Morgunblaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 25
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
SUÐURNES
Reykjanesbær | Mikil upp-
bygging átti sér stað hjá Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja
(HSS) á síðasta ári og var
aukning mikil á flestum sviðum
starfseminnar. Þannig var mikil
vinna lögð í þróun upplýsinga-
og fjárhagskerfa og er þeirri
þróun ekki lokið að sögn tals-
manna HSS.
Sigríður Snæbjörnsdóttir,
framkvæmdastjóri HSS segir
rekstur stofnunarinnar hafa
verið erfiðan á síðasta ári. Að-
gangur að tölulegum upplýsing-
um hafi ekki verið nægilegur til
að nýta mætti þær á öruggan
hátt sem forsendur ákvarðana.
Segir Sigríður sífellt unnið að
því að bæta upplýsingar bæði í
rekstri og starfsemi stofnunar-
innar.
„Eftir fyrstu 6 mánuði ársins
2005 er rekstrarhalli nú tæpar
11 m.kr. eða 2% umfram fjár-
lög,“ segir Sigríður. „Vissulega
er þetta góður árangur en bet-
ur má ef duga skal. Árangur
sem þessi hefur náðst með mik-
illi vinnu margra starfsmanna,
ekki síst í ljósi þess að starf-
semin er enn að eflast og
aukast.“
Nefnir Sigríður í þessu sam-
hengi að aukning á komum á
heilsugæsluna sé um 15% á
þessu tímabili og smávægileg
aukning sé líka á starfsemi
á dag hefur lækkað um 61% á
milli áranna 2002 og 2004.
Lyfjakostnaður hefur minnkað
um 10% á þessu tímabili eða um
eina milljón króna Sífellt er
unnið að því að hagræða í
rekstri og gera betur,“ segir
Sigríður.
sjúkrahússins þrátt fyrir gífur-
lega aukningu á starfsemi
sjúkrahússins milli áranna 2003
og 2004.
„Skemmst er að minnast þess
að fjöldi sjúklinga af Suðurnesj-
um sem liggur á Landspítala
háskólasjúkrahúsi að meðaltali
Rekstur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja nálgast jafnvægi
Sex mánaða upp-
gjör lofar góðu
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Rekstur batnar Góðar batahorfur eru á rekstri Heilbrigðisstofn-
unar Suðurnesja að sögn framkvæmdastjóra stofnunarinnar.
Sandgerði | Vilji er fyrir
því í þeim sveitarfélögum
sem koma að Miðnesheiði,
Garði, Sandgerði og
Reykjanesbæ, að skapa
þar hugsanlegt griðland
fyrir refi ásamt því að
vinna að fækkun sílamáva
á Reykjanesi. Þetta kom
fram á fundi sem haldinn
var í Náttúrustofu Reykja-
ness í Sandgerði í fyrra-
dag. Tilgangur fundarins
var að kynna fyrir sveit-
arstjórnarmönnum hug-
myndir um friðun refs á Miðnesheiði
og er næsta skref að senda ráðherra
bréf þar sem beðið verður um að refur
verði friðaður tímabundið á Mið-
nesheiði til fimm ára.
Að sögn Sveins Kára Valdimars-
sonar, forstöðumanns Náttúrustofu
Reykjaness, hefur sílamávi farið ört
fjölgandi á Reykjanesi, en hann náði
fyrst fótfestu þegar engir refir voru á
svæðinu. „Við erum að tala um tíu
hreiður sem fundust 1958 og nú erum
við að tala um stærsta sílamávsvarp í
heimi,“ segir Sveinn Kári. „Aðalhættan
felst í mögulegum árekstrum við flug-
vélar. Það hafa orðið tvö slys á flug-
vellinum, fyrst 1974 og nú síðast 1999
þegar breiðþota frá Air Atlanta þurfti
að nauðlenda af því að hreyfill eyði-
lagðist í árekstri við máv.“
Sveinn Kári segir að með fjölgun
refa verði mögulega hægt að halda síla-
mávastofninum í skefjum. „Við teljum
að þarna hefði aldrei farið af stað
mávavarp ef tófa hefði verið á svæð-
inu,“ segir Sveinn. „Það má benda á að
við höfum mjög sterkar og góðar vís-
bendingar til þess að varpið hafi verið
að færast frá þeim grenjum sem hafa
fundist á svæðinu síðastliðin ár. Á
grenjatímanum eru sílamávurinn, eggin
og ungarnir helsta fæða tófunnar.“
Einhver sauðfjárrækt á sér enn stað
á svæðinu og einnig eru æðavörp við
heiðina. „Við viljum ekki að bændur
megi ekki takast á við dýrbít, en mér
sýnist að bæði sauðfjárbændur og æða-
bændur séu hrifnir af þessum hug-
myndum,“ segir Sveinn Kári. „Því það
er hægt að girða fyrir refinn, en ekki
fyrir sílamávinn, því hann kemur að of-
an.“
Sveinn Kári segir að með griðlandi
fyrir refi opnist möguleiki á því að
fylgjast með mófuglum og bera saman
við svæði á Mosfellsheiði. Þannig verði
hægt að meta áhrif refsins á mófugla
með vísindalegum aðferðum. „Það má
benda á það að mófuglar hafa þróast
með refnum og þeir kunna að fela sig
mun betur en mávurinn,“ segir Sveinn
Kári. „Hreiður mávanna eru ekki mjög
vel falin, svo það mætti hugsanlega
álykta að refurinn leiti frekar í mávinn.
Það er allavega áhugavert rannsókn-
arefni. Rannsóknirnar eru alveg nauð-
synlegar með þessu til að skoða og
meta hvernig markmiðin eru að nást.“
Vilja siga rebba á
sílamávinn
SAMSKIP hafa sótt um lóð á Ak-
ureyri fyrir framtíðaraðstöðu fé-
lagsins við Laufásgötu og Gránu-
félagsgötu. Erindið var til
umfjöllunar á síðasta fundi um-
hverfisráðs, sem vísaði því til um-
sagnar stýrihóps um Akureyri í
öndvegi, þar sem þetta svæði var
skilgreint sem hluti af samkeppn-
issvæðinu. Umrætt svæði er við
Tangabryggju og nær frá athafna-
svæði Eimskips og norður með
ströndinni austan við Norðlenska.
Samskip kaupa frystigeymslu Norð-
lenska, sem verður rifin ásamt fleiri
húsum á svæðinu.
Hólmar Svansson, deildarstjóri
afgreiðslna hjá Samskipum, sagðist
gera ráð fyrir að erindið yrði af-
greitt á næsta fundi umhverfisráðs.
„Þetta er komið á beinu brautina og
við fögnum því að fá að byggja hér
upp framtíðaraðstöðu, eftir töluvert
langa meðgöngu.“
Landflutningar-Samskip eru með
starfsaðstöðu á tveimur stöðum í
bænum, skrifstofuaðstöðu og vöru-
afgreiðslu í eigin húsnæði við
Tryggvabraut, auk þess sem félagið
leigir húsnæði og gámaaðstöðu við
Fiskihöfnina. Ráðgert er að byggja
um 1.700 fermetra hús á væntan-
legu framtíðarsvæði félagsins, sem
er alls um 8.000 fermetrar. Hólmar
sagði stefnt að því að hefja fram-
kvæmdir með vorinu og að starf-
semin verði komin á einn stað
næsta haust eða vetur. Aðspurður
hvort nauðsynlegt sé fyrir fyrirtæk-
ið að vera niðri við höfn, nú þegar
flutningar félagsins milli landshluta
fara nær eingöngu landleiðina,
sagði Hólmar: „Við erum skipa-
félag, eigum skip og leigjum skip
sem sigla út um allan heim. En eins
og staðan er núna er ekki hag-
kvæmt að flytja með skipum sjóleið-
ina milli landshluta en það gæti
breyst.“
Þekkist hvergi að ryðja burt
starfsemi í fullum gangi
Í verkefninu Akureyri í öndvegi,
var mikið horft til þess að byggt
yrði íbúðahverfi niðri við sjó, m.a.
þar sem Eimskip hefur starfsað-
stöðu og á því svæði sem Samskip
eru að sækja um. Hólmar sagði að
þar sem byggð hafi verið bryggju-
hverfi, væri um að ræða svæði sem
ekki væru nýtt lengur t.d. sem iðn-
aðarsvæði. „Það þekkist hvergi í
heiminum að taka starfsemi í fullum
gangi eins og er þarna á Eyrinni og
ryðja henni í burtu af því menn vilja
byggja bryggjuhverfi. Það mun
ekki gerast á næstu 50 árum.“
Samskip vilja starfsemina á einn stað
Sækja um lóð
við Tanga-
bryggju
Eftir Kristján Kristjánsson
krkr@mbl.is
ÆFINGAR eru nú hafnar á gam-
anleikritinu Fullkomið brúðkaup
eftir Robin Hawdon hjá Leikfélagi
Akureyrar. Leikritið þykir drep-
fyndið en er jafnframt rómantískur
gamanleikur, hraður, fullur af mis-
skilningi, framhjáhöldum og ást.
Það er eftir sama höfund og skrif-
aði leikgerðina af Sex í sveit, einni
vinsælustu sýningu Leikfélags
Reykjavíkur frá upphafi.
Brúðkaupsdagurinn er runninn
upp, brúðguminn vaknar með konu
sér við hlið, konu sem hann hefur
aldrei áður augum litið, veit ekkert
hver er né hvað hafði gerst kvöldið
áður. Hann flækist inn í atburðarás
sem hann ræður ekki við, brúðurin
á leið inn í herbergið sem er í rúst
og nakin ókunnug kona í rúminu.
Þetta er í stuttu máli efni leikrits-
ins, segir í frétt frá leikfélaginu.
Leikarar eru þau Álfrún Örnólfs-
dóttir, Esther Thalia Casey, Guðjón
Davíð Karlsson, Jóhannes Haukur
Jóhannesson, Maríanna Clara Lut-
hersdóttir og Þráinn Karlsson.
Leikstjóri er Magnús Geir Þórð-
arson, Örn Árnason þýddi, Frosti
Friðriksson hannar leikmynd og
búninga, en ljósahönnun er í hönd-
um Björns Bergsteins Guðmunds-
sonar. Frumsýnt verður 20. okt.
Morgunblaðið/Kristján
Æfingar Leikarar, leikstjóri og aðrir aðstandendur sýningarinnar fyrir framan Samkomuhúsið.
Æfa grínleikinn Fullkomið brúðkaup
Tónleikar | Tónleikar í anda Sig-
urveigar Hjaltested og Stefáns Ís-
landi verða haldnir í Ketilhúsinu
laugardaginn 17. september kl. 17.
Tónleikarnir eru þeir fimmtu í röð
tónleika sem haldnir eru víðsvegar
um landið. Á tónleikunum munu
tveir ungir afkomendur söngvar-
anna ástsælu, þau Stefán Helgi Stef-
ánsson tenór og Ingibjörg Aldís
Ólafsdóttir sópran rifja upp með
áheyrendum góðar stundir frá fyrri
árum. Ingibjörg er sonardóttir Sig-
urveigar Hjaltested og hefur undan-
farin fjögur ár stundað nám í ljóða-
og óperusöng við Tónlistarháskól-
ann í Nürnberg og í lauk í sumar sem
leið mastersprófi frá framhaldsdeild
skólans. Stefán Helgi mun m.a. tak-
ast á við söngperlur sem langafi hans
Stefán Íslandi söng og túlkaði svo
listilega á sínum tíma.
Ljóðaganga við Fagraskóg | Lagt
verður upp í árlega Ljóðagöngu á
morgun, sunnudaginn 18. september
kl. 14, en að þessu sinni verður farið í
Fagraskóg. Með fræðslu, ljóðalestri
og söng verður Davíðs Stefánssonar
minnst á bernskuslóðum hans, en í ár
eru 110 ár liðin frá fæðingu skálds-
ins. Farið verður með hópferðabíl frá
Amtsbókasafninu á Akureyri kl. 14
og ráðgert að ljúka ferðinni þar aftur
ekki síðar en kl. 17. Leiðsögumaður
verður Erlingur Sigurðarson og auk
hans munu koma fram lesarar og
tónlistarmenn. Ljóðagangan er að
þessu sinni samstarfsverkefni Amts-
bókasafnsins, Skógræktarfélags Ey-
firðinga og Populus tremula ásamt
heimamönnum í Fagraskógi. Boðið
upp á ketilkaffi og meðlæti. Að-
gangseyrir er enginn og allir vel-
komnir.