Morgunblaðið - 20.09.2005, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 11
FRÉTTIR
Peysuúrval
ullarpeysurnar
komnar
„ÞEGAR maður var yngri lék maður nú á
hverjum einasta degi. Fór alltaf út á völl strax
eftir vinnu klukkan fimm síðdegis og lék til níu
eða tíu á kvöldin. Núorðið fer ég hins vegar yf-
irleitt tvisvar í viku, enda fæturnir ekki eins
góðir og áður,“ segir Jóhann Eyjólfsson, sem
er einn elsti spilandi kylfingur landsins, en
hann hefur stundað golf í sjötíu ár.
Að sögn Jóhanns hóf hann að leika golf árið
1935 þá aðeins fimmtán ára gamall, en hann
fékk inntökugjald í Golfklúbb Íslands, sem var
forveri Golfklúbbs Reykjavíkur, í jólagjöf frá
föður sínum árið 1934. Faðir Jóhanns, Eyjólf-
ur Jóhannsson, forstjóri Mjólkurfélags
Reykjavíkur, var einn af stofnendum Golf-
klúbbs Íslands sem stofnaður var í desember
1934.
Penisillínið bjargaði
Jóhann hefur verið afar sigursæll á golf-
vellinum í áranna rás og það eru ófáir
bikararnir sem prýða heimili hans, auk við-
urkenningaskjala og gullpeninga. Golfið er
raunar ekki eina íþróttin sem Jóhann hefur
stundað með góðum árangri, því hann var
liðtækur hlaupari á sínum yngri árum,
stundaði fimleika með Ármanni frá níu ára
aldri, síðar keiluspil og knattspyrnu, en hann
lék bæði í meistaraflokki og fyrsta flokki Vals
um árabil og varð Íslandsmeistari með Val alls
fimm sinnum, m.a. árið 1944, aðeins ári eftir að
hann lenti í slæmu bílslysi sem leiddi til þess
að læknir hans tjáði honum að hann myndi
aldrei geta spilað fótbolta aftur, en taka þurfti
hluta úr vöðva í fótlegg Jóhanns auk þess sem
hann fékk slæma blóðeitrun í löppina.
„Það varð mér til lífs að ég fékk penisillín,
var raunar fyrsti Íslendingurinn sem fékk lyf-
ið hérlendis og það bjargaði mér,“ segir Jó-
hann og rifjar upp að lyfið hafi verið sent sér-
staklega til landsins með herflugvél frá
Bandaríkjunum. „Þegar ég útskrifaðist tjáði
Snorri heitinn Hallgrímsson læknir mér að ég
ætti ekki að láta mér detta í hug að ég gæti
spilað fótbolta aftur. Þetta var í desember
1943 og ég varð Íslandsmeistari með Val
1944,“ rifjar Jóhann upp og þakkar það fim-
leikaæfingum sem hann fór að stunda aftur af
kappi þegar sárin voru gróin og náði við það
aftur krafti í fótinn.
Inntur eftir því hvaða afrek eða keppni hann
sé stoltastur af í tengslum við golfið bendir Jó-
hann á þrjá fagurpússaða silfurskálar uppi í
hillu sem hann fékk að launum þegar hann
varð heimsmeistari öldunga í golfi árin 1975,
1979 og 1981 í Colorado Springs í Bandaríkj-
unum. Einnig nefnir hann viðurkenningu sem
hann ásamt Eiríki Helgasyni fékk fyrir þátt-
töku sína í alþjóðakvennagolfmóti í Bretlandi
árið 1969. Þegar blaðamaður hváir útskýrir
Jóhann að framkvæmdastjóri mótsins hafi
beðið þá Eirík um að leika með í keppninni til
þess að öll liðin væru fjögurra manna og hafi
þeir góðfúslega orðið við því og þar með lík-
lega orðið einu tveir mennirnir í heimi sem
keppt hafi á kvennagolfmóti.
„Upphaflega áttum við bara ganga með kon-
unum tveimur í liðunum og skrifa skor þeirra
enda máttu þær ekki skrifa niður skorin hjá
hvor annarri, en síðan komust skipuleggjend-
urnir að því að heppilegra væri að við spiluðum
með þeim til þess að öll liðin væru álíka lengi
að spila hverja umferð og urðum við auðvitað
við því.“
Spurður hvernig hann skýri gott gengi sitt á
vellinum svarar Jóhann um hæl að hinar þrot-
lausu æfingar hafi auðvitað skilað sér. „Ef
maður spilar á hverjum degi þá nær maður
náttúrlega árangri,“ segir Jóhann og bendir á
að árangurinn sem hann hafi náð þegar hann
var upp á sitt besta sé þó ekkert í samanburð-
inum við þann árangur sem unga fólkið sé að
ná í dag.
„Enda vorum við bara sjálflærðir sem vor-
um í þessu þá,“ segir Jóhann og bendir á að
bæði boltarnir og kylfurnar hafi breyst mikið í
tímans rás, þannig geri ný efni í boltunum það
að verkum að þeir fljúgi mun lengra en áður.
„Einnig hafa kylfurnar breyst mikið, þó að-
allega hausarnir,“ segir Jóhann og sýnir blaða-
manni orðum sínum til staðfestingar kylfu frá
síðara hluta 19. aldar sem hann fékk að laun-
um fyrir að sigra mót hjá klúbbnum Euro Golf.
Aðspurður segist Jóhann hins vegar aðeins
hafa átt tvö golfsett um ævina. „Sumir eru allt-
af að skipta um sett, en ég hef haldið mig við
þessi tvö, enda hafa þau dugað mér vel.“
Oft fallegast útsýnið
á golfvöllum
Þeir eru ófáir golfvellirnir sem Jóhann hefur
leikið á um ævina, bæði hér heima og erlendis.
Um áratugabil var Jóhann félagi í enska ferða-
golfklúbbnum Euro Golf og ferðaðist með
þeim víða um heiminn, m.a. til Skotlands,
Mexíkó, Bermúda, Sviss, Bandaríkjanna og
Suður-Frakklands og spilaði á alla helstu vell-
ina. Spurður hver sé besti völlurinn í end-
urminningunni segir Jóhann erfitt að gera upp
á milli þeirra, en nefnir þó bæði Beth Page-
völlinn á Long Island og sérlega góðan völl á
Bermúda, sem hafi verið með því besta grasi
sem hann hafi fundið á golfvelli.
„Annars er merkilegt að umhverfið á golf-
völlum er oft með því fallegasta sem völ er á í
hverju landi,“ segir Jóhann og nefnir í því
samhengi útsýnið á Korpúlfsstaðavellinum,
þangað sem hann leggur reglulega leið sína á
þríhjólinu sínu til að leika íþróttina sem hann
hefur nú verið bitinn af í rúm sjötíu ár.
„Þrotlausar æfingar skila sér auðvitað“
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Jóhann var um áratugabil meðlimur í enska ferðagolfklúbbnum Euro Golf og ferð-
aðist með þeim víða um heiminn, m.a. til Skotlands, Mexíkó, Bermúda og Bandaríkj-
anna. Hér tekur hann á móti regnhlíf árið 1977 fyrir sigur á Euro Golf-móti.
„Annars er merkilegt að umhverfið á golf-
völlum er oft með því fallegasta sem völ er á í
hverju landi,“ segir Jóhann Eyjólfsson.
Ekki leið sá dagur þegar Jóhann Eyjólfsson var yngri að hann færi ekki á völlinn til að spila í nokkra
klukkutíma. Í dag lætur hann sér nægja að fara tvisvar í viku, „enda fæturnir ekki eins góðir og áður“,
segir Jóhann, sem er einn elsti spilandi kylfingur landsins, en hann hefur stundað golf í sjötíu ár.
„ÞETTA er gjörbylting og líklega meiri
breyting en að kaupa nýtt húsnæði,“
sagði Valgerður Auðunsdóttir, formað-
ur SPOEX, samtaka psoriasis- og exem-
sjúklinga, en hún opnaði á föstudag
göngudeild samtakanna á nýjan leik
eftir miklar breytingar.
Framkvæmdirnar hófust í maí síðast-
liðnum og nemur kostnaður þeirra yfir
tuttugu milljónum króna en samtökin
standa straum af kostnaði með aðstoð
frá stuðningsaðilum.
Valgerður segir breytingarnar koma
sér vel fyrir fólk með húðsjúkdóma en á
göngudeild eru um 60 komur á dag,
þrjá daga vikunnar, yfir vetrartímann.
„Tækjabúnaður er allur nýr og til dæm-
is erum við nú með tölvustýrða UVA og
UVB ljósaskápa sem við höfðum ekki
áður. Með þeim skapast mikið öryggi
fyrir þá sem nýta sér ljósameðferð.
Einnig er aðstaða starfsfólks allt önn-
ur þannig að þetta er einfaldlega kú-
vending frá því sem áður var.“
Með breytingunum eru samtökin
komin með mikilvægt setur fyrir hinn
almenna borgara með húðsjúkdóm en
að sögn Valgerðar eru um sex til níu
þúsund Íslendingar með psoriasis og
enn fleiri með exem.
Formaður SPOEX, Valgerður Auðunsdóttir, tekur á móti Ög-
mundi Jónassyni alþingismanni við opnun endurbættrar
göngudeildar samtakanna síðstliðinn föstudag.
Göngudeild SPOEX opnuð á ný eftir breytingar
Gjörbylting fyrir samtök-
in og aukið öryggi