Morgunblaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
TÍU framboð bárust í forvali Vinstri
hreyfingarinnar – græns framboðs
vegna borgarstjórnarkosninga í
Reykjavík. Framboðsfrestur rann út
í gær en forvalið fer fram í húsnæði
VG í Reykjavík laugardaginn 1.
október nk.
Frambjóðendur eru í stafrófsröð:
Árni Þór Sigurðsson, Ásta Þor-
leifsdóttir, Grímur Atlason, Guðný
Hildur Magnúsdóttir, Magnús
Bergsson, Sóley Tómasdóttir, Svan-
dís Svavarsdóttir, Ugla Egilsdóttir,
Þorleifur Gunnlaugsson og Þorvald-
ur Þorvaldsson.
Kosningarétt í forvalinu hafa allir
félagsmenn í VG sem búsettir eru í
Reykjavík, en frestur til að ganga í
flokkinn og hafa atkvæðisrétt í for-
valinu, rennur út föstudaginn 23.
september. Utankjörfundarat-
kvæðagreiðsla verður í Suðurgötu 3
miðvikudaginn 28. september og
föstudaginn 30. september frá kl.
17–21.
Tíu taka þátt
í forvali VG
KOSNINGAMIÐSTÖÐ Gísla Mar-
teins Baldurssonar veður opnuð í
dag, laugardaginn 17. september, í
Aðalstræti 6, með
fjölskylduhátíð
sem hefst kl. 14.
Gísli Marteinn
sækist eftir fyrsta
sæti í prófkjöri
sjálfstæðismanna
fyrir komandi
borgarstjórnar-
kosningar.
Meðal þess
sem verður á dag-
skrá fjölskyldu-
hátíðarinnar er ávarp Gísla Mar-
teins. Þá munu Lilli klifurmús og
Mikki refur halda uppi fjörinu og
Stebbi og Eyfi syngja.
Í boði verða kaffiveitingar og er
fjölskylduhátíðin öllum opinn.
Þá hefur framboð Gísla Marteins
opnað vefsíðu þar sem finna má um-
fjöllun um áherslur Gísla Marteins í
málefnum borgarinnar, auk þess
sem síðunni er ætlað að vera vett-
vangur skoðanaskipta um þau verk-
efni sem framundan eru í við stjórn
borgarinnar. Á síðunni er einnig
hægt að skoða stuðningsyfirlýsingar
við Gísla, myndir úr kosningabarátt-
unni og styðja fjárhagslega við bakið
á framboðinu, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Gísli mun daglega fram að próf-
kjöri skrifa dagbók (blogg) inn á síð-
una. Slóðin á vefsíðuna er www.-
gislimarteinn.is.
Gísli Marteinn
opnar kosn-
ingamiðstöð
Gísli Marteinn
Baldursson
HELGA Kristín Auðunsdóttir lög-
fræðinemi hyggst gefa kost á sér
sem 1. varaformaður á 38. þingi
Sambands ungra
Sjálfstæðis-
manna hinn 30.
september nk. í
Stykkishólmi.
Helga Kristín
er 25 ára meist-
aranemi í lög-
fræði við Við-
skiptaháskólann
á Bifröst. Hún
situr í stjórn
Heimdallar, er í
ritstjórn vefritsins tíkin.is auk þess
sem hún hefur verið í forystu ým-
issa félagasamtaka t.a.m. félags
um bætta vínmenningu og hefur
einnig skrifað reglulega pistla á
vefritið Deiglan.com og frelsi.is.
Helga Kristín er fædd og uppalin í
Borgarnesi en er nú búsett í
Reykjavík.
Framboð til
varaformanns
SUS
Helga Kristín
Auðunsdóttir
♦♦♦
♦♦♦
GUNNAR Einarsson, bæjarstjóri
Garðabæjar, telur Landvernd vera
komna langt út fyrir verksvið sitt
með kæru sinni vegna framkvæmda
við Urriðaholt. „Mér finnst Land-
vernd vera komin langt út fyrir það
markmið sem félagið hefur og mað-
ur getur lesið um í þeirra plöggum,
þ.e.a.s. að stuðla að fræðslu um nátt-
úruvernd og standa fyrir ráð-
stefnum og fundum og fleiru. Ég get
ekki séð að það sé Landvernd til
framdráttar að kæra ákvarðanir
bæjarstjórnar Garðabæjar, sem
hefur í einu og öllu farið eftir lögum
og reglum í þessu samhengi,“ segir
Gunnar.
Aðalskipulag svæðisins hefur ver-
ið staðfest af umhverfisráðherra og
segist Gunnar ekki trúa því að um-
hverfisráðherra brjóti náttúru-
verndarlög. „Í viðtölum við for-
svarsmenn Landverndar hefur
komið fram að sérstaklega vel hafi
verið staðið að undirbúningi þess-
arar skipulagstillögu og við höfum
tekið vel tillit til þeirra athuga-
semda sem komið hafa fram,“ segir
Gunnar. „Við höfum lagt áherslu á
það að ákveðnir hlutar svæðisins
sem hafa hæsta verndargildið séu
verndaðir, svo sem Urriðavatnið og
lífríki þess, lindir við vatnið og
hrauntanginn.“
Gunnar segir bæjarstjórn Garða-
bæjar hafa staðfest fundargerð
byggingarnefndar, sem heimili
framkvæmdir á svæðinu, enda liggi
þá fyrir hönnunargögn sem séu í
anda deiliskipulags svæðisins.
Bæjarstjóri Garðabæjar
Landvernd komin út
fyrir verksvið sitt
SAMGÖNGUVIKA í Reykjavík
hófst í gær og er borgin að taka þátt
í verkefninu í þriðja skipti en að
auki eru um eitt þúsund borgir í
Evrópu þátttakendur í ár. Afhend-
ing Samgöngu-
blómsins mark-
aði upphafið að
þessu sinni og er
það í fyrsta skipti
sem blómið er af-
hent – en það er
tákn verkefnisins
í Evrópu. Vestur-
bær Reykjavíkur
hlaut Samgöngu-
blómið í ár og
verða unnin ýmis
verkefni tengd samgöngum, bæði
með skólabörnum og hverfisráði,
allt næsta ár og verður afraksturinn
kynntur í Samgönguvikunni 2006.
Að sögn Sifjar Gunnarsdóttur,
verkefnisstjóra viðburða hjá Höfuð-
borgarstofu, var ákveðið að reyna
virkja almenning frekar í tengslum
við Samgöngvikuna og tilvalið að
hefja leikinn í gamalgrónu hverfi
eins og Vesturbænum. „Á hverju
ári framvegis verður eitt hverfi val-
ið lykilhverfi Samgönguviku og
þangað færi ákveðinn hluti af fjár-
magni verkefnisins. Nú er verið að
opna þessar hverfismiðstöðvar, nýj-
ar þjónustumiðstöðvar í öllum
hverfum, þannig að það er hægt að
tengja þetta verkefni þessum nýju
miðstöðvum.“
Sif Ægisdóttir, gullsmiður, sá um
gerð blómsins, úr nýsilfri og ís-
lensku fjörugrjóti. Mun það færast
á milli hverfismiðstöðva á ári hverju
en í ár tekur Óskar Dýrmundur
Ólafsson, framkvæmdastjóri
hverfismiðstöðvar Vesturbæjar,
Vesturgarðs, við blóminu.
Í dag er hjólreiðum gert hátt
undir höfði og verða hóphjólreiðar í
miðborginni. Hjólalestir leggja af
stað kl. 13 frá fjórum stöðum á höf-
uðborgarsvæðinu, Spönginni í
Grafarvogi, Árbæjarsafni, ísbúðinni
við Hjarðarhaga og verslunarmið-
stöðinni Firði í Hafnarfirði og mæt-
ast þær í Nauthólsvík. Þaðan hjóla
allir saman upp að Skólavörðuholti,
niður Laugaveg og enda við Hljóm-
skálagarð þar sem dagskráin held-
ur áfram fram eftir degi. Meðal
annars sýna ofurhugar kúnstir sín-
ar á hjólum og Hjólreiðafélag
Reykjavíkur sér um hjólreiða-
keppni meistaranna en í henni
verða farnir tíu hringir í kringum
tjörnina.
Á morgun kl. 14 verður farið í
Vesturbæjargöngu þar sem Guðjón
Friðriksson rýnir í sögu hverfisins
og skipulag. Gangan hefst við Ing-
ólfsnaust á horni Vesturgötu og
Aðalstrætis.
Samgönguvika hófst í gær í Reykjavík með afhendingu Samgöngublómsins
Hvatt til
breyttra
samgöngu-
hátta
Óskar Dýrmundur
Ólafsson
EFTIR að Slippstöðin á Akureyri
hafði fengið þriggja vikna greiðslu-
stöðvun vegna fjárhagserfiðleika
lagði fjármögnunarfyrirtækið SP-
fjármögnun á fimmtudag hald á tæk-
in sem Slippstöðin hefur notað við
stöðvarhús Kárahnjúkavirkjunar.
Þar hefur Slippstöðin verið undir-
verktaki tveggja erlendra fyrirtækja
við gerð fallganga og samsetningu
vélbúnaðar í stöðvarhúsinu.
Yfir 30 starfsmenn Slippstöðvar-
innar hafa unnið við virkjunina, lang-
flestir frá Póllandi. Oddur Friðriks-
son, aðaltrúnaðarmaður verkalýðs-
félaganna á virkjunarsvæðinu, kom
Pólverjunum til aðstoðar í gær þegar
þeir voru orðnir verklausir. Oddur
sagðist hafa áhyggjur af Pólverjun-
um, þeir hefðu verið skildir eftir í
reiðileysi en vonandi myndi þýski að-
alverktakinn DSD ráða einhverja
þeirra til starfa.
„Þeir munu hinkra við hérna í
skálunum um helgina og vonandi
finnst einhver lausn á þeirra mál-
um,“ sagði Oddur.
Landsvirkjun fylgist með
Slippstöðin hefur verið með tvo
verksamninga við Kárahnjúkavirkj-
un, annars vegar við samsetningu
stálröra í fallgöngunum og hins veg-
ar við samsetningu hverfla og vél-
búnaðar í stöðvarhúsi virkjunarinn-
ar inni í Valþjófsstaðarfjalli. Sam-
setning röranna var stutt á veg kom-
in neðst í göngunum þegar tækin
voru numin á brott af svæðinu í
fyrradag.
Sigurður Arnalds, talsmaður
Landsvirkjunar við Kárahnjúka,
sagðist í samtali við Morgunblaðið
vonast til þess að mál Slippstöðvar-
innar leystist farsællega. Lands-
virkjun hefði í raun engin bein af-
skipti af málinu, að öðru leyti en því
að fylgjast með hvað aðalverktakinn
myndi til bragðs taka.
Um stórt verk væri að ræða sem
ekki mætti verða löng töf á. Sigurður
tók jafnframt fram að Landsvirkjun
hefði á sínum tíma lýst ánægju með
að þýsku verktakarnir skyldu ráða
íslenskan undirverktaka í jafn stórt
verkefni. Vonir stæðu til að íslenskt
fyrirtæki héldi verkinu áfram.
Hald lagt á tæki Slippstöðvarinnar við Kárahnjúka
Pólskir starfsmenn
skildir eftir verklausir
KRAKKAKÓR leikskólans Tjarnarborgar söng nokkur
lög í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi í gærdag við
hátíðlega athöfn eftir að Steinunn Valdís Óskarsdóttir
borgarstjóri hafði afhent Óskari Dýrmundi Ólafssyni
Samgöngublómið sem markar upphaf Samgönguviku í
Reykjavík.
Morgunblaðið/Þorkell
Krakkakór í listasafni
MAÐURINN sem höfuðkúpu-
brotnaði í vinnuslysi á Hellis-
heiði á fimmtudag er á batavegi
á Landspítalanum. Hann losn-
aði úr öndunarvél á gjörgæslu-
deild í gær en verður áfram til
eftirlits á deildinni. Hann slas-
aðist þegar hann kastaðist út úr
vörubíl sem runnið hafði stjórn-
laust niður brekku í grennd við
Hellisheiðarvirkjun.
Í öndunarvél eftir eldsvoða
Á gjörgæsludeild er einnig
kona sem hlaut alvarleg bruna-
sár í eldsvoða í Stigahlíð 27.
ágúst sl. Líðan hennar er
óbreytt og er hún tengd við
öndunarvél að sögn vakthaf-
andi læknis.
Á batavegi
eftir
vinnuslys