Morgunblaðið - 17.09.2005, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 35
MENNING
Launavernd
Ert þú að gleyma einhverju mikilvægu?
Ertu búinn að tryggja þér og fjölskyldunni
áframhaldandi laun komi til tekjumissis vegna
fráfalls, sjúkdóma eða starfsloka vegna aldurs?
Skynsemin segir þér hvað er rétt að gera.
Ekki hugsa málið – kláraðu það!
Í ÞESSARI viku kemur út hjá Máli og menn-
ingu Völuspá í nýstárlegri mynd, sérstaklega
ætluð yngstu lesendunum.
Það eru Þórarinn Eldjárn og Kristín Ragna
Gunnarsdóttir sem eiga heiðurinn af bókinni;
Kristín Ragna myndskreytir
kvæðið og Þórarinn enduryrkir
textann á nútímamáli.
Samstarf þeirra Kristínar og
Þórarins átti upphaf sitt í ekki
ósvipuðu verkefni fyrir tíu árum
en þá var gefin út á Norðurlönd-
unum bókin Svört verða sólskin
þar sem saman var safnað mörg-
um helstu goðsögum Skandinavíu
í nýjum þýðingum, þ.á m. Völu-
spá. „Er kom að Völuspá þótti
sjálfsagt að nota frumtextann, en
þó þyrfti að setja skýringar,“ seg-
ir Þórarinn. „Loks var ákveðið að
enduryrkja kvæðið á nútímamáli
frekar en að notast við neð-
anmálsgreinar sem fáir lesa.“
Sú bók var ekki síst ætluð framhalds-
skólanemum sem gætu þá haft fyrir framan sig
frumtexta kvæðisins annars vegar og enduryrk-
ingu Þórarins hins vegar þar sem kvæðinu er
snarað yfir á nútímamál.
„Í þessari nýju útgáfu okkar Kristínar er
gengið skrefinu lengra og frumtextinn ekki hafð-
ur með. Mest munar þó um að Kristín hefur gert
alveg nýja myndskreytingu við allt kvæðið í full-
um litum og mjög skemmtilegri útfærslu. Miðað
er við að verkið henti yngri börnum en ekki er
farið út í styttingu eða samantekt á efni Völuspár
heldur er hvert erindi fyrir sig, að undanskildu
dvergatali, umort.“
Vandasamt verk
Skiljanlega var ekki létt verk fyrir Þórarin að
enduryrkja Völuspá: „Meðalhófið er mjög vand-
ratað – ekki síst þegar í kvæðinu eru ótal staðir
þar sem fræðimenn greinir á um merkingu. Sá
sem tekur sér fyrir hendur að gera svona end-
ursögn hlýtur þá að taka afstöðu. Sem rithöf-
undur, en ekki fræðimaður, þá geri ég það auð-
vitað á endanum út frá mínu brjóstviti og eftir
því hvað hljómar best. Þetta lítur út fyrir að vera
mjög einfalt, sérstaklega þegar
verkinu er lokið, en það eru margar
spurningar sem taka þarf afstöðu
til. Ekki er hægt að draga fram
skýringar eða nota fræðimennsku
til að leysa málin heldur verður
verkið að standa eins og það er.“
Þórarinn heldur upprunalegum
bragarhætti, fornyrðislagi: „Það er
frekar laust og frjálst form með
nokkuð afmörkuðum atkvæðafjölda
og stuðlar í einni línu, stundum
tveir, og höfuðstafur.“ Segist Þór-
arinn kíminn vonandi hafa farið rétt
með formið. „En það er ekkert stór-
mennskubrjálæði á ferð: að halda að
þetta verk komi í stað Völuspár.
Vonin er frekar sú að börn verði kunnug kvæð-
inu í þessu formi og það verði þá til þess að þau
taki frumútgáfunni fagnandi sem gömlum vini
þegar þau hitta hana síðar á ævinni, á síðari stig-
um skólakerfisins.“
Frásögnin studd með myndum
Þórarinn reynir að orða kvæðið þannig að
börn geti skilið hvert erindi fyrir sig og fá þau
stuðning úr myndskreytingu Kristínar Rögnu:
„Meiningin er sú að hafa ekki mikinn texta á
hverri síðu og hægt að ímynda sér að foreldrar
lesi fyrir börnin. Þá gefst með myndunum mikið
af tengingum sem gefa kost á að velta fyrir sér
efninu sem fjallað er um. Myndir Kristínar eru
gríðarlega vel útfærðar og mikil vinna lögð bæði
í þær og útlit bókarinnar sjálfrar. Fegursti safn-
gripur þó ekki væri fyrir annað.“
Völuspá fyrir
litla víkinga
Þórarinn Eldjárn
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
Í LISTASAFNI Íslands stendur nú yfir sýningin Íslensk myndlist 1945–1960: Frá abstrakt til
raunsæis.
Sú nýbreytni er á sýningunni að sýningargestir geta hringt í listaverkin, ef svo mætti að
orði komast. Þar er að þakka verkefninu Halló listaverk! en hægt er að nota farsíma til að
sækja upplýsingar um 20 listaverk á sýningunni með því að hringja í símanúmerið sem hvert
verk hefur. Gestir sýningarinnar geta loks sagt frá reynslu sinni með því að senda sms-
skilaboð eða tölvupóst sem síðan má lesa á heimasíðu Listasafnsins, www.listasafn.is. Einnig
er hægt að sækja myndir af listaverkunum 20 og gerast áskrifandi að sms-tilkynningum um
safnviðburði.
Upplýsingarnar um verkin eru bæði á íslensku og ensku en um er að ræða samnorrænt til-
raunaverkefni, Nordic Handscape, sem helgað er miðlun menningararfs með notkun far-
síma. Verkefnið er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni og hófst árið 2004. Auk Listasafns
Íslands taka þátt í verkefninu Statens historiska museer í Svíþjóð, ABM utviklingen í Noregi,
Nationalmuseet í Danmörku og Museiverket í Finnlandi.
Sýningin í Listasafni Íslands stendur til 30. október og er opið alla daga nema mánudaga
frá kl. 11–17. Aðgangseyrir er 400 kr. en ókeypis er í safnið á miðvikudögum.
Morgunblaðið/Júlíus
Hægt að hringja í listaverkin