Morgunblaðið - 17.09.2005, Side 47

Morgunblaðið - 17.09.2005, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 47 UMRÆÐAN BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is Í FEBRÚAR síðastliðnum urðu tölu- verðar umræður um rjúpnaveiðar á Alþingi. Þar voru ræddar breytingar á lögum nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Mörgum þingmönnum þótti tilefni til að fara hægt í breyt- ingar á þessum málum. Var sér- staklega óskað eftir því, að farið yrði eftir tillögum náttúrufræðinga, enda væru þeir bestu sérfræðingarnir í þessum málum. Ákvörðun umhverfisráðherra síð- ustu viku ágústmánaðar um að leyfa aftur veiðar á rjúpu er mjög umdeild. Aðaltrompið er stytting veiðitímans en hver er raunveruleg vernd rjúp- unnar þegar hún er tekin að setja á sig vetrarbúninginn en enginn er snjórinn? Sennilega hefði verið betra að stytta veiðitímann framan af frem- ur en síðustu vikurnar því skamm- degið er rjúpunni óneitanlega mjög mikið skjól. Mikil grimmd fylgir veiðum Skoðum aðeins brot úr ræðu þing- forseta, Halldórs Blöndal, á Alþingi 7. febrúar 2005: „Menn hafa þar ýmsir miklar og þungar og ríkar áhyggjur af því hvernig fuglaveiðar hér á landi hafa verið auglýstar á netinu, bæði erlendis og hér á landi. Þar er enginn munur gerður á tegundum. Eins og ég sagði í fyrri ræðu minni var þar flaggað með straumandarsteggi. Ég hygg að okkur þyki flestum nokkuð mikið um þegar veiðimaðurinn hefur, eins og ég sagði áðan, meira en 20 dauða rauðhöfða í kringum sig og meira en 20 grænhöfða. Þetta eru ekki veiðar sem Íslendingar stund- uðu með slíkri grimmd áður. Skipu- lagning þessara veiða og sá mikli þrýstingur og þær miklu auglýsingar sem hafðar eru í frammi til þess að fá menn á þær veiðarnar eru með ólík- indum.“ Bestu þakkir herra þing- forseti fyrir þarfa ábendingu! Ráðstafanir ráðherra Gert er ráð fyrir að stórt svæði á Suð- vesturlandi lúti áfram friðun. Ítrekað er bann við notkun vélsleða, fjórhjóla og annarra torfærutækja við rjúpna- veiðar. Þetta er allt saman gott og vel. Til varnar rjúpunni hyggst um- hverfisráðherra „vænta góðs sam- starfs með veiðimönnum, landeig- endum og öðrum veiðirétthöfum um rjúpnaveiðina á þessu hausti“. Og einnig eigi að efna til „sérstaks hvatn- ingarátaks til veiðimanna um hófleg- ar veiðar“! Hvað er átt við með svona orðskrúðshætti? Kannski svipað því að fara fram á það við ofbeldisfulla karla sem eru vanir að berja kon- urnar sínar að sýna „hófsemi“ með því að berja þær ekki eins mikið og áður? Eða tilmæli til skattsvikarans um „hófsemi“, að hann svíki aðeins minna undan skatti en áður? Að vísu er þessi samanburður ekki réttur því annars vegar er um að ræða það sem er heimilt og hins vegar hrein lög- brot. Ekki fer umhverfisráðherra nánar út í þessa sálma þó svo ástæða sé til að sett verði strangari skilyrði fyrir veiðum en verið hefur og efla nauð- synlegt virkt eftirlit með veiðum. Ekki er líklegt að lögreglan hafi meiri tíma aflögu til að sinna þessum mála- flokki en verið hefur enda verið í nógu að snúast undanfarnar vikur að eltast við þá sem enn eru að mótmæla Kárahnjúkavirkjun. Byssueign og byssuburður virðist vera eins og hver önnur tískubóla meðal margra Íslendinga sem þurfa að sýna öðrum mátt sinn og megin. Hér er mikil hætta á ferð. Þegar t.d. mikil misnotkun á áfengi og öðrum vímugjöfum fer saman við meðferð á byssum geta slíkir einstaklingar orð- ið samfélaginu dýrt spaug. Flest rök hallast að því, að ráð- herra hafi orðið fyrir mjög miklum þrýstingi veiðimanna og þeirra sem hag hafa af veiðum sem þessum. Í ársskýrslu ríkislögreglustjóra fyrir árið 2004 kemur fram, að hvorki meira né minna en 45 fyrirtæki hafi gild leyfi til að versla með skotvopn og skotfæri á Íslandi! Þetta er ótrú- lega há tala hjá fámennri þjóð. Aukn- ar veiðar stuðla að meiri sölu og um- sýslu auðs. Greinilegt er, að umhverfisráðherra hefur látið undan þrýstingi gróða- og ævintýrahyggj- unnar á kostnað náttúruverndar. Mætti biðja guð almáttugan um að koma vitinu fyrir umhverfisráðherra íslensku þjóðarinnar! GUÐJÓN JENSSON, Arnartanga 43, Mosfellsbæ. Ráðherrann og rjúpan Frá Guðjóni Jenssyni: TILLAGA F-listans um að Reykjavíkurborg leiti eftir við- ræðum við sex nágrannasveit- arfélög á höfuðborg- arsvæðinu um sameiningu var lögð fram á borgarstjórn- arfundi 6. september sl. Hún hlaut dræm- ar undirtektir full- trúa R- og D-lista í borgarstjórn, sem vísuðu tillögunni frá, þrátt fyrir að um augljósa almanna- hagsmuni sé að ræða. Spyrja má að því hvort fulltrúum þessara flokka sé meira annt um hags- muni sveitarstjórn- armanna en annarra íbúa á höfuðborg- arsvæðinu. Yfirgnæfandi rök með sameiningu Rökin með samein- ingu sveitarfélag- anna sjö á höf- uðborgarsvæðinu eru afar sterk. Sveitarfélögin mynda eitt atvinnusvæði og eina skipu- lagslega og samgöngulega heild. Á höfuðborgarsvæðinu er mikið og gott byggingarland, sem þarf að skipuleggja vel og nýta með heildrænum og hagkvæmum hætti. Einnig þarf að skipuleggja samgöngukerfi út frá heildarhags- munum og langtímasjónarmiðum. Forðast þarf að gengið sé á sam- eiginleg útivistarsvæði og nátt- úruperlur vegna skammtímahags- muna eins sveitarfélags á kostnað heildar- og framtíðarhagsmuna. Slíkar fyrirætlanir hafa verið uppi hjá þeim sveitarfélögum á höf- uðborgarsvæðinu, sem búa við mest landþrengsli. Mikið hagræði fælist í því að sameina yfirstjórn höfuðborgarsvæðisins og draga úr yfirbyggingu stjórnkerfisins á sama tíma og íbúa- og hverf- alýðræði yrði tryggt. Smákóngaveldið er tímaskekkja Afstaða Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn kemur ekki á óvart. Þar á bæ standa menn vörð um smákóngaveldi flokksins í ná- grannasveitarfélögum Reykjavík- ur, sem er í senn tímaskekkja og gengur þvert á almannahagsmuni. Sama gera bæjarstjórarnir í Kópavogi, Seltjarnarnesbæ og Mosfellsbæ, sem allir eru oddvitar Sjálfstæðisflokksins í þessum bæjarfélögum, en Fréttablaðið bar tillöguna í borgarstjórn um sameiningu undir þá. Tilsvör bæj- arstjórans í Mosfellsbæ, Ragn- heiðar Ríkharðsdóttur, voru þó mun hógværari en hinna bæj- arstjóranna, þeirra Gunnars Birg- issonar í Kópavogi og Jónmundar Guðmarssonar á Seltjarnarnesi. Ragnheiður kom að vísu með til- lögu sem fær ekki staðist, þar sem hún sagði koma til greina „að búa til þrjú álíka stór sveitarfélög á svæðinu, sem gætu keppt hvert við annað um þjónustu“. Fjögur sveitarfélaganna sjö með 12,2% íbúanna Af 183.845 íbúum sveitarfélag- anna sjö á höfuðborgarsvæðinu bjuggu hinn 1. desember sl. 113.730 eða 61,9% í Reykjavík. Næstfjölmennasta sveitarfélagið var Kópavogur með 25.784 íbúa eða 14%. Fjöldi íbúa í Hafnarfirði var 21.942 eða 11,9%. Í Garðabæ, voru íbúarnir 9.036 eða 4,9%, en í Mosfellsbæ 6.782 eða 3,7%. Á Sel- tjarnarnesi voru íbúar 4.547 tals- ins eða 2,5%, en á Álftanesi 2.024 eða 1,1%. Af þessum tölum má sjá að þrjú fjölmennustu sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins eru með samanlagt 87,8% íbúanna á meðan 12,2% búa í fjórum fá- mennustu sveit- arfélögunum. Íbúatöl- urnar leiða í ljós að það er tómt mál að tala um að búa til þrjú álíka stór sveitarfélög á höfuðborgarsvæð- inu. Enginn getur ætl- ast til að sameining sveitarfélaga á svæð- inu hefjist með því að minnka Reykjavík um helming. Það væri skref í ranga átt og myndi stuðla að enn óraunsærri skipulags- hugmyndum en svo- nefndar „Eyjabyggð- artillögur“ Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík bera vitni um. Þar skyldi komið fyrir 20.000 manna byggð á dýrum land- fyllingum vestast í borginni. Nær úti- lokað yrði að koma þaðan umferð sem næmi 60.000 bílum á sólarhring austur fyrir miðborgarsvæðið. Þetta myndi leiða til óleysanlegrar umferð- arteppu og einnig hafa í för með sér hættuástand ef rýma þyrfti borgina vegna mengunarslyss eða náttúruhamfara. Tvö sveitarfélög raunhæfur möguleiki Raunhæfur möguleiki væri að mynda tvö sveitarfélög á höf- uðborgarsvæðinu, sem gæti orðið góður áfangi að heildarsamein- ingu síðar meir. Nyrðra sveitarfé- lagið væri þá t.d. myndað við sam- runa Reykjavíkur, Seltjarnarness og Mosfellsbæjar í eitt sveitarfé- lag með 125.059 íbúa. Í því tilviki myndaðist syðra sveitarfélagið við samruna Kópavogs, Garðabæjar, Hafnarfjarðar og Álftaness í eitt sveitarfélag með 58.786 íbúa. Það skal þó tekið fram að land- fræðilega félli Kópavogur betur að samruna nyrðri sveitarfélag- anna vegna flókinna marka Reykjavíkur og Kópavogs, sem oft hafa leitt til deilna og skipu- lagsvandræða, t.d. við Elliðavatn og í Fossvogsdal. Heildarhagsmunir ráði Ljóst er að Mosfellsbær og Garðabær eru þau sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu sem eru hvað ríkust af hagkvæmu bygg- ingarlandi til nota á næstu ára- tugum. Það er því afar þýðing- armikið að þessi tiltölulega fámennu en landríku sveitarfélög sameinist næstu nágrannasveit- arfélögum sínum á komandi árum svo að nýting landsins verði skyn- samleg og hagkvæm. Rökin fyrir því að tvö fámennustu sveit- arfélögin á höfuðborgarsvæðinu, Seltjarnarnes og Álftanes, sam- einist nærliggjandi sveit- arfélögum eru margþætt. Fá- menni þessara sveitarfélaga og heildarhagsmunir íbúa höfuðborg- arsvæðisins vega þar þyngst. Ekki má heldur gleyma að vegna landþrengsla í Seltjarnarnesbæ lá við skipulagsslysi þar þegar meirihluti bæjarstjórnar vildi reisa mikla byggð á náttúru- og fornminjasvæði vestan Nesstofu. Framsýnt skipulag útivistarsvæða höfuðborgarsvæðisins er mál sem varðar alla íbúa þess og næst best fram í sameinuðu sveitarfélagi. Sameining sveit- arfélaga á höfuð- borgarsvæðinu Ólafur F. Magnússon fjallar um sameiningu sveitarfélaga Ólafur F. Magnússon ’Rökin meðsameiningu sveitarfélag- anna sjö á höf- uðborgarsvæð- inu eru afar sterk.‘ Höfundur er læknir og borgarfulltrúi. SÍÐUSTU daga hefur umræðu um framtíð Reykjavíkurflugvallar borið mikið á góma í fjölmiðlum. Undirrit- aður hefur í þeirri um- fjöllun saknað umræðu um mikilvægi flugvall- arins í tengslum við heilbrigðisþjónustu landsbyggðarinnar. Síðustu ár hefur miðstöð sjúkraflugs á Íslandi verið á Ak- ureyri, m.a. vegna hag- stæðrar land- fræðilegrar legu. Fjórðungssjúkrahús Akureyrar, Slökkvilið Akureyrar og Flug- félag Íslands hafa staðið á bakvið starfsemina með því að tryggja nauðsynlega mönnun og tækjabún- að. Aukin umsvif á Austurlandi síð- ustu misseri hafa ítrekað sannað mikilvægi sjúkraflugsins og stað- setningu miðstöðvar þess á Ak- ureyri. Upptökusvæði Fjórðungssjúkra- húss Akureyrar og sjúkraflugsins nær frá Blönduósi til Hafnar á Hornafirði og austur- strandar Grænlands, í nýlegu útboði er gert ráð fyrir að þetta svæði nái einnig yfir Vest- firði. Síðastliðið ár voru sjúkraflugin rúmlega 300, um 200 þeirra end- uðu í Reykjavík. Reykjavík, höf- uðborg allra lands- manna, gegnir ábyrgð- arhlutverki við að tryggja sem greiðastan aðgang að þeirri heil- brigðisþjónustu sem veitt er á höfuðborg- arsvæðinu og ekki gefst kostur á annarsstaðar. Fjöldamargir sjúk- lingar um land allt þurfa reglulega að leita sér þjónustu á Landspít- alanum, öll aukaferðalög geta reynst þeim ofviða. Í bráðatilvikum þar sem mínútur geta skilið á milli lífs eða dauða gegnir sjúkraflug beint til Reykja- víkur höfuðmáli, en þar eru hjarta- þræðingar, taugaskurðlækningar og nýburalækningar efst á lista. Pólitískt fjaðrafok og fast- eignamarkaðurinn eiga ekki að ráða þegar jafnmikilvægt mál er til um- ræðu og framtíðarstaðsetning Reykjavíkurflugvallar. Reykjavíkurflugvöllur – sjónarmið læknis á landsbyggðinni Theódór Skúli Sigurðsson fjallar um Reykjavíkurflugvöll ’Pólitískt fjaðrafok ogfasteignamarkaðurinn eiga ekki að ráða þegar jafnmikilvægt mál er til umræðu og framtíð- arstaðsetning Reykja- víkurflugvallar.‘ Theódór Skúli Sigurðsson Höfundur er umsjónarlæknir sjúkra- flugs Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar. ÞAÐ ER áberandi skortur á sjálfs- virðingu þeirra sem skemmta sér undir áhrifum, um þessar mundir. Þeir sem ekki drekka hafa fylgst með því hvernig ölvun er orðin almennari í skemmtanalífinu. Það er varla hægt lengur að fara á mannamót án þess að horfa upp á fólk neyta áfengis. Þær bæjarskemmt- anir sem ég fór á í sumar einkennd- ust af almennri áfengisneyslu. Það var áberandi hverjir voru með áfengi og hve margir. Ungt fólk með barn í vagni og áfengi í flösku- statífum á vagninum. Fullorðið fólk með börnum sínum og kippu af áfengi í hinni hendinni. Fólk sem var í sínum heimi. Mín skoðun er sú að börn eiga ekki að þola áfeng- isneyslu annarra í hvaða mynd sem hún er. Ég veit að áfengisneyslu fylgir ölvun, sem leiðir af sér dóm- greindarleysi, sem getur leitt margt verra af sér. Þar er hægt að sjá mörg dæmi. Sumir segja að þetta sé hluti af menningunni. Ég segi að þetta sé ómenning. Nú er komið að okkur sem erum ekki sátt við þessa þróun að snúa þessu við. Við skul- um afþakka gylliboð þeirra sem reyna að sannfæra okkur um nauð- syn áfengisneyslunnar þegar kemur að skemmtun. Það eru fjölmargir aðrir möguleikar í lífinu. AÐALSTEINN GUNNARSSON, formaður Barnahreyfingar IOGT á Íslandi. Við skulum afþakka gylli- boð um áfengisneyslu Frá Aðalsteini Gunnarssyni: Aðalsteinn Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.