sjald-
an, núorðið, að böll eru haldin þar og ég á
von á því að það hafi líka skemmtileg áhrif
á fólkið að koma og kíkja á gamla ballstað-
inn sinn og rifja upp góðu árin. Það eiga
eftir að fjúka nokkrar hrukkur og nokkur
kíló þegar liðið sleppur sér og heldur að
það sé orðið 17 ára aftur, og syngur „Mér
finnst rigningin góð“ hálftíma eftir að balli
lýkur.“
Sjarmi, elegans – stiginn trylltur dans
Tónlist | Hin fornfræga hljómsveit Grafík spilar á Ísafirði, Þjóðhátíð, Akureyri og í Reykjavík
Morgunblaðið/Jim Smart
Nostalgían mun ráða ríkjum á Ísafirði: Andrea Gylfadóttir og Helgi Björnsson.