Morgunblaðið - 17.09.2005, Side 42
42 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
VEGNA greinarskrifa Sigurjóns
Þórðarsonar alþingismanns í
Morgunblaðinu síðastliðinn laug-
ardag sé ég ástæðu til
að setja nokkur orð á
blað þar sem verulega
hallar réttu máli í
skrifum þingmanns-
ins, einkum í minn
garð.
Þannig er að vest-
firskir sveitarstjórn-
armenn komu saman
á Fjórðungsþingi
Vestfirðinga fyrstu
helgina í september.
Þingin eru fyrst og
síðast samstarfsvett-
vangur sveitarstjórn-
armanna, en jafnan er ýmsum
gestum boðið s.s. alþingismönnum
kjördæmisins og forstöðumönnum
stofnana á fjórðungsvísu. Einnig
eru fyrirlesarar fengnir til liðs við
þingið í samræmi við efni þess
hverju sinni. Mikilvægt er að allir
þeir sem vinna að framgangi Vest-
fjarða ráði ráðum sínum reglulega
og hafa Fjórðungsþing lengst af
reynst góður vettvangur til þess.
Ólundarleg skrif
Þetta árið kvað hins vegar við
nýjan tón í umfjöllun um þingið og
birtist hann á heimasíðu alþing-
ismannsins á meðan Fjórðungs-
þing stóð enn yfir. Vöktu þessi
skrif athygli mína þar sem þau
birtust einnig á fréttavef Bæjarins
besta á Ísafirði. Í þessum skrifum
sá þingmaðurinn ástæðu til að
kveinka sér undan umræðum og
tillöguflutningi sem fram fóru
fyrri dag þingsins. Uppistaðan í
heimasíðuskrifunum birtist síðan í
Morgunblaðinu um liðna helgi og
voru það álíka ólundarleg skrif og
hin fyrri.
Fjórðungsþing
ekki Alþingi
Í stað þess að
greina á upp-
byggilegan hátt frá
því sem var meginefni
þingsins, og vekja
þannig jákvæða at-
hygli á störfum Fjórð-
ungsþings, fór þing-
maðurinn mörgum
orðum um málflutning
minn í umræðunum.
Þar gagnrýndi ég
þingmenn allra flokka fyrir að
nota Fjórðungsþing sem vettvang
fyrir langar pólitískar orðræður.
Það er nefnilega þannig að und-
angengin ár hefur það færst í vöxt
á Fjórðungsþingi að þingmenn fari
mikinn í ræðuhöldum og hefur
stundum vart mátt á milli sjá
hvort menn eru staddir á hinu háa
Alþingi eða á þessum samráðsvett-
vangi sveitarstjórnarmanna. Um-
ræðan hefur í reynd snúist upp í
karp milli ríkisstjórnarliða og
stjórnarandstöðu, mörgum sveit-
arstjórnarmönnum til armæðu,
enda hefur þeim þá gefist tak-
markaðri tími til að láta sín sjón-
armið í ljósi. Þessi þróun mála
varð kveikjan að tillögu minni um
að fela stjórn Fjórðungssambands-
ins að endurskoða fundarsköp
þingsins. Er skemmst frá því að
segja að sú tillaga var samþykkt
með miklum meirihluta atkvæða.
Virðingarleysi
við samkomuna
Í Morgunblaðsgrein sinni ber
þingmaðurinn m.a. upp á mig að
ég hafi haldið því fram að gagn-
rýnin umræða um byggðamál ætti
ekki heima á Fjórðungsþingi.
Slíkri fullyrðingu vísa ég til föð-
urhúsanna. Öll verkefni sveit-
arstjórnarstigsins eru byggðamál,
og því til umræðu á Fjórðungs-
þingi, en kjarninn í mínu máli var
sá að ef sveitarstjórnarmennirnir
kæmust að fyrir orðræðum þing-
manna, þá væru þeir fullfærir um
að setja sjálfir fram gagnrýni á
aðgerðir stjórnvalda í byggða-
málum. Ég lét einnig þá skoðun
mína í ljósi að mér fyndist karp
þingmannanna ekki sérstaklega til
þess fallið að vekja með manni von
um að samstaða næðist í þeirra
hópi um bestu leiðirnar til að ná
árangri til framtíðar fyrir Vest-
firði. Þess í stað væri helst sem
þeir nýttu þennan vettvang sveit-
arstjórnarmanna til æfinga í ræðu-
snilld fyrir komandi haustþing og
það þætti mér virðingarleysi við
samkomuna.
Það er vissulega virðingar- og
þakkarvert þegar þingmenn kjör-
dæmisins, og aðrir gestir, sjá sér
fært að sitja Fjórðungsþing en því
fylgir einnig sú ábyrgð að stuðla
að uppbyggilegri umræðu um mál-
efni fjórðungsins – umræðu sem
skilar okkur fram á veginn.
Hafa skal það sem
sannara reynist
Birna Lárusdóttir svarar
grein Sigurjóns Þórðarsonar ’Í Morgunblaðsgreinsinni ber þingmaðurinn
m.a. upp á mig að ég
hafi haldið því fram að
gagnrýnin umræða um
byggðamál ætti ekki
heima á Fjórðungs-
þingi. Slíkri fullyrðingu
vísa ég til föðurhús-
anna.‘
Birna Lárusdóttir
Höfundur er bæjarfulltrúi
í Ísafjarðarbæ.
STREITA er algengasta dán-
arorsökin á Vesturlöndum, sam-
kvæmt niðurstöðu fjölda rann-
sókna þar sem hún er meginorsök
hjartaáfalls og stuðlar
að mörgum öðrum
sjúkdómum, þar á
meðal ofnotkun eitur-
lyfja. Þreyta og
streita eru sagðar
vera algengustu
vandamálin sem hrjá
okkar heimshluta.
Önnur vandamál eru
oft afleiðing þeirra;
eins og þunglyndi,
kvíði, offita, svefnleysi
og einbeiting-
arskortur. Algengasta
leiðin til að takast á
við streitu er að meðhöndla ein-
kennin með því að taka inn róandi
lyf, drekka áfengi, reykja, borða of
mikið eða horfa á sjónvarpið. Í
framhaldinu þurfum við að fá örv-
un, eins og kaffi eða sykur, til að
bæta upp orkumissinn eða til að
vekja okkur upp af dvalanum.
Þetta er eins og að keyra með ann-
an fótinn á bensíninu og hinn á
bremsunni, ef við líkjum vélinni við
hjartað og nýrnahetturnar.
Við erum meira en
hugur og líkami
Önnur leið til að höndla streitu
er að leita til sálfræðinga og ráð-
gjafa, stundum lærir fólk að slaka á
og breyta um lífsstíl. Þess háttar
leiðir eiga vissulega rétt á sér og
geta fleytt okkur langt en það sem
enn vantar upp á er að líta á mann-
eskjuna sem heild, finna innra með
okkur hvað liggur undir streitu-
viðbrögðum og taka með í reikn-
inginn að við erum meira en líkami
og hugur.
Ef við ætlum að læra að lifa með
öllu því áreiti sem nútímasamfélag
innifelur og halda viti
og heilsu er mikilvægt
að læra að takast á við
streitu. Við höfum til-
hneigingu til að loka
augunum fyrir því sem
við finnum og flýja
veruleikann. Sam-
félagið býður okkur
endalausa möguleika á
að flýja okkur sjálf.
Auk þess höfum við
tilhneigingu til að
nálgast heiminn vit-
rænt, með huganum,
en meirihlutinn af
okkur sjálfum verður eftir fyrir ut-
an. Við þurfum að innlima andlega
þáttinn í okkur sjálfum og upplifa
heiminn meira innan frá í stað þess
að loka okkur inni í huganum. Þeg-
ar við viðurkennum og upplifum
óendanleikann innra með okkur
sjálfum, við getum kallað það guð-
sneistann eða uppsprettuna innra
með okkur, þá höfum við lykilinn
að innra friði og hamingju.
Kundalini-jóga
Kundalini-jóga er aldagömul teg-
und af jóga og býður upp á mjög
virkar leiðir til að takast á við
streitu og álag nútímans. Það er
hannað fyrir venjulegt fjöl-
skyldufólk sem lifir erilsömu lífi og
hefur ekki of mikinn tíma aflögu né
eirð í sér til að setjast niður mitt í
öllu álaginu og slaka á eða hugleiða
tilgang lífsins. Mikið af því jóga
sem er í boði er upphaflega sniðið
að þörfum þeirra sem völdu að
helga líf sitt andlegri iðkun, æfing-
ar sem hjálpuðu þeim að sitja leng-
ur í hugleiðslu. Kundalini-jóga er
byggt upp á æfingum sem hjálpa
okkur markvisst að örva inn-
kirtlakerfið, lyfta orkunni okkar
svo við náum að finna þessa innri
gleði sem er okkur eiginleg og að
takast á við líf okkar af æðruleysi
og innri styrk. Það er bæði byggt
upp á líkamlegum æfingum sem
koma okkur í gott líkamlegt form
og öndunaræfingum sem hreinsa,
auka orkuflæðið og tengja okkur
betur við okkur sjálf. Kundalini-
hugleiðsla er aðgengileg fyrir alla,
líka þá sem eru ekki vanir að hug-
leiða. Og það byggist á æfingum
sem koma jafnvægi á heilahvelin og
á orkustöðvarnar.
„Streita rænir þér frá sjálfum
þér,“ segir Yogi Bhajan sem færði
Vesturlandabúum kundalini-jóga.
Fólk sem lifir undir miklu álagi
þarf vissulega að þjálfa líkamann
og halda honum í góðu formi, það
getur til dæmis fyrirbyggt vöðva-
bólgu og byggt upp almennt út-
hald. En það er ekki nóg að koma
sér í gott form ef það bitnar á
heildinni. Taugakerfið, nýrnahett-
urnar og ónæmiskerfið eru þegar
undir álagi ef við búum við streitu.
Við þurfum líka að hugsa um að
hlaða batteríin og næra andann. Ef
við hugsum um heildina þá skilar
það sér í auknum afköstum og betri
líðan.
Algerlega samstillt
slökun læknar líkamann
Kundalini-jóga kennir okkur
leiðir til að vekja kraftinn innra
með okkur og auka meðvitund okk-
ar um þá ávana sem við höfum tam-
ið okkur. Hver tími byggist á seríu
af æfingum, sem kallast kría og
hafa ákveðið markmið eins og að
koma jafnvægi á lifrina eða melt-
inguna, bæta svefninn eða byggja
upp styrk. Hver kría hefur líka
áhrif á heildina og þess vegna erum
við endurnærð og í jafnvægi á eftir.
Kundalini er vitund okkar. Hún
liggur í dvala í öllum manneskjum
og undir ákveðnum kring-
umstæðum vaknar hún. Þegar það
gerist vöknum við og þekkjum okk-
ar sanna sjálf. Það er reynsla sem
ekki er hægt að lýsa, og hver og
einn upplifir hana á sinn hátt.
Yogi Bhajan sem áður var nefnd-
ur hefur líka sagt: „Algerlega sam-
stillt slökun læknar líkamann. Til
þess að svo megi verða þarf sam-
vinnu milli allra þriggja þáttanna í
okkur sjálfum; líkama, hugar og
sálar.“ Okkur er ekki kennt það í
skólum. Við verðum sjálf að sækja
okkur þá þekkingu. Andinn er
sterkari en líkaminn, ef við ræktum
hann.
Streita rænir þér frá sjálfum þér
Guðrún Arnalds fjallar um
streitulosun ’Kundalini-jóga er alda-gömul tegund af jóga og
býður upp á mjög virkar
leiðir til að takast á við
streitu og álag.‘
Guðrún Arnalds
Höfundur er hómópati, kundalini-
jógakennari og leiðbeinandi í
líföndun.
NÚ ER orðið ljóst hvernig ráð-
stafa eigi andvirði Símans. Flestir
sem tjáð sig hafa um málið eru sam-
mála um ágæti þeirra verka sem á að
vinna. Eitt af þeim brýnu verkum
sem ákveðið hefur verið að ráðast í er
lagning Sundabrautar. Fyrsta
áfanga á að leggja fyrir
hluta þessara peninga
en seinni áfangann á að
fjármagna með
veggjaldi líkt og gert
var með Hvalfjarð-
argöngin. Lagning
Sundabrautar er mikið
þjóðþrifamál og á eftir
að nýtast bæði höf-
uðborgarbúum og öðr-
um landsmönnum vel.
Hagkvæmni slíkrar
framkvæmdar þarf
vart að fjölyrða um.
Eitt atriði hefur þó
stungið í augun en það
er að seinni hluta fram-
kvæmdarinnar skuli
vera ráðgert að fjár-
magna með veggjaldi.
Er með ólíkindum að
slík tillaga komi fram
og þá sérstaklega þeg-
ar litið er til þess að
gjaldtaka er á sama
vegi skammt frá eða um Hvalfjarð-
argöngin. Að reikna með að þurfa að
greiða á tveim stöðum til að komast í
eða úr miðborginni vestanverða er
með öllu fráleitt. Þeir íbúar Reykja-
víkur sem búa á Kjalarnesi geta ekki
ekið milli borgarhverfa án þess að
greiða sérstaklega fyrir. Akurnes-
ingar og aðrir sem aka oft um Hval-
fjarðargöngin á leið sinni inn eða út
úr höfuðborginni verða komnir með
tvo veglykla í framrúðuna. Þetta
gengur einfaldlega ekki upp. Sú
grundvallarhugsun verður að vera
við lýði að vegir landsins verði til af-
nota fyrir alla án sérstakra vegtolla
vegna umferðar. Við erum að greiða
til viðhalds og uppbyggingar vega
með sérstöku gjaldi sem lagt er á
eldsneyti, með vegtolli eru sumir not-
endur farnir að greiða tvöfalt. Leita
verður annarra leiða til að fjármagna
þessa veglagningu sem sannarlega
verður eðlilegur hluti af þjóð-
vegakerfi landsins, eign okkar allra
og til afnota fyrir alla landsmenn
óháð notkun án sérstakrar gjaldtöku.
Töluverð andstaða er við gjaldtöku
í Hvalfjarðargöngin og hefur verið
bent á að þessi gjaldtaka standi fyr-
irtækjum norðan Hvalfjarðar fyrir
þrifum. Ferðaþjónusta
líður sérstaklega þar er
höfuðborgarbúar veigra
sér við að greiða tvö
þúsund krónur auka-
lega þegar þeir fara í
sinn sunnudagsbíltúr.
Þetta gjald þarf ekki að
greiða þegar ekið er eft-
ir öðrum leiðum út úr
borginni, t.d. austur fyr-
ir fjall eða út á suð-
urnes.
Fyrir mig að bjóða
venslafólki í kaffi, það
býr flest allt í höf-
uðborginni en ég bý á
Akranesi, fylgir að allir
verða að greiða tvöþús-
und krónur í gangagjöld
fyrir að koma. Að sjálf-
sögðu dregur þetta úr
því að fólk skjótist upp á
Skaga í kaffi eða heim-
sókn. Ef rukkað væri
einnig á nýrri Sunda-
braut kostaði kannski fjögur þúsund
krónur fyrir mitt fólk að kíkja í kaffi
til mín! Það er um 40 mínútna akstur
upp á Akranes og verður með nýrri
Sundabraut væntanlega innan við 25
mínútur. Skottúr sem stoppar fáa í
að skjótast. Fleiri þúsund króna
kostnaður stoppar þó marga af og
fækkar ferðum eins og allir hljóta að
sjá og skilja.
Fyrirhuguð lagning Sundabrautar
er mjög af hinu góða og styttir leiðina
út úr borginni, gerir hana opnari og
aðgengilegri. Vegatollur mun aftur á
móti skemma þennan ávinning. Skor-
að er á ráðamenn að finna aðra leið til
að fjármagna seinnihluta Sunda-
brautar.
Sundabraut
Björn Elísson fjallar um veg-
tolla á þjóðvegum landsins
Björn Elíson
’Skorað er áráðamenn að
finna aðra leið
til að fjármagna
seinnihluta
Sundabrautar.‘
Höfundur er markaðs- og atvinnu-
málafulltrúi Akraneskaupstaðar.
EcoGreen Multi
FRÁ
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Nr. 1 í Ameríku
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa - Gulli betri
Orkubomba og hreinsun
Vítamín, steinefni
og jurtir
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
Dalvegi 28 – Kópavogi
Sími 515 8700
BLIKKÁS –