Morgunblaðið - 20.09.2005, Síða 32

Morgunblaðið - 20.09.2005, Síða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR um í Kit-Kat-klúbbnum orðið ljóslif- andi á nýjan leik … Kæri Bessi, hafðu þökk fyrir allar unaðsstundirnar í leikhúsinu og fyrir ljósið sem þú kveiktir í hjarta okkar, í því mun minningin um frábæran listamann lifa um ókomin ár. Kolbrún Halldórsdóttir. Þegar við, sem stóðum að Sumar- gleðinni, kveðjum Bessa Bjarnason rifjast upp fjölhæfni hans í leiklist- inni. Allir þekkja feril hans í leikhús- um og í kvikmyndum en Bessi kom víðar við. Um árabil fóru hann og Gunnar Eyjólfsson mikinn á sam- komum og árshátíðum og við tilkomu Sjónvarpsins varð Bessi að sjálf- sögðu vinsæll í sjónvarpsþáttum og sjónvarpsauglýsingum. Stjarna hans skein sem aldrei fyrr þegar hann gekk til liðs við Sumargleðina árið 1976 og fór með henni hringferðir um landið í ellefu ár. Við trúðum því varla að þessi stórleikari fengist til að slást í för með okkur sem ekki höfð- um leiklistarmenntun. En Bessi gerði aldrei mannamun og varð mik- ill happafengur fyrir Sumargleðina þegar hún þurfti þess einna mest við. Án hans hefði hún aldrei orðið það sem hún varð. Hann bjó til dæmis yf- ir undratækni við það að ná sam- bandi við fólkið í salnum með því að leika lausum hala innan um það. Þá ljómaði af honum leikgleðin og lífs- gleðin sem heillaði þjóðina til sjávar og sveita. Leiktækni hans, uppá- tækjasemi og útgeislun var einstök. Lítið dæmi: Í einum þættinum lék hann eiginmann, sem þrætir fyrir það að hafa lent á fylleríi í veiðiferð; reynir að bjarga sér með því að kaupa fisk í fiskbúð og segir blákalt við eiginkonuna að laxarnir sem hann veiddi séu geymdir niðri í kjallara. Hún svarar og segist hafa skoðað fiskana og þetta séu grásleppur. Þeg- ar hann reynir að bjarga sér með því að söðla um og segjast hafa veitt grá- sleppur svarar hún: „En grásleppur ganga ekki upp laxveiðiár.“ Þannig endaði leikþátturinn á fyrstu skemmtun en endirinn þótti ekki nógu góður. En Bessi fann ráð. Á næstu skemmtun þegar eiginkonan sagði: „Grásleppur ganga ekki upp laxveiðiár,“ svaraði hann: „Jú, það er búið að breyta því.“ Hárfínni tíma- setningunni, tóninum í röddinni og svipbrigðunum er ekki hægt að lýsa á prenti, en salurinn sprakk í hlátri eins og það er kallað. Nú hefur þessi yndislegi ferðafélagi okkar endað sitt skeið hér á jörðinni og eins og Sum- argleðin rann sitt skeið á enda mun- um við, sem að henni stóðum, einnig gera það. Örlagadómi sínum tók hann með einstöku æðruleysi sem speglaðist í því síðasta sem hann sagði við einn okkar þegar hann var minntur á 75 ára afmælið: „Ætli ég láti það bara ekki duga,“ sagði hann. En það er huggun harmi gegn að hjá þjóðinni lifir minningin um þennan einstaka listamann. Við þökkum fyrir að hafa fengið að eiga hann að sam- ferðamanni og sendum aðstandend- um hans samúðarkveðjur. Sumargleðin. Æfing á sviði Þjóðleikhússins. Bessi Bjarnason æfir, ásamt nokkr- um samleikurum sínum, eitt af mörg- um atriðum söngleiksins „Ó, þetta er indælt stríð“, stuttan leikkafla þar sem Bessi fer á kostum í hlutverki liðþjálfa við að þjálfa nýliða í hernum. Eins og fæddur í hlutverkið, topp- atvinnuleikari sem kann textann upp á punkt og prik. Daginn eftir er kafl- inn æfður aftur en nú bregður svo við að Bessi fer að bæta inn í hann nokkrum óborganlegum smáatrið- um, sem fá alla viðstadda til að velt- ast um af hlátri. Hvílíkur snillingur er þessi maður! Þessi leikkafli verður augljóslega beittari og fyndnari á Ís- landi en nokkurs staðar annars stað- ar. En Kevin Palmer, breski leik- stjórinn, biður Bessa um að sleppa endurbótum sínum á næstu æfingu. Bessi gerir það að vísu en í staðinn koma bara ný viðbótaratriði frá hon- um sem kalla fram enn meiri hlátur en áður. Sumt af því, sem hann leikur af fingrum fram, er orðalaust svo að leikstjórinn getur ekki skammað hann fyrir að bæta við textann. Á næstu æfingum er svo komið að þeir sem eru í húsinu keppast um að vera viðstaddir til að sjá nýjustu útgáfu Bessa því það er ekki á hverjum degi sem menn fá ókeypis að horfa á ný gamanatriði, sem fá menn til að halda um magann. Loks fer svo að Palmer harðbannar Bessa að hrófla hið minnsta við því sem hann uppáleggi honum. Ástæðan sé sú að atriðið sé orðið svo frábært og fyrirferðarmik- ið að það riðli því jafnvægi, sem þurfa að vera í sýningunni. Þessu hlýðir fagmaðurinn Bessi að sjálfsögðu og leikur eftir þetta atriðið af nákvæmni og óbrigðulli tækni og slær í gegn. En samt situr eftir hjá okkur, sem urðum vitni að snilld hans, hve mikils leikhúsgestir fóru á mis. Að ekki sé nú talað um að þetta skuli ekki varð- veitt á filmu. Kynni okkar hófust þegar við urðum nær samferða inn á svið íslenskra skemmtana 1959. Enn nánari urðu þau í Sumargleðinni. Og nú, þegar þessi mikli gleðigjafi og öð- lingur er allur, spretta fram ótal minningar okkar, sem kynntumst honum og unnum með honum, um einstaka hæfileika hans og fágæta náðargáfu við að gera mikið úr litlu fyrir jafnt háa sem lága, aldna sem unga. Minningar um óteljandi gleði- stundir jafnt á sviðinu sem utan þess, allar skemmtilegu uppákomurnar, uppátækin og tilsvörin sem auðguðu líf okkar og allra í kringum hann. Síð- ast gaf hann kannski einna mest af sér með þeim hetjuskap sem hann sýndi í glímunni við manninn með ljá- inn. Missirinn er sár og ég bið að- standendum hans blessunar. Ómar Þ. Ragnarsson. Lítil stúlka situr úti í sal og horfir á uppáhalds leikarann sinn í Ferðinni til tunglsins, hann hafði boðið henni. Í hita leiksins kallar hún: „Bessi, Bessi, löppin er uppi í trénu,“ og skildi ekki af hverju mamma sagði þetta má ekki. Jú, hún þekkti Bessa vel, vinnufélagi pabba í Landsmiðj- unni til fjölda ára og síðan fór hann að vinna við sölu hjá bróður mínum ásamt því að vera einstakur lista- maður á leiksviðinu. Hann var vinur pabba og mömmu og okkar allra bæði í sorg og gleði. Hittumst einu sinni í London og þá var Sigþór sonur hans heitinn með í för og við áttum góðar stundir þar. Hin síðari ár hittumst við oft í Sundlaugunum í Laugardal og spjöll- uðum saman í heita pottinum. Í síð- asta skipti sem ég hitti hann var fyrr í sumar í yndislegu veðri í Sundlaug- unum. Ég sat á sólbekk og hann sett- ist hjá mér. Hann var einstakur vinur og forréttindi fyrir mig að hafa kynnst þessum einstaka manni. Ég votta börnum hans, eiginkonu og öll- um ástvinum samúð mína við fráfall þessa stórkostlega leikara og þakka þá vináttu sem hann sýndi mér og fjölskyldu minni alla tíð. Sigrún Böðvarsdóttir. Góðir leikarar deyja aldrei, þeir bara hverfa af sviðinu. Þannig er með Bessa Bjarnason. Hann mun alltaf vera ofarlega í hjarta þjóðarinnar, hann skemmti okkur og fékk okkur til að hlæja með leik sínum í barna- leikritum sem maður ólst upp með. Hann gat leikið allt og fór létt með það. Bessi var leikari af Guðs náð. Það voru forréttindi að fá að leika á móti honum, það var svo stutt í húm- orinn hjá honum og hann tók mann með sér á flug og maður skemmti sér jafn mikið og áhorfendur. Ég kveð Bessa með miklum sökn- uði og þakka öll árin sem ég fékk að kynnast og vinna með honum. Ég votta öllum aðstandendum mína dýpstu samúð. Guð veri með ykkur. Magnús Ólafsson. Við erum nýkomnir upp úr strák- arnir. Búnir að klæða okkur í og mál að halda heim á leið. Þá verður okkur litið í austurhorn klefans. Og hver stendur þar annar en sjálfur Bessi Bjarnason. Með litlu strákana sína. Mér verður svo mikið um að ég verð að tylla mér. Ekki svo sem háum aldri eða heilsuleysi fyrir að fara, fjallhraustur sjö ára snáðinn, en nær- vera þessa ómótstæðilega leikara tekur á. Þeir eru að fara oní. Mér finnst hæpið að elta þá enda þótt mig langi til þess. En afræð þó að tefja svolitla stund. Svona tækifæri gefst ekki á hverjum degi. Hann er eins og ég hafði ímyndað mér hann. Hann er auðvitað ekki í ræningjagervinu eins og ég þekki hann best en eins að flestu öðru leyti. Ef til vill ívið alvar- legri á svip en ég átti von á. En blíð- legur. Vingjarnlegur til augnanna og einstaklega kómískur auðvitað, enda þótt hann sé bara að hengja upp af sér hvunndagsfötin í sturtuklefanum í gömlu sundlaugunum í Laugardal. Ég kannast við strákana hans. Þekki þá að vísu ekki persónulega en veit þeir heita Bjarni og Sigþór. Ég hef tyllt mér á trébekk undir vest- urglugganum þar sem lítið ber á en hef þó afbragðsfínt útsýni. Þaðan get ég skoðað Bessa í návígi. Feðgarnir líta upp og koma auga á mig. Hvað skyldi hann ætla að sitja lengi þarna drengurinn fullklæddur. Þeir brosa til mín. Eru vanir þessu. Bessi má ekki fara út fyrir hússins dyr án þess að í kringum hann safnist fólk. Til þess að skaffa mér afsökun rek ég handklæðisstrangann í sundur, vind aftur úr sundskýlunni og rúlla henni inn í handklæðið á ný. Lúshægt. Og stari. Hvað þeir eiga gott þessir strákar. Að eiga óskiptan aðgang að þessum manni. Ég vildi óska að hann væri pabbi minn. Ekki að minn sé slæmur, síður en svo. En ég er með Bessa á heilanum. Og ég öfunda strákana. Þegar ég kem heim úr skólanum á daginn teikna ég myndir af honum. Mér finnst ég ná rödd hans býsna vel. Og reyni að líkja eftir honum. Eins og hann kom fyrir í hlutverki Tóbíasar í Undraglerjunum sem var fyrsta leiksýningin sem ég sá í Þjóð- leikhúsinu. Þegar þessi ofursnjalli og drepfyndni leikari gekk um sviðið og söng, vissi ég samstundis hvað mig langaði til að taka mér fyrir hendur í framtíðinni. Ég safna upplýsingum um átrún- aðargoð mitt. Að vísu ekki hæg heimatökin löngu fyrir daga allra netupplýsinga. En get þó engu að síður grafið upp hvar hann á heima. Veit hvernig bíl hann á. Gráan Vaux- hall. Eftir það finnst mér engir bílar jafnast á við Vauxhall. Ég veit meira að segja símanúmerið hjá honum. Í skránni stendur Bessi Bjarnason skrifstofumaður. Finnst það svolítið kyndugt. En ég veit þetta er hann. Hinn eini og sanni. Lánið leikur við mig. Ég er sendur á sumardvalarheimili. Þar dvelur eldri sonur Bessa. Aldeilis happ. Hann er afar vinsæll. Auðvitað í fyrstu einvörðungu vegna þess að hann er sonur þessa ástæla upptroð- ara. En drengurinn er svo dæma- laust geðþekkur að það verður fljótt aukaatriði í samhenginu og allir strákarnir á Jaðri sækjast eftir því að verða vinir hans. Á fimmtudögum er kvöldvaka og eitt kvöldið veit ég ekki til fyrr en Bessi Bjarnason stendur í miðjum matsal. Ég drúpi höfði í lotningu og dreg mig í hlé. Enda þótt mig fýsi auðvitað að taka hann tali. Bessi er kominn til að sækja strákinn og fara með hann í sveitina. Á kvöldvökunni er boðið upp á bíómyndsýningu. Bessi situr aftast í salnum og skrafar við for- stöðumann heimilisins. Á kvik- myndatjaldinu fremur frægasti gam- anleikari sögunnar Charlie Chaplin kúnstir sínar. Útskeifur og skondinn. En áhorfendur á kvöldvöku eru ekki með augun á tjaldinu. Fimmtíu strákar og stelpur snúa öfugt í stól- um sínum allt kvöldið og horfa á út- skeifa gamanleikarann úr Reykjavík sem situr afsíðis á rökstólum við for- stöðumanninn. Foreldrar mínir taka mig með sér á Kardemommubæinn. Önnur upp- ljómun. Skæðari en sú fyrri á Undra- glerjunum. Hann er svo makalaust heillandi þessi maður. Bekkjarfélagi minn einn er svo lánsamur að vera fjarskyldur leikara sem fer með hlutverk eins ræningj- ans á móti Bessa. Ég kem með krók á móti bragði og skrökva því að honum að Bessi sé móðurbróðir minn. En vopnin snúast í höndum á mér. Fé- lagi minn er tíður gestur á heimili mínu og af þeim sökum verð ég að grípa til örþrifaráða í því skyni að hann komist ekki að hinu sanna. Sumsé að við Bessi erum ekki einu sinni fjarskyldir. Ég stofna til flók- inna sviðsetninga þessu viðvíkjandi og heppnast þær misbærilega. Raun- ar stend ég fyrir sviðssetningum í kjallaratröppunum heima hjá mér alla daga og byggi þær á framgöngu Bessa á sviði. Og við það heygarðs- horn hef ég verið æ síðan, fyrst og fremst vegna þess að Bessi Bjarna- son kveikti í mér ungum ákafa löng- un og þrá. Bessi hefur verið fjölda íslenskra leikhúsmanna lærifaðir. Þó sagði hann aldrei nokkrum einasta manni til. Og hafði aldrei neitt um frammi- stöðu annarra að segja. Og sjálfs sín raunar ekki heldur. En með einstöku fordæmi sínu varð hann okkur öllum fyrirmynd og ósvikinn innblástur. Bessa voru gefnar fágætar vöggu- gjafir sem gerðu honum kleift að hrífa fólk með hætti sem fáheyrður er. Hvorum megin hryggjar á tilfinn- ingasviðinu sem honum hentaði. Í skopi jafnt sem harmi. Og þessi að- sópsmikli sviðsmaður var ekki við eina fjölina felldur. Fjölhæfni hans var viðbrugðið. Hann fór ógleyman- lega með sönghlutverk í óperettum og söngleikjum; tróð upp á skemmt- unum og lék í útvarpi. Með djúpum og dramatískum málróm lokkaði Bessa tilheyrendur að viðtækjunum með minni fyrirhöfn en flestir aðrir; róm sem gat líka átt það til að verða ógnarskrækur og fyndinn þegar sá gállinn var á honum. Skjárinn varð einnig vettvangur Bessa og í árdaga sjónvarps þegar dagskrá var með fá- brotnara móti tæmdust göturnar jafnan á svipstundu þegar út spurðist að von væri á nýrri sjónvarpsauglýs- ingu með Bessa. Það var og viðtekið að jafnskjótt og Bessi birtist í sýningum á sviði Þjóðleikhússins breiddist samstund- is eftirvæntingarkurr um salinn. Bessi var tæpast kominn inn úr sviðsvængnum þegar þrálátt hvískur barst úr öllum hornum. Kemur Bessi, var viðkvæðið. Og þá mátti einu gilda hvaða hlut- verk hann var að leika eða í hvaða leikriti; þegar hann var á annað borð kominn í sjónmál fékk áhorfendasal- urinn ætíð slagsíðu af hlátri. Og í raun án þess að Bessi gerði nokkurn skapaðan hlut. Annað en standa svo gott sem svipbrigðalaus og útskeifur í miðju sviðsljósi. Stundum þurfti hann ekki einu sinni að fara með text- ann sinn til að framkalla hlátur. Bessi réð yfir töfrum sem gáfu honum vald yfir áhorfendum sem flestir öfund- uðu hann af. Löngu fyrir daga sjónvarps og annarra myndmiðla vissi hvert ein- asta mannsbarn góð deili á Bessi Bjarnasyni. Og fékk aldrei nóg af honum. Og hvernig skyldi hann hafa farið að því þegar ekki naut við þeirr- ar tækni sem gerir skemmtikröftum og öðrum sem vilja koma sér á fram- færi kleift að vaða inn á stofugólf hjá landsmönnum. Jú, hann fór sjálfur á fund fólksins. Í eigin persónu. Um land allt. Og ef hann var ekki að troða upp, áhorfendum til ómældrar gleði, var hann á faraldsfæti með alls kyns varning til sölu. Og seldi vel. Sá kaupfélagsstjóri var ekki til á byggðu bóli sem lét sig ekki hafa það að kaupa eitthvað af Bessa Bjarnasyni. Návígi við Bessa eitt og sér var tíð- falað, hvernig svo sem til þess var stofnað. Persóna Bessa og öll hans fram- ganga á sviði einkenndist af áreynsluleysi og hógværð en sömu- leiðis þeirri ástríðuþrungnu dýpt sem jafnan prýðir þá sem skara fram úr í skapandi listum. Bessi var eft- irsóknarverð manneskja í öllu sam- neyti og kenndi okkur kollegunum að það má ná framúrskarandi árangri án þess að eiga í útistöðum við nokkra skepnu. Ég vil þakka einstökum manni fyr- ir að hafa átt með honum samfylgd í starfi og ekki síður að fá að eignast vináttu hans. Ég vil þakka honum fyrir að hafa með hjartanlegri kúnst sinni sýnt mér hvernig á að fara að því að gera góða hluti enda þótt ég muni sjálfur seint getað leikið þá eft- ir. Þjóðin syrgir einn af sínum vænstu sonum. En mestur harmur er kveð- inn að hans nánustu og þeim flyt ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Gísli Rúnar Jónsson. Hinsta kveðja frá Félagi íslenskra leikara Í dag kveðjum við einn virtasta og vinsælasta leikara þjóðarinnar Bessa Bjarnason, sem fallinn er frá eftir skammvinn veikindi. Bessi var einn af ötulustu félagsmönnum Félags ís- lenskra leikara. Í áratugi starfaði hann af miklum heilindum og dugn- aði fyrir félagið. Hann var kjörinn gjaldkeri 1957 og gegndi því starfi óslitið til ársins 1985. Árið 1992 var hann gerður að heiðursfélaga FÍL. Hans er nú sárt saknað af „collegum“ eins og hann kallaði félaga sína gjarnan. Hann kenndi okkur sem tókum við stjórn félagsins að sýna því fullan trúnað og að standa fast á okkar rétti í samningum og þá ekki síst að halda á lofti virðingu fyrir leiklistinni. Bessi var einn vinsælasti leikari þjóðarinnar í 50 ár. Minnst þrjár kynslóðir hafa elskað hann og dáð. Hann hafði einstaka hæfileika sem hann nýtti út í ystu æsar bæði sem gamanleikari og einnig sem frábær dramatískur leikari. Við í stjórn Félags íslenskra leik- ara þökkum Bessa samstarfið í gegn- um árin. Við munum sakna félagans, leikarans og ekki síst mannsins Bessa Bjarnasonar sem var svo mörgum kostum búinn. Bessi er einhver besti fulltrúi leik- listarinnar sem við höfum átt. Þjóðin hefur misst mikið en minningin lifir. Megir þú hvíla í friði, kæri vinur. Möggu og fjölskyldunni sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Stjórn Félags íslenskra leikara. Randver Þorláksson. BESSI BJARNASON Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM OG FYLGIHLUTUM Sendum myndalista Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði Englasteinar Sendum myndalista  Fleiri minningargreinar um Bessa Bjarnason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Þorvaldur Tryggvason og Þórhallur Sig- urðsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.