Morgunblaðið - 20.09.2005, Qupperneq 30
✝ Bessi Bjarnasonleikari fæddist í
Reykjavík 5. sept-
ember 1930. Hann
andaðist á Landspít-
alanum við Hring-
braut 12. september
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Bjarni Sigmundsson
frá Rauðasandi í
Barðastrandarsýslu,
f. 27. feb. 1898, d. 28.
júní 1978, og Guð-
rún Snorradóttir frá
Garðakoti í Skaga-
firði, f. 13. ágúst 1896, d. 31. des.
1989. Systkini Bessa eru Inga, f. 5.
júní 1923, Snorri, f. 24. sept. 1925,
og Björgvin, f. 5. maí 1928, d. 10.
sept. 1995.
Bessi kvæntist Erlu Sigþórsdótt-
ur bókasafnsfræðingi, f. 19. júlí
1931. Þau skildu. Foreldrar hennar
voru Sigþór J. Jóhannsson, f. 12.
júlí 1890, d. 10. apríl 1933, og Jóna
Finnbogadóttir, f. 20. júní 1901, d.
27. feb. 1981. Bessi og Erla eign-
uðust þrjú börn. Þau eru: 1) Sigþór,
f. 9. maí 1952, d. 11. nóv. 1970. 2)
Kolbrún, f. 21. júní 1954, gift Pétri
Jóhannessyni, f. 7. apríl 1951. Börn
þeirra eru: a) Erla Andrea, f. 28.
feb. 1977, gift Atla Steini Árnasyni,
f. 6. apríl 1967. Börn þeirra eru
Pétur Steinn, f. 6. nóv. 2002, og
Sigrún Tinna, f. 17. apríl 2005. b)
Bessi ólst upp í Reykjavík. Hann
lauk verslunarprófi frá Verzlunar-
skóla Íslands (VÍ) vorið 1949. Sam-
hliða námi á síðasta ári í VÍ lagði
Bessi stund á leiklist við Leiklist-
arskóla Lárusar Pálssonar. Leiðin
lá síðan í Leiklistarskóla Þjóðleik-
hússins og útskrifaðist hann þaðan
árið 1952. Bessi fór á samning við
Þjóðleikhúsið árið 1953 og var
fastráðinn leikari við Þjóðleikhús-
ið frá 1957 til 1989. Eftir það hélt
hann áfram að leika m.a. í Þjóð-
leikhúsinu, Borgarleikhúsinu og
Loftkastalanum. Hann lék í fjölda
útvarpsleikrita, sjónvarpsþátta og
nokkrum kvikmyndum og óperum.
Bessi söng og las barnaefni inn á
plötur og hljóðsnældur.
Loks tók hann þátt í skemmtun-
um og sýningum um land allt til
margra ára, m.a. með Sumargleð-
inni. Samhliða starfi sínu sem leik-
ari vann Bessi fyrstu árin sem bók-
ari hjá Landsmiðjunni og síðar
fékkst hann við sölumennsku af
ýmsu tagi.
Bessi var gjaldkeri Félags ís-
lenskra leikara (FÍL) frá 1958 til
1985 og gegndi ýmsum ábyrgðar-
störfum fyrir félagið. Hann hlaut
Kardimommuverðlaun Egner-
sjóðsins árið 1975. Hann var heið-
ursfélagi í FÍL og var sæmdur gull-
merki félagsins árið 1981. Hann
hlaut viðurkenningu úr Menning-
arsjóði VISA árið 1999, viðurkenn-
ingu úr Egner-sjóðnum árið 2000
og heiðursverðlaun Menningar-
verðlauna DV 2004.
Útför Bessa verður gerð frá
Hallgrímskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Elísabet, f. 15. júlí
1980. 3) Bjarni, f. 24.
júlí 1957, kvæntur
Guðrúnu E. Baldvins-
dóttur, f. 25. mars
1958. Börn þeirra
eru: a) Sigþór Bessi, f.
9. sept. 1985, b)
Magnús Snorri, f. 29.
júní 1990, og c) Sól-
veig, f. 8. maí 1995.
Eftirlifandi eigin-
kona Bessa er Mar-
grét Guðmundsdóttir
leikkona, f. 22. nóv.
1933. Foreldrar
hennar voru Guðmundur Bjarna-
son, f. 28. des. 1886, d. 18. feb.
1978, og Stefanía Arnórsdóttir f.
29. maí 1893, d. 14. feb. 1976. Börn
Margrétar eru: 1) Ivon S. Cilia, f.
14. nóv. 1955, kvæntur Kristínu B.
Jóhannsdóttur, f. 20. ágúst 1959.
Börn þeirra eru: a) Stefán Már, f.
19. nóv. 1980, og b) Olga Margrét,
f. 28. feb. 1986. 2) Victor G. Cilia, f.
15. okt. 1960, kvæntur Solveigu
Óladóttur, f. 26. apríl 1962. Börn
þeirra eru: a) Þorgrímur Óli, f. 28.
sept. 1987, b) Halla Þórey, f. 24.
nóv. 1989, og c) Kjartan Emanúel,
f. 11. júlí 1996. 3) María Dís Cilia, f.
29. ágúst 1968, giftist Arnari Sig-
urbjartssyni, f. 16. ágúst 1965. Þau
skildu. Börn þeirra eru: a) Viktor,
f. 21. feb. 1993, og b) Alexander, f.
12. nóv. 1995.
Mig langar að minnast tengdaföð-
ur míns með nokkrum orðum. Bessi
var einstaklega hjarthlýr og geðgóð-
ur maður. Hann skipti aldrei skapi,
var alltaf léttur í lund, jákvæður og
bjartsýnn. Bessi hafði gaman af
börnum og gantaðist mikið við þau
eða brá á leik með ýmsum uppátækj-
um. Honum var umhugað um að öll-
um liði vel í kringum hann. Hann
hafði samband við okkur nánast á
hverjum degi og fyrstu spurningarn-
ar voru alltaf: „Eru allir heima? Eru
allir frískir?“ Hann vildi fá að vita
hvað allir hefðu fyrir stafni og fylgd-
ist vel með sínu fólki.
Bessi stundaði hestamennsku til
margra ára, bæði með vinum sínum
og fjölskyldu. Um hverja helgi yfir
vetrarmánuðina fóru Bjarni og
krakkarnir upp í hesthús til að gefa
og hreyfa hestana með afa Bessa.
Hann naut þess að sinna hestunum,
tala við þá og ríða út í náttúrunni með
sínum nánustu.
Á sumrin leið honum best í sum-
arbústaðnum við Þingvallavatn. Þar
var hann í nábýli við sína bestu vini
og hestarnir voru á næstu grösum.
Þangað heimsóttum við Möggu og
Bessa oft, síðast í lok ágúst, aðeins
rúmum tveim vikum fyrir andlát
hans. Þá höfðu þau nýlokið við að
bera á sólpallana og voru farin að
huga að því að ganga frá bústaðnum
fyrir veturinn.
Það var heldur farið að draga af
Bessa síðustu árin og hann naut ekki
sömu lífsgæða og áður. Hins vegar
datt engum í hug að endalokin væru
svo nálægt. Þar kom hann okkur á
óvart eins og oft áður. Það var hans
stíll. Hann kvaddi með reisn. Ég
þakka Bessa fyrir samfylgdina og
kveð hann með söknuði. Minningin
um góðan mann mun lifa með okkur.
Guðrún E. Baldvinsdóttir.
Elsku afi minn, þau eru ófá tárin
sem hafa streymt niður frá því að
okkur var ljóst í hvað stefndi. Þrátt
fyrir að minningarnar kalli fram tár
fylla þær mig einnig stolti. Það var
hreykin lítil stelpa sem mætti hvern
mánudaginn á fætur öðrum í skólann
og tilkynnti bekkjarfélögunum að
hún hefði farið að sjá afa Bessa í Línu
Langsokk um helgina. Og ekki varð
spenningurinn minni með árunum.
Ég veit ekki hve oft ég fór með þér á
Bibbu á Brávallagötunni og mætti
síðan í stuttermabol sem þú gafst
mér merktum sýningunni í leikfimi.
Það var fátt sem toppaði þetta þann
veturinn.
Þrátt fyrir að þú hefðir alltaf nóg
að snúast sem leikari var eins og þú
hefðir alltaf tíma fyrir okkur syst-
urnar, hvort sem það var sundferð,
útreiðartúr eða bíltúr fram hjá
Bessastöðum. Einnig er eftirminni-
legur veturinn sem við áttum saman
þegar leikritið um Emil í Kattholti
var sýnt í Þjóðleikhúsinu, þú á svið-
inu og ég frammi að selja minjagripi
úr sýningunni. Eftir sýningu keyrð-
irðu mig heim og við fórum yfir sölu
dagsins enda var sölumaðurinn í þér
aldrei langt undan.
Það er ómetanlegt að hafa fengið
að fylgjast með þér bak við tjöldin
þennan vetur og upplifa hina hliðina
á leikhúsinu – þína hlið. Það gleður
mig líka að hafa getað gefið þér tvö
langafabörn og sjá gleðina sem skein
úr andliti þínu þegar þú hittir þau.
Það var erfitt að þurfa að segja litla
langafastráknum þínum að afi Bessi
væri farinn til himna. Í hvert sinn
sem hann heyrir röddina þína í út-
varpinu heyrist hreykin rödd segja:
„Mamma! Þetta er afi Bessi.“ Frá því
að hann sá Dýrin í Hálsaskógi fyrr á
þessu ári hefur honum þótt fátt
skemmtilegra en að hlusta á leikritið.
Minningin um ykkur syngjandi sam-
an Rebbavísur er mér dýrmæt.
Elsku afi, þú varst einstakur og
það er sárt að kveðja þig en það efni, í
leikritum, sögum og söng, sem þú
skilur eftir þig mun lifa og veita okk-
ur gleði um ókomna tíð. Sjáumst
seinna, afi minn.
Þín
Erla Andrea.
Elsku hjartans afi minn. Það er
erfitt að sætta sig við það að þú sért
farinn svona snöggt frá okkur. Þótt
það sé auðvelt að láta sorgina og
söknuðinn taka yfir þá hef ég rifjað
upp í gegnum tárin hvað þú hefur oft
sagt við mig þegar ég var eitthvað
leið hvað það sé mikils virði að reyna
að halda áfram að lifa lífinu lifandi,
horfa á björtu hliðarnar, hafa húmor
og bros á vör. Það var ávallt gaman
að vera með þér hvort sem það var
uppi í sumarbústað, í hesthúsinu því
þar naustu þín vel, leikhúsinu hvort
sem það var að sjá þig á sviði eða þeg-
ar þú hringdir í mig og bauðst mér
með þér á frumsýningar eða heima
að spjalla. Þú hafðir þann eiginleika
að láta mér alltaf líða vel með þér.
Það voru ófáar helgarnar sem ég fór
með ykkur Möggu upp í sumarbú-
stað sem barn og unglingur. Þegar
ég rifja upp þær stundir sem við átt-
um þar þá er mér sérlega minnis-
stætt þegar þú söngst einn morgun-
inn þegar að ég var að reyna að koma
mér á fætur: „Oh what a beautiful
morning, oh what a beautiful day“.
Ég fór að hlæja og dreif mig á fætur.
Það er mér dýrmætt að eiga svona
margar góðar minningar í hjarta
mínu sem fá mig til að brosa og
hlæja. Ég er afar þakklát og stolt yfir
að hafa átt svona einstakan og ynd-
islegan afa. Ég mun ávallt sakna þín,
elsku afi minn.
Þín „stelpa“,
Elísabet.
Elsku afi, það er svo skrítið að þú
sért horfinn. Ég veit að ég mun alltaf
sakna þín því mér þótti svo vænt um
þig og þú varst svo góður við mig.
Mér fannst alltaf gaman í sumarbú-
staðnum hjá þér. Þar hjálpaðir þú
mér að smíða og stundum fórum við
út á bátinn. Þú sagðir mér ýmislegt
um leikrit og hestana og fleira og allt-
af tókst þér að fá mig til að hlæja.
Mér finnst alltaf gaman að fara í
leikhús og ég man þegar þú fórst með
mig á Dýrin í Hálsaskógi. Þá hló ég
mig oft máttlausa, t.d. þegar Mikki
elti Lilla upp í tré.
En nú ertu horfinn og mér finnst
rosalega skrítið að ég eigi ekki eftir
að hlusta á þig segja mér frá Þjóð-
leikhúsinu eða frá leikurunum, mér
finnst þetta bara svo skrítið. Ég mun
sakna þín.
Sólveig.
Mig langar með nokkrum orðum
að minnast frænda míns, sem nú hef-
ur kvatt okkur. Minningarnar eru
margar og skemmtilegar. Ég man
hvað okkur systkinunum þótti gam-
an þegar þú komst í heimsókn til
okkar norður í sveitina. Þú lékst allt-
af eitthvað fyrir okkur, sagðir sögur,
stundum brá Mikki refur á leik, og
mikið var sprellað og hlegið. Þegar
við komum til Reykjavíkur bauðst þú
okkur í leikhús og var það hápunktur
ferðarinnar að sjá Bessa frænda í
leikhúsinu.
Þegar ég kom síðan suður til náms,
tókst þú hjartanlega á móti frænda
þínum og vini hans, hestinum
Gladda, sem fékk að dvelja í hesthús-
inu hjá þér í nokkur ár. Áttum við þar
margar góðar stundir og fórum í út-
reiðartúra með félögum þínum. Síð-
an eignaðist þú sumarbústað og
fjölgaði þá áhugamálunum, þegar við
hestamennskuna bættist báturinn
sem þú hélst mikið upp á og fórst oft í
siglingu á. Þið Magga höfðuð gaman
af því að fá frændfólk í heimsókn í bú-
staðinn og voruð ætíð mjög gestrisin.
Mér er einnig minnisstætt þegar við
fórum tveir og sigldum á spegilsléttu
Þingvallavatninu í fyrrasumar og þú
tókst veiðistöngina með. Svo kastaðir
þú út í og öngullinn var varla lentur í
vatninu þegar þú sagðir: „Ég nenni
þessu ekki frændi, gefðu í!“ Þér
fannst meira gaman að sigla heldur
en að veiða, og sjá hvernig báturinn
skildi eftir rákir í vatninu. Þú naust
þess að vera í kyrrðinni í bústaðnum,
og ég hafði ánægju af því að fara með
þér þangað til að líta eftir bústaðnum
og bátnum.
Eva Björg, dóttir okkar Lindu,
hélt líka mikið upp á frænda sinn, en
gekk erfiðlega að segja nafnið þitt
þegar hún var lítil. Það kom alltaf út
sem „Besti“ en þegar við komum í
heimsókn, sagðir þú oft „komdu nú
til afa“ við hana, þótt hún væri
frænka þín. Þá breyttist nafnið í
„Besti afi“ og þú brostir og sagðir:
„Vertu ekkert að leiðrétta hana.
Leyfðu henni að segja þetta sem
lengst.“
Okkur Lindu þótti mjög vænt um
þegar þið Magga komuð með okkur í
bíltúr norður á Blönduós í sumar, en
þá lagðir þú á þig erfitt ferðalag til að
geta hitt bróður þinn. Þú lést aldrei
veikindin stoppa þig, og fórst meira
að segja til Kína viku seinna.
Elsku Bessi, ég kveð þig með mikl-
um söknuði. Ég þakka fyrir allar
góðu stundirnar sem við áttum sam-
an, minningin um þær mun lifa um
ókomna tíð. Við Linda og Eva Björg
vottum Möggu og fjölskyldu ykkar
innilega samúð.
Bjarni Snorrason.
Hann var góður kall. Þetta var það
fyrsta sem kom upp í huga mér þegar
ég frétti að Bessi væri dáinn. Bessi
var föðurbróðir minn og eðlilega leit
maður mikið upp til hans í æsku.
Hann var ekki bara skemmtilegur,
hann var líka traustur, hann var sá
sem pabbi leitaði til ef hann vildi
ræða hlutina. Æskuminningar mínar
um Bessa eru þær að hann kom til
okkar í sveitina og lýsti upp daginn.
Það var óendanlega gaman. Hann
tók okkur krakkana líka með í leik-
húsið þegar við vorum í Reykjavík.
Þegar ég og Bjarni bróðir minn
fluttum til Reykjavíkur voru það
bræðurnir Bessi og Bjöggi sem við
alltaf gátum leitað til. Það er gott að
eiga góða að þegar maður er ungur á
framandi slóðum. Bessi var alltaf
boðinn og búinn að hjálpa manni og
ráðleggja þegar maður leitaði til
hans. Hann reyndist mér góður
frændi, yfirvegaður og traustur og
skaut á mann í gríni ef honum fannst
maður vera að gera tómar vitleysur.
Ég elskaði þig og dáði þegar ég var
barn, mér fannst þú eiga skynsamleg
svör við mínum spurningum þegar
ég var ungur og núna ber ég mikla
virðingu fyrir þér. Minningarnar um
þig munu verða hvatning til góðra
verka. Þær munu hjálpa okkur að
takast á við lífið af jákvæðni. Þær
munu verða uppspretta gleði og hlát-
urs þegar frá líður.
Ég kveð þig, elsku frændi.
Megi góður Guð taka á móti þér og
styrkja þá sem næst þér standa.
Aðalsteinn Snorrason.
Nú er vinur minn Bessi Bjarnason
farinn frá okkur. Snöggt skipast veð-
ur í lofti.
Undanfarin ár hefur Bessi átt við
erfiðan sjúkdóm að stríða og þurft að
draga saman seglin. Hann hefur þó
ekki látið okkur vini sína líða fyrir
það, heldur haldið glaðværð sinni og
húmor. Hann hefur verið afar dug-
legur við að stunda gönguferðir og
sótt sundlaugarnar á nær hverjum
degi. Baráttan var samt erfið, sér í
lagi hina síðari mánuði.
Það hefur alltaf verið mikill um-
gangur milli okkar hjónanna og
Möggu og Bessa og kannski einkum
á sumrin í sumarbústöðunum, en þar
hafa Erna og Jörgen ásamt okkur
verið nánasta vinafólk þeirra. Það
var á laugardagskvöldi viku fyrir 75
ára afmæli Bessa að við vorum í góðu
yfirlæti hjá Ernu og Jörgen, margt
skemmtilegt bar á góma, en einkum
þó 75 ára veislan sem Bessi var að
bjóða til. Þetta var einkar skemmti-
legt og ánægjulegt kvöld og engin
merki um veikindi Bessa að sjá.
Mánudeginum eftir vorum við síðan í
glæsilegu matarboði hjá Sigríði Þor-
valdsdóttur og eftir það ræddum við
nokkrum sinnum saman í síma um
veisluna sem halda átti mánudaginn
5. september á afmælisdegi hans.
Hann hafði að vísu verið dálítið las-
inn undanfarið en ætlaði ekki að láta
það á sig fá og vildi halda veglega upp
á 75 ára afmæli sitt eins og honum
var lagið og þeir muna sem sóttu
hann heim á sextugsafmæli hans.
En rétt fyrir helgina kom í ljós að
eitthvað annað var á seyði en þau
veikindi sem hann hafði verið að
berjast við árin á undan og öllu alvar-
legra og var hann strax innritaður á
Landspítalann og skyldi gangast þar
undir aðgerð. Aðgerðinni var hins
vegar frestað fram yfir afmælisdag
hans og héldum við þrjú, Bessi, Mar-
grét og ég, upp á afmæli hans í
glampandi sólskini á svölum 3. hæðar
Landspítalans; súkkulaði, rjóma-
terta og fínerí. Þetta var í síðasta
skipti sem ég talaði við Bessa, hann
var nokkuð hress og spaugsamur að
vanda, þótt hann hafi vitað hversu al-
varlega horfði fyrir honum. Ég sá
hann að vísu nokkrum sinnum eftir
þetta en viku síðar var hann allur.
Um marga listamenn gildir það að
þeir eru aðrir við vinnu að listgrein
sinni en í samskiptum við fólk utan
vinnustaðar. Þetta gilti ekki um
Bessa Bjarnason. Bessi var alltaf
Bessi hvar og hvenær sem maður
hitti á hann. Hann var alltaf í full-
komnu jafnvægi, elskulegur í viðmóti
og aldrei var húmorinn langt undan.
Það er ábyggilega ekki á neinn
hallað þótt ég fullyrði að Bessi sé
einn alvinsælasti leikari sem þjóðin
hefur átt og enginn annar leikari hef-
ur dregið jafnmarga áhorfendur að
leikhúsinu og hann, enda var hann
mjög eftirsóttur og margur er sá
leikstjórinn sem taldi verki sínu
borgið fengi hann Bessa til liðs við
sig. Framlag Bessa til íslenskrar
leiklistar er gífurlegt að vöxtum.
Hann hefur leikið nær tvö hundruð
hlutverk af ýmsu tagi. Það lék allt í
höndunum á honum. Hann var jafn-
vígur á gamanhlutverk og alvarleg
þótt fleiri minnist hans kannski sem
gamanleikara vegna hinnar óviðjafn-
anlegu kímnigáfu hans. Stór hluti
þjóðarinnar hefur eignað sér Bessa
sem sitt uppáhald úr þeim fjölmörgu
barnaleikritum sem hann hefur leik-
ið í. Bessi lék, söng og dansaði, hann
lék í útvarpi, sjónvarpi, bæði í leikn-
um myndum, gamanþáttum og ára-
mótaskaupum, einnig lék hann í
mörgum kvikmyndum. Hann var æv-
inlega með mörg verkefni í takinu í
einu. Hann var stjarnan í ótal söng-
leikjum, hann söng í óperu og dans-
aði aðalhlutverkið í stórri ballettsýn-
ingu. Bessi var ómissandi. Hann var
skemmtikraftur í efsta gæðaflokki og
ferðaðist áratugum saman um allt
landið til að skemmta landsmönnum,
fyrst með Gunnari Eyjólfssyni, en
síðar með Ragnari Bjarnasyni og
Ómari Ragnarssyni. Allir leikstjórar
kepptust við að fá hann í verkefni sín,
hann var aldrei verkefnalaus. Hann
lék fjölda hlutverka eftir að hann
hætti í Þjóðleikhúsinu og fór á eft-
irlaun og tilboðin héldu áfram að
streyma til hans löngu eftir að hann
tók þá ákvörðun að hætta að leika.
En framlag Bessa felst ekki ein-
göngu í öllum þeim hlutverkum sem
hann hefur leikið, ekki í allri þeirri
gleði sem hann hefur veitt lands-
mönnum, eða þeirri innsýn sem
menn hafa fengið í alvarlegri hlut-
verkin hans. Leiklistin er list augna-
bliksins eins og allir vita og lifir síðan
aðeins í minningu þeirra sem hana
hafa séð og heyrt. Nei, Bessi hefur
gefið miklu meira af sér en það. Hann
er fyrirmynd fjölda yngri leikara,
BESSI
BJARNASON
30 ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Við lítum yfir sviðið.
Allir þessir menn. Og öll þessi dýr.
Í einum og sama manninum.
Hvílík sköpun. Og hvílíkur kraftur.
Já, hvílíkur sköpunarkraftur!
Með uppsprettu í kvikunni.
Þar sem stutt er í hlátur.
Og enn styttra í grát.
Allt gert í auðmýkt.
Við lútum höfði og þökkum
þessa guðsgjöf.
Svo heldur lífið áfram
auðugt af þér.
Hvíl í friði.
Sigurður Skúlason.
HINSTA KVEÐJA