Morgunblaðið - 17.09.2005, Síða 44

Morgunblaðið - 17.09.2005, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Sækjum styrk í íslenskt náttúruafl! „Ég hef teki› Angelicu jurtaveig í flrjú ár. Mér finnst Angelica gefa mér orku, sem ég flarf á a› halda bæ›i í vinnu og lang- hlaupum. Auk fless er hún kví›astillandi og ég fæ ég sjaldan kvef.“ Fjölbreytt virkni í einum skammti. Bryndís Magnúsdóttir Reykjavík Aukin orka og vellí›an, sjaldnar kvef Fæst í lyfja- og heilsuvöruverslunum.www.sagamedica.is INNAN Krabbameinsfélagsins eru nú starfandi sjö stuðningshópar á höf- uðborgarsvæðinu sem halda uppi öflugu fræðslu- og fé- lagsstarfi. Félagar stuðningshópanna hafa flestir kynnst krabba- meini af eigin raun og er stuðningurinn sem þeir veita í formi jafn- ingjafræðslu. Margir af sjálfboðaliðum stuðningshópanna telja sig ekki hafa fengið nægan stuðning og fræðslu í sínum veikindum og vilja miðla þeim sem eru veikir af reynslu sinni og styðja þá í baráttunni við sjúkdóminn. Sjálfboðaliðar stuðningshópanna heimsækja sjúklinga á spítala eða heim sé þess óskað. Almennt er talið mikið áfall að greinast með krabbamein og væri í raun ástæða til að veita fólki sem fær þessa sjúkdómsgreiningu áfalla- hjálp sem er fyrirbyggjandi íhlutun sem veitt er þeim sem orðið hafa fyr- ir hættu sem ógnar lífi eða limum. Slíkri reynslu fylgir oft mikill ótti og hjálparleysi sem setið getur eftir í huga fólks og valdið alvarlegri streitu, þunglyndi eða jafnvel ofsa- kvíða. Ástæðan fyrir því að talið er mikilvægt að veita fólki áfallahjálp er að reyna að fyr- irbyggja að eðlileg streituviðbrögð heil- brigðs fólks við alvar- legum atburðum þróist yfir í sjúkdóms- einkenni. Því mætti telja eðlilegt að fólk sem greinist með jafn alvarlegan sjúkdóm og krabbamein fái áfalla- hjálp samhliða lík- amlegri lækn- ismeðferð. Þannig getur jafningjafræðsla og annar félagslegur stuðningur frá þeim sem gengið hafa í gegnum líka lífsreynslu haft mikið að segja í bataferli sjúklinga. Þar má sem dæmi nefna tilfinningalegan stuðn- ing sem felur í sér samúð, um- hyggju, huggun og samkennd. Það dregur úr áfallinu sem greining krabbameinsins veldur að tala um líðan sína. Einnig eru upplýsingar og leiðbeiningar mjög mikilvægar og flýta fyrir bata. Komið hefur í ljós að ótti sjúklings við krabbameinið minnkar þegar hann fær meiri upp- lýsingar um sjúkdóminn og hittir annað fólk með líka reynslu. Það veitir einnig mikla sjálfsstyrkingu að taka þátt í hópstarfi sem með- limur stuðningshóps. Upplýsingar um starfsemi stuðningshópanna má finna á vefsíðu KÍ www.krabb.is. Stuðningshóparnir kynna starf- semi sína á sameiginlegum fræðslu- og kynningarfundi 21. september kl. 20 í Ými, Skógarhlíð 20. Fundurinn er öllum opinn. Hlutverk stuðningshópa í end- urhæfingu fólks sem greinst hefur með krabbamein Gunnjóna Una Guðmundsdóttir fjallar um stuðningshópa innan Krabbameinsfélagsins ’Þannig getur jafn-ingjafræðsla og annar félagslegur stuðningur frá þeim sem gengið hafa í gegnum líka lífs- reynslu haft mikið að segja í bataferli sjúk- linga.‘ Gunnjóna Una Guðmundsdóttir Höfundur er félagsráðgjafi, Krabbameinsfélagi Íslands. SENNILEGA er umgengni borg- aryfirvalda um aðalskipulag hinna og þessara svæða borgarinnar glöggur vitnisburður um óvönduð og illa unnin mál frá upphafi. Ég hef alltaf haldið að aðalskipulag hefði að geyma framtíð- arhugmyndir og þar með fyrirætlanir um byggingar og tengdar framkvæmdir á til- teknum svæðum. Þetta þýðir að með því að skoða aðalskipulag átt þú að fá nokkuð skýrar hugmyndir um framtíð nánasta um- hverfis þíns. Svona hélt ég að þetta væri. Raunin er hins veg- ar allt önnur. Að- alskipulag er bara píp, það er þarna til þess að hafa eitthvað á blaði, á því á alls ekki að taka mark. Aðalskipulagi er flaggað þar til hinir raunverulegu hagsmunir koma upp á yfirborðið og þá fara þeir einbjörn, tvíbjörn og þríbjörn af stað. Í Reykjavík er hverfi kennt við skugga, ekki vegna þess að á það hafi vantað örnefni heldur vegna þess að lega þess skapar langa skugga. Hverfið er líka opið fyrir norðangarranum, það er í rauninni á mörkum hins byggilega heims. Sunnan í móti er annað loftslag en norðan í móti. Eina örugga leiðin til að gera svæðið óbyggilegt er að setja það í skugga og skapa norð- anbálinu aðstæður til loftfimleika í kringum endalausa skessukatla há- hýsa og turna. Að vísu hafa skipu- lagsyfirvöld samviskusamlega skyggt skipulagsteikningar með skuggavarpi hingað og þangað eftir tímum dags og árs. Minna fer fyrir hugsanlegum áhrifum turnanna á vindgang hverfisins eða möguleikum fólks til að njóta lífsins þar. Skuggahverfið er byggingar- og menningarsögulegt djásn á íslensk- an mælikvarða, þar eru hús og götur sem eiga erindi inn í framtíðina, söguleg verðmæti og bara einfald- lega sniðugt umhverfi. Áberandi í jaðrinum er Barónsreitur sem svo er kallaður. Hann afmarkast af Vita- stíg, Skúlagötu, Barónsstíg og Hverfisgötu, í rauninni snýst hann annars vegar um Bjarnaborgina og hins vegar um Barónsfjósið. Svo illa vill til að á milli þessara bygginga er óbyggt svæði. Samkvæmt aðal- skipulagi frá 2001 á að byggja þar tvö hús, hvort um sig tvær hæðir og ris. Allt í góðu samræmi við húsin sem eru fyrir og í góðri sátt við íbúana og um- hverfið. Nú kemur hins vegar á daginn að að- alskipulagið er ekki virði þess pappírs sem það er prentað á. Borg- aryfirvöld hyggjast standa fyrir tveimur byggingum en þær verða ekki tvær hæðir heldur fjórar og fimm plús ris. Þessum bygg- ingum er ætlað að leysa brýnan húsnæðisvanda háskólanema í borginni, það er víst gott að byggja yfir stúdenta vegna þess að þeir þurfa ekki bílastæði. Þetta vita allir sem stunda há- skólanám. Þétting byggðar er sjálfsagt hið besta mál, en ég held að hún eigi ekki við þar sem byggð er þétt. Skuggahverfið og Þingholtin skulda Reykjavík engar nýbyggingar, þetta eru þéttbýlustu svæði borgarinnar. Ég hlýt sem kjósandi með full þegn- réttindi að lýsa frati á þá kosnu full- trúa sem hyggjast valta yfir hags- muni og vilja íbúanna til að þjóna einhverjum allsendis óljósum hags- munum fólks sem byggir hús. Steypa er náttúrulega flott en hún á bara ekki alls staðar við. Það alvarlegasta í þessu öllu sam- an er að þrátt fyrir fjálglegar yf- irlýsingar um samráð og möguleika íbúa til að gera athugasemdir er ljóst að það stendur ekki til að hlusta á þá. Nýlega var birt auglýsing um breytingar á téðu aðalskipulagi, aug- lýsingin var í meginatriðum röng, t.d. hvað varðaði hæð húsanna skeik- aði þremur hæðum og út af fyrir sig ekki minnst á þá staðreynd að bíla- stæði verða engin enda verið að byggja yfir stúdenta sem ekki eiga bíla. Trú þessara kjörnu fulltrúa okkar á samráðið er svo mikil að þeir ætla að bjóða byggingarnar út fyrir áramót og hefja framkvæmdir fyrir vorið. Hér um slóðir hafa framtíð- ardraumar fólks m.a. byggst á að- alskipulagi sem gerir ráð fyrir ný- byggingum sem eru í samræmi við hæð og útlit þeirra húsa sem eru í nágrenninu. Það er hið besta mál. Okkur er öllum ljóst að ef þú býrð í borg máttu eiga von á húsum í kringum þig en að þér eigi að stafa ógn af þessum húsum sýnist óþarfi. Barónsreiturinn sem nafngift er skilgetið afkvæmi þess sálarleysis sem einkennir opinberar nefndir hverju nafni sem þær nefnast. Allt í einu er bílastæðið við 10/11 orðið að viðfangsefni steypubraskara, um- hverfið sem er og hefur verið er orð- ið aukaatriði, meginmálið er að gera eitthvað við Barónsreitinn. Ég sem íbúi við þennan reit er alls ekki að mótmæla byggingum þeim sem gert er ráð fyrir í aðalskipulagi, heldur þeirri aðför að mannlífi sem felst í að drekkja umhverfi, sem lætur lítið yf- ir sér og á rétt á samhljómi gamals og nýs, í steypu og munaðarlausum bílum. Allt er afstætt, líka skipulag, í lág- reistri byggð eru hús yfir þremur hæðum stórhýsi. Ef borgaryfirvöld vilja byggja upp á við er deginum ljósara að Hverfisgatan er ekki rétti vettvangurinn. Það sem er sárast í allri þessari dellu er varnarleysi þitt sem íbúa gagnvart einhverri nefnd sem hefur á valdi sínu að hundsa þig, viðhorf þín og hagsmuni. Í þeirra hugum er nóg að auglýsa eftir athugasemdum og handlanga þær síðan í ruslið. Allt samráðið, sýningarnar og grennd- arblablabla eru innantóm trix þegar hinir raunverulegu hagsmunir koma upp á yfirborðið. Það getur ekki ver- ið ósanngjörn krafa að við byggingu borgarinnar byrgjum við hana ekki í leiðinni. Að byrgja borgina Kristófer Már Kristinsson fjallar um skipulagsmál Kristófer Már Kristinsson ’Það sem er sárast íallri þessari dellu er varnarleysi þitt sem íbúa gagnvart einhverri nefnd sem hefur á valdi sínu að hundsa þig …‘ Höfundur er háskólanemi og íbúi við Barónsreit. ÉG LAS greinar Jóns Bjarnason- ar forystumanns vinstri-grænna í Morgunblaðinu ný- lega. Ummæli hans minna óneitanlega á öfugmælavísur þótt þær séu ekki í bundnu máli. Sem gamall sam- vinnustarfsmaður finnst mér rétt að gera nokkrar athugasemdir við málflutning hans. 1. „Félagshyggja Framsóknarflokksins týnd.“ Stærsta og mynd- arlegasta fé- lagshyggjufyrirtæki landsins er rekið í Skagafirði af fram- sóknarmönnum og heitir Kaupfélag Skag- firðinga. Vegna póli- tískrar blindu sér greinarhöfundur það auðsjáanlega ekki. Vonandi sjá aðrir Skagfirðingar það og standa þétt með for- ystu þess. 2. „Framsókn þvingaði risaálveri upp á Austfirðinga.“ Sveitarfélög á Aust- fjörðum standa ein- huga að fram- kvæmdum á Austfjörðum og hafa birt áskoranir um að hefja fram- kvæmdir í þessa átt í mörg ár. 3. Álverið á Reyðarfirði. „Hún mun eins og önnur orkufrek stóriðja skila litlu til þjóðarbúsins og önnur byggðarlög munu blæða eins og kemur sárlega á daginn.“ Lítum til Akraness, kjördæmis þingmannsins. Hundruð starfs- manna fyrirtækjanna þar eru varla sammála þingmanninum. Eða myndi stöðvun rekstrar og framkvæmda þar leysa vanda Vestfirðinga? 4. „Ísfirðingar fórnarlömb stór- iðjustefnunnar.“ Það hafa oft verið erfiðleikar í út- gerð á Vestfjörðum þótt ekki hafi verið framkvæmdir við verksmiðjur á Akranesi og við Kára- hnjúka. Staðreyndin er að það eru mörg önnur atriði en stóriðju- framkvæmdir er valda hér um. Þrátt fyrir það þarf að leysa vanda Vestfirðinga. 5. „Þjóðin vildi fá að eiga Landssímann.“ Íslendingar keyptu og eiga Landssímann og ekkert verri Íslend- ingar en Jón Bjarna- son. Hann er nú rekinn með svipuðu formi og tíðkast í okkar ná- grannalöndum og sam- þykktar hafa verið af félagshyggjuflokkum þar. „Enginn bóndi myndi selja bestu kúna úr fjósinu“. Það gerum við ekki heldur. 4% vextir af 67 milljörðum gefa meiri tekjur í rík- issjóð en verið hafa af Landssímanum á und- anförnum árum. Það eru til snjallar, rímaðar öfugmælavísur sem gaman væri að birta. En það á ekki við hér. Því hér er verið að ræða lífsafkomu fjölda manna, á Akranesi, í Hafnarfirði og fyrir austan. Íslend- ingar eru nú í öðru sæti þjóða heims um lífsgæði. Við framsóknarmenn höfum alltaf reynt að velja bestu úr- ræðin og þau sem duga best í þjóð- félaginu á hverjum tíma og þá helst ef hægt er í formi félagshyggju og samvinnu. Og það hefur borið árang- ur eins og annað sætið sýnir. Öfugmælavísur Jóns Bjarnasonar Gunnar Sveinsson gerir at- hugasemdir við grein Jóns Bjarnasonar Gunnar Sveinsson ’Við framsókn-armenn höfum alltaf reynt að velja bestu úr- ræðin og þau sem duga best í þjóðfélaginu á hverjum tíma og þá helst ef hægt er í formi fé- lagshyggju og samvinnu.‘ Höfundur er fv. kaupfélagsstjóri í Keflavík. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.