Morgunblaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 17.09.2005, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. INNANLANDSFLUGIÐ TIL KEFLAVÍKURFLUGVALLAR Smátt og smátt hefur orðið tilvíðtæk málefnaleg samstaðaum að Reykjavíkurflugvöll- ur eigi að hverfa og það landrými, sem hefur farið undir hann, verði tekið til annarra nota. Þetta er í samræmi við niðurstöðu meiri- hluta þeirra, sem greiddu atkvæði fyrir nokkrum árum í kosningu meðal Reykvíkinga, sem borgar- stjórnin efndi til fyrir nokkrum árum. Þar með er miklum áfanga náð í umræðum um framtíðar- skipulag höfuðborgarinnar og ná- grannasveita. Eftir eru umræður um það, hvort flytja eigi innanlandsflug til Keflavíkurflugvallar eða byggja nýjan flugvöll nær höfuðborginni, sem mundi þjóna innanlandsflugi. Landsbyggðarfólk hefur á all- mörgum undanförnum árum lagzt á þá sveif, að byggja eigi nýjan flugvöll nær höfuðborginni en Keflavíkurflugvöllur er. Hefur þeirri skoðun verið lýst, að mikið óhagræði væri í því að hafa innan- landsflugvöll svo fjarri miðju höf- uðborgarsvæðisins, sem Keflavík- urflugvöllur er. Miklar og snöggar breytingar í veðri valdi því, að stundum tefjist flug og stundum sé tekin snögg ákvörðun um að fljúga og af þeim sökum feli staðsetning innanlandsflugs á Keflavíkurflugvelli í sér mikið óhagræði fyrir íbúa landsbyggð- arinnar. Þá sé ljóst að vegalengd- in á milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkursvæðisins lengi mjög þann tíma, sem það taki lands- byggðarfólk að komast til höfuð- borgarinnar. Margt hefur breytzt á þeim tíma, sem þessar umræður hafa staðið. Höfuðborgarsvæðið hefur þanizt út. Það getur tekið jafn langan tíma að komast úr vest- urbæ Reykjavíkur eða af Sel- tjarnarnesi til Kjalarneshluta höf- uðborgarinnar eins og það tekur að aka frá Hafnarfirði til Kefla- víkurflugvallar svo að dæmi sé tekið. Þegar farið er til Keflavík- urflugvallar er aðal vandinn sá að komast út úr þéttbýlinu. Um leið og komið er út úr Hafnarfirði tek- ur 15–20 mínútur að aka til Kefla- víkur. Umræður um vegalengdir á höfuðborgarsvæðinu og þann tíma, sem tekur að ferðast um það, hafa öðlast alveg nýja vídd. Reykjanesbrautin er að gjör- breytast. Nú eru komnar tvær ak- reinar á hana að hluta til. Allir sem þar fara um finna hvað í því felst mikil breyting og mikið ör- yggi. Verði heimilað að auka öku- hraðann í 110 km styttist sá tími enn, sem þessi ferð tekur. Hins vegar er æskilegt að verði sú ákvörðun tekin að innanlands- flug skuli fara um Keflavíkurflug- völl verði jafnframt teknar ákvarðanir um að greiða fólki leið út úr mesta þéttbýlinu á höfuð- borgarsvæðinu eða inn í það, ef svo ber undir. Það er meiri ástæða til að verja umtalsverðum fjármunum til þess en að byggja nýjan flugvöll fyrir innanlands- flug. Morgunblaðið er þeirrar skoð- unar, að tímabært sé að taka af skarið með það að Keflavíkurflug- völlur eigi í framtíðinni að þjóna innanlandsflugi og hefja undir- búning að því, að sú verði raunin. Að þessu leyti er blaðið sammála því, sem fram kom hjá Sturlu Böðvarssyni, samgönguráðherra, á fundi í Reykjanesbæ í fyrra- kvöld, sem Hjálmar Árnason, for- maður þingflokks Framsóknar- flokksins, efndi til. Það kostar mikla fjármuni að byggja nýjan flugvöll fyrir innan- landsflug nær höfuðborginni. Þeim fjármunum væri betur borg- ið til frekari samgöngubóta á landsbyggðinni og á höfuðborg- arsvæðinu. ÍBÚAÞING OG OPIÐ LÝÐRÆÐI Íbúaþing í einstökum sveitar-félögum eru að breiðast út. Í Morgunblaðinu í gær var skýrt frá umræðum á íbúaþingi í Reykja- nesbæ og á undanförnum mánuð- um og misserum hafa slík þing verið haldin í sveitarfélögum víða um land. Íbúaþing eru áhrifarík aðferð til þess að auka tengsl á milli íbúanna og hinna kjörnu fulltrúa og veita íbúum viðkomandi sveitarfélags tækifæri til að hafa áhrif á stefnu- mótun í einstökum málaflokkum í sinni heimabyggð. Íbúaþingin hafa tekizt mjög vel og full ástæða er til að ætla að þau hafi fest sig í sessi og verði reglu- legur þáttur í starfsemi sveitarfé- laga. En jafnframt er ástæða til fyrir sveitarfélögin að stíga nýtt skref í átt til opnara lýðræðis. Það er kominn tími til að þau noti at- kvæðagreiðslu meðal íbúa sinna um einstök mál, sérstaklega þegar um er að ræða grundvallarmál, sem reglulegan þátt í stjórnun sveitarfélags. Reykjavíkurborg efndi fyrir nokkrum árum til atkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Seltjarnarneskaupstaður notaði slíka atkvæðagreiðslu til að gera út um erfiðar deilur um skipulags- mál í bæjarfélaginu. Í framhaldi af íbúaþingunum er tilefni til að sveitarfélögin taki al- mennar atkvæðagreiðslur upp sem reglulegan þátt í starfsemi sinni. Það á enginn að vera hræddur við opið lýðræði. H eildarlaun félagsmanna Verzl- unarmannafélags Reykjavíkur hafa hækkað um tíu prósent frá því í fyrra samkvæmt nýrri launakönnun félagsins. Grunnlaunin hækkuðu þó aðeins meira, eða um 11% á milli ára. Félagsmenn VR hafa að meðaltali 300 þúsund kr. í heildarlaun á mánuði en í fyrra voru launin að meðaltali 273 þús- und á mánuði. Hæstu heildarlaunin eru greidd hjá fjarskipta- og tölvufyrirtækjum en lægstu heild- arlaunin greiða verslanir með lyf, hjúkrunarvörur og snyrtivörur. Vinnuvikan er óbreytt milli ára, þ.e. hún er 45 klukkustundir að meðaltali. Launakönnun VR var kynnt á blaðamannafundi í gær. Samkvæmt könnuninni eru karlar með rúm- lega 23% hærri heildarlaun en konur. Kynbundinn launamunur er 14%, en það er sá munur sem er á launum kynjanna þegar búið er að taka tillit til vinnutíma, aldurs, starfsaldurs, stéttar og mennt- unar. Til samanburðar var kynbundinn launamunur 15% á síðasta ári, 16% árið 2001 og 18% árið 2000. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, sagði á fund- inum í gær að launamunur kynjanna, hvort sem lit- ið væri til heildarlauna eða kynbundins launamun- ar, hefði því sem næst staðið í stað síðustu árin. Það væri áhyggjuefni. Karlar fengju að meðaltali 337 þúsund krónur í heildarlaun á mánuði en konur um 274 þúsund krónur. Gunnar Páll sagði að þótt mikill árangur hefði náðst frá árinu 1960, þegar launamunur kynjanna hefði verið um 50%, væri sá munur sem enn væri til staðar óþolandi óréttlæti. Hann tók dæmi og sagði: „Hvað myndi fólk segja ef það kostaði t.d. 14% meira fyrir konur að fara í sund, eða ef það væru greiddar 14% lægri barnabætur með stúlkubörn- um? Ef staðan væri þannig myndi heyrast hljóð úr horni.“ Gunnar Páll sagði að vegna launamunarins og þess að þrjátíu ár væru liðin frá kvennafrídeginum hefði stjórn VR ákveðið að fara í auglýsingaherferð til að vinna gegn launamun kynjanna. Herferðin ber yfirskriftina: „Láttu útlitið ekki blekkja þig.“ Fyrirsæturnar í herferðinni eru: Gísli Marteinn Baldursson, stjórnmála- og sjónvarpsmaður, Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylking- arinnar, Þorgerður K. Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra og Egill Helgason þáttastjórnandi. Andliti þeirra hefur verið breytt í hitt kynið, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Heildarlaun félagsmanna VR hækka um tíu p Karlar eru með rúm hærri heildarlaun en VR hrindir af stað átaki til að útrýma launamun kyn Gísli Marteinn Baldursson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Þorgerður K. Gunnarsdóttir eru fyrirsætur Eftir Örnu Schram arna@mbl.is     +&(:0-(0,/ 5/604,/:&// (0,/03,/,- A! "0&!  !(6 B %. 0 "'G NNN E E #E "E #E E "E E E E KARLAR vinna nær fimm tíma lengri vinnu- viku en konur, samkvæmt launakönnun Verzlunarmannafélags Reykjavíkur. Þeir vinna að meðaltali 47,6 klukkustundir á viku en konur 42,7 klukkustundir á viku. Með- alvinnuvikan er 45 klukkustundir. Af starfs- stéttum vinna stjórnendur og sérfræðingar lengst, eða 47 klukkustundir að meðaltali á viku. Í könnuninni kemur fram að fleiri vinna fjarvinnu í ár en í fyrra eða 28% samanborið við 23%. Þá kemur fram að þeir sem hafa far- ið í starfsmannaviðtal eru með 4% hærri heildarlaun en þeir sem ekki hafa farið í slíkt viðtal. Könnunin var gerð í janúar og mars á þessu ári. Hún náði til alls 16.638 fé- lagsmanna. Svör bárust frá 8.390 fé- lagsmönnum og er það 50,4% svarhlutfall. Þetta er í sjöunda sinn sem VR stendur fyrir launakönnun sem þessari. Þátttakan í henni hefur nær tvöfaldast frá árinu 2003. Karlar vinna lengur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.