Morgunblaðið - 20.09.2005, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
EINAR K. Guðfinnsson, þingflokks-
formaður sjálfstæðismanna, segir að
stjórn þingflokksins hafi ekki gengið
frá neinum tillögum um það hvernig
þingmenn muni skipta með sér verk-
um á komandi þingi. Hann segir að
þingflokkurinn muni hittast í fyrsta
lagi eftir næstu helgi. Ljóst er að
breytingar verði á verkaskiptingu
þingmannanna. Einar K. verður
sjávarútvegsráðherra í lok mánaðar-
ins og losnar þá staða formanns
þingflokksins. Þá er verður Sólveig
Pétursdóttir forseti þingsins og losn-
ar þá staða formanns utanríkismála-
nefndar. Í fréttum Ríkisútvarpsins í
gær kom fram að Halldóri Blöndal
hefði verið boðið að verða formaður
utanríkismálanefndar. Halldór sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær að
menn spjölluðu ýmislegt og að þessi
mál hefðu ekki verið útrædd innan
þingflokksins. Spurður hvort hann
gæti hugsað sér að taka við for-
mennsku í utanríkismálanefnd sagði
hann: „Ég hef fram að þessu tekið að
mér þau verk sem ég hef verið beð-
inn um að taka að mér fyrir flokk-
inn.“
Ekki búið
að ákveða
verka-
skiptingu
FJÖLDI manns tók þátt í smölun hrossa á Laxárdal í
A-Húnavatnssýslu um helgina. Að lokinni smölun var
réttað í Skrapatungurétt. Veðrið lék við hrossin og
hestamenn sem nutu útiverunnar til hins ýtrasta. Meðal
þeirra sem tóku þátt í smalamennskunni voru knapar á
þessum fallegu gráu klárum. Hrossasmölun og Skrapa-
tungurétt draga í vaxandi mæli að sér ferðamenn, inn-
lenda og erlenda.
Ferðamenn áttu t.d. kost á að leigja sér hesta fyrir
smalamennskuna.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Með gráa til reiðar í Skrapatungurétt
RUT Kjartansdóttir, dagmóðir í
stjórn Barnavistar, félags dagfor-
eldra, segir að hvorki hafi gengið
né rekið í málefnum dagforeldra
frá því fyrr í sumar. „Okkar mál
eru í biðstöðu,“ segir hún.
Dagforeldrar í Reykjavík hafa
m.a. farið fram á að borgin hækki
niðurgreiðslur til foreldra barna
hjá dagforeldrum. Regína Ásvalds-
dóttir, sviðsstjóri rekstrar- og þjón-
ustusviðs borgarinnar, segir að ver-
ið sé að skoða þessi mál innan
menntaráðs borgarinnar.
Dagforeldrar hafa einnig farið
fram á að fá meiri frádrátt frá
skatti. Nú fá þeir 14% frádrátt
vegna kostnaðar við leikföng, við-
haldS á dagheimilum og fleira.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, að-
stoðarmaður fjármálaráðherra,
segir að erindi dagforeldra um
meiri skattfrádrátt sé til skoðunar
innan ráðuneytisins. Hún vonast til
þess að niðurstaða geti legið fyrir
næstu daga.
Mál dagforeldra
til skoðunar
LÖGREGLAN á Akranesi hefur
svipt ökumann ökurétti til bráða-
birgða í þrjá mánuði. Ökumaðurinn
var fyrir helgi stöðvaður á Akra-
nesi eftir að bifreið sem hann ók
hafði verið mæld aka á 140 km/klst.
þar sem leyfilegur hámarkshraði er
50 km/klst. Ökumaðurinn var færð-
ur á lögreglustöðina og sviptur
ökurétti til bráðabirgða.
Mældist á
140 km hraða
ÞJÓFAR gerðu sér það að leik að
kveikja í bókum í einni kennslu-
stofu Öldutúnsskóla aðfaranótt
mánudags. Eldvarnarkerfi gerði
strax viðvart og kom slökkvilið á
staðinn og réð niðurlögum eldsins.
Sömu nótt var tilkynnt um inn-
brot í söluturn við Dalshraun í
Hafnarfirði. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglu eru þessi mál í
rannsókn.
Kveiktu í bókum
í skólastofunni
HEILLADÍSIR voru á ferð í Ár-
bænum þriðjudagskvöldið þrettánda
september síðastliðinn og vöktu yfir
Þórhalli Ólafssyni. Dísirnar eru fjór-
tán ára og heita Eyrún Anna
Tryggvadóttir, Hafrún Hafliðadóttir
og Silja Sif Kristinsdóttir, en með
því að halda ró sinni og bregðast rétt
við björguðu þær að öllum líkindum
lífi Þórhalls.
Stelpurnar voru að fara í lyftu í
blokk sem Hafrún býr í þegar þær
heyrðu hrópað á hjálp og í sömu
andrá hljóp maður upp úr kjall-
aranum útataður blóði.
„Við urðum hræddar en hann
stoppaði lyftuna og bað okkur að
hjálpa sér,“ segja stelpurnar. „Við
fórum með honum niður og hringd-
um í Neyðarlínuna og mömmu hans.
Síðan fylgdum við leiðbeiningum
Neyðarlínunnar þangað til sjúkrabíll
kom og sótti hann.“
Aðkoman í íbúðinni var ógnvæn-
leg og þar var blóð út um allt. Þór-
hallur hafði ætlað að skipta um peru
í eldhúsljósi en ekki vildi betur til en
svo að ljósakúpullinn datt á hann og
hann skarst illa á hendi svo að slag-
æð og taugar fóru í sundur. Stelp-
urnar héldu hendinni uppi og þrýstu
á sárið með handklæðum þar til
hjálp barst.
„Við þurftum líka að spyrja hann
alls konar spurninga, því konan hjá
Neyðarlínunni sagði að við mættum
alls ekki missa hann. Við þurftum að
halda honum vakandi en þegar
sjúkrabíllinn kom var hann alveg að
missa meðvitund,“ segir Eyrún. „Við
vorum örugglega hjá honum í hálf-
tíma en þetta gerðist snöggt og leið
hratt. Okkur var sagt að við hefðum
líklega bjargað lífi hans, því ef hann
hefði verið lengur aleinn hefði hon-
um getað blætt út.“
Ætla ekki að verða læknar
Stelpurnar áttu að læra fyrir próf
þetta kvöld en eins og gefur að skilja
var einbeitingin lítil. Þær sváfu líka
lítið fyrst eftir atburðinn.
„Það minnir einhvern veginn allt á
þetta og maður man allt sem gerðist
alveg nákvæmlega,“ segir Silja.
„Mig dreymdi þetta allt aftur og aft-
ur.“ Stelpurnar segja þó að líðanin
sé orðin betri og þær afþökkuðu
áfallahjálp. „Nú er ég bara fegin að
við náðum að bjarga honum,“ segir
Eyrún.
Þær segja það skrítna tilfinningu
að hafa bjargað mannslífi. Þær hafa
aldrei lært skyndihjálp en finnst að
hana ætti að kenna í skólum.
„Þegar við sögðum námsráðgjaf-
anum frá þessu varð hún svo stolt af
okkur að hún flaug upp úr stólnum,“
segir Hafrún og Elínborg, móðir
Silju, segir alla mjög stolta af stelp-
unum. „Krakkarnir í skólanum hafa
sagt í gríni að númerin hjá okkur
verði neyðarnúmerin þeirra í fram-
tíðinni,“ segir Eyrún, en móðir Þór-
halls heimsótti stelpurnar eftir at-
burðinn og þakkaði þeim fyrir hönd
fjölskyldunnar.
Það hefðu líklega ekki allir brugð-
ist við með jafnyfirveguðum hætti og
stelpurnar gerðu og strákar hafa
sagt að hefðu þeir lent í þessu hefðu
þeir kannski bara komið sér í burtu.
Stelpurnar hvetja hins vegar alla
sem lenda í svipuðum aðstæðum til
að hjálpa til, hringja í neyðarnúm-
erið 112 og hlusta vel á leiðbeiningar
Neyðarlínunnar.
Stelpurnar eru allar í Árbæj-
arskóla og æfa fótbolta með Fylki.
Aðspurðar um framtíðaráætlanir og
hvort læknisstarfið heilli svara þær
ákveðnar að svo sé ekki.
„Það fyrsta sem ég sagði þegar ég
kom heim var að ég ætlaði ekki að
verða læknir,“ segir Silja.
„Þær voru eins og hetjur“
„Húðin lafði bara niður og ég sá
niður í bein,“ segir Þórhallur. „Ég
fékk mikið sjokk og fyrstu viðbrögð
voru að skola sárið svo það kæmi
ekki mikið blóð á símann, sem sýnir
hvað viðbrögðin verða undarleg.
Maður er búinn að horfa á svo marg-
ar bíómyndir að ég hringdi í 911
[bandaríska neyðarnúmerið], en það
var auðvitað ekki mikið að gerast
þar,“ bætir hann við hlæjandi.
Þórhallur segist hafa verið búinn
að missa tilfinningu í fingrunum og
þá gat hann ekki sleppt hendinni af
púlsinum þar sem blæðingin var það
mikil.
„Ég hljóp fram á gang og reyndi
að banka hjá nágrönnum en heyrði
svo í stelpunum,“ segir hann. „Þeim
dauðbrá auðvitað þegar þær sáu mig
en hjálpuðu mér samt. Þær voru
eins og hetjur og eiga allan heiður
skilinn. Ef þær hefðu ekki verið
þarna einmitt á þessari stundu væri
ég ekki á lífi.“
Stelpurnar létu sér þó ekki nægja
að bjarga lífi Þórhalls.
„Þær buðust til að skúra fyrir mig
líka en mér fannst það nú einum of
mikið,“ segir hann, „en þær voru al-
veg stórkostlegar.“
Þórhallur segist vera þekktur fyr-
ir klaufaskap og að illa muni líklega
ganga að losna við þann stimpil héð-
an af. Hann vill koma á framfæri
þökkum til allra sem hlut áttu að
máli en hann er nú frá vinnu. Hann
er þó á batavegi og segist líta björt-
um augum fram á veginn.
Þrjár fjórtán ára stúlkur björguðu lífi ungs manns sem slasaðist í Árbænum
„Dauðbrá auðvitað þegar þær sáu
mig en hjálpuðu mér samt“
Eftir Hrund Þórsdóttur
hrund@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Hafrún, Eyrún og Silja brugðust við erfiðum aðstæðum á yfirvegaðan hátt og björguðu lífi Þórhalls.
UM 29% ökumanna sem óku um
Fjallkonuveg við Foldaskóla í Graf-
arvogi í síðustu viku óku það hratt
að þeir mega eiga von á sekt frá lög-
reglu. Þetta eru 64 ökumenn.
Sérstaka athygli vakti að tveir
ökumenn óku á meira en 50 km
hraða fram hjá kyrrstæðum skólabíl
sem var að hleypa skólabörnum út
við skólann.
Lögreglan í Reykjavík var með
sérstakt umferðareftirlit í Graf-
arvogi síðastliðna viku. Mælt var við
skólana í hverfinu og aðallega á göt-
um með 30 km hámarkshraða.
Hraðamælt var m.a. á Fjallkonuvegi
við Foldaskóla og mega 64 ökumenn
sem um þá götu óku eiga von á að
hljóta sekt fyrir of hraðan akstur. Á
Hamravík við Víkurskóla óku 30
ökumenn það greitt að þeir mega
eiga von á sekt en það eru 35%
þeirra ökumanna sem óku um
Hamravíkina meðan mælingin fór
fram. Mælt var einnig á Lokin-
hömrum í nágrenni Hamraskóla. Af
þeim 108 ökutækjum sem fóru um
Lokinhamra meðan mæling var
gerð reyndist ekkert yfir hámarks-
hraða en á Lokinhömrum er 50 km
hámarkshraði.
Í liðinni viku var einnig vegna
ábendinga íbúa við Lynghaga mælt í
þeirri götu. Á Lynghaga er 30 km
hámarkshraði. Tveir ökumenn óku
hraðar en lög leyfa og er það 2%
þeirra ökumanna sem óku um Lyng-
hagann meðan mælingin fór fram.
Lögreglan í Reykjavík áætlar að
vera áfram með hraðamælingar við
grunnskóla í þessari viku. Áhersla
verður einkum í Voga og Langholts-
hverfi og einnig verður mælt í Graf-
arholti.
29% ökumanna
við Folda-
skóla sektuð