Morgunblaðið - 17.09.2005, Page 49

Morgunblaðið - 17.09.2005, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 49 MESSUR Á MORGUN ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr kór Áskirkju syngja. Organisti Kári Þor- mar. Prestur sr. Þórhildur Ólafs. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Flutt verður leikritið Kamilla og þjófurinn eftir Kari Vinje. Flytjendur eru Stoppleikhúsið. Foreldrar, afar og ömmur sérstaklega hvött til þátttöku með börnunum. Guðsþjónusta kl. 14:00. Kirkjukór Bústaðakirkju syngur. Organisti Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Molasopi eftir messu. Sr. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11:00. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar. Dómkórinn syngur. Organisti Marteinn H. Friðriks- son. Vænst er þátttöku fermingarbarna og foreldra. Barnastarf á kirkjuloftinu meðan á messu stendur. Æðruleysis- messa kl. 20:00. Stundina leiðir sr. Karl Matthíasson en sr. Hjálmar Jónsson pré- dikar. Hörður Bragason og félagar sjá um tónlistina, Anna Sigríður syngur með. GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11 í umsjá Jóhönnu Sesselju Erludóttur og unglinga úr kirkjustarfinu. Messa kl. 11. Altarisganga. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Samskot til Hjálparstarfs kirkjunnar. Molasopi eftir messu. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðsþjónusta kl. 14:00. Organisti Kjart- an Ólafsson. Sr. Sváfnir Sveinbjarnar- son. Félag fyrrum þjónandi presta. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barna- starf kl. 11:00. Sr. Sigurður Pálsson pré- dikar og þjónar fyrir altari. Hópur úr Mót- ettukór Hallgrímskirkju syngur. Organisti Hörður Áskelsson. HÁTEIGSKIRKJA: Messa og barnaguðs- þjónusta kl. 11:00. Organisti Douglas A. Brotchie. Umsjón barnaguðsþjónustu Erla Guðrún Arnmundardóttir, Þóra Mar- teinsdóttir, Hrafnhildur Héðinsdóttir og Annika Neumann. Léttar veitingar eftir messu. Sr. Tómas Sveinsson. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Hátíðarmessa og barnastarf. Kirkjudagur Langholtssafnaðar. Kl. 10.45 hefst athöfn við hinn nýja klukku- turn Langholtskirkju og kl. 11 verður gengið til hátíðarmessu þar sem því verður fagnað að lóð kirkjunnar er fullfrá- gengin sem og nýr klukkuturn hefur verið reistur. Sr. Kristján Valur Ingólfsson pre- dikar og þjónar fyrir altari ásamt sókn- arpresti sr. Jóni Helga Þórarinssyni. Kór Langholtskirkju syngur undir stjórn Jóns Stefánssonar. Eftir messuna verður boð- ið upp á léttan hádegisverð. Barnastarf í safnaðarheimilinu kl. 11 undir stjórn Rutar, Steinunnar og Arnórs. Hressing eftir stundina. LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11:00. Umsjón sunnudagaskóla er í höndum Hildar Eirar Bolladóttur, Heimis Haraldssonar og Þor- valdar Þorvaldssonar. Kór Laugarnes- kirkju syngur við guðsþjónustuna, Gunn- ar Gunnarsson leikur á orgelið en Sigurbjörn Þorkelsson meðhjálpari og framkvæmdastjóri safnaðarins þjónar ásamt fulltrúum lesarahóps. Messukaffi Sigríðar kirkjuvarðar bíður svo allra að guðsþjónustu lokinni. Guðsþjónusta kl. 13:00 í sal Sjálfsbjargar á höfuðborg- arsvæðinu í Hátúni 12. Guðrún K. Þórs- dóttir djákni og Sigurbjörn Þorkelsson framkvæmdastjóri þjóna ásamt Gunnari Gunnarssyni og hópi sjálfboðaliða. Guðs- þjónusta kl. 14:00 í Sóltúni. Jón Jó- hannsson djákni, Gunnar Gunnarsson organisti og Þorvaldur Þorvaldsson ein- söngvari leiða stundina. NESKIRKJA: Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þór- hallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Ferming- arbörn eru sérstaklega minnt á messu- sókn í vetur. Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Brúður, söngur, sögur, leikir og margt fleira. Öll börn fá kirkjubók og límmiða. Umsjón- arfólk er Guðmunda, Björg og Ari. Kaffi, djús og spjall í safnaðarheimilinu eftir messu. SELTJARNARNESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Í guðsþjónustunni verður lögð áhersla á að kynna og útskýra einstaka liði hennar með það að markmiði að opna kirkjugestum inn í heim helgihalds- ins. Fermingarbörn og foreldrar/forráða- menn þeirra sérstaklega boðin velkomin. Kammerkór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti Pavel Manasek. Sr. Arna Grétarsdóttir. Sunndagaskólinn á sama tíma. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Fjölskylduguðs- þjónusta sunnudag kl. 14. Athugið breyttan guðsþjónustutíma. Safnaðar- presturinn Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir guðsþjónustuna. Anna Sigríður Helgadóttir og Carl Möller sjá um tónlist- ina. Sungnir verða léttir söngvar við upp- haf barnastarfs vetrarins. Predikun verð- ur bæði í orði og myndrænu formi við hæfi barna. Í lok samverunnar verður far- ið út að Tjörn þar sem öndunum verður gefið brauð. Allir hjartanlega velkomnir. ÁRBÆJARKIRKJA: Taize-messa kl. 11. Fermingarbörn lesa ritningarlestra. Gunn- björg Óladóttir og Krisztína Kalló Szklen- ár leiða tónlist og kirkjukórinn söng sem kominn er frá Taize í Frakklandi. Sunnu- dagaskóli á sama tíma í safnaðarheim- ilinu. Kaffi, djús og kex að stundinni lok- inni. BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Bryndís Malla Elídóttir predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Gísla Jónassyni. Organisti Keith Reed. Vænst er þátttöku fermingarbarna og foreldra þeirra. Barna- guðsþjónusta á sama tíma í umsjá Þóru, Sólveigar og Jóhanns. Eftir messu verður fundur með foreldrum fermingarbarna vorsins 2006. DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11:00. Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson. Org- anisti Kjartan Sigurjónsson. Kór Digra- neskirkju A-hópur. Sunnudagaskóli á sama tíma í kapellu á neðri hæð. Súpa í safnaðarsal að messu lokinni (www.- digraneskirkja.is). FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta klukkan 11:00. Sr. Svavar Stefánsson predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Guðmundi Karli Ágústssyni og Ragnhildi Ásgeirsdóttur djákna. Fermingarbörn úr Fella- og Hólasókn boðuð til messunnar ásamt foreldrum sínum. Stuttur fundur eftir messuna með þeim. Sunnudaga- skóli í umsjá Sigríðar Rúnar Tryggvadótt- ur. Organisti Lenka Mateova. Þriðjudag- inn 20. september kyrrðarstund kl. 12:00 og að stundinni lokinni, kl. 13:00, er haustlitaferð fullorðinna. Farið verður til Þingvalla og kostar 500 krónur. Barna- og æskulýðsstarfið er í fullum gangi, sjá nánar á heimasíðu kirkjunnar (www.kirkj- an.is/fella-holakirkja) og í Mbl. (staður og stund). GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Séra Vigfús Þór Árnason prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Bjarna Þór Bjarnasyni. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti: Hörður Bragason. Fermingarbörnum úr Borga-, Engja-, Korpu-, Rima- og Víkurskóla og foreldrum þeirra er sérstaklega boðið til messu. Að lokinni guðsþjónustu verður haldinn fundur, þar sem verður meðal annars rætt um fermingarfræðsluna, ferminguna sjálfa og það sem henni tengist. Að lokn- um fundinum verður hádegisverðarhlað- borð á boðstólum en hver fjölskylda kemur með veitingar á það hlaðborð. Foreldrar eru beðnir að koma með veit- ingar í kirkjuna kl. 10:30. Barnaguðs- þjónusta í Grafarvogskirkju kl. 11:00. Prestur séra Elínborg Gísladóttir. Um- sjón: Hjörtur og Rúna. Undirleikari: Stef- án Birkisson. Barnaguðsþjónusta í Borg- arholtsskóla kl. 11:00. Prestur séra Anna Sigríður Pálsdóttir. Umsjón: Gummi, Ingólfur og Tinna. Undirleikari: Guðlaugur Viktorsson. HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Barna- guðsþjónusta kl. 13. Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18 (sjá einnig á www.hjallakirkja.is). KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í kirkjunni kl. 12:30 í umsjón Önnu Kristínar, Pét- urs Þórs og Sigríðar. Guðsþjónusta kl. 14:00. Fermingarbörn og foreldrar eru hvött til þátttöku. Samvera með þeim í Borgum eftir guðsþjónustu. Sóknarprest- ur sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson predikar og þjónar fyrir altari. Sigríður Stefánsdóttir aðstoðar. Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Bæna- og kyrrð- arstund þriðjudag kl. 12:10. LINDASÓKN í Kópavogi: Guðsþjónusta og sunnudagaskóli í Lindaskóla kl. 11. Laufey Geirlaugsdóttir söngkona syngur einsöng í guðsþjónustunni og kynnir ný- útkominn geisladisk sinn, Lofsöngur til þín. Kór Lindakirkju leiðir safnaðarsöng, organisti Hannes Baldursson. Guðmund- ur Karl Brynjarsson sóknarprestur þjón- ar. SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Söngur, sögur, líf og fjör! Guðsþjón- usta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson pré- dikar. Kór Seljakirkju leiðir almennan söng. Organisti Jón Bjarnason. Kvöld- guðsþjónusta kl. 20. Sr. Valgeir Ástráðs- son prédikar. Þorvaldur Halldórsson leið- ir tónlist. Altarisganga. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgun- guðsþjónusta kl. 11.00. Friðrik Schram kennir um efnið: Hvert er hlutverk okkar í áætlun Guðs, út frá Efesusbréfinu. 3. hluti. Börnin verða í þremur aldursskipt- um hópum. Samkoma kl. 20.00 með mikilli lofgjörð og fyrirbænum. Edda Matthíasdóttir Swan predikar. Alfa-nám- skeið hefst á þriðjudag kl. 19.00. BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmára 9, Kóp.: Samkomur alla laugardaga kl. 11:00. Bænastund alla miðvikudaga kl. 20:00. Biblíufræðsla allan sólarhringinn á Útvarpi Boðun FM 105,5. Allir alltaf velkomnir. HJÁLPRÆÐISHERINN: Samkoma sunnu- dag kl. 20. Tone Gjeruldsen frá Noregi talar. FRÍKIRKJAN KEFAS, Fagraþingi 2a: Samkoma sunnudag kl. 14. Bryndís Svavarsdóttir talar. Lofgjörð og fyrirbæn- ir. Kaffi og samfélag eftir samkomu. Allir velkomnir. Þriðjudaginn 20. september er bænastund kl. 20.30. Allir velkomnir. Föstudaginn 23. september er unglinga- samkoma kl. 20. Allir unglingar velkomn- ir. KFUM og KFUK v/Holtaveg: Laugardag- ur: Fundir hjá KFUM og KFUK á Holtavegi 28. Framhaldsaðalfundur KFUM og KFUK í Reykjavík kl. 13:00 og í beinu framhaldi kl. 14:00 stofnfundur KFUM og KFUK á Íslandi. Hátíðarkaffi á eftir. Allir fé- lagsmenn KFUM og KFUK velkomnir. Sunnudagur: Samkoma í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28, kl. 17. Athugið breyttan tíma. Gospelkór KFUM og KFUK syngur. Fréttir af KFUM og KFUK á Ís- landi. Ræðumaður: Kjartan Jónsson. Barnastarf á meðan samkoman stendur yfir. Allir velkomnir. FÍLADELFÍA: Brauðsbrotning kl. 11:00. Ræðum. Jón Þór Eyjólfsson. Almenn samkoma kl. 16:30. Ræðum. Hafliði Kristinsson. Barnablessun og skírn á samkomunni. Gospelkór Fíladelfíu leiðir söng. Allir eru hjartanlega velkomnir. Barnakirkja meðan á samkomu stendur, öll börn velkomin frá 1–12 ára. Hægt er að hlusta á beina útsendingu á Lindinni fm 102,9 eða horfa á www.gospel.is. – Miðvikud. 21. sept. Kl. 18–20 er fjöl- skyldusamvera, „súpa og brauð“. Jón Þór Eyjólfsson sér um biblíulestur. Allir velkomnir. Alla miðvikudaga kl. 12–13 er hádegisbænastund. Allir velkomnir. fila- delfia@gospel.is www.gospel.is. KROSSINN: Almenn samkoma í Hlíða- smára 5 kl. 16.30. BETANÍA, Lynghálsi 3: Samkoma kl. 11 sunnudaga. Einnig samkomur kl. 19.30 á föstudögum. KIRKJA JESÚ KRISTS hinna síðari daga heilögu, mormónar, Ásabraut 2, Garða- bæ: Guðsþjónusta sunnudag kl. 9 árdeg- is á ensku og kl. 12 á hádegi á íslensku. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dómkirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Messa á ensku kl. 18.00. Alla virka daga: Messa kl. 18.00. „Ár altarissakramentisins“: Tilbeiðslu- stund er haldin í Kristskirkju á hverju fimmtudagskvöldi að messu lokinni, þ.e. frá kl. 18.30 til 19.15. Trúfræðsla barnanna hefst að nýju laugardaginn 10. september kl. 13.00 í Landakotsskóla. Barnamessan er kl. 14.00 í Kristskirkju. Reykjavík, Maríukirkja við Raufarsel: Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Laugar- daga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga: Messa kl. 18.30. „Ár altarissakra- mentisins“: Tilbeiðslustund á mánudög- um frá kl. 19.00 til 20.00. Riftún í Ölf- usi: Sunnudaga: Messa kl. 16.00. Miðvikudaga kl. 20.00. Hafnarfjörður, Jósefskirkja: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Alla virka daga: Messa kl. 18.30. „Ár altarissakramentisins“: Tilbeiðslu- stund á hverjum degi kl. 17.15. Karmel- klaustur: Sunnudaga: Messa kl. 8.30. Virka daga: Messa kl. 8.00. Keflavík, Barbörukapella: Skólavegi 38: Sunnu- daga: Messa kl. 14.00. Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga: Messa kl. 10.00. Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18.00. Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.00. Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.00. Akureyri, Kaþólska kirkjan: Pét- urskirkja, Hrafnagilsstræti 2: Laugar- daga: Messa kl. 18.00. Sunnudaga: Messa kl. 11.00. „Ár altarissakrament- isins“: Tilbeiðslustund á hverjum föstu- degi kl. 17.00 og messa kl. 18.00. KIRKJA SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA: Laugardagur. Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19, Reykja- vík. Biblíufræðsla kl. 10:00. Guðsþjón- usta kl. 11:00. Ræðumaður: Halldór Engilbertsson. Loftsalurinn Hólshrauni 3, Hafnarfirði: Guðsþjónusta/Biblíu- fræðsla kl. 11:00. Ræðumaður: Gavin Anthony. Safnaðarheimili aðventista Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10:00. Guðsþjónusta kl. 11:00. Ræðu- maður Stefán Rafn Stefánsson. Safn- aðarheimili aðventista Blikabraut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Ræðu- maður: Reynir Guðsteinsson. Aðvent- kirkjan Brekastíg 17, Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10:00. Guðsþjónusta kl. 11.00. LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl. 14.00 verður messa með altarisgöngu. Fermingarbörn lesa ritningarlestra. Fé- lagar í Félagi eldri borgara eru sérstak- lega boðnir velkomnir, en eftir messu mun Kvenfélag Landakirkju bjóða þeim til kaffisamsætis í safnaðarsalnum. Fyrir messuna verður stuttur haustfundur starfsfólks, sóknarnefndar og presta um starfið framundan og hefst hann kl. 13.00 í fræðslustofunni. Barnaguðsþjón- usta verður í kirkjunni kl. 11.00 árdegis undir handleiðslu presta og barnafræð- ara kirkjunnar, þeirra Sigurlínar, Elfu Ágústu, Snjólaugar, Guðrúnar, Guðrúnar Helgu og Gísla gítarleikara. Á sama tíma og stað hefst líka samvera Kirkjuprakk- ara (6–9 ára barna). TTT-starfið verður í kirkjunni kl. 12.30 og eru báðir þessir þættir í umsjá Völu Friðriksdóttur og Birk- is Más Guðbjörnssonar. Prestarnir. LÁGAFELLSKIRKJA: Sunnudaginn 18. september er guðsþjónusta í Lágafells- kirkju kl. 11. Prestur sr. Ragnheiður Jónsdóttir. Lestur ritningarteksta: Grétar Snær Hjartarson, formaður eldri borgara í Mosfellsbæ. „Vorboðarnir“, kór eldri borgara, syngja ásamt kór Lágafells- sóknar undir stjórn Jónasar Þóris org- anista. Að athöfn lokinni bjóðum við í kirkjukaffi í safnaðarheimilinu í Þverholti 3. Þar mun verða sagt frá Færeyjaferð eldri borgara sem farin var á umliðnu sumri og sýndar myndir úr ferðinni. Sunnudagaskólinn verður kl. 13 í Lága- fellskirkju – athugið breytta staðsetn- ingu! Hvetjum við foreldra og aðra for- ráðamenn til að koma með börnin og eiga stund með þeim í kirkjunni. Hreiðar Örn og Jónas Þórir hafa umsjón með stundinni. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur sr. Gunnþór Þ. Inga- son. Organisti Antonía Hevesi. Kór Hafn- arfjarðarkirkju. Sunnudagaskólar í Strandbergi og Hvaleyrarskóla á sama tíma. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Sunnu- dagaskólinn kl. 11. Skemmtileg stund fyrir börn á öllum aldri. Messa kl. 13. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Úlriks Ólasonar. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barnasam- koma kl. 11. Létt og skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna. Guðsþjónusta kl. 13. Hljómsveit og kór kirkjunnar leiðir sönginn undir stjórn Arnar Arnarsonar. ÁSTJARNARSÓKN í samkomusal Hauka á Ásvöllum: Barnaguðsþjónusta kl. 11– 12. Léttar kaffiveitingar eftir samveru. Guðsþjónusta kl. 20, léttar kaffiveitingar eftir samveru. VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sunnudagaskólinn, yngri og eldri hópar, mæta á sama tíma. Organisti Jóhann Baldvinsson. Félagar úr Kór Vídalíns- kirkju leiða safnaðarsönginn. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Molasopi eftir messu. Allir velkomnir. BESSASTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sara og Oddur kynna barnastarf Sunnudagaskólans. Álftaneskórinn leiðir safnaðarsöng undir stjórn organistans Bjarts Loga Guðnasonar. Sr. Birgir Ás- geirsson og Gréta Konráðsdóttir djákni þjóna. NJARÐVÍKURKIRKJA (Innri-Njarðvík): Guðsþjónusta sunnudag kl. 20.30. Kór kirkjunnar leiðir söng undir stjórn Alex- öndru Kunáková organista. Meðhjálpari er Kristjana Gísladóttir. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Laufey Gísladóttir, umsjónarmaður sunnudagaskólans, Arnhildur H. Arn- björnsdóttir, Sigríður Helga Karlsdóttir, Sara Valbergsdóttir. Messa kl. 14. Sam- félagið um guðs borð. Prestur sr. Ólafur Oddur Jónsson. Ræðuefni: Hamfarirnar við Indlandshaf og í Bandaríkjunum. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng. Organisti Há- kon Leifsson. Meðhjálpari Helga Bjarna- dóttir. Kaffiveitingar í boði sóknarnefnd- ar eftir messu. HÓLADÓMKIRKJA: Prestsvígsla sunnu- dag kl. 14. Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup vígir Sólveigu Höllu Krist- jánsdóttur guðfræðing til prestsþjónustu við Akureyrarkirkju. Sr. Svavar A. Jóns- son lýsir vígslu. Vígsluvottar verða sr. Gunnar Jóhannesson, sr. Hannes Örn Blandon prófastur, sr. Solveig Lára Guð- mundsdóttir og Pétur Björgvin Þorsteins- son djákni. Kór Akureyrarkirkju leiðir söng, organisti Björn Steinar Sólbergs- son. AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 20.30. Séra Guðmundur Guðmundsson. Forsöngvari Sigrún Arna Arngrímsdóttir. Organisti Hjörtur Steinbergsson. GLERÁRKIRKJA: Guðsþjónusta sunnu- dag kl. 11. Sr. Arnaldur Bárðarson þjón- ar. Kór Glerárkirkju syngur. Organisti Hjörtur Steinbergsson. HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Sunnudagaskóli kl. 11. Samkoma kl. 17. Erlingur Níelsson talar. Allir velkomn- ir. EGILSSTAÐAKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11, verum með frá byrjun. Foreldrar hvattir til að nýta sér þennan stuðning við uppeldið. 19. sept: Kyrrðarstund kl. 18. Tólf-spora kynningarfundur kl. 20. Allir velkomnir. ODDASÓKN: Guðsþjónusta í Kapellunni Lundi, Hellu, kl. 14. Sóknarprestur. SÓLHEIMAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Valdimar Kristjónsson. Sr. Helga Helena Sturlaugsdóttir. SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11. Sókn- arprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Barnasamkoma kl. 11.15 á lofti safn- aðarheimilisins. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu eftir messuna. Morg- untíð þriðjudaga til föstudaga kl. 10. For- eldramorgunn miðvikudaginn 21. sept. kl. 11. Fundurinn fær heimsókn frá hár- greiðslustofunni Mansý. EYRARBAKKAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. HVERAGERÐISKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Fermingarbörn og foreldrar sérstak- lega boðuð. Fundur með fermingarbörn- um og foreldrum strax eftir messu. Barnastarfið byrjar kl. 11. Það verður samhliða almennu guðsþjónustunni 1. og 3. sunnudag hvers mánaðar, en börn- in fara fram í safnaðarheimili fyrir prédik- un og fá fræðslu og sunnudagaskóla- stund við sitt hæfi. Aðra sunnudaga verður sunnudagaskóli kl. 11. Guðspjall dagsins: Jesús læknar á hvíldardegi. (Lúk. 14.) Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Blönduóskirkja, Austur-Húnavatnssýslu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.