Morgunblaðið - 17.09.2005, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 65
MENNING
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Dalbraut 18 – 20 | Félagsstarfið er
öllum opið kl. 9–16. Fastir liðir eins
og venjulega. Skráning stendur yfir í
postulíns- og framsagnarnámskeið.
Komdu í heimsókn, kíktu í blöðin,
fáðu þér kaffisopa og kynntu þér
haustdagskrána. Við getum líka sent
þér netbréf. Síminn okkar er
588 9533.
Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka
daga kl. 9–16.30 er fjölbreytt dag-
skrá opin fólki á öllum aldri. Unnið er
við frágang á vetrardagskrá, óskir
og ábendingar vel þegnar. Veitingar í
hádegi og kaffitíma í Kaffi Berg. All-
ar uppl. á staðnum og í síma
575 7720 og www gerduberg.is.
Hraunsel | Pútt á Vallarvelli kl. 10–
11.30.
Hæðargarður 31 | Félagstarfið er
opið öllum 9–16. Fastir liðir eins og
venjulega. Skráning á tölvu-, listþæf-
ingar- og framsagnarnámskeið
stendur yfir. Ef þú vilt hitta
skemmtilegt fólk þá kíktu við, fáðu
þér kaffisopa, líttu í dagblöðin og
skoðaðu haustdagskrána. Við getum
líka sent þér netbréf. Síminn er
568 3132.
Kirkjustarf
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Kl. 9–
15 verður vinnu- og tiltektardagur.
Við viljum hvetja alla til að mæta.
Hádegisverður fyrir þá sem leggja
hönd á plóginn. www.gospel.is
Bænastund kl. 20.
KFUM og KFUK | Fundir hjá KFUM
og KFUK á Holtavegi 28. Framhalds-
aðalfundur KFUM og KFUK í Reykja-
vík kl. 13 og í beinu framhaldi kl. 14
stofnfundur KFUM og KFUK á Ís-
landi. Hátíðarkaffi á eftir. Allir fé-
lagsmenn KFUM og KFUK velkomnir.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 Re7 5.
Bd3 c5 6. a3 Bxc3+ 7. bxc3 Rbc6 8. Dg4
c4 9. Be2 Rf5 10. a4 Da5 11. Bd2 Bd7 12.
Dh5 h6 13. Bg4 g6 14. Dh3 0-0-0 15. Re2
Rce7 16. 0-0 Bxa4 17. Hfb1 b5 18. Bc1
Hdg8 19. Df3 Dc7 20. h4 g5 21. h5 Bxc2
22. Hxb5 Be4 23. Dh3 Kd7 24. Ba3 Hb8
25. Bd6 Rxd6 26. exd6 Kxd6 27. Ha6+
Kd7
Staðan kom upp á franska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í
Chartres. Amir Bagheri (2.537) hafði
hvítt gegn Manuel Apicella (2.553). 28.
Bxe6+! fxe6 29. Dxe6+ Ke8 30. Hc6! Án
þessa leiks hefði fórnin vart gengið upp.
30. … Dd8 31. De5! Hxb5 32. Dxh8+
Kd7 33. Hd6+! Kxd6 34. Dxd8+ hvítur
hefur nú gjörunnið tafl. 34. … Ke6 35.
Rg3 Bc2 36. Kh2 Hb6 37. Da8 a6 38.
Rf1 Bd1 39. f3 Hb2 40. Dxa6+ Kf7 41.
Da1 og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Í LISTASAFNI Íslands verða á
morgun, sunnudag, tónleikar El-
ínar Halldórsdóttur sópr-
ansöngkonu.
Tónleikarnir
bera yfirskrift-
ina „Gullkorn“
en Elín mun
syngja íslensk og
þýsk ljóð eftir
ýmsa höfunda.
Má þar nefna
verk eftir Sigfús
Einarsson, Jón
Þórarinsson, Pál
Ísólfsson, Gylfa
Þ. Gíslason, Robert Schumann, Jo-
hannes Brahms og Richard
Strauss.
Um undirleik sér Jörg Sonderm-
an, konsertmeistari og píanóleik-
ari.
Elín hefur búið og starfað í Re-
gensburg í Þýskalandi síðustu 3 ár
en er nú flutt þaðan. Auk margs
konar söngverkefna starfaði hún
þar m.a. sem kórstjóri gosp-
elkórsins Spirit of Joy og kvenna-
sveitarinnar Femmes Fatales sem
hún setti á laggirnar í samvinnu
við sína bestu einkanemendur.
Tónleikarnir annað kvöld hefj-
ast kl. 20.
Elín Halldórs-
dóttir á tónleikum
í listasafni
Elín
Halldórsdóttir
Í SAFNAHÚSINU á Húsavík opnar
í dag listamaðurinn Guðmundur
Ármann sýningu á verkum sínum.
Sýningin ber
yfirskriftina „Lá-
rétt birta“ og
getur þar að líta
46 verk, bæði
málverk, trérist-
ur og kolateikn-
ingar sem Guð-
mundur hefur
unnið á síðustu
þremur árum.
Viðfangsefni
Guðmundar er
náttúran en myndir hans eru, eins
og segir í tilkynningu, óhlutlægar
þar sem hefðbundið mótíf er horfið
og eftir standa láréttir litaborðar
sem fljóta frjálst í myndfletinum.
Sýning Guðmundar stendur til
sunnudagsins 25. september og er
hún opin daglega frá kl. 14 til 18.
Guðmundur Ármann
í safnahúsinu
Guðmundur
Ármann
HELGA Ármanns opnar í dag sýn-
ingu í Grafíksafni Íslands – sal Ís-
lenskrar grafíkur.
Er þetta þriðja einkasýning
Helgu en hún á að baki fjölda sam-
sýninga bæði hérlendis og erlendis.
Á sýningunni gefur að líta klippi-
og rifrildisverk, eins og það er orð-
að í tilkynningu, lituð með kolum
og rauðkrít. Eru verkin unnin úr
margskonar pappír sem spannar
allt frá handgerðum gæðapappír til
tímarita og dagblaða.
Helga útskrifaðist frá graf-
íkdeild Myndlista- og handíðaskól-
ans árið 1986 og starfrækti ásamt
öðrum listakonum gallerí og vinnu-
stofuna Art-Hún í Stangarhyl 7 í
Reykjavík frá 1988 til 2000.
Grafíksafn Íslands er til húsa í
Tryggvagötu 17, hafnarmegin.
Sýningin stendur til 2 október og
er opin frá fimmtudegi til sunnu-
dags frá 14 til 18.
Eit verka Helgu Ármanns.
Klippimyndir og rifrildi
TÓNAR munu óma um Sauð-
árkrókskirkju annað kvöld
en þá munu Alexandra
Chernyshova sópran og
Gróa Hreinsdóttir píanóleik-
ari halda tónleika.
Á efnisskrá er 20. aldar
kirkjutónlist og kunn verk
úr óperum eftir tónskáld á
borð við Lehár, Rachm-
aninov og Bellini.
Hilmar Jónsson, rithöf-
undur og tengdafaðir Alex-
öndru, verður kynnir á tón-
leikunum auk þess sem hann
les eigin ljóð milli söng-
atriða.
Tónleikarnir hefjast kl. 16
og kostar aðgangur kr 1.000
en 500 fyrir 16 ára og yngri
og eldri borgara.
Alexandra hefur opnað
heimasíðu www.simnet.is/
chernyshova.
Chernyshova á Sauðárkróki
Alexandra Chernyshova.
KÁTT verður á hjalla í Stúd-
entakjallaranum í kvöld en þá
heldur hljómsveitin Days of our
Lives tónleika ásamt hljómsveit-
unum Reykjavík! og Hoffman.
Piltarnir úr Days of our Lives
eru á leið til Englands í kynn-
ingar- og tónleikaferð og eru tón-
leikarnir haldnir sérstaklega af því
tilefni. Hefjast tónleikarnir klukk-
an kl. 22 og er aðgangur að þeim
ókeypis.
Hljómsveitin Days of our Lives.
Kveðjutónleikar Days of our Lives
STRAUMAR er yfirskrift sýn-
ingar sem verður opnuð í dag í
Galleríi 100° í húsi Orkuveit-
unnar.
Á bak við sýninguna standa
listakonurnar Guðbjörg Lind
Jónsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir
og Kristín Jónsdóttir frá Munka-
þverá. Eins og segir í tilkynningu
spinna þær á sýningunni saman
þræði sína um íslenska náttúru,
árfarvegi, fjallshlíðar og mosaeyj-
ar. Á sýningunni gefur að líta
verk með margskonar aðferð:
teikningar, málverk, mosaverk,
lágmyndir og hreyfimyndir unnar
sérstaklega fyrir sýningarrýmið.
Þetta er fjórða sýningin sem
Guðbjörg, Guðrún og Kristín
halda saman en þær sýndu fyrst
saman árið 2001 í listasalnum Man
í Reykjavík. Stofnuðu þær
skömmu síðar sýningarhópinn
Andrá (Moment).
Sýningarstjóri Strauma er
Oddný Eir Ævarsdóttir sem jafn-
framt skrifar leiðarvísi um lands-
lag sýningarinnar. Á döfinni hjá
hópnum er sýning í Þjóðminja-
safninu árið 2006.
Straumar í Orkuveituhúsinu
Laugardagur
17. september
15.00. Eftirmiðdagsspjall í
Norræna húsinu.
Lars Saaby Christensen, Einar
Már Guðmundsson, Karin
Wahlberg, Ævar Örn Jós-
efsson, Roy Jacobsen, Einar
Kárason (á skandinavísku).
Bókmenntahátíð
AF óviðráðanlegum ástæðum frest-
ast tónleikar Kvennakórs Reykja-
víkur sem vera áttu í Breiðholts-
kirkju laugardaginn 17. september
kl. 17, um tvær vikur. Tónleikarnir
verða á sama stað laugardaginn 1.
október kl. 17. Þar verður fagnað
útgáfu á nýjum geisladiski kórsins
„Konum“.
Tónleikum Kvennakórs
Reykjavíkur frestað
KOMIN er út hjá
Máli og menningu
bókin Frost eftir
Roy Jacobsen í
þýðingu Stefáns
Hjörleifssonar.
Roy Jacobsen er
með vinsælli
skáldsagnahöf-
undum Noregs og
hefur í tvígang verið tilnefndur til Nor-
rænu bókmenntaverðlaunanna, í
seinna skiptið fyrir skáldsöguna sem
nú er komin út. Segir sagan frá Gesti
Þórhallssyni sem þrettán ára hefnir
föður síns og banar Víga-Styr, einum
voldugasta manni Íslands í upphafi
11. aldar. Flýr hann í kjölfarið land og
hrekst um héruð Noregs og fer með
mönnum Danakonungs og Eiríks Jarls í
herför til Englands.
Bókin er 491 bls. og kostar á til-
boðsverði 3.990 kr.
Ray Jacobsen er þátttakandi í Bók-
menntahátíð sem haldin er í Reykjavík.
Söguleg skáldsaga