Morgunblaðið - 17.09.2005, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 63
DAGBÓK
Traustur kaupandi óskar eftir 120-160 fm raðhúsi á einni hæð í
Fossvogi. Góður afhendingarfrestur. Sterkar greiðslur í boði.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali.
RAÐHÚS Í FOSSVOGI ÓSKAST
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Traustur kaupandi óskar eftir 110-140 fm sérhæð á framan-
greindum svæðum. Afhendingartími eftir samkomulagi. Sterkar
greiðslur í boði.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali.
SÉRHÆÐ VIÐ ÆGISÍÐU EÐA
Í ÞINGHOLTUNUM ÓSKAST -
STAÐGREIÐSLA
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Þórarinn B. Þorláksson
óskast
Óska eftir mynd eftir Þórarinn B. Þorláksson.
Tilbúinn að greiða gott verð fyrir „réttu myndina“.
Svör sendist til auglýsingadeildar Mbl. eða í
box@mbl.is merkt: „Þórarinn - 17676“
Dagar íslensks prentiðnaðar verða haldnir22. og 23. september. Dagskráin erverkefni prentsmiðja innan Samtakaiðnaðarins, Prenttæknistofnunar, Fé-
lags bókagerðarmanna, Ljósmyndarafélags Ís-
lands og fleiri hagsmunaaðila og fagfélaga í upplýs-
inga- og fjölmiðlagreinum. Efnt verður til
ráðstefnu í tengslum við Daga íslensks prentiðn-
aðar í Salnum í Kópavogi og er viðfangsefni hennar
bein markaðssókn og nýjungar við miðlun upplýs-
inga.
Virtir fyrirlesarar, innlendir og erlendir, koma
fram og er boðið upp á námstefnur síðari daginn,
þar sem erlendu fyrirlesararnir fara dýpra ofan í
viðfangsefni sín á ráðstefnunni. Meðal þeirra eru
Donald G. Krause, höfundur metsölubókarinnar
The Art of War for Executives, og José M. Pons,
prófessor við IESE-háskólann í Barcelona til 14
ára og stjórnarformaður markaðsráð-
gjafarfyrirtækisins AXIOMA. Innlendu fyrirles-
ararnir eru Baldur Þorgeirsson, framkvæmdastjóri
framleiðslusviðs Prentsmiðjunnar Odda hf., Orri
Hauksson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Sím-
ans, Sólveig Hjaltadóttir, deildarstjóri söludeildar
TM og leiðbeinandi hjá Endurmenntunarstofnun
HÍ, og sýnt verður viðtal við Ólafur Jóhann Ólafs-
son, rithöfundur og aðstoðarforstjóri Time Warner,
sem tekið var í New York. Að erindunum loknum
verður efnt til pallborðsumræðna. Þátttakendur
verða m.a. Sigmundur Ernir Rúnarsson, frétta-
stjóri Stöðvar 2, Sigurður G. Guðjónsson, stjórn-
arformaður Blaðsins, Styrmir Gunnarsson, ritstjóri
Morgunblaðsins, og Þorgeir Baldursson, forstjóri
Prentsmiðjunnar Odda.
Haraldur Dean Nelson, upplýsingastjóri Sam-
taka iðnaðarins, segir að fáar ef nokkrar greinar
hafi tekið jafnstórstígum breytingum og prentiðn-
aður. „Tæknibreytingar hafa t.a.m. verið mjög örar
og menn hafa mátt hafa sig alla við að fylgjast með.
Starfsemi prentfyrirtækja hefur breyst þannig að í
stað framleiðslu á prentvöru, ef svo má að orði
komast, eru þau orðin það sem ég vil kalla há-
tæknivædd þjónustufyrirtæki. Þetta hefur ekki
gerst í einni svipan, en við höfum þurft að bregðast
við þessu breytta hlutverki, ásamt fyrirtækjunum
sjálfum. Markaðsstarf er stór þáttur í starfseminni
og því eru markaðssókn og nýjungar viðfangsefni
ráðstefnunnar, enda horfa menn til þess hver fram-
tíðin er í greininni. Hvað prentiðn varðar líta Sam-
tök iðnaðarins sífellt meira til þjónustu við upplýs-
inga- og fjölmiðlagreinar í heild, það er ekki bara í
prenti heldur útgáfustarfsemi og auglýsinga-
starfsemi. Þær greinar eru að skarast æ meira og
renna saman,“ segir hann. Ráðstefnan er öllum op-
in en tilkynna þarf þátttöku á vefsetri SI, www.si.is,
fyrir 20. september.
Prentþjónusta | Ráðstefna um markaðssókn og nýjungar haldin í Salnum í Kópavogi
Framtíð prentiðnaðar rædd
Haraldur Dean Nel-
son er úr Keflavík og
útskrifaðist frá
Menntaskólanum á
Akureyri 1987. Hann
starfaði meðal annars
sem lögreglumaður og
kennari um tíma og
lauk BA-prófi í sagn-
fræði og íslensku árið
1994. Haraldur er
upplýsingastjóri SI og
stjórnarformaður Prenttæknistofnunar.
Hann er kvæntur Guðrúnu Huldu Gunn-
arsdóttur sjúkraliða og stúdent frá MA. Þau
eiga Gunnar Lúðvík Nelson og Maríu Dögg
Nelson.
Afturför í kennslu
grunnskólabarna
ÉG er mjög ósátt við ýmislegt sem
börnunum okkar er kennt nú til dags.
T.d. í reikningi eru þau með bækur
sem heita Geisli sem mér finnst vera
rugl og margir kennarar eru mjög
mikið á móti. En þetta er bara það
sem þeir eiga að kenna þó að þeir
skilji það ekki sjálfir. Þegar mín börn
voru í barnaskóla urðu þau að læra
mengi en þeirri kennslu var sem bet-
ur fer hætt því hún skilaði ekki góð-
um árangri. Skriftin er mjög áferð-
arljót, hún kallast tengiskrift. Sumir
stafir eru prentstafir en aðrir skrif-
stafir. Þetta er ekki mjög læsilegt og
líkist helst læknaskrift. Þriðja atriðið
sem ég er ósátt við er réttritunin.
Börnin skrifa oft ritgerðir sem kenn-
arinn fer yfir og lætur hann börnin
ekki vita um stafsetningarvillur.
Kennararnir skrifa bara gott eða
ágætt en leiðrétta hana ekki.
Ég fór í búð um daginn og keypti
tvö stykki af hlut sem kostaði 15
krónur. Konan fór í vélina og reiknaði
út upphæðina. Nokkrum dögum síðar
fór ég aftur og keypti 20 stykki af 15
króna hlutnum, þá var karlmaður við
afgreiðslu og er hann sagður eigandi
verslunarinnar. Hann þurfti líka að
fara í reiknivélina. Hvert stefnum
við?
Amma í Reykjavík.
Ökuskírteini
MÉR er alveg ómögulegt að skilja af
hverju lögreglustjóraembættið er
ekki með aðstöðu til þess að taka
myndir af fólki fyrir ökuskírteini,
myndin myndi þá fara beint inn í
kerfið hjá þeim og þeir þyrftu ekki að
standa í því að skanna hana inn eða
prenta út. Veit ég að þetta tíðkast
víða erlendis og ekki er tekið við
myndum sem fólk kemur með sjálft.
Einnig þyrftu íslensk ökuskírteini
að vera bæði á ensku og íslensku, það
er miklu algengara að Íslendingar
þurfi að sýna ökuskírteinið á ferða-
lögum erlendis en hér heima, t.d. þeg-
ar verið er að leigja bílaleigubíl.
K.S.
Vantar skemmtikrafta
ÖRYRKJAR í húsum Öryrkjabanda-
lagsins á Hátúnssvæðinu efna til
Gospelkvölds síðasta fimmtudag í
hverjum mánuði.
Okkur bráðvantar skemmtikrafta
sem vilja vinna fyrir okkur í sjálf-
boðavinnu. Eru ekki einhverjir
skemmtikraftar sem vilja leggja okk-
ur lið? Það væri vel þegið. Svipað
ákall var í Morgunblaðinu fyrir ári en
bar ekki mikinn árangur. Vonumst
eftir betri árangri nú.
Gunnar G. Bjartmarsson.
Villi er
týndur
VILLI týndist frá Hagamel og er
hans sárt saknað.
Hann er grá-
bröndóttur og
eyrnamerktur
1271. Þeir sem vita
um Villa eru beðn-
ir að hafa samband við Sigurlaugu í
síma 662-1045 eða 860-8014.
Grábröndótt læða í óskilum
GRÁBRÖNDÓTT læða með grárri
rönd á baki fannst við Týsgötu sl.
fimmtudagskvöld. Þeir sem kannast
við kisa vinsamlega hafið samband í
síma 894 4277.
Páfagaukur týndist
DÍSARPÁFAGAUKUR týndist frá
Stífluseli sl. fimmtudag. Þeir sem
hafa orðið varir við fuglinn hafi sam-
band í síma 692 8523.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
90 ÁRA afmæli. 19. september nk.verður níræður Kristmann
Jónsson, Hofslundi 4, Garðabæ. Hann
tekur á móti vinum og vandamönnum á
heimili sínu í dag, laugardag, milli kl.
15 og 18.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Hlutavelta | Þær Ylva Örk og Ásta héldu tombólu og söfnuðu þær 2.389 kr. til
styrktar Rauða krossi Íslands.
Baráttuvilji.
Norður
♠G93
♥ÁKDG N/Allir
♦962
♣ÁKD
Suður
♠Á74
♥653
♦G87
♣G832
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 lauf Pass 1 grand
Pass 3 grönd Allir pass
Þrjú grönd er eðlileg niðurstaða, en
ekki er samningurinn góður. Út kemur
spaðasexa, fjórða hæsta. Hvernig er
best að spila?
Ef málið snerist eingöngu um spað-
ann væri rétta íferðin sú að setja níuna
úr borði. Þannig má tryggja aukaslag á
litinn þegar útspilið er frá K10 eða D10,
en ef gosanum er stungið upp þarf vest-
ur að eiga KD. Líkurnar eru því tveir á
móti einum níunni í hag. En hér hangir
auðvitað fleira á spýtunni – tígullinn er
galopinn og að öllum líkindum getur
vörnin hirt þar fjóra slagi ef hún kemst
að, svo besti möguleiki sagnhafa er að
stinga upp spaðagosanum.
En segjum nú að austur eigi kóng eða
drottningu. Hvað þá?
Norður
♠G93
♥ÁKDG
♦962
♣ÁKD
Vestur Austur
♠K10862 ♠D5
♥92 ♥10874
♦10543 ♦ÁKD
♣94 ♣10765
Suður
♠Á74
♥653
♦G87
♣G832
Þá er uppgjöf freistandi, en sannir
baráttumenn reyna til þrautar og spila
upp á draumaleguna að ofan. Spaða-
drottningin er dúkkuð og nú verður
austur að taka tígulslagina þrjá áður en
hann heldur áfram með spaðann. En
það er ekki sjálfgefin vörn og ef austur
geymir svo mikið sem einn tígul, verður
honum spilað þar inn í endastöðunni. Í
síðasta slag á austur lauftíuna eftir og
verður að gefa suðri slag á gosann.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
50 ÁRA afmæli. Í dag, 17. sept-ember, verður fimmtugur Þor-
björn Ágúst Erlingsson, kvikmynda-
fræðingur, Rauðarárstíg 22,
Reykjavík. Hann verður að heiman í
dag.