Morgunblaðið - 20.09.2005, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRAMBOÐIÐ STENDUR
Davíð Oddsson utanríkisráðherra
átti í gær fund með starfsbræðrum
sínum á Norðurlöndum, sem komnir
eru til að sitja allsherjarþing SÞ í
New York. Davíð var m.a. spurður
um framboð Íslands til setu í örygg-
isráðinu og sagðist hann hafa sagt
þeim að ákvörðunin um framboð
myndi að öllum líkindum standa.
Þrjár bjargvættir
Þrjár fjórtán ára gamlar stúlkur
drýgðu hetjudáð í síðustu viku og
björguðu lífi manns sem hafði skorist
alvarlega á hendi þannig að slagæð
fór í sundur.
Hætta á jarðfalli úr Óshlíð
Almannavarnanefnd Bolung-
arvíkur kom saman til fundar í gær
vegna grjóthruns í Óshlíð sl. helgi.
Einar Pétursson bæjarstjóri segir að
eitt af því sem skoða á betur sé hætt-
an á jarðfalli úr Óshlíð vegna stórrar
sprungu ofarlega í hlíðinni.
Þrátefli í Þýskalandi
Angela Merkel, leiðtogi kristilegra
demókrata, og Gerhard Schröder,
kanslari Þýskalands og leiðtogi jafn-
aðarmanna, hófu í dag að þreifa fyrir
sér um myndun stjórnar í landinu en
bæði gera þau tilkall til kanslaraemb-
ættisins. Fátt bendir til, að það muni
ganga greiðlega. Við Vinstriflokkinn
vill enginn tala og talsmaður frjálsra
demókrata, sem hugðust mynda
stjórn með kristilegum, sagði í gær,
að flokkurinn myndi hvorki fara í
stjórn með jafnaðarmönnum og
Græningjum né með kristilegum
demókrötum ef Græningjar yrðu þar
einnig. Með þetta í huga hallast
margir að því, að samstarf stóru
flokkanna sé eina lausnin þótt fáir
séu af henni hrifnir.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Forystugrein 27
Úr verinu 12 Minningar 28/37
Viðskipti 13 Brids 39
Erlent 14/15 Dagbók 40
Höfuðborgin 17/18 Víkverji 40
Akureyri 18 Velvakandi 41
Austurland 19 Staður og stund 42
Daglegt líf 20 Menning 43/49
Listir 21/22 Ljósvakamiðlar 50
Umræðan 23/35 Veður 51
Bréf 25 Staksteinar 51
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
MIKLAR framkvæmdir eru nú í gangi á athafnasvæði
Hringrásar í Klettagörðum. Meðal annars er unnið að
því að steypa nýtt plan undir brotajárn eins og sjá má
á myndinni ásamt því að setja upp steypta fjögurra
metra girðingu á svæðinu, til þess að skipta því betur
niður og hólfa af, að sögn Einars Ásgeirssonar fram-
kvæmdastjóra.
Einar segir að sumar þessara framkvæmda hafi
verið áætlaðar áður en bruninn varð í nóvember í
fyrra en annað hafi verið ráðist í eftir brunann.
„Framkvæmdir ganga vel og við stefnum að því að
ljúka verkinu innan mánaðar,“ segir Einar og bætir
við að tekinn hafi verið í notkun fullkomnari vinnslu-
búnaður á svæðinu, þannig að vinna megi hraðar og
þar af leiðandi hafa minni birgðir á svæðinu hverju
sinni.
Morgunblaðið/Kristinn
Breytingar á athafnasvæði Hringrásar
Í SÍMTÖLUM sem starfsmenn
Neyðarlínunnar áttu við skip-
brotsmenn í skemmtibátnum
Hörpunni sem fórst á Viðeyj-
arsundi 10. september sl. kom
aldrei fram að slasað fólk væri
um borð í bátnum. Hjón sem
björguðust úr slysinu hlutu
bæði beinbrot þegar báturinn
strandaði.
Rannsókn lögreglu á slysinu
er langt komin. Eftir er að taka
viðbótarskýrslur af hjónum
sem björguðust en þau hafa
réttarstöðu sakborninga í mál-
inu. Í tilkynningu lögreglu fyrir
helgi kom fram að rökstuddur
grunur léki á því að þau hefðu
neytt áfengis þetta kvöld. Nið-
urstaða úr blóðprufum liggur
fyrir, en beðið er formlegrar
vottunar um prufurnar. Í til-
kynningu lögreglunnar kemur
fram að báturinn hafi verið á
„talsvert miklum hraða“ þegar
hann lenti á skerinu. Hægt er
að fá nákvæmar upplýsingar
um hraða bátsins úr mælitækj-
um hans. Lögreglan vill hins
vegar ekki upplýsa hraða báts-
ins á þessu stigi rannsóknar.
Ekki
tilkynnt
um slasaða
í bátnum
„LÆKKUNIN er tilkomin vegna
lækkunar á heimsmarkaðsverði að
undanförnu eða eftir að ástandið við
Mexíkóflóa er að komast í samt horf
eftir að fellibylurinn Katrín gekk þar
yfir,“ sagði Magnús Ásgeirsson hjá
Olíufélaginu hf. en félagið reið á vað-
ið í gærmorgun og lækkaði eldsneyt-
isverð á stöðvum sínum. Bensínlítr-
inn lækkaði um 2,50 krónur, lítrinn
af dísil-, gas- og flotaolíu lækkaði um
tvær krónur og lítrinn af svartolíu
um eina krónu.
Olís og Skeljungur gripu til sömu
aðgerða í kjölfarið, líkt og Atlants-
olía – sem bætti um betur og lækkaði
bensínlítrann um þrjár krónur en
verðið á dísil um 2,50 krónur á lítr-
ann. Algengasta verð á bensínlítran-
um í sjálfsafgreiðslu á bensínstöðv-
um Olíufélagsins, Olís og Skeljungs
er nú 114,7 krónur en á dísil 112,2
krónur. Hjá Atlantsolíu og ÓB kost-
ar bensínlítrinn nú 113, 3 og dísil-
olían 110,8 en hjá Orkunni kostar
bensínlítrinn 113,7 krónur og dísil
111,2 krónur.
Magnús segist ekki sjá fram á
frekari verðlækkanir en verðið hafi
farið lítið eitt upp á við rétt eftir
lækkunina þar sem OPEC-ríkin gáfu
í skyn að þau myndu að öllum lík-
indum ekki auka olíuframleiðslu
sína.
Olíufélögin lækkuðu öll verð á dísil-, gas- og flotaolíu í gær
„Frekari lækkunar
ekki að vænta í bráð“
LJÓST er að frekari aðgerða er þörf
til að tryggja framgang verðbólgu-
markmiðs Seðlabanka Íslands. Að-
hald í opinberum fjármálum skiptir
miklu máli í því sambandi, auk þess
sem æskilegt er að framtíðarhlutverk
Íbúðalánasjóðs skýrist. Þetta kemur
fram í greinargerð bankastjórnarinn-
ar vegna verðbólgu umfram þolmörk,
sem afhent var Árna Magnússyni,
starfandi forsætisráðherra, í gær.
Samkvæmt lögum og reglum um
Seðlabankann ber honum að halda
verðbólgunni sem næst 2,5% og eru
þolmörkin 1,5% til hvorrar áttar frá
því markmiði. Verði þolmörkin rofin,
eins og gerðist fyrr í mánuðinum, ber
bankanum að gera ríkisstjórninni
grein fyrir ástæðum þessa og hvernig
hann hyggst bregðast við.
Seðlabankinn segir í greinargerð
sinni að eins og fyrr á árinu sé verð-
bólgan fyrst og fremst eftirspurnar-
drifin. „Raunar virðist eftirspurnar-
þrýstingurinn hafa vaxið og birtist
sem fyrr skýrast í þeim þáttum vísi-
tölunnar þar sem erlendrar verðsam-
keppni gætir minnst, þ.e.a.s. í hækk-
un á verði húsnæðis og þjónustu. Hátt
gengi krónunnar hefur á hinn bóginn
haldið verulega aftur af verðbólgu
jafnvel þótt gengishækkunin undan-
farið ár hafi ekki komið að fullu fram í
verðlagi. Þegar gengi krónunnar að
endingu veikist á ný munu þessi áhrif
ganga til baka, en hugsanlegt er að
þegar það gerist muni einnig draga
verulega úr verðhækkun húsnæðis
eða verð þess jafnvel lækka,“ segir
meðal annars.
Þörf fyrir strangt aðhald
Jafnframt segir að unnið sé að gerð
verðbólgu- og þjóðhagsspáa bankans
og verði þær birtar síðar í mánuðin-
um. Þegar þær liggi fyrir muni bank-
inn meta þörfina fyrri frekari að-
haldsaðgerðir, en ljóst sé að þeirra sé
þörf til að tryggja framgang verð-
bólgumarkmiðsins næstu tvö árin.
„Nauðsynlegt er að hið opinbera leggi
sitt af mörkum í þeirri baráttu. Staða
ríkisfjármála er nokkuð sterk um
þessar mundir en engu að síður er
þörf fyrir strangt aðhald á komandi
ári. Því meira sem aðhald opinberra
fjármála er þeim mun minni byrðar
þarf að leggja á peningastefnuna. Um
leið verða neikvæð hliðaráhrif að-
haldssamrar peningastefnu minni en
ella. Ennfremur er æskilegt að staða
Íbúðalánasjóðs skýrist sem fyrst þar
eð óhóflega aukningu útlána undan-
farið ár má að talsverðu leyti rekja til
breytinga á markaði fyrir fasteigna-
veðlán.“
Seðlabankinn segir frekari aðgerða þörf til að tryggja verðbólgumarkmiðin
Æskilegt að framtíðarhlut-
verk Íbúðalánasjóðs skýrist
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
SALA á lambakjöti var minni í sum-
ar en í fyrrasumar. Özur Lárusson,
framkvæmdastjóri Landssamtaka
sauðfjárbænda, segir þetta ekki
benda til að skortur hafi verið á
lambakjöti í sumar. Í fyrrasumar
hafi menn verið að selja birgðir af
kjöti á lægra verði og það skýri
mikla sölu. Nú hafi hins vegar eng-
ar birgðir verið til og því hafi fólk
ekki verið að fylla frystikistur sínar
af ársgömlu lambakjöti.
Í ágúst seldust um 542 tonn af
lambakjöti, en í ágúst í fyrra seld-
ust 712 tonn. Özur segir að salan í
síðasta mánuði sé yfir meðaltali.
Þótt lítið hafi verið til af lambakjöti
hafi ekki verið neinn skortur á
kjöti. Hann segir að bændur séu
mjög sáttir við að yfir 7.000 tonn af
lambakjöti skuli hafa selst innan-
lands frá síðasta hausti. Fram-
leiðsla á lambakjöti í fyrra var um
8.600 tonn. Özur segir ólíklegt að
framleiðslan í ár verði meiri en þá.
Minni sala á
lambakjöti