Morgunblaðið - 23.07.2005, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
FLUGFÉLAG Íslands hefur afráðið
að kaupa eða semja um kaupleigu á
tveimur 39 sæta flugvélum af gerð-
inni Dash 8-200 frá kanadíska fram-
leiðandanum Bombardier. Árni
Gunnarsson, framkvæmdastjóri fé-
lagsins, segir kaupverð tveggja not-
aðra véla af þessari gerð geta orðið
kringum 700 milljónir króna. Hann
segir vélarnar mest verða í áætlun-
arflugi milli Íslands og Grænlands
og leiguflugsverkefnum.
Árni Gunnarsson segir gert ráð
fyrir að vélarnar verði teknar í notk-
un um áramótin. Hann segir ákvörð-
un um kaupin tekna í framhaldi af
nýjum samningi Flugfélags Íslands
við grænlensku heimastjórnina um
áætlunarflug til 5 ára með möguleika
á framlengingu í önnur 5 ár. Er það
flug milli Reykjavíkur, Constable
Point og Kulusuk, og verður þessi
hringur floginn tvisvar í viku. Veltu
fyrir þetta verkefni segir hann verða
kringum 150 milljónir króna. Önnur
verkefni fyrir vélar af þessari gerð
segir Árni helst tengjast leiguflugi,
m.a. milli Íslands og Grænlands, en
einnig önnur leiguflugsverkefni sem
Flugfélagið hyggist sækja meira
inná. Hann segir vélarnar einnig
verða notaðar í innanlandsfluginu,
t.d. milli Reykjavíkur og Ísafjarðar
og Reykjavíkur og Akureyrar.
Hentugar á stuttum brautum
Árni segir Dash 8-200 vélarnar
geta hafið sig til flugs af aðeins 800 m
langri flugbraut sem sé talsvert
styttra en Fokker 50 vélarnar þurfi.
Því henti þær vel til flugs á stuttar
brautir. Annar kostur þeirra er að
þær bera talsvert mikla frakt auk 39
farþega og Árni segir einnig auðvelt
að minnka farþegarýmið til að auka
fraktrýmið.
Flugfélag Íslands
fær Dash 8-vélar
Eftir Jóhannes Tómasson
joto@mbl.is
INNAN skamms verður hægt að
greiða fyrir máltíð í skólamötu-
neytinu, aðgang að sundlaugum
Reykjavíkur og fargjaldið í
strætó með einu og sama kort-
inu. Um er að ræða svokallað S-
kort sem Strætó bs. hyggst taka
í notkun á haustmánuðum. Í
hverjum strætisvagni verður
komið fyrir kortalesara og hægt
verður að fylla á kortið þá þjón-
ustu sem viðkomandi vill kaupa,
hvort sem er ígildi græna korts-
ins eða „rafklink“ í stað smápen-
inga í strætóbaukinn. Vagnstjór-
inn fylgist með á skjá hvernig
þjónustu viðkomandi farþegi hef-
ur greitt fyrir sem dregur veru-
lega úr hættu á misnotkun korts-
ins. Hægt er að loka kortinu með
símhringingu glatist það.
Ásgeir Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri Strætó, segir að
vonir standi til að fleiri þjón-
ustuaðilar muni tengjast S-kort-
inu í framtíðinni en nú þegar er
búið að ná samkomulagi við
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur um
að kortið gildi í fjórum skóla-
mötuneytum í grunnskólum
borgarinnar auk allra sundstaða í
Reykjavík. Verið er að leita
samninga við banka og sparisjóði
um áfyllingu á kortin svo henni
verði viðkomið í hraðbönkum eða
netbönkum.
Eldsnemma í morgun áttu
vagnstjórar Strætó að hefja akst-
ur og aka eftir nýju leiðakerfi. Í
upphafi var gert ráð fyrir að við-
bótarkostnaður vegna breyting-
anna yrði á bilinu 170–180 millj-
ónir króna á ári en nú er hins
vegar talið að hann verði töluvert
lægri eða um 100 milljónir. Það
þýðir að rekstrarkostnaður
Strætó bs. verður 3,2 milljarðar
króna á ári.
S-kort í notkun í haust
Morgunblaðið/Þorkell
Nýjum leiðatöflum var komið upp á biðstöðvum Strætó í gær.
Kostnaður minni | Miðopna
Ýmsar nýjungar eru teknar upp með nýju leiðakerfi Strætó bs. sem gekk í gildi í morgun
FARÞEGAR Strætó bs. geta frá og með 15.
ágúst keypt svokallað skólakort sem gildir
til 1. júní 2006. Kortið kostar 25.000 krónur
og er ávinningur af kaupunum umtals-
verður ef kortið er keypt fyrir september-
lok. Að sögn Bjarkar Vilhelmsdóttur, for-
manns stjórnar Strætó bs., geta farþegar
sparað að minnsta kosti 7–8.000 krónur á
ári með því að kaupa þetta nýja kort sem er
viðbót við önnur kort sem fyrirtækið hefur
til sölu. Skólakortið tekur mið af skólaárinu
en er boðið öllum farþegum Strætó til
kaups. „Nemendur eru stór hópur okkar
viðskiptavina og þeir hafa verið að kalla
eftir ódýrari langtímakortum og með þessu
erum við að svara því,“ segir Björk. Kortið
verður kynnt í dag.
Hægt að
spara 7–8.000
krónur á ári
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinkonurnar Ástrós Magna og Marta María nutu sín við að baða dúkkurnar sínar í sólinni við Elliðavatn í gær. Áfram er spáð góðu víða um land.
Dúkkurnar baðaðar
Í FORSÍÐUVIÐTALI í Lesbók í dag bendir
Sigurður Flosason saxófónleikari á þá at-
hyglisverðu staðreynd, að þótt við eigum
margt gott tónlistarfólk í djassi og klassík, þá
sé það ekki síst popp-
tónlistinni að þakka hve
skilningur ráðamanna og
alls almennings á mik-
ilvægi tónlistarinnar í
samfélaginu hefur aukist
á undanförnum árum.
„... ég nefni nýja Tón-
listarsjóðinn og Loft-
brúna – popptónlistin hef-
ur ekki síst dregið þann
vagn. Hún er ekki ein um það, það eru fleiri
en popparar að gera það gott í útlöndum, en
hún fer hæst og er stærst, og mestur fjöldi
sem hlustar á þá tónlist. Við hin megum vera
þakklát fyrir það og virða það við poppið.
Eins og menntun er mér kær, þá verðum við
að virða það sem kemur úr grasrótinni líka,
því það er ekkert ómerkilegra.“
Í viðtalinu talar Sigurður um hugmyndir
sínar um tónlistina, samruna og samspil tón-
listartegundanna, tónlistaruppeldismál og
fleira, en hann er aðstoðarskólastjóri Tónlist-
arskóla FÍH. Hann segir að í Reykjavík hafi
verið reynt að gera við tónlistarskólakerfið,
sem hafi í raun ekkert verið bilað, og senni-
lega alveg frábært.
Virðum það
við poppið
Sigurður Flosason
Ég hef | Lesbók
BURÐARÁS hf. skilaði 24,5 milljarða króna hagn-
aði á fyrri helmingi ársins. Þar af var hagnaður á
öðrum ársfjórðungi 19,9 milljarðar króna. Er
þetta meiri hagnaður en dæmi eru um að íslensk
fyrirtæki hafi skilað á hálfu ári. Þetta á raunar
einnig við ef litið er til hagnaðar á heilu ári.
Fyrra hagnaðarmet íslenskra fyrirtækja var í
höndum KB banka vegna ársins 2004 en það ár
var 15,8 milljarða króna hagnaður af rekstri
bankans. Greiningardeildir bankanna spá því
reyndar að KB banki hafi á fyrri hluta yfirstand-
andi árs hagnast um í kringum 22,5 milljarða en
uppgjör bankans mun liggja fyrir í næstu viku.
Um það bil helmingur af hagnaði Burðaráss er
hagnaður af sölu Eimskipafélags Íslands til Avion Group í vor. Hreint sölu-
verð hlutabréfanna í Burðarási nam 21,2 milljörðum króna en hagnaður af
sölu Eimskipafélagsins nam 12,2 milljörðum að teknu tilliti til 3 milljarða
króna í skatta.
Fjárfestingar Burðaráss skiluðu röskum 11,9 milljarða króna hagnaði á
tímabilinu, þar af voru 8,6 milljarðar ekki innleystir þ.e. um er að ræða
hækkun á verði fjárfestinga sem ekki voru seldar á fyrri hluta árs. Hagn-
aður og arður Burðaráss af félögum sem skráð eru í Kauphöll Íslands var 7
milljarðar króna. Jafnframt gengu erlendar fjárfestingar vel. | 14
*(
! " $
%
&
&'
&(
)%*
+"
,$
+"
+ +
, (
Mesti hagnaður
Íslandssögunnar