Morgunblaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 37
sjúklinga með hjartabilun,“ segir Vil-
borg.
Vilborg er ein af þremur íslensk-
um konum sem hafa valið hjartalyf-
lækningar sem sérgrein en getur
ekki svarað því hvers vegna svo fáar
konur velja sér þennan starfsvett-
vang. „Karlkyns sjúklingar hafa
vissulega hlotið meiri athygli hjarta-
lækna eins og nýjar rannsóknir
benda einmitt til. Ég hef aðallega
verið að skoða áhættuþætti karla
hingað til, áður í rannsóknarþýði
Hjartaverndar á Íslandi og núna í
doktorsverkefninu. Áhugi á
áhættuþáttum kvenna er ekki
síðri í rannsóknarhópnum og við
höfum nýlega lokið viðamikilli
rannsókn á konum, segir Vil-
borg. Hún segir að konur fái
einkenni um hjarta- og æða-
sjúkdóma almennt síðar á ævinni
en karlar, en þær sem greinist eftir
tíðahvörf hafi jafnan fleiri áhættu-
þætti, t.d. sykursýki, háan blóðþrýst-
ing og háa blóðfitu. Tíðni hjarta- og
æðasjúkdóma eftir tíðahvörf hjá kon-
um sé svipuð eða jafnvel hærri en hjá
körlum. Vilborg bendir á að almennt
hafi orðið bylting í greiningu og með-
ferð sjúklinga með hjarta- og æða-
sjúkdóma á síðustu áratugum þannig
að fleiri lifa af hjartaáfallið en geta
þó hlotið skaða í hjartavöðvanum. Af
þeim sökum fer hópur fólks með
hjartabilun stækkandi og hjarta-
sjúkdómar eru nú eitt stærsta heil-
brigðisvandamálið sem blasir við
heiminum. Sahlgrenska sjúkrahúsið
í Gautaborg stendur framarlega í
meðferð hjartasjúklinga, m.a. með
hjartaskiptum sem nokkrir Íslend-
ingar hafa gengið í gegnum á sjúkra-
húsinu. Sjálf hefur Vilborg verið í
sérfræðinámi og búið í Gautaborg í
fimm ár ásamt fjölskyldu sinni. Hún
starfar nú sem sérfræðingur í hjarta-
bilunar- og hjartaskiptateymi spít-
alans. „Hérna öðlast ég mjög góða
þekkingu bæði í vísindarannsóknum
og meðferð sjúklinga með hjartabil-
un, meðal annars fyrir og eftir
hjartaskipti,“ segir Vilborg að lok-
um.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 37
DAGLEGT LÍF
Súpersól
Salou
23. september
frá kr. 24.995
Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • sími 591 9000
Akureyri • sími 461 1099 • Hafnarfirði • sími 510 9500
www.terranova.is
Terra Nova býður síðustu sætin til Salou á ótrúlegum kjörum. Salou er fallegur bær fyrir
sunnan Barcelona með frábærar strendur og fjölbreytta afþreyingu. Þú bókar sæti og
4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
- SPENNANDI VALKOSTUR
Kr. 24.995
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn.
Súpersól tilboð í 5 daga.
Síðustu sætin
Kr. 29.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna.
Súpersól tilboð í 5 daga.
ÍSvíþjóð hafa nú spunnist tals-verðar umræður um hvort rétt-lætanlegt sé að sænskir grunn-
skólar geti krafist þess að foreldrar
leggi til allt að sem samsvarar rúm-
lega fjögur þúsund íslenskum krónum
á barn á misseri til að standa straum
af kostnaði við ferðalög og heimsóknir
bekkjarins á menningarstofnanir.
Í Göteborgs Posten er greint frá
því að hjá nokkrum sveitarfélögum sé
það nú til alvarlegrar skoðunar að
banna slíkt alfarið eða setja hámark á
þá upphæð sem hægt er að krefjast af
foreldrum. Grunnskólanám eigi að
vera ókeypis og ekki eigi að mismuna
börnum eftir fjárhag foreldra. Þess
má geta að nemendur í sænskum
grunnskólum fá yfirleitt allar stíla-
bækur og skriffæri í skólanum sér að
kostnaðarlausu.
Í sveitarfélaginu Partille, sem er
nágrannasveitarfélag Gautaborgar,
hefur nú verið lagt blátt bann við því
að rukka foreldra vegna ferðalaga eða
uppákoma hjá bekknum. Í Kortedala,
einum bæjarhluta Gautaborgar, hefur
verið sett hámarksupphæð sem hægt
er að fara fram á frá foreldrum á önn;
50 sænskar krónur á nemanda, þ.e.
um 410 íslenskar krónur. „Margir
íbúar hverfisins hafa ekki svo mikið fé
á milli handanna og það getur verið
erfitt að segja frá því að maður hafi
ekki efni á að leggja fram peninga,“
segir verkefnisstjóri í Kortedala í GP.
„Í þessu sveitarfélagi eru margir sem
hafa ráð á að borga fyrir skólaferða-
lög. En þeir hafa ekki tíma til að koma
með eða skipuleggja basar,“ segir
skólanefndarmaður í Partille. Í GP
kemur fram að ákvörðun sveitarfé-
lagsins um bann við að rukka foreldra
hafi í för með sér að auknar kröfur
verði gerðar til starfsfólks skólanna
um að finna upp á einhverju sem hægt
er að gera með nemendum án þess að
kostnaður hljótist af, en foreldrarnir
þurfi líka að leggja sitt af mörkum.
Skólastjóri í Kortedala segir að for-
eldrar, sem gjarnan vilja borga fyrir
að börnin þeirra fari með skólanum í
leikhús eða ferðalög, hafi lýst yfir
óánægju með ákvörðunina. Forsvars-
menn menningarstofnana lýsa einnig
áhyggjum af þeim afleiðingum rukk-
unarbanns að grunnskólanemendur
missi t.d. af heimsóknum í leikhús og
söfn.
Í sænskum grunnskólalögum segir
að grunnskólanám skuli vera nem-
endum að kostnaðarlausu en á því geti
þó verið sú undantekning að nem-
endur þurfi að greiða óverulega upp-
hæð fyrir einstaka uppákomur. Von
er á nýjum grunnskólalögum þar sem
lagt er til að skólar megi alls ekki
rukka foreldra.
Morgunblaðið/Þorkell
Bannað að rukka for-
eldra fyrir skólaferðalög
SVÍÞJÓÐ
Barnafólk er ekki vinsælt starfs-
fólk hjá breskum vinnuveit-
endum að því er fram kemur í
niðurstöðum breskrar könnunar
á meðal 420 fyrirtækja og m.a.
er greint frá á vef Aftenposten.
Hlutastarf eftir fæðingarorlof
Vinnuveitendur nýta æ meiri
tíma í að skipuleggja fæðing-
arorlof starfsmanna sinna og
hlutfall þeirra sem þykir það og
fleira fjölskyldutengt neikvætt
hefur aukist úr 11 í 26% á einu
ári.
Foreldrar ungra barna eiga
rétt á hlutastarfi eftir fæðing-
arorlof samkvæmt breskum lög-
um en nú hafa samtök vinnuveit-
enda varað við því að réttindin
nái einnig til foreldra eldri
barna.
Verkalýðsleiðtoginn Brendan
Barber telur lögin mikilvæg rétt-
indi og gagnrýnir vinnuveitendur
fyrir fornfáleg viðhorf. Hann tel-
ur að þeir ættu fremur að líta á
lögin sem möguleika til að halda
góðum starfskröftum og hvetja
þá til dáða.
Barnafólk ekki
vinsælt starfsfólk
KÖNNUN | Bretland