Morgunblaðið - 20.09.2005, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 19
MINNSTAÐUR
Seyðisfjörður | Nýir snjóflóðavarn-
argarðar í Bjólfinum ofan Seyð-
isfjarðar voru vígðir sl. föstudag.
Ekki aðeins munu þessi gríðarlegu
mannvirki veita snjóflóðahættu frá
byggð í bænum, heldur er svæðið
einkar vel heppnað sem útivist-
arsvæði. Gerðir hafa verið göngu-
stígar og útsýnispallar við varn-
argarðana og má þaðan sjá úr
rúmlega 600 metra hæð niður á
Seyðisfjarðarkaupstað og út fjörð-
inn allt til hafs. Um 5 km langur af-
leggjari rétt neðan skíðasvæðisins
Stafdals liggur inn að varnargörð-
unum í Bjólfinum. Myndin var tekin
við vígsluna og voru þeir Tryggvi
Harðarson, bæjarstjóri á Seyðisfirði,
Jóhann Hansson, forseti bæjar-
stjórnar og hafnarstjóri á Seyð-
isfirði, og Gestur Guðjónsson frá
umhverfissviði Olíudreifingar þarna
að velta vöngum yfir mannvirkj-
unum, sem sjá má aftan við hópinn.
AUSTURLAND
Egilsstaðir | Hreindýraveiði-
tímabilinu er nú nýlokið, en það
stendur frá 1. ágúst til 15. sept-
ember ár hvert. Jóhann G. Gunn-
arsson hjá veiðistjórnunarsviði Um-
hverfisstofnunar segir að tekist hafi
að veiða upp í kvótann á flestum
veiðisvæðum. Heildartala felldra
dýra er 754 dýr, sem skiptast í 364
kýr og 390 tarfar. Alls var kvóti fyr-
ir veiði á 800 dýrum og því 46 dýr
óveidd þegar tímabilinu lauk.
Jóhann segir tíðarfar á seinni
hluta veiðitímans hafa verið frekar
erfitt, miklir umhleypingar og erfitt
að stóla á veðurspár og því sé veiði-
árangur viðunandi. „Annars gekk
veiðin vel og heldur fleiri dýr veidd-
ust nú en í fyrra,“ segir Jóhann.
Í fyrra veiddust 735 dýr, 374 kýr
og 361 tarfur og hafa því tarfaveiðar
gengið betur þetta árið. Jóhann seg-
ir sérstakt nú hversu mikið af törf-
um sást fyrir norðan Jökulsá, á
svæði 1. „Menn sáu meira af dýrum
þar en undanfarin ár. Þau virðast
koma meira norðan úr Kringilsár-
rananum og kannski hefur raskið
vegna virkjunarinnar austan við
Jökulsá þar áhrif. Þetta eru þó allt
saman getgátur.“
Heildartekjur af veiðileyfasölu í
fyrra voru 43.667.000 kr. Arður
fór til um 750 landeiganda á Austur-
landi og nam 37.667.000 kr., eða
85% af heildartekjum. Hlutur Um-
hverfisstofnunar vegna umsýslu var
kr. 4.591.500,- og Náttúrustofu
Austurlands vegna vöktunar kr.
1.837.500. Ekki er búið að ljúka
uppgjöri fyrir hreindýraveiði-
tímabilið í ár.
Jóhann segir líklegt að heild-
arkvótinn haldi sér, en um 1600 um-
sóknir bárust í þau 800 dýr sem
mátti skjóta í ár. 100% aukning á
umsóknum hefur orðið sl. 5 ár og
bárust á þessu ári hátt í 50 umsókn-
ir erlendis frá. Leiðsögumenn með
hreindýraveiðum eru nú tæplega 90
talsins. Jóhann segir að hugsanlega
muni ásóknin í hreindýraveiðar eitt-
hvað minnka nú þegar leyft er að
veiða rjúpu að nýju. Hjörtur H.
Friðriksson, bóndi og leið-
sögumaður með hreindýraveiðum í
Skóghlíð í Hróarstungu, hefur kom-
ið á fót hreindýraverkunarstöð. Hún
hefur öll tilskilin leyfi skv. reglu-
gerð um verkunarstöðvar fyrir
hreindýrakjöt og opnaði möguleika
fyrir þá sem vilja selja kjöt af sínum
hreindýrum á að fá það stimplað af
dýralækni.
Hjörtur hefur tekið við hreindýr-
unum óflegnum og boðið upp góðan
kæli, þægilega aðstöðu fyrir veiði-
menn til fláningar ef þeir vilja klára
hana sjálfir og býður úrbeiningu ef
þess er óskað. „Það komu nokkrir
tugir dýra núna og á sjálfsagt eftir
að aukast næsta ár,“ segir Hjörtur.
19 þúsund krónur kostar að fá tarf
fullverkaðan hjá honum. „Menn
koma yfirleitt með dýrin óflegin og
flestir skilja þetta eftir. Við úrbein-
um, fituhreinsum og göngum frá
kjötinu í lofttæmdar umbúðir.“
Hjörtur segir áberandi að húðir
séu skemmdar og skepnurnar illa
skotnar. „Yfirleitt er þetta illa skot-
ið og mörgum sinnum, mikið blóð-
hlaup og oft kviðskotið. Verkunin er
líka mjög oft slæm á veiðistað, illa
tekið innan úr dýrunum og þau full
af gori. Það skiptir miklu máli að
dýrin séu verkuð almennilega að
innan því gorinn hefur áhrif á kjöt-
ið. Það hefur komið til mín töluvert
af dýrum með gori og ég hef grun
um að þetta sé vonda kjötið sem
menn eru að borða á veitingastöð-
unum. Leiðsögumenn eiga að kunna
þetta og ég held þetta eigi frekar að
skrifast á þá en veiðimennina sem
kunna kannski ekkert á þetta.“
Á vef Hreindýraráðs, www.hrein-
dyr.is, eru veiðimenn sem eiga húðir
og ætla sér ekkert með þær, hvattir
til að selja þær tilgreindum aðilum á
Héraði, sem vinni úr skinnunum.
Þurfa veiðimenn að gera þetta sem
fyrst þar sem Íslenskur skinnaiðn-
aður á Akureyri mun líklega hætta
að súta skinn í haust og hver að
verða síðastur að fá verkun á húð-
um.
Hreindýraverkandi segir dýrin oft illa skotin og að menn hirði ekki nóg um að taka vel innan úr þeim
754 hreindýr
skotin á
sex vikum
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
austurland@mbl.is
Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir
Girðingarstökk Nú er veiðum lokið og þá tekur lífsbarátta vetrarins við hjá hreindýrum á Austurlandi.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Útivistarperla í Bjólfi
Borgarfjörður eystri | Nú er lokið
þriðja sýningarsumri á verkum Jó-
hannesar S. Kjarval í Vinaminni á
Borgarfirði eystri.
Vinaminni er hús eldri borgara á
Borgarfirði og leigt undir sýning-
arhaldið í fáeinar vikur að sumri.
Verkin eru send suður til Listasafns
Íslands í sýningarlok og ný verk
koma næsta sumar. Eldri borgarar
eru þó ekki Kjarvals-lausir í vetrar-
starfinu, því félagið lumar á nokkr-
um myndum eftir meistarann sem
hanga á skrifstofu félagsins til hliðar
við sýningarsalinn. Félagar standa
vaktina sem safnverðir meðan á
Kjarvalssýningum stendur og fylgir
það með í leigunni á húsinu.
Félagsstarfið er að fara af stað
núna og konurnar verða með handa-
vinnu eitt kvöld í viku og annan
hvern sunnudag á að spila bridds.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Meistaraverk Arngrímur Magnússon hefur staðið vörð um verkin í sumar.
Ekki Kjarvalslausir