Morgunblaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Selfoss | „Mér finnst aðalkosturinn við sam- eininguna vera sá að svæðið verður öflugra með aukinn slagkraft gagnvart mikilvægum hagsmunum, svo sem samgöngubótum á Hellisheiði, Þrengslum og Suðurstrand- arvegi. Einnig gagnvart höfninni í Þorláks- höfn og svæðinu í heild sem öflugu atvinnu- og þjónustusvæði. Þannig náum við frekar til fólks sem vill setjast hér að. Auknar kröfur íbúa á öllum aldri um faglega og góða þjón- ustu eru sífellt að aukast,“ segir Þorsteinn Hjartarson forseti bæjarstjórnar Hvera- gerðis sem er formaður samstarfsnefndar um sameiningu í Ölfusi og Flóa. Nefndin er þessa dagana að kynna sameiningartillöguna sem kosið verður um 8. október í sveit- arfélögunum á svæðinu. Á kynningarfundum liggur Þorsteinn ekkert á skoðunum sínum, segist fylgjandi sameiningunni og dálítið heillaður af þeirri hugsun að horfa á svæðið sem eina heild. „Ég er búinn að starfa víða á Suðurlandi og mér finnst ástæðulaust að íbú- ar bindi sig við gömul og úrelt hreppamörk. Það eru aðstæður og umhverfi íbúanna á svæðinu sem skipta höfuðmáli. Þéttbýlið og sveitirnar, sem umlykja það, eiga svo margt sameiginlegt og sýn á heildarhagsmuni er heillandi viðfangsefni,“ segir Þorsteinn sem er starfandi skólastjóri í Fellaskóla í Reykja- vík jafnframt því að gegna trúnaðarstörfum í sveitarstjórn Hveragerðisbæjar. Þá er hann mikill hestamaður og einn af eigendum Eld- hesta í Ölfusi sem hafa nýlega stækkað sveitahótel sitt. Gaman í bæjarmálunum „Þetta er 5. árið sem ég keyri á milli og ég kann því ágætlega. Vinnustaðurinn þannig staðsettur að ég er bara hálftíma í vinnuna þegar aðstæður eru góðar,“ segir Þorsteinn sem ekur á hverjum degi frá Hveragerði í Breiðholtið til vinnu. „Ég nota tímann til að velta fyrir mér viðfangsefnum dagsins, skólastarfinu og stundum pólitíkinni. Varð- andi pólitíkina þá mæðir ekki svo mikið á mér þar sem við í Hveragerði erum með afar öflugan bæjarstjóra og góða embættismenn, þannig að flest mál vinnast fljótt og vel. Sjálfur á ég sæti í fáum nefndum svo fund- arsetur eru ekki miklar. Þó hefur vinna í tengslum við samstarfsnefnd um sameiningu í Ölfusi og Flóa verið töluverð enda hlutverk okkar að koma af stað umræðu um kosti og galla sameiningar og um mögulega framtíð- arsýn nýs sveitarfélags. Ég hef gaman af því að starfa í bæjarmálunum og fá tækifæri til að móta nánasta umhverfi og samfélag. Svo er þetta auðvitað ennþá skemmtilegra þegar svona mikill uppgangur er hérna í Hvera- gerði og á öllu Árborgarsvæðinu,“ segir Þor- steinn en á líflegum kynningarfundum hefur það oft komið í hans hlut að svara fyr- irspurnum á fundum með íbúunum. „Við er- um ekki að sameinast til að verjast heldur til að eflast enn frekar, sækja fram og ýta undir meiri slagkraft til framtíðar gagnvart stórum hagsmunamálum 11 - 12 þúsund íbúa á svæðinu. Einnig til að auka þjónustu við alla íbúa og auka áhrif svæðisins út á við, einkum í samgöngu- og atvinnumálum,“ sagði Þorsteinn í inngangi sínum á kynning- arfundi í Hveragerði á miðvikudagskvöld. Skólastarfið er gefandi „Ég fer alltaf eina hestaferð á sumri sem leiðsögumaður, gjarnan inn á hálendið. Það er gaman að ferðast á dugmiklum gæðingum með góðu fólki og það er oftast talverð af- slöppun í því fólgin. Óneitanlega er maður oftar en ekki undir álagi í því sem maður er að fást við og því er gott að geta slappað af úti í náttúrunni. Samvistir við fjölskyldu mína eru mér einnig afar mikilvægar,“ segir Þorsteinn sem er mikill fjölskyldumaður og á börn á öllum skólastigum frá leikskóla upp í háskóla. Sjálfur er hann langt kominn með mastersverkefni í stjórnun menntastofnana og upplýsingatækni,en hann fékk námsleyfi skólaárið 2003 - 2004 vegna rannsókn- arstarfa í framhaldsnámi sínu. „Það er afskaplega gefandi að starfa sem skólastjóri. Það er mikilvægt og krefjandi verkefni að vinna með börnum og unglingum og leitast stöðugt við að skapa þeim gott um- hverfi til náms og þroska. Ég og samstarfs- menn mínir höfum reynt að leggja aukna áherslu á nemendalýðræði í skólanum og því reynum við að gefa nemendum kost á því að hafa nokkur áhrif á skólastarfið en það tel ég afar mikilvægt. Þá erum við í Fellaskóla m.a. að vinna að þróunarverkefnum sem miða að því að auka fjölbreytta og sveigjanlega kennsluhætti, styðja við heilbrigða lífshætti og jákvæða hegðun nemenda,“ segir Þor- steinn Hjartarson að lokum. Finnst heillandi að horfa á svæðið sem eina heild Morgunblaðið/ Sigurður Jónsson Þorsteinn Hjartarson, skólastjóri, forseti bæj- arstjórnar Hveragerðis og hestamaður. Eftir Sigurð Jónsson ÁRBORG LANDIÐ Húsavík | Guðmundur Ármann opn- ar sýningu í Safnahúsinu á Húsavík í dag kl 15. Á sýningunni, Láréttri birtu, sýnir Guðmundur 46 verk. Mál- verk, tréristur og kolteikningar og eru þau gerð á árunum 2003, 2004 og 2005. „Viðfangsefnið er sótt í náttúruna, hina síbreytilegu birtu sem ljær land- inu, himninum, vatninu, fjöllunum og gróðrinum, litbrigði sem við nemum í umhverfinu,“ segir Guðmundur um verk sín. „Skynjun sem grópast í vit- undina verða að minni sem er viðmið í sköpunarferlinu. Myndirnar eru óhlutlægar þar sem hefðbundið mótíf er horfið og eftir standa laréttir lit- borðar sem fljóta frjálst á myndflet- inum og skapa litaskala sem minnir á náttúruupplifun við mismunandi birtuskilyrði. Málverkin eru lagskipt olíumálverk, þar sem undirlitur er málaður í littón sem gefur ákveðinn litblæ. Síðan eru gegnsæir litir mál- aðir þannig að undirlitur skín í gegn.“ Ferlinu lýkur svo ekki fyrr en sýn- ingargestir hafa skynjað myndirnar og lagt sinn dóm á hvernig til hefur tekist. Sýningin verður opin til sunnu- dagsins 25. september og verður opin daglega kl. 14 til 18. Safnahúsið á Húsavík Lárétt birta Grímsey | Það er sannarlega létt yfir kvenfélagskonunum í Baugi á heimskautsbaug. Framundan er ferð á fram- andi slóðir Slóveníu, með sigl- ingu til hinna sögufrægu Fen- eyja. Það er ferðanefnd Baugs sem á veg og vanda af ferð- inni. Þær eru Guðrún Gísla- dóttir, Stella Gunnarsdóttir og Unnur Ingólfsdóttir. Kon- urnar njóta afraksturs þriggja ára söfnunar. Það er 30 manna hópur sem leggur af stað frá Keflavík- urflugvelli, kvenfélagskonur og makar, tilhlökkun í toppi. Heldur verður rólegt um að litast í byggðinni góðu við nyrsta haf. Íbúar verða í um 6–8 húsum af tæplega 30. Hjálp er fengin frá fasta- landinu bæði til að sinna versluninni Grímskjörum og flugvellinum. Að sjálfsögðu liggur öll sjómennska niðri á meðan ferðalangar bregða undir sig betri fætinum og skvetta úr klaufunum við Adríahafið. Baugskonur leggja í hann Ljósmynd/Helga Mattína Alsælar Baugskonur með farmiðana til Slóveníu. Vestmannaeyjar | Lyf og heilsa hafa opnað apótek á Strandvegi 48 í Vestmannaeyjum. Í apótekinu er auk lyfja boðið upp á úrval heilsu-, hjúkrunar- og snyrtivara. Eins og í öðrum apótekum Lyfja og heilsu er í boði heimsending á lyfjum og þeir viðskiptavinir sem taka lyf að staðaldri, eiga kost á tölvustýrðri lyfjaskömmtun. Við- skiptavinir geta auk þess fengið blóðþrýstingsmælingu í apótekinu. Lyf og heilsa í Vestmannaeyjum hefur opið frá 9 til 18 á virkum dögum, frá 10 til 16 á laugardögum og frá 14 til 14:30 á sunnudög- um. Hildur Steingrímsdóttir er lyfsali apóteksins en Hildur hefur starfað sem lyfjafræðingur í tæp 30 ár, þar af sem lyfsali hjá Lyfj- um og heilsu síðastliðin 5 ár. Næstu daga verða ýmis opnunartilboð á lausasölulyfjum, vítam- ínum og snyrtivörum og eru þau kynnt nánar í verslun Lyfja og heilsu í Vestmannaeyjum. Apótekarar Starfsfólk Lyfja og heilsu í Vestmannaeyjum er boðið og búið að aðstoða viðskiptavini verslunarinnar. Lyf & heilsa opna nýtt apótek í Heimaey Vopnafjörður | Kvenfélagið Lindin á Vopnafirði stofnaði árið 1998 menntasjóð til styrktar Vopnfirðingum. Konur, tvítugar og eldri, sem stunda bóklegt nám jafnt í skóla sem á annan hátt, hafa forgang að styrkjum. Veittar hafa verið um 800 þúsund krónur í styrki frá stofnun sjóðsins 1998 og mest af þeim peningum verið borgað beint úr sjóðum Kvenfélagsins, þar sem verið var að búa til höfuðstól fyrir sjóðinn. „Þetta skiptir máli fyrir konurnar og þær hafa þakkað fyrir vegna þess að þær eru ánægðar að vera metnar einhvers“ segir Ágústa Þorkelsdóttir á Vopnafirði. „Þær þurfa t.d. að kaupa sér tölvur og fargjöld vegna námsins. Við höfum verið óskaplega hamingjusamar með menntasjóðinn og hreppurinn hefur stutt okkur þar með 50 þúsundum á ári. Vegna fjölda umsókna í sjóðinn verður haldið áfram að auka höf- uðstólinn jafnt og þétt og stefnt að því að hann verði 2,5 milljónir króna.“ Menntasjóður vex
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.