Morgunblaðið - 17.09.2005, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 17.09.2005, Qupperneq 48
48 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF Fjölbreytt starf í Grensáskirkju NÚ eru allir fastir liðir safn- aðarstarfsins í Grensáskirkju komn- ir í gang að nýju eftir hlé yfir sum- arið. Guðsþjónustur eru alla sunnu- daga kl. 11 árdegis og samtímis þeim sunnudagaskóli sem Jóhanna Sesselja Erludóttir (Lella) sér um. Kyrrðarstundir í hádegi eru alla þriðjudaga kl. 12.10. Leikið er á orgel frá kl. 12 en á stuttri helgi- stund er sálmur, ritningarlestur, altarisganga og fyrirbænastund. Stundinni lýkur upp úr kl. 12.30 og þá er hægt að kaupa einfaldan máls- verð á sanngjörnu verði. Samverustundir aldraðra eru sem fyrr á miðvikudögum kl. 14. Á dagskrá er biblíulestur og bæn en að því loknu kaffi og meðlæti sem konurnar í Kvenfélagi Grens- ássóknar annast. Kvenfélagið heldur annars sína föstu fundi annað mánudagskvöld í mánuði. VD KFUM og KFUK 6–9 ára er í Grensáskirkju á þriðjudögum kl. 15.30 og YD KFUM og KFUK 10–12 ára á þriðjudögum kl. 17. Unglinga- starfið verður á miðvikudags- kvöldum kl. 20. Foreldramorgnar eru í Grens- áskirkju á mánudögum kl. 10-12. Hversdagsmessur í Grens- áskirkju. Alla fimmtudaga kl. 19 eru hversdagsmessur í Grens- áskirkju. Um er að ræða messu með einföldu formi og léttum söngvum en Þorvaldur Halldórsson söngvari leiðir sönginn. Töluðu orði er mjög stillt í hóf en lagt upp úr andrúms- lofti bænar og lofgjörðar. Í hverri messu er bæna- og lofgjörðarstund, auk altarisgöngu. Um er að ræða stutta messu sem er lokið fyrir kl. 20. ALFA-námskeið hefst í Grens- áskirkju miðvikudagskvöldið 21. sept. kl. 20. Eftir fyrsta kvöldið verður námskeiðið á miðvikudags- kvöldum kl. 19.30–22 en síðasta kvöldið er 23. nóv. ALFA er tíu vikna námskeið um grundvall- aratriði kristinnar trúar sem hefur notið mikilla vinsælda víða um heim undanfarin ár. Hægt er að koma á fyrsta kvöldið án allra skuldbind- inga um áframhaldandi þátttöku. 12-spora-starf í Grensáskirkju. Næsti 12-spora-hópur fer af stað í Grensáskirkju fimmtudagskvöldið 22. sept. kl.. 20 og verður svo viku- lega á þeim sama tíma, kl. 20–22. Í 12-spora-starfi kirkjunnar vinna einstaklingar í eigin lífi með hjálp sporanna 12 sem margir kannast við úr AA. Um er að ræða upp- byggilega sjálfsskoðun á kristnum grunni, óháð því hvort glímt er við sérstök „vandamál“. Nokkur fyrstu skiptin er hægt að koma og kynna sér hvað þarna er á ferð án þess að ákveða áframhaldandi þátttöku. Nánari upplýsingar um starfið í Grensáskirkju eru á vef kirkjunnar, www.kirkjan.is/grensaskirkja. Samtal um sorg í Neskirkju SÍÐASTLIÐINN vetur hófst nýtt starf í Neskirkju við Hagatorg und- ir yfirskriftinni Samtal um sorg sem fór fram vikulega á fimmtudögum í hádeginu. Starfið hófst á ný fimmtudaginn 8. september kl. 12.05–13 og verður í allan vetur nema þegar fimmtu- daga ber upp á almennan frídag. Samtal um sorg er vettvangur þeirra sem glíma við sorg og missi og vilja vinna úr áföllum sínum. Missir á sér ekki aðeins stað við dauðsfall, heldur getur hann verið fólginn í fleiru eins og t.d. skilnaði, atvinnumissi, heilsubresti o.fl. Prestar Neskirkju leiða fundina til skiptis. Hver fundur hefst með stuttri bæn. Fundarreglur eru kynntar, fundarstjóri tjáir sig um sorg og missi og gefur síðan orðið laust. Allir mega tjá sig en enginn er skyldugur til þess. Fundinum lýkur með bæn. Þau sem tíma hafa eftir að fundi lýkur er bent á að kaffihús kirkjunnar er opið alla virka daga og þar er hægt að sitja og spjalla yf- ir veitingum, tengjast Netinu, skoða blöð og bækur svo nokkrir mögu- leikar séu nefndir. Allir velkomnir. Barnastarf Bústaðakirkju BARNASTARF Bústaðakirkju býð- ur börnum og fjölskyldum þeirra á leiksýningu næstkomandi sunnudag 18. september klukkan 11 í Bústaða- kirkju. Þar mun STOPP-leikhóp- urinn flytja leikritið: Kamilla og þjófurinn eftir Kari Vinje. Sögur Kari Vinje eru einstakar því þær eru uppfullar af mannlegri hlýju og húmor ásamt því að fræða börnin um kristilega hugsun og gjörðir. Sögur hennar eins og: „Ósýnilegi vinurinn“, „Við Guð er- um vinir“ og „Kamilla og þjófurinn“ hafa löngum verið vinsælar og víða lesnar í sumarbúðum, leikja- námskeiðum og æskulýðsstarfi kirkjunnar. Sjáumst hress á sunnu- daginn! Barnastarf Bústaðakirkju. Haustlitaferð starfs aldraðra í Bústaðakirkju Á hverju hausti hefst starf aldraðra í Bústaðakirkju með haustlitaferð. Í ár verður ferðin farin miðvikudag- inn 21. september. Lagt verður af stað frá kirkjunni klukkan 13, áætl- uð heimskoma er um kl. 17.30. Skráning er þegar hafin hjá kirkju- vörðum kirkjunnar í síma 553 8500. Miðvikudagssamverurnar hefjast síðan 28. september og verða frá kl. 13–16.30. Safnaðarstarf Bústaðakirkju. Mömmumorgnar í Seljakirkju MÖMMUMORGNAR eru farnir af stað í Seljakirkju. Mömmu- morgnarnir eru alla þriðjudags- morgna milli kl. 10–12. Ester Sig- urðardóttir hefur tekið við umsjón morgnanna. Hollur morgunverður, gott úrval af leikföngum fyrir börn- in, umfram allt heilbrigt samfélag í uppbyggilegu umhverfi. Áhugaverð fræðsla verður öðru hvoru er snert- ir velferð barna og nýbakaðra for- eldra. Nánari upplýsingar um starf kirkjunnar á seljakirkja.is. Verið velkomin! Lóðafram- kvæmdum og klukkuturni fagnað Á KIRKJUDEGI Langholtssafnaðar sunnudaginn 18. september verður því fagnað að lokið er við að ganga frá lóð kirkjunnar og nýr klukku- turn hefur verið reistur. Athöfn hefst við klukkuturninn kl. 10.45. og síðan hefst hátíðamessa kl. 11 þar sem að séra Kristján Val- ur Ingólfsson predikar og Kór Langholtskirkju syngur. Eftir messuna er boðið upp á létt- ar veitingar. Fjölmargir hafa unnið að því að þessu stóra takmarki, að fullgera lóð Langholtskirkju, er náð. Söfnuðurinn kostar sjálfur stærstan hluta þessa stóra verkefnis en Reykjavíkurborg studdi mjög myndarlega við söfnuðinn að þessu verki en einnig studdu ýmsir aðrir aðilar við þetta brýna verkefni. Samkoma með léttri tónlist í Selfosskirkju MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ 21. sept- ember næstkomandi kl. 20.30 verð- ur samkoma í Selfosskirkju. Tónlist með léttri sveiflu einkennir stund- ina (þ.e. hér er um svokallaða „popp-messu“ að ræða). Þorvaldur Halldórsson, söngvari, hefur veg og vanda af músíkinni, og leiðir mikinn og fjörlegan almennan söng. Sókn- arprestur flytur stutta hugleiðingu. Samkomur á borð við þessa hafa tvisvar áður verið haldnar í kirkj- unni á þessu ári og þátttaka verið bæði mikil og góð. Vonandi verður svo einnig að þessu sinni. Gunnar Björnsson, sóknarprestur. Galatabréfið – texti, trú og tilgangur FIMMTUDAGINN 22. september hefjast á vegum Leikmannaskóla Þjóðkirkjunnar og Reykjavík- urprófastsdæmis eystra Biblíu- lestrar í Breiðholtskirkju í Mjódd. Farið verður yfir Galatabréfið og skoðuð tilurð bréfsins og þau vanda- mál sem það fæst við. Í tengslum við efni bréfsins verður síðan fjallað um böl og þjáningu, fyrirgefningu og trú, fyrirheit og frelsun. Einnig verður reynt að sýna fram á hvern- ig texti bréfsins hefur haft áhrif á kristinn Guðs og mannskilning. Kennari á námskeiðinu er sr. Sig- urjón Árni Eyjólfsson dr.theol, hér- aðsprestur og stundakennari við Háskóla Íslands og er þetta fimmti veturinn sem hann leiðir slíka Bibl- íulestra á vegum Leikmannaskólans og Reykjavíkurprófastsdæmis eystra. Námskeiðið hefst 22.september kl. 20 og er kennt í Breiðholtskirkju í Mjódd í tíu skipti, 2 tíma í senn. Skráning fer fram í síma 535 1500 eða á vef Leikmannaskólans, www.kirkjan.is/leikmannaskoli. Vetrarstarf Digraneskirkju SÚ nýbreytni verður í starfinu í vet- ur að ráðinn hefur verið æskulýðs- fulltrúi sem annast mun barna- og unglingastarf í Digraneskirkju. Starf KFUM&K með 10–12 ára börnum verður eftir sem áður óbreytt og er á þriðjudögum kl. 17. En nú verður starf 6–9 ára barna í höndum æskulýðsfulltrúa og annarra leið- toga á fimmtudögum kl. 17. Unglingastarf (8. bekkur) er á fimmtudögum kl. 20. Æskulýðs- fulltrúi Digraneskirkju er Anna Arnardóttir. Foreldramorgnar eru á mið- vikudögum kl. 10–12 í hennar um- sjón. Starf eldri borgara. Anna Sig- urkarlsdóttir hefur annast um starf eldri borgara allt frá því kirkjan var vígð fyrir 10 árum. Nú lætur hún af störfum sem leiðtogi en Kjartan Sigurjónsson, organisti Digra- neskirkju, hefur tekið að sér að leiða starfið í vetur með dyggum stuðningi þeirra sem starfið sækja. Það mun vera á þriðjudögum eins og áður og hefst með leikfimi kl. 11, hádegisverði og samveru í safn- aðarsal að aflokinni helgistund í kirkjunni. Leikfimi er einnig á fimmtudögum kl. 11. Alfa-starfið er á þriðjudögum kl. 19 og hefst með kvöldverði. Allar frekari upplýsingar um starfið í Digraneskirkju má finna á heimasíðu kirkjunnar: www.digra- neskirkja.is Prestsvígsla að Hólum SUNNUDAGINN 18. september kl. 14 verður vígsluathöfn í Hóladóm- kirkju. Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup vígir Sólveigu Höllu Kristjánsdóttur, guðfræðing, til prestsþjónustu við Akureyr- arkirkju. Sr. Svavar A. Jónsson lýsir vígslu. Vígsluvottar verða sr. Gunn- ar Jóhannesson, sr. Hannes Örn Blandon prófastur, sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir og Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni. Kór Akureyr- arkirkju leiðir söng, organisti Björn Steinar Sólbergsson. Verið velkomin heim að Hólum. Fermingarfræðsla í Hallgrímskirkju VETRARNÁMSKEIÐ fyrir börn sem hyggjast fermast í Hallgríms- kirkju á næsta vori hefst næstkom- andi þriðjudag kl. 15.15. Börn sem enn hafa ekki skráð sig geta komið á þriðjudaginn og skráð sig þá. Þau börn sem voru á haust- námskeiði fyrir fermingarbörn fá innan skamms upplýsingar um framhald fræðslunnar, auk þess sem boðað er til foreldrafundar fyr- ir foreldra allra fermingar- barnanna fimmtudaginn 29. sept- ember kl. 20. Tólf sporin í Hallgrímskirkju Í VETUR verður aftur boðið upp á tólf spora hópastarf í kjallara Hall- grímskirkju, eins og undanfarna vetur. Fundirnir verða á þriðju- dagskvöldum kl. 19–21 í samtals 30 vikur. Fyrstu fjórir fundirnir eru kynningarfundir og eru öllum opn- ir. Kynningarfundirnir verða þriðjudagana 27. september, 4., 11. og 18. október. Eftir kynning- arfundina fer starfið fram í litlum lokuðum hópum svokölluðum fjöl- skylduhópum. Í fjölskylduhópunum deilir fólk reynslu sinni, styrk og vonum hvert með öðru og myndar þannig vináttu- og trúnaðartengsl. Í tólf-spora-starfinu er unnið eftir vinnubókinni Tólf spor – andlegt ferðalag en hún fæst í Kirkjuhúsinu og í stærri bókaverslunum, auk þess sem hún verður til sölu á kynning- arkvöldunum. Þátttaka í tólf-spora-starfi er ókeypis og í boði kirkjunnar að öðru leyti en því að kaupa þarf vinnubók- ina og leggja fram lítils háttar í kaffisjóð vikulega. Safnaðarstarf Lágafellssóknar SUNNUDAGINN 18. september er guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 11. Prestur sr. Ragnheiður Jóns- dóttir. Lestur ritningartexta: Grét- ar Snær Hjartarson, formaður eldri borgara í Mosfellsbæ. „Vorboð- arnir“, kór eldri borgara, syngja ásamt kór Lágafellssóknar undir stjórn Jónasar Þóris, organista. Að athöfn lokinni bjóðum við í kirkju- kaffi í safnaðarheimilinu, Þverholti 3. Þar mun verða sagt frá Fær- eyjaferð eldri borgara sem farin var á umliðnu sumri og sýndar verða myndir úr ferðinni. Sunnudagaskólinn verður kl. 13 í Lágafellskirkju – athugið breytta staðsetningu! Hvetjum við foreldra og aðra forráðamenn til að koma með börnin og eiga stund með þeim í kirkjunni. Hreiðar Örn og Jónas Þórir hafa umsjón með stundinni. Fyrirbænaþjónusta í Lágafells- kirkju á mánudögum kl. 19.30. Um- sjón hefur Þórdís Ásgeirsdóttir, djákni. Kyrrðarstundir í Lágafellskirkju á miðvikudögum kl. 18. Umsjón hafa prestar og leikmenn. Jónas Þórir spilar á orgel í upphafi stund- ar. Foreldramorgnar á mið- vikudögum kl. 10–12 í safn- aðarheimilinu, Þverholti 3, 3. hæð. Umsjón hefur Arndís Bernharðs- dóttir. Safnaðarbréf hefur borist inn á öll heimili í Mosfellsprestakalli, þar er að finna allar upplýsingar um safnaðarstarfið Í Lágafellssókn fram að jólum. Einnig má sækja upplýsingar inn á heimasíðu kirkj- unnar: kirkjan.is/mos. Prestarnir og sóknarnefnd. Sporin 12 í Fríkirkj- unni í Hafnarfirði ENN á ný verður haldið af stað í andlegt ferðalag á þessu hausti og er þetta fjórða árið sem Fríkirkjan í Hafnarfirði býður upp á þetta góða starf sem vakið hefur mikla athygli en þátttaka hefur verið mun meiri en búist var við. Sporin 12, andlegt ferðalag er leiðsögn fyrir fólk sem mætt hefur misjöfnu á lífsleiðinni og vill bæta líðan sína eða sættast við fortíðina. Þótt í þessu starfi sé byggt á reynslusporum AA samtakanna er ekki verið að glíma hér við alkóhól- isma heldur hvers kyns annað mót- læti sem fólk kann að hafa orðið fyr- ir. Reynslusporin 12 og boðskapur trúarinnar hafa reynst fólki vel í slíku uppbyggingarstarfi. Starfið fer fram á fimmtudags- kvöldum í vetur og verður fyrsti kynningarfundur haldinn 22. sept- ember kl.20 í safnaðarheimili Frí- kirkjunnar. Sorgin og lífið SORGIN er eitt af mikilvægustu verkefnum lífsins. Fyrirhuguð er tónleikaröð í Laugarneskirkju und- ir yfirskriftinni sorgin og lífið. Þar mun Erna Blöndal söngkona flytja lög og ljóð, ásamtvalinkunnum tón- listarmönnum. Þeir sálmar og ljóð sem Erna flytur eiga það sameig- inlegt að hafa orðið henni til hugg- unar í sorg. Að tónleikum loknumverður boð- ið upp á kaffisopa í safnaðarheim- ilinu og samtal um sorg og sorg- arviðbrögð. Fyrstu tónleikar í þessari röð verða í Laugarneskirkju fimmtudaginn 22. september kl. 20:00 og er aðgangur ókeypis. Ferð eldri borgara í Stykkishólm FARIÐ verður í haustferð eldri borgara þriðjudaginn 20. sept., lagt verður af stað frá Grafarvogskirkju kl. 10. Farið verður í skoðunarferð um Stykkishólm eftir hádegisverð. Kirkjan skoðuð og norska húsið (minjasafn). Á heimleiðinni verðu viðkoma í Bjarnarhöfn. Ferðin kost- ar 2.000 krónur. Morgunblaðið/ArnaldurGrensáskirkja
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.