Morgunblaðið - 20.09.2005, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 17
MINNSTAÐUR
skýrð og breytingum á aðalskipu-
lagi mótmælt. Er þess krafist að
svæði spítalans verði undanþegið
skipulagsbreytingum og starfsem-
in fái að vera óbreytt.
Ingólfur segir að fundað hafi
verið með bæjaryfirvöldum í fram-
haldi af bréfaskriftunum, og svo
virðist sem bæjaryfirvöld hafi nú
fengið betri skilning á þörfum
LSH. Á svæðinu er m.a. líknar-
deild, hvíldarheimili fyrir langveik
börn, göngudeild húðdeildar,
krabbameinsmiðstöð, endurhæf-
Kópavogur | Forsvarsmenn Land-
spítala – háskólasjúkrahúss taka
afar illa í fyrirhugaða breytingu á
aðalskipulagi og nýju deiliskipu-
lagi fyrir Kópavogstún, en um
þriðjungur þess lands sem á að
skipuleggja undir íbúðarbyggð og
opin svæði, er í eigu ríkisins og
nýtt af LSH.
Magnús Pétursson, forstjóri
LSH, og Ingólfur Þórisson, fram-
kvæmdastjóri tækni og eigna
LSH, sendu Kópavogsbæ bréf ný-
verið þar sem afstaða LSH var
ing, heimili fyrir fatlaða og fjöl-
smiðja fyrir unglinga, og á starf-
semi spítalans á svæðinu sér
áratuga sögu.
Ekkert samráð við LSH
Ekkert samráð hafi verið haft
við spítalann áður en tillaga að
nýju skipulagi svæðisins var
kynnt. Engin áform eru um að rík-
ið selji land sitt eða dragi úr starf-
seminni, en Ingólfur segir þó
hugsanlegt að göngudeild húð-
deildar og krabbameinsmiðstöð fái
inni í nýju hátæknisjúkrahúsi sem
fyrirhugað sé að reisa við Hring-
braut. Annað sé reiknað með að
verði áfram í Kópavogi.
Í bréfi LSH til Kópavogsbæjar
er m.a. bent á að almenningur og
einkaaðilar hafi komið að fjár-
mögnun ákveðinna þátta starfsem-
innar á þessu svæði, og því ekki
síður mikilvægt þess vegna að
starfsemin verði óbreytt. Spítalinn
hafi hagsmuni af því að hafa
óbreytta starfsemi, sem og skjól-
stæðingar sem njóti þar þjónustu.
LSH mótmælir skipulagi Kópavogstúns
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Vinna við stígagerð við
Hringbraut stendur yfir
Áætluð
verklok í
lok október
HJÓLREIÐAFÓLK og gangandi
vegfarendur hafa kvartað sáran yfir
því að erfiðlega gangi að komast
vestan úr bæ, frá Háskóla Íslands og
í austurátt en þörfin á göngu- og
hjólastígum þar er mikil, sér í lagi
eftir að skólahald hófst að nýju. Að
sögn Höskuldar Tryggvasonar hjá
Framkvæmdasviði Reykjavíkur-
borgar horfir til betri vegar á svæð-
inu en vinna við stígagerð stendur
yfir og áætluð verklok á svæðinu eru
í lok október.
Þá var umferð hleypt að nýju á
Snorrabraut frá gömlu Hringbraut
um síðastliðna helgi eftir umfangs-
miklar breytingar og hefur það kom-
ið ökumönnum á óvart að engin um-
ferðarljós eru við gatnamótin.
Höskuldur segir þó engin slys hafa
orðið að sér vitandi en umferðarljós-
in ættu að komast í gagnið í vikulok.
Fjölbreytni
í skólastarfi
Reykjavík | Grunnskólarnir í Graf-
arvogi og á Kjalarnesi standa að
ráðstefnu um fjölbreytni í skóla-
starfi í Rimaskóla kl. 13 á fimmtu-
dag og er reiknað með að allir
starfsmenn skólana, um 500 manns,
taki þátt í ráðstefnunni.
Þar mun Gerður G. Óskarsdóttir
fræðslustjóri hafa framsögu um
þróun grunnskólans frá bekkjar-
miðaðri kennslu til einstaklings-
miðaðs náms en að erindinu loknu
verða 17 málstofur þar sem kenn-
arar og starfsmenn ýmissa þjón-
ustustofnana munu leggja sínar
hugmyndir til málanna.
Opinn fund-
ur um um-
hverfismál
Reykjavík | Hvernig geta umhverf-
ishamfarir haft áhrif á gæði og öryggi
matvæla á Íslandi? Þessi spurning er
meðal þess sem leitað verður svara
við á opnum fundi umhverfisráðs
Reykjavíkur, sem verður í Tjarnarsal
Ráðhússins á morgun kl. 16, þar sem
allir borgarbúar eru boðnir velkomn-
ir.
Á fundinum verða flutt stutt erindi
um heilsu og umhverfi, t.d. um há-
vaða á skemmtistöðum, kvikmynda-
húsum og stórtónleikum, um það
hvort umhverfishamfarir í fjarlægum
heimsálfum geti haft áhrif á gæði og
öryggi matvæla á Íslandi, og um
starfsemi tengda farartækjum, sem
er eitt viðamesta verkefni Meng-
unarvarna.
Tillögur um sjálfbæra
þróun og umferðaröryggi
Tvær tillögur verða lagðar fram á
fundinum, að því er fram kemur í til-
kynningu frá umhverfissviði. Önnur
er um að Reykjavíkurborg skrifi und-
ir sáttmála evrópskra bæja og borga
um sjálfbæra þróun. Hin er Evr-
ópusáttmáli um umferðaröryggi, en
markmið hans er að fækka dauða-
slysum í umferðinni um helming á
fyrsta áratug 21. aldar í Evrópu. Þá
mun borgarstjóri veita umhverfisvið-
urkenningu Reykjavíkurborgar.
Eftir fundinn verður sýning í tilefni
af 100 ára afmæli Heilbrigðisnefndar
Reykjavíkur opnuð, en henni er ætlað
að varpa ljósi á sögu nefndarinnar og
þær miklu breytingar sem hafa átt
sér stað í umhverfis- og heilbrigð-
ismálum í Reykjavík. Til að mynda
verða sýnd tæki fyrir loftmælingar,
hávaðamælingar, matvælaeftirlit o.fl.
♦♦♦
♦♦♦