Morgunblaðið - 17.09.2005, Side 24
til Würzburg
s: 570 2790 www.baendaferdir.is
Þýskaland er land jólamarkaðanna og bjóðum við nú jólaferð til Würzburg
sem er einstaklega heillandi borg og skartar sínu fegursta í desember.
Hrein upplifun er að fara á jólamarkaðina sem geyma ótal jólagjafahug-
myndir; bragða á jóladrykknum „Glühwein“ og jólastemmingin eykst á
hverju horni. Úrval veitingastaða er gott, hótelið þægilegt og staðsett
miðsvæðis. Spennandi skoðunarferð til Rothenburg ob der Tauber.
í Þýskalandi
1. - 4. desember 2005
8. - 11. desember 2005
Verð kr. 58.150 á mann í tvíbýli
Innfalið: Flug, skattar, gisting í tveggja manna herbergi á 3* hóteli
með morgunverði í 3 nætur, ferðir milli flugvallar og hótels,
skoðunarferð til Rothenburg ob der Tauber og íslensk fararstjórn.
K Y N N T U Þ É R S É R F E R Ð I R F E R Ð A Þ J Ó N U S T U B Æ N D A
Blönduós | Þessi unga snót, Þórunn Hulda
Hrafnkelsdóttir sem á Blönduósi býr hjólaði af
öryggi eftir Árbrautinni móti haustinu og fram-
tíðinni. Svipurinn lýsir undrun og varkárni, eig-
inleikum sem koma sér vel hverjum þeim sem
tilbúinn er að mæta lífinu af einlægni og festu.
Nú þegar skammdegið tekur sífelltstærri hluta
af deginum og tæp vika er þangað til nóttin
verður jafnlöng deginum er rétt að hafa varan
á þegar út í umferðana og lífið er komið. Ör-
yggishjálmurinn er höfuðnauðyn og end-
urskinsmerkin verða sífellt mikilvægari til að
vegferðin verði traustari. Þórunn Hulda er á
réttri leið.
Morgunblaðið/Jón Sigrðsson
Fljóð á ferð
Varkárni
Akureyri | Suðurnes | Árborgarsvæðið | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Hreyfing er komin á viðræður milli
Vegagerðarinnar á Sauðárkróki og
bænda í Akra-hreppi eftir að sveitar-
stjórn veitti framkvæmdaleyfi til lagn-
ingar nýs kafla á þjóðvegi 1, niður frá
Öxnadalsheiði vestanverðri. Í vegaáætl-
un var veruleg fjárveiting til þessarar
framkvæmdar árið 2004 en þar sem
framkvæmdaleyfi lá ekki fyrir var ekki
unnt að ganga frá samningum eða eign-
arnámi þess lands sem til þurfti fyrr en
nú. Samkvæmt upplýsingum frá Vega-
gerðinni mun samningaleiðin reynd til
þrautar, og er gert ráð fyrir að útboð
geti farið fram í vetur og framkvæmdir
þá hafist næsta vor. Á umræddum vega-
kafla eru 4 einbreiðar brýr og mörg um-
ferðarslys hafa orðið þarna, enda veg-
urinn barn síns tíma.
Skagfirskir trillukarlar og smábáta-
sjómenn kættust þegar ljóst varð að nýr
sjávarútvegsráðherra var einn af þing-
mönnum kjördæmisins og þykjast þeir
nú eygja nokkra von um að unnt verði
að fá dragnótaveiðar takmarkaðar á
Skagafirði. Segja þeir að dragnótaveiðin
hafi, eftir að hún var leyfð innan fjarðar,
nánast drepið niður allt fiskirí á firð-
inum. Hvort nándin við ráðherrann dug-
ar þeim til að ná þessum markmiðum
sínum á svo eftir að koma í ljós, en
koma dagar, koma ráð og nýjar kosn-
ingar.
Eins og í flestum skólum landsins
hófst kennsla í Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra í lok ágúst, og eru nem-
endur um 420. Að sögn Ásbjörns Karls-
sonar áfangastjóra er nú heimavist
skólans fullsetin, en það er breyting frá
fyrra ári. Einnig sagði hann að nú væri í
fyrsta sinn starfrækt annað stig vél-
stjórnarbrautar með 15 nemendum og
einnig rafiðnabraut en enginn stundaði
það nám á síðasta ári. Sagði Ásbjörn
ánægjulegt hversu mjög verkgreina-
brautirnar væru að eflast, og aukin
ásókn í það nám.
Úr
bæjarlífinu
SAUÐÁRKRÓKUR
EFTIR BJÖRN BJÖRNSSON FRÉTTARITARA
Heilsugæslustöðinni áReyðarfirði var nýlegaefhent Carl Zeiss Opmi
eyrnasmásjá að gjöf. Hún er
flutt inn af Austurbakka hf. og
kostaði tæplega 1 milljón kr.
Að sögn Guðjóns Leifs Gunn-
arssonar, yfirlæknis á Reyð-
arfirði, mun hún auka fjöl-
breytni þjónustu heilsu-
gæslustöðvarinnar. Hún
auðveldar allar rannsóknir á
eyrum og hægt verður að tengja
við hana myndavél, einnig nýtist
hún m.a. við leit að aðskota-
hlutum í augum, skoðun sára og
eftirlit með fæðingarblettum
Gefendur voru Kvenfélag
Reyðarfjarðar, Rafveita Reyð-
arfjarðar, Rafmagnsverkstæði
Árna Elíssonar, Rauðakross-
deildin á Reyðarfirði, Sparisjóð-
ur Norðfjarðar, Íslandsbanki og
Eimskip.
Gunnþóra Snæþórsdóttir
hjúkrunarforstjóri og Guðjón
Leifur Gunnarsson yfirlæknir
tóku við gjöfinni. Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir
Höfðingleg gjöf
Jakob Hóli orti umsamfélag við menn,hunda, hesta, ís-
lenska náttúru og sam-
félagið í göngum:
Þessar stundir þrái mest,
þörf er mér að lofa,
að fara um með hund og hest,
og heldur lítið sofa.
Kveða stökur, kneyfa vín,
kofans hlýju njóta.
Eiga vinar góðlegt grín,
glaður sof́a og hrjóta.
Rúnar Kristjánsson:
Haustið kemur húmi mettað,
hlýtur brátt sinn valdasess.
Senn mun verða í sveitum rétt-
að,
september er tími þess.
Síðan fer að frysta meira,
fönn og kuldi merkja svið.
Og kannski að fuglaflensuveira
fylgi svo í kjölfarið!
Einar Kolbeinsson
vaknaði að morgni 5. sept-
ember:
Sem ég árin sjálfur glæst,
saman kann að leggja,
þá er orðinn því sem næst,
þrjátíu og tveggja.
Enn af göngum
pebl@mbl.is
Vestmannaeyjar | Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra hefur skipað Pál Sigurjóns-
son verkfræðing formann starfshóps sem
fjallar um samgöngur milli lands og Eyja.
Nefndin var upphaflega skipuð 12. maí
2004 til að fara yfir framtíðarkosti hvað
samgöngur við Vestmannaeyjar varðar.
Hlutverk nefndarinnar er að skoða mögu-
leika er varða jarðgangagerð milli lands og
Eyja, ferjuhöfn í Bakkafjöru, endurnýjun
Herjólfs og aðra þá kosti sem kunna að
vera í stöðunni. Páll hefur yfirgripsmikla
þekkingu og reynslu á þeim málum sem
nefndinni er ætlað að fjalla um. Fyrrver-
andi formaður var Kristján Vigfússon, þá
staðgengill siglingamálastjóra, en hann
hefur horfið til annarra starfa. Með Páli í
hópnum eru: Jón Eðvald Malmquist, lög-
fræðingur í samgönguráðuneytinu, Gunn-
ar Gunnarsson aðstoðarvegamálstjóri,
Ingi Sigurðsson fv. bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum og formaður Ægisdyra, Páll
Zóphóníasson tæknifræðingur fv. bæjar-
stjóri í Vestmannaeyjum og Bergur Elías
Ágústsson bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Þá hefur samgönguráðherra einnig
ákveðið að skipa nefnd um bætta nýtingu
samgangna milli lands og Eyja í kjölfar
stórbættrar þjónustu á Bakkaflugvelli og
ákvörðunar um fjölgun ferða Herjólfs.
Markmiðið er að leita leiða til eflingar
ferðaþjónustunnar í Vestmannaeyjum.
Formaður nefndarinnar verður Guðjón
Hjörleifsson alþingismaður og með honum
í nefndinni verða Helga Haraldsdóttir
skrifstofustjóri í samgönguráðuneytinu,
Ársæll Harðarson markaðsstjóri Ferða-
málaráðs, Kristín Jóhannsdóttir markaðs-
og menningarfulltrúi Vestmannaeyja og
Áslaug Rut Áslaugsdóttir formaður ferða-
málasamtaka Vestmannaeyja.
Samgöngur
milli lands
og Eyja
Arnar Sigurmundsson, Sturla Böðv-
arsson, Páll Sigurjónsson, Guðjón Hjör-
leifsson og Ragnhildur Hjaltadóttir.