Morgunblaðið - 17.09.2005, Side 60
60 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VESTURHEIMI
GARY Doer, forsætisráðherra Manitoba, tilkynnti á
dögunum að fylkisstjórnin myndi verja átta milljónum
dollurum, um 425 milljónum íslenskra króna, í flóða-
varnir við suðurhluta Winnipegvatns á næstu dögum
og vikum, en lýst hefur verið yfir neyðarástandi í
Gimli, Winnipeg Beach og Dunnottar við vesturströnd
vatnsins.
Síðan í júlí hefur yfirborð Winnipegvatns lengst af
verið hærra en eðlilegt er á þessum árstíma og óttast
menn flóð með norðanvindunum í október og nóv-
ember áður en vatnið frýs. Að undanförnu hefur yf-
irborðið verið um 60 sm hærra en eðlilegt er og þó það
lækki eitthvað er flóðahætta mikil.
Haustið 1997 blésu sterkir norðanvindar með þeim
afleiðingum að yfirborðið hækkaði um tæplega tvo
metra og er talið að ástandið geti orðið verra í haust.
Árið 1974 voru byggðir samtals um 100 km varn-
argarðar frá Gimli og suður með vesturströnd vatnsins
og síðan norður með austurströndinni. Byrjað er að
lagfæra þessa garða og byggja nýja. Auk þess er gert
ráð fyrir að koma um 200.000 20 kg sandpokum fyrir á
svæðinu og dælur verða til taks.
„Ég er með flokk af strákum sem eru að höggva tré í
varnargarðinn og nemendur við gagnfræðaskólann í
Gimli og fleiri vinna í sjálfboðaliðsstarfi við að koma
sandpokum fyrir við hús og víðar,“ segir Grétar Ax-
elsson, stöðvarstjóri eldvarna hjá skógrækt Manitoba í
Gimli. Hann bætir við að starfsmenn eldvarnanna vinni
12 tíma á dag við gerð flóðavarnanna. „Hér er hættu-
ástand,“ segir Grétar.
Morgunblaðið/Steinþór
Síðan í júlí hefur Winnipegvatn af og til flætt yfir miðbryggjuna í Gimli og búist er við flóðum síðar í haust.
Ríflega 400 milljónir
króna í flóðavarnir
TÆPLEGA 130 nemendur eru
skráðir í nám hjá íslenskudeild
Manitobaháskóla í Winnipeg í vet-
ur en þeir voru liðlega 50 fyrir
tveimur árum, að sögn dr. Birnu
Bjarnadóttur, prófessors við deild-
ina.
Gífurleg aukning hefur orðið í
fjölda nemenda við íslenskudeild-
ina síðan Birna Bjarnadóttir hóf
þar störf haustið 2003. Auk hennar
kennir Helga Hilmisdóttir íslensku
við deildina, en dr. David Arnason
veitir deildinni forstöðu. „Þegar ég
byrjaði voru liðlega 50 nemendur í
deildinni en fjöldinn hefur meira
en tvöfaldast,“ segir Birna.
Birna segir að nú séu um 50
nemendur í norrænni goðafræði,
um 25 í þjóðsögum og um 15 á
fyrsta, öðru og þriðja ári í tungu-
málinu sjálfu. Fornsögurnar eru
kenndar á vormisseri og eru þegar
um 30 stúdentar skráðir, en þeim
getur fjölgað þegar nær dregur.
Kanadísk-íslenskar bókmenntir
eru líka kenndar á vormisseri og
þar eru tæplega 10 nemendur
skráðir en þeim getur líka fjölgað.
Auk kennslunnar býður deildin
upp á röð fyrirlestra á hverju
starfsári og í fyrrakvöld var til
dæmis Guðbergur Bergsson, rit-
höfundur, með fyrirlestur en í
næstu viku verður hann með fyr-
irlestra í Edmonton, Markerville
og Calgary. „Þetta er eina ís-
lenskudeildin í útlöndum sem nýt-
ur þar að auki stuðning beggja
vegna Atlantshafs og er í lifandi
tengslum við Ísland og íslenska
menningu,“ segir Birna.
Morgunblaðið/Steinþór
Dr. Birna Bjarnadóttir hefur kynnt starfemi íslenskudeildarinnar víða og
nýlega greindi hún frá henni á hátíð í Kinmount í Ontario.
Nemendafjöldi
meira en tvöfaldast
á tveimur árum
● LANDSBÓKASAFNIÐ hefur mynd-
að öll tölublöð blaðsins Lögbergs,
sem gefið var út í Winnipeg í Kan-
ada 1888 til 1959, og eru þau að-
gengileg á Netinu (á slóðinni
www.timarit.is).
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
menntamálaráðherra, heimsótti
blaðið Lögberg –
Heimskringlu í
Winnipeg í vor
sem leið og
greindi þá frá því
að ríkisstjórnin
hefði ákveðið að
láta mynda öll
tölublöð Lög-
bergs, Heims-
kringlu og Lög-
bergs –
Heimskringlu í Landsbókasafninu.
Heimskringla kom fyrst út 1886 og
Lögberg 1888 en blöðin voru sam-
einuð 1959 og hafa síðan komið út
undir nafninu Lögberg – Heims-
kringla.
Skömmu síðar var hafist handa
við að mynda Lögberg og um liðna
helgi voru allir 72 árgangarnir
komnir inn á Netið.
Byrjað er að mynda Heimskringlu
frá 1886 og þegar allt blaðið verð-
ur komið á stafrænt form hefst síð-
asti áfanginn sem er að mynda
Lögberg – Heimskringlu. „Það er
skemmtilegt að skoða gömlu blöð-
in með þessum hætti,“ segir David
Jón Fuller, sem tók við ritstjórn
Lögbergs – Heimskringlu í lok
ágúst.
Lögberg frá
upphafi á Netinu
David Jón
Fuller.
FRÉTTIR
HJÁLPARSTARF kirkjunnar sam-
þykkti á aðalfundi sínum nýlega
stefnu og fimm meginmarkmið til
ársins 2010.
Með vísan til þúsaldarmarkmiða
Sameinuðu þjóðanna og stefnumót-
unar Þjóðkirkjunnar hyggst Hjálp-
arstarf kirkjunnar þrefalda tekjur
sínar á tímabilinu, laga aðstoð við
Íslendinga að þörfum þeirra, efla
tengslanet stofnunarinnar og koma
á langvarandi samvinnu við stjórn-
völd um miðlun fjár til þróun-
arhjálpar og neyðaraðstoðar. Þá
hyggst Hjálparstarfið gera fræðslu
um hjálparstarf að föstum lið í öllu
fræðsluefni þjóðkirkjunnar og
gera stofnunina sýnilegri og þekkt-
ari, þannig að meirihluti þjóð-
arinnar þekki merki hennar og
starf bæði innanlands og utan.
Verkefnum Hjálparstarfs kirkj-
unnar hefur fjölgað mikið á und-
anförnum 10 árum og þau aukist
að umfangi. Starfsmönnum hefur
þó ekki fjölgað. Stofnunin stendur
nú á tímamótum og hyggst leita
allra leiða til að fræða og virkja al-
menning og stjórnvöld til umfangs-
meiri verkefna á sviði þróun-
araðstoðar. Til þess þarf fleira
starfsfólk sem mun einnig gera
Hjálparstarf kirkjunnar að öflugri
talsmanni fátækra landa á al-
þjóðavettvangi, segir í frétta-
tilkynningu.
Hjálparstarfið hyggst
þrefalda tekjurnar
HJARTAVERND hefur gefið út
áfangaskýrsluna „Markaðssetning
óhollrar fæðu sem beint er að börnum
í Evrópu“, en hún er skýrsla fyrsta
áfanga af þremur í verkefninu „Börn,
offita og tengdir langvinnir sjúkdóm-
ar sem má forðast“. Verkefnið er unn-
ið í samvinnu við evrópsk hjarta-
verndarfélög og samtök þeirra með
styrkveitingu frá Evrópusambandinu
en alls koma hjartaverndarsamtök
frá tuttugu löndum Evrópu að verk-
efninu.
Í fyrsta áfanganum var gerð könn-
un á markaðssetningu á matvælum
sem beint er að börnum og hvaða
reglur giltu þar um. Að sögn Vil-
mundar Guðnasonar, forstöðulæknis
Hjartaverndar, voru helstu niður-
stöður þær að mjög mismunandi regl-
ur gildi á milli landa Evrópu, en Ís-
land sé alls ekki verst setta þjóðin í
Evrópu þegar kemur að markaðs-
setningu matvæla sem beint er að
börnum. Vilmundur segir hins vegar
ljóst að frekari rannsókna á málinu sé
þörf og eins sé höfðað til barna og
ungmenna með ýmis matvæli eins og
annars staðar í Evrópu. Í skýrslunni
kemur einnig fram að skilgreina verði
betur hvað óhollur matur sé svo hægt
sé að sporna við offituvandanum.
Markaðssetning óhollrar fæðu sem
beint er að börnum í Evrópu
Frekari rann-
sókna þörf
ÓLAFUR F. Magnússon, borgar-
fulltrúi F-listans, mun flytja tillögu á
borgarstjórnarfundi í næstu viku þar
sem lögð er áhersla á að innanlands-,
sjúkra- og öryggisflug verði áfram á
höfuðborgarsvæðinu og að ekki komi
til greina að flytja Reykjavíkurflug-
völl til Keflavíkur.
Í tillögunni er tekið undir óskir
fólks hvaðanæva af landinu um að all-
ir landsmenn eigi greiðan aðgang að
stærstu sjúkrahúsum þjóðarinnar.
Einnig þurfi að vera mögulegt að
mynda loftbrú til og frá höfuðborg-
arsvæðinu vegna náttúruhamfara eða
mengunarslysa. Í greinargerð segir
Ólafur m.a. að það séu augljósir hags-
munir íbúa höfuðborgarsvæðisins að
flugvöllur sé staðsettur þar. Það varði
í senn atvinnutækifæri, þjónustu,
samgöngur og öryggismál á svæðinu
um leið og það tryggi grundvöll inn-
anlandsflugs. Flugrekstraraðilar telji
að innanlandsflug legðist að mestu
niður við flutning á starfsemi Reykja-
víkurflugvallar til Keflavíkur en við
það myndi umferð og slysahætta
aukast verulega á vanbúnum þjóð-
vegum landsins.
Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista
Segir útilokað að
flytja innanlandsflug
til Keflavíkur
STJÓRN Geðhjálpar fagnar 1,5
milljarða framlagi ríkisstjórn-
arinnar á næstu 5 árum til þess að
byggja húsnæði og bæta endurhæf-
ingarúrræði handa geðsjúkum.
„Framlagið markar tímamót í
málefnum geðsjúkra á Íslandi, sem
hafa því miður allt of lengi setið á
hakanum í uppbyggingu hins ís-
lenska velferðarsamfélags. Stjórn
Geðhjálpar væntir þess einnig að
leitað verði til Geðhjálpar og ann-
arra notenda um fyrirhugaða upp-
byggingu, en sú ósk er í fullu sam-
ræmi við evrópska aðgerðaáætlun í
geðheilbrigðismálum og yfirlýsingu
evrópskra ráðherra um geðheil-
brigðismál frá því í janúar 2005,“
segir í yfirlýsingu stjórnarinnar.
„Tímamót
í málefnum
geðsjúkra“
Sýning í Fold
opnuð kl. 15
Rangt var farið með tímasetningu
á opnun sýningar Haraldar (Harry)
Bilsons í Galleríi Fold í blaðinu í
gær. Rétt er að sýningin verður opn-
uð kl. 15 í dag, laugardag. Beðist er
velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT
ÞINGMENN og aðrir forystumenn
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs munu í byrjun næstu viku
sækja Suðurnes heim og meðal ann-
ars fara á vinnustaði, skóla og fleiri
stofnanir. Þá verður einnig boðið til
fundarhalda en á mánudag 19. sept-
ember verða Ögmundur Jónasson,
Jón Bjarnason, Þuríður Bachman,
Dögg Hugosdóttir og Katrín Jak-
obsdóttir í Vitanum í Sandgerði og
er bæjarbúum boðið í létt kaffispjall
sem hefst kl. 17.30.
Á sama tíma sitja fyrir svörum
Kolbrún Halldórsdóttir, Stein-
grímur J. Sigfússon, Svandís Svav-
arsdóttir og Dagur Snær Sævarsson
á Saltfiskssetrinu í Grindavík.
Heimsókninni lýkur svo með opn-
um stjórnmálafundi í Ingimund-
arbúð á Ránni í Keflavík þriðjudags-
kvöldið 20. september kl. 20 þar sem
meðal annars verða rædd málefni
Suðurnesja.
Vinstri grænir
heimsækja
Suðurnes