Morgunblaðið - 17.09.2005, Síða 67

Morgunblaðið - 17.09.2005, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 67 MENNING GESTIR Minjasafnsins á Akureyri hafa í sumar notið þess að Gunn- laugur P. Kristinsson var með myndavél sína á lofti um áraraðir við hin ýmsu tækifæri í bænum. Sýning á ljósmyndum sem Gunn- laugur tók á árunum 1955 til 1985 stendur yfir í safninu og hefur feng- ið góðar viðtökur. „Ég er orðinn hálfskakkur í annarri öxlinni því ég hef fengið svo mikið klapp á hana vegna sýningarinnar, “ segir Gunn- laugur í léttum dúr þegar Morg- unblaðið sækir hann heim. „Þetta hefur komið mér mjög á óvart en ég er jafnframt ákaflega stoltur.“ Sýningunni, sem ber yfirskriftina Myndir úr lífi mínu, lýkur í dag og verður Hörður Geirsson, starfs- maður safnsins, með leiðsögn um hana af því tilefni milli kl. 14. og 16. Venjulegt fólk Gunnlaugur var iðinn við að mynda fólk við hversdagleg störf, ekki síst eitt og annað sem tengdist starfsemi Kaupfélags Eyfirðinga en hann var starfsmaður KEA í 40 ár. Ýmis starfanna eru yngri kynslóð nútímamannsins framandi og því góð heimild um liðinn tíma. Þarna eru mörg skemmtileg augnablik; t.d. úr iðnaðarhúsnæði KEA í Gilinu, þar sem Listagilið er nú; þarna er Níels „Nelli“ Halldórsson að búa til brjóstsykur, konur að pakka inn smjörlíki og fólk að bar- dúsa í Flóru, Sjöfn og mjólk- ursamlaginu. Á veggjum Minjasafnsins má einnig sjá ungar stúlkur með mjólk- urkassa (!) á sparksleða fyrir utan KEA-búð, ungan dreng máta föt í Herradeild KEA, bakara útbúa rjómabollur, fólk á leið upp rúllu- stigann í stórverslun KEA við Hafn- arstræti. Og svo alls kyns mannlífs- myndir af ýmsum stöðum í bænum. Gunnlaugur svarar neitandi, þeg- ar spurt er hvort hann hafi smitast ungir af ljósmyndadellunni. „Ekki að því ég best man. Mamma átti myndavél sem ég fékk stundum að nota, stóra 6x11 kassavél. Það var það fyrsta. Svo fékk ég einhverja „millivél“ þar til ég eignaðist Super Ikonta vél, 6x6, sem ég notaði alla tíð síðan. Myndirnar á sýningunni eru til dæmis allar teknar á hana.“ Gunnlaugur tók langmest í svart- hvítu, átti stækkara og vann mynd- irnar sjálfur. Hann var farinn að mynda töluvert áður en hann hóf störf hjá KEA en þegar þangað var komið jókst notkun vélarinnar. „Mér varð oft hugsað til þess þegar einhverjar breytingar voru fram- undan að nauðsynlegt væri að festa það gamla á filmu. Mig grunaði ein- hverra hluta vegna að breyting- arnar yrðu miklar og að síðar meir myndi margur verða forvitinn um það hvernig hlutirnir hefðu litið út áður. Og ég hef orðið áþreifanlega var við að svo er. Margir hafa farið oftar en einu sinni á sýninguna.“ Á sýningunni er mynd af krökk- um hangandi aftan í bíl; „hann Hörður á Minjasafninu sagði mér að þetta væri kallað að teika. Ég teik- aði aldrei bíl en ég hékk stundum aftan í þeim þegar ég var strákur!“ segir Gunnlaugur. Ein myndin er svo af dóttur hans að elta pissubíl- inn, sem Akureyringar kölluðu svo. Gunnlaugur tók líka myndir af húsum og bæjarhlutum. „Ég tók til dæmis myndir af túnunum ofan við bæinn, þar sem Lundahverfið er nú. Þá var þar enginn byggð.“ „Gunborg motionerar“ Veggspjald vegna sýningarinnar var útbúið og á því er mynd af eig- inkonu Gunnlaugs, hinni sænsku Gunborg, sem nú er látin. „Gunborg motionerar“ stendur á filmuumslagi Gunnlaugs, og að myndin sé tekin 30. júní 1962. kl. 19.00. „Henni fannst nú stundum nóg um hvað ég var mikið með myndavélina á lofti! Þessi mynd er tekin heima í Norð- urbyggðinni. Hún stillti sér ekkert upp; hafði gaman að grípa í sippu- bandið og ég festi atvikið á filmu. Mér þykir mjög ánægjulegt að sjá núna hvað myndin hefur tekist vel.“ Gunnlaugur telur sig eiga 16-17 þúsund myndir í filmusafni sínu, en líklega sé þar ekki allt talið. „Ég er enn að rekast á filmur í dótinu mínu.“ Filmusafn hans er nú komið á Minjasafnið til varðveislu. „Ég er afar ánægður með að Hörður minn skyldi setja upp sýninguna og að filmurnar mínar skuli vera á safn- inu, aðgengilegar fyrir aðra í fram- tíðinni,“ segir Gunnlaugur. Ljósmyndir | Myndir Gunnlaugs P. Kristinssonar sýndar í Minjasafninu á Akureyri Akureyringar hvunndags Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Gunnlaugur: Orðinn hálf skakkur í annarri öxlinni... „Gunborg motionerar“ Eiginkona Gunnlaugs, hin sænska Gunborg, sippar fyrir utan heimili þeirra í Norðurbyggðinni 30. júní 1962 kl. 19.00. Þetta er ein myndanna á sýningu Gunnlaugs í Minjasafninu á Akureyri. SMÁSAGAN Manntafl eftir Stefan Zweig, er hiklaust ein af perlum skáldverka tuttugustu aldarinnar. Hún er uppgjör snillings af gyð- ingaættum við nasisma Hitlers, sem hafði lagt undir sig hans heimaland. Hún er uppgjör við stríð og hörm- ungar þess, ómennskt ofbeldið og niðurlægingu mannanna. En, eins og öll góð skáldverk, er hún óend- anlega rík af áleitnum spurningum. Í kvöld frumsýnir leikhópurinn Þíbilja leikgerð Þórs Tulinius af Manntafli á nýuppgerðu Nýja sviði Borgarleikhússins. Leikgerð Þórs er einleikur, í flutningi hans sjálfs, en Hilmir Snær Guðnason leikstýrir. Þór Tulinius las Manntafl fyrst um tvítugt, og segir söguna hafa haft mikil áhrif á sig og setið í sér. En hvers vegna kaus hann að beita einleiksforminu við túlkun hennar. „Ég hef verið að velta einleikjum fyrir mér, og var jafnvel að hugsa um að leikstýra öðrum í þannig verki. En svo vaknaði löngunin hjá mér að leika einleik sjálfur. Í Leik- listarskólanum fékk maður ein- staklingsverkefni og það þótti mér alltaf mjög gaman. Einu sinni fékk ég Kristínu Bjarnadóttur til að semja fyrir mig einþáttung, og mér fannst gaman að fá að vinna þannig verkefni alveg frá grunni. Nú er ég búinn að vera í þessum bransa í tutt- ugu ár og vinna mikið með fólki, en var farið að langa til að snúa mér aftur að þessu upphafi, ef svo má segja. Í einleiknum er maður að leika á móti sjálfum sér, og tala á móti sjálfum sér. Og það sem er ein- mitt svo áhugavert við það að nota einleiksformið á þessa sögu er að önnur aðalhetjan fer að tefla við sjálfa sig, og lendir í þessu sama geðklofa ástandi og leikarinn er í, í einleiknum.“ Ókunnur maður ögrar heimsmeistaranum í skák Sögumaður Zweigs er á leið til Argentínu með stóru farþegaskipi, og uppgötvar að Csentovic, hinn nýkrýndi heimsmeistari í skák, er með í för. Sá ku vera hinn mesti sveitadurgur, og stíga ekki í vitið, þó hann hafi þessa einstöku skákgáfu. Það orð fer af honum að hann sé hrokafullur og hinn mesti durtur í mannlegum samskiptum. Sögumað- ur okkar, sem hefur sérstakan áhuga á einrænum furðufuglum, skipuleggur fjöltefli við Csentovic, til að komast í námunda við hann. Heimsmeistarinn vinnur hverja skákina af annarri, og er hópurinn orðinn heldur hnípinn, þegar þeim finnst allt í einu eins og staða þeirra sé orðin vænleg. Þeir eru að fara leika það sem þeir vona að sé snilld- arleikur, þegar ókunnugur maður, dr. B, sem bæst hefur í hópinn, var- ar þá við þeim leik. Ókunni mað- urinn reynist hafa mikla innsýn í skákina, og sér átta leiki fram í tím- ann. Hann leiðir þá í gegnum leikinn og þeir ná jafntefli. Hann skorast undan því að tefla einn við heims- meistarann, verður taugaveiklaður og feiminn, og lætur sig hverfa. Sögumaðurinn fer á eftir honum til að fá hann til að tefla skák, sem gæti orðið sögufræg, ef honum tækist að vinna heimsmeistarann. Ókunni maðurinn segist ekki hafa teflt í 25 ár, en vegna sérstakra aðstæðna hafa hann kynnst fræðilegri hlið skáklistarinnar og segir sögumann- inum magnaða sögu sína. Brast þolinmæði að bíða birtu Þór segir að það búi margt í Manntafli og að sagan sé saga alls konar fólks, með alls konar örlög. „Zweig skrifaði söguna stuttu áður en hann svipti sig lífi með konu sinni. Hann skildi eftir sig bréf þar sem hann sagði að hann brysti þol- inmæði til að bíða eftir því að birti til í heiminum. Þetta var 1942, Zweig flóttamaður frá eigin föðurlandi og nasisminn í algleymingi. Sagan stendur fullkomlega fyrir sínu, þótt þessi vitneskja sé ekki til staðar þegar maður les hana, en óhjá- kvæmilega dýpkar sagan fyrir þann sem veit. Þessar manneskjur geta verið persónugervingar þeirra afla sem voru í gangi. En það er fleira. Það er til dæmis mjög áhugavert fyrir okkur að spegla okkur í örlög- um Dr.B, og velta því fyrir okkur hvernig við myndum bregðast við í hans erfiðu kringumstæðum. Verkið er líka stórkostleg lofgjörð til skák- listarinnar, eins og Guðmundur G. Þórarinsson benti á í grein sinni í blaðinu um daginn. Enn ein hliðin snýr að fíkn. Þarna er fjallað um mann sem verður heltekinn af ár- áttu og fíkn. Ég hef hvergi rekist á betri lýsingu í bókmenntaverki á því hvernig fíkn grípur manneskju. Maðurinn er allur af vilja gerður til að verða fíkninni ekki að bráð, er fluggreindur og klár, en missir alveg stjórn á sér.“ Þór segir þýðingu Þórarins Guðnasonar frábæra, og ná vel stíg- andinni í sögunni. „Það er alveg magnað hvernig Zweig byggir upp spennuna í þessu verki, - hvernig hún stigmagnast alveg frá upphafi til enda og heldur manni föstum.“ Var Dr. B Íslendingur? Til eru þeir sem hafa haldið þeirri kenningu á lofti að fyrirmynd að persónunni Dr. B, hafi Zweig fengið á ferðum sínum til Boston, þar sem hann heyrði sögu Íslendingsins Björns Pálssonar Kalman, sonar Páls Ólafssonar skálds, sem mun hafa verið óvenju leikinn skákmaður en ku hafa teflt yfir sig, eins og söguhetja Zweigs. Guðmundur G. Þórarinsson fjallaði um þessi hugs- anlegu Íslandstengsl í fyrrnefndri grein sinni á dögunum, en einnig má benda á grein Garðars Sverrissonar um sama efni í Morgunblaðinu í september 1982. Leiklist | Manntafl eftir Stefan Zweig frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins annað kvöld Mannleg örlög og mögnuð spenna í margræðu verki Þór Tulinius: „Verkið er uppgjör við stríð og niðurlægingu mannanna.“ eftir Stefan Zweig Þýðing: Þórarinn Guðnason Leikur og leikgerð: Þór Tulinius Tónlist og hljóð: Davíð Þór Jónsson Leikmynd: Rebekka Rán Samper Lýsing: Kári Gíslason Sýningarstjóri: Christopher Astridge Leikstjóri: Hilmir Snær Guðnason Manntafl Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.