Morgunblaðið - 20.09.2005, Side 16
Austurbær | Gömul hús þurfa viðhald, og ekki er
verra að nota þá fáu haustdaga sem ekki rignir til
þess að mála það sem þarf utandyra. Það fannst
Gísla Kristinssyni í það minnsta, og hélt sig vel að
verki í gær við að mála gluggakarma á húsi gamla
kennaraskólans við Laufásveg í gær, þar sem í
dag eru skrifstofur Kennarasambands Íslands og
Kennarafélags Reykjavíkur. Ekki veitti af því að
vinna hratt, enda spáð rigningu í höfuðborginni í
dag.
Morgunblaðið/Kristinn
Dyttað að gamla Kennaraskólanum
Viðhald
Höfuðborgin | Akureyri | Austurland
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
LAXAMÝRI
Atli Vigfússon fréttaritari
Sameining sveitarfélaga er umræðuefni
margra í Þingeyjarsýslum þessa dagana.
Menn eru ekki á einu máli um hvaða kostir
það eru sem fylgja nýjum tímum á sveit-
arstjórnarstiginu. Eitt er víst að með stórri
sameiningu mun valdið færast frá litlu
sveitunum til stærri staða og langt verður á
milli manna. Margir kílómetrar eru frá Að-
aldal til Raufarhafnar og áherslur ólíkar.
Spurningin er hverju menn áorka þegar
þarf að hugsa um marga staði, allavega
verða tengslin ópersónulegri en verið hef-
ur.
Í nýlegum bæklingi sem sendur hefur
verið inn á öll heimili er sameiningin sögð
tryggja velferð íbúanna á komandi árum en
eitt er víst að margt af því sem er farið
kemur ekki aftur þó svo að menn sameinist.
T.d. eru mjög litlar líkur á innanlandsflugi
frá Húsavík, mjólkursamlagið kemur ekki
aftur, útibú skattstofunnar er farið, allar
barnsfæðingar verða á Akureyri, yfirstjórn
vegagerðar í héraðinu er horfin og ráðu-
nautaþjónustunni verður áfram stýrt úr
Eyjafirði. Svona mætti lengi telja.
Reynsla þeirra sem þegar hafa sameinast
Húsavík hefur lítið verið rædd, enda hefur
bæjarstjórnin enn ekki gefið sér tíma til
þess að koma suður í Reykjahverfi og funda
um málið. Nú fer kjörtímabilinu að ljúka og
því ekki úr vegi að líta yfir farinn veg.
Nokkuð hefur borið á því að sum málefni
séu mjög ómótuð auk þess sem lítið hefur
sést af verklegum framkvæmdum á vegum
sveitarfélagsins þar sem áður var Reykja-
hreppur. Eitt er víst að þeir sem ráða ferð-
inni hafa ekki færst nær og nú eiga Reyk-
hverfingar einungis einn fulltrúa í stjórn
sveitarfélagsins í stað fimm áður.
Rjúpan er komin með eina og eina hvíta
fjöður sem segir okkur að veturinn sé í
nánd. Fólk veltir því fyrir sér hvers vegna
menn héldu ekki út þriðja friðunarárið og
líka því hvers vegna veiðar voru leyfðar
mun lengur en Náttúrufræðistofnun lagði
til. Enn eru til menn í Þingeyjarsýslum sem
muna rjúpu og árið sem Kaupfélag Þing-
eyinga flutti út 80.000 fugla. Það var jafn
mikið og veiðin á öllu landinu á að verða í
haust. Rjúpan er ekki svipur hjá sjón og
hana elta fálkar, refir, minkar og sílamáfar
inn um allar heiðar. Í haust bætist við skot-
veiðin með mörgum útlendum veiðihundum
og bændur spá því að friða þurfi rjúpuna
aftur áður en langt um líður.
Blönduós | Þegar afli dags-
ins er skoðaður á bryggj-
unni er yfirleitt átt við fisk
úr sjó. Ellert Guðmundsson,
símaverkstjóri á Blönduósi,
fékk þó heldur óvenjulegan
afla á flotbryggjunni á
Blönduósi á dögunum þeg-
ar minkur hljóp í flasið á
honum þegar hann var að
binda bát sinn við bryggju.
Datt honum helst í hug
að lyktin af nýveiddum
þorski hafi orðið til þess að
hungrið varð skynseminni
yfirsterkari hjá minknum,
en hafði snör handtök og
skaut hann með haglabyssu
þegar hann var viss um að
ekkert væri í skotlínunni
annað en minkurinn og
tómur olíubrúsi. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Óvenjulegur fengur eftir sjóferð
Davíð Hjálmar Har-aldsson heyrði af
fráfalli eins af mátt-
arstólpum dýra-
samfélagsins í Hús-
dýragarðinum:
Guttormur var greindar naut
sem griðunga er siður.
Herðasver um hagann þaut,
hlóð og kálfum niður.
Bíði ellin grett og grá
og gerist skrokkur rotinn,
æðsta verður óskin þá
að enda svona – skotinn.
Bjarni Stefán Konráðs-
son las vísur Einars Kol-
beinssonar úr göngum og
orti hringhendu í léttum
dúr:
Einar snjalli yrkja kann,
á ef kallar víman.
Og á fjalli flæktist hann
fullur allan tímann.
Af máttar-
stólpum
pebl@mbl.is
Vogar | Tveir fulltrúar H-listans í hrepps-
nefnd Vatnsleysustrandarhrepps hafa ósk-
að eftir leyfi frá nefndarstörfum þar sem
þeir hyggja á nám erlendis. Er þar með sú
óvenjulega staða komin upp að formaður
nefndarinnar, Jón Gunnarsson, er einn eft-
ir af þeim hreppsnefndarfulltrúum sem
kosnir voru til setu í nefndinni í síðustu
sveitarstjórnarkosningum.
Það eru þeir Birgir Þórarinsson og
Kristinn Guðbjartsson sem óskuðu eftir
leyfi frá nefndarstörfum, en í þeirra stað
koma þau Hanna Helgadóttir og Sigurður
Kristinsson, að því er fram kemur á vef
sveitarfélagsins.
Formaður
hreppsnefndar
einn eftir
Súðavík | Hreppsnefnd Súðavíkurhrepps
ákvað á fundi sínum á fimmtudag að auka
hlutafjáreign sveitarfélagsins í Sumar-
byggð hf. um 6 milljónir króna. Eins og
kunnugt er sér Sumarbyggð um útleigu á
sumarhúsum í gömlu byggðinni í Súðavík.
Barði Ingibjartsson vék af fundi meðan til-
lagan var afgreidd vegna hugsanlegs van-
hæfis. Tillagan var samþykkt með þremur
atkvæðum en Albert Heiðarsson greiddi
atkvæði á móti.
Auka hlutafé í
Sumarbyggð
♦♦♦
Málstofa Landbúnaðarháskóla Íslands
Málstofan hefst kl. 14:30 í
Ásgarði (nýja skóla) á Hvanneyri. Allir velkomnir.
Miðvikudaginn 21. september mun Tony Fox, prófessor við
Danmarks Miljöundersögelse, vera í Málstofu og ræða um
fuglavernd á norðurslóðum í erindi sem hann nefnir: „Challenges
to the international conservation of artic goose populations - the
case of the Greenland White - fronted Goose“.
Erindi og umræður fara fram á ensku.
Traustur kaupandi óskar eftir 110-150 fm íbúð á framangreindu
svæði. Rýming samkomulag. Staðgreiðsla.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali.
ÍBÚÐ VIÐ MIÐBORGINA ÓSKAST - T.D.
Í 101 SKUGGI - VIÐ KLAPPARSTÍG
EÐA SKÚLAGÖTU
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
♦♦♦
Ísafjörður | Hafist var handa við að
sprengja steina í Gleiðahjalla ofan Ísa-
fjarðar í gær, en steinarnir sem sprengdir
voru eru þannig að lögun og stærð að þeir
gætu farið af stað við hreyfingar í hlíðinni
og jafnvel farið niður í byggð.
Almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar lét
í gærmorgun rýma hús sem liggja nærri
hlíðinni og verða þau væntanlega rýmd aft-
ur í dag þar sem gert er ráð fyrir að fram-
hald verði á sprengingum. Ekki er þó
reiknað með því að tjón hljótist af spreng-
ingunum eða grjóthruni.
Hættulegir
steinar sprengdir
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns