Morgunblaðið - 20.09.2005, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 37
MINNINGAR
er að liggi í þagnargildi, en það var
uppörvun yngri kynslóðar og eggjun
til dáða. Þeir eru ófáir sem geta borið
að fyrstur til að bera lof á vel unnið
verk, hvort sem um var að tefla fal-
lega hönnun, heppnaða endurgerð,
fyrirlestur eða fræðileg skrif, var
einmitt Hörður Ágústsson, og þótti
þá mörgum sem yfir þeim væri vak-
að.
Trúr uppruna sínum og menntun
nálgaðist hann byggingarlistina sem
sjónlistarmaður. Þættir eins og form
og hlutföll, litir og efnisáferð voru
honum allajafna hugleiknari en þarf-
ir og hagnýtt notagildi, þótt hann
vissi mætavel að not og fegurð
tengdust dularfullum böndum og
væru óaðskiljanleg, svo að notuð séu
hans eigin orð. Hann var gæddur
skyggnigáfu, sá gegnum holt og
hæðir og las hús augum hins fjölhæfa
endurreisnarmanns. Þegar hann
fletti uppdráttum átti hann það til að
komast allur á loft, kæmist hann að
raun um að grunnmyndir væru
dregnar gullinsniði eða þversniðin
reist í ferskeytu. Þá var gaman að
lifa.
Eftirlifandi eiginkonu hans, Sig-
ríði Magnúsdóttur frönskukennara,
og börnum þeirra hjóna, þeim Gunn-
ari Ágústi, Steinunni og Guðrúnu,
sendi ég mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Þorsteinn Gunnarsson,
formaður Húsafriðunarnefndar
ríkisins.
Ákafi og elja eru það fyrsta sem
kemur í hug að Herði Ágústssyni
föllnum. Virðing fyrir forverunum,
snarpur skilningur, glöggt auga og
þjálfað handbragð.
Ákafanum kynntist ég þegar við
mættumst fyrst á Þjóðskjalasafni
fyrir tæpum 20 árum, ég sem starfs-
maður, hann sem notandi. Honum lá
á. Vantaði þetta eða hitt skjalið, helst
núna. Og fékk það líka oftast á end-
anum. Þetta skipti líka alltaf máli.
Stafgólfafjöldinn í baðstofunni á
Kálfafelli, stofugluggarnir á Hrafna-
gili, básafjöldinn í fjósinu í Stafholti,
skemmurnar á Valþjófsstað, stærðin
á kálgarðinum í Vatnsfirði og ráðs-
mannsreikningarnir frá Skálholti.
Og svo var lagst yfir gulnaða illlæsi-
lega pappíra og upp úr þeim töfraður
efniviður í ómetanlegar bækur um
fornan byggingararf.
Hann var líka þakklátur notandi
og gladdist yfir góðum feng. Ég man
vel þegar við fundum teikningarnar
af bænum sem Halldór Ámundason
byggði á Hjaltabakka um 1810 í þá
nýjum stíl eftir tillögum Guðlaugs
Sveinssonar í Vatnsfirði um bæjar-
byggingar. Þær voru mikilvægt
sönnunargagn um áhrif Guðlaugs.
Minnisstætt er líka þegar eftir langa
mæðu hafðist upp á teikningum
Rögnvalds Ólafssonar í Safnahúsinu
við Hverfisgötu af litskrúðugum inn-
réttingum kirkjunnar á Stóra-Núpi í
Hreppum. Þá hló Hörður innilega og
talaði af upphafningu um „dýrmæt-
ið“.
Eljunni kynntist ég á sama vett-
vangi og líka síðar í samvinnu við höf-
undinn. Hörður var ótrúlega naskur
að kreista út úr heimildum upplýs-
ingar um húsakost á fyrri tíð. Allar
byggingar frá miðöldum eru nú falln-
ar og sama gildir um nærfellt öll hús
frá 18. öld og æði margt farið líka frá
þeirri 19., enda lóðirnar í þéttbýlinu
verðmætar steinsteypuliðinu. Því
varð Hörður að styðjast við úttektir
fyrri aldar manna, raunar mjög
skemmtilegar heimildir en ekki bein-
línis aðgengilegar í fyrstu atrennu.
Oft undraðist ég næmi hans. Hann
lifði sig inn í verkið, var nánast á
staðnum og fylgdi úttektarmönnun-
um eftir hús úr húsi og kofa úr kofa
með eldri úttektir í hendi, sá hvar
þeir höfðu hlaupið yfir og farið til
baka, reiknaði út hvar þeir höfðu
gleymt rúmstæði, stigarim eða skör
og leiðrétti þá ef honum þurfa þótti
og örugglega oftast með réttu. Gott
dæmi um vinnubrögð hans og inn-
lifun er greinin „Meistari Brynjólfur
byggir ónstofu“ sem birtist í Sögu ár-
ið 1974. Þar ræðir hann fræðilega og
af grundaðri þekkingu um þróun
húsa á miðöldum en setur sig jafn-
framt í spor miðaldamanna sem urðu
að bregðast við orkukreppu síns
tíma.
Lítið dæmi um sjónarhorn hans og
auga fyrir sviðsetningu í öðru sam-
hengi raunar. Hann var að tala við
mig um Brynjólf biskup Sveinsson,
sem var svipmikill kirkjuhöfðingi og
reið um sveitir með 20-30 manna
fylgdarlið eins og miðaldafursti sem
sópaði að, en bætti svo við að hann
hefði eitt sinn verið staddur á flug-
vellinum á Egilsstöðum og þá kom
Sigurbjörn biskup fljúgandi í vísitas-
íuferð. Og þarna stóð einn maður
með litla tösku í hendinni á flugvell-
inum, og það var biskupinn.
Hörður var ótrúlega glöggur og
minnugur. Meginhluti starfs hans við
byggingararfleið Íslendinga var unn-
inn á löngum tíma og stopulum
stundum og því ekki von að allt væri
nákvæmlega skráð. Í minn hlut féll
að kanna ýmislegar heimildir Harðar
við útgáfu síðustu verka hans, sumt
þá skrifað fyrir 30 árum. Stundum
heimsótti ég hann í veikindunum á
síðari árum til að spyrja um óljósa
hluti. Svarið var yfirleitt: „Það er
þarna, ég man það. Þá hafði Hörður
illu heilli ekki þrek til að koma og
fletta í bókum eða benda á myrka
staði í molnuðum skruddum. Svo
maður leitaði betur og nánast alltaf
hafði hann rétt fyrir sér, hafði lesið
þetta á sínum tíma og mundi rétt.
Hörður fór um landið allt á árun-
um milli 1960 og 1970, teiknaði upp
gamla torfbæi, mældi, tók myndir og
gerði nótur. Mikið af þeim mann-
virkjum, sem hann kannaði og
skráði, er nú horfið, en þau eru ekki
þjóðinni með öllu glötuð, þökk sé
honum. Afraksturinn birtist að hluta
jafnóðum í Birtingi en var einnig
grundvöllur að stórvirkjum hans um
byggingarsögu Íslendinga.
Í bókum Harðar um íslenska húsa-
gerðarlist, í tveimur stórum bindum,
kynnist maður fræðimanninum, ná-
kvæmninni og öguninni. Greinar-
besta yfirlit sem til er um húsagerð-
arsögu þessarar þjóðar í fjögur
hundruð ár, nokkurn veginn eins
langt aftur og seilst verður. Verndun
og viðhald hins fátæklega bygging-
ararfs Íslendinga var hugsjón. Hann
komst eitt sinn svo að orði: „Í raun
ætti hver húseigandi að vera stoltur
af því að hafa í höndum menningar-
sögulegt verk“, viðhorf sem verðugt
er að taka sér til eftirbreytni.
Eftir þakkláta aðkomu að þessu
verki og yfirlestur verður maður
ekki með öllu samur. Hann opnar
augu manns fyrir byggingararfi
þjóðarinnar. Margt það elsta er horf-
ið, en eldri og yngri byggingar víðs
vegar um landið eru hluti af ákveð-
inni samfellu, þótt umgengnin um
þennan arf sé misjöfn, og það var
Herði áhyggjuefni.
„Víðimýrarkirkja er jafnmikið
listaverk og Péturskirkjan í Róm,“
sagði Hörður eitt sinn í blaðaviðtali.
Maður staldrar við. Lúin torfkirkja
norður í Skagafirði móts við heims-
sögulega listasmíð? En hér réðu
hlutföllin. Stærðin, skrautið og aug-
lýsingamennskan skipta ekki neinu
máli. Vel unnið og vandað handverk,
lengd, hæð og breidd í innbyrðis
samræmi, virðing fyrir viðfangsefn-
inu og góður vilji skipta máli. Jón
Samsonarson, höfundur Víðimýrar-
kirkju, var gjaldgengur forsmiður
sem gat mælt sig við Michaelangelo
og félaga hans suður á Ítalíu. Þannig
var metnaður Harðar fyrir hönd ís-
lenskra byggingarlistamanna.
Hér skal staðar numið þótt í raun
sé fátt sagt og ekki minnst á verk
Harðar á öðrum vettvangi. Nú ber að
þakka fyrir kynni af eldhuga, þakka
fyrir vináttu og dýrmæta samfylgd
og senda samúðarkveðjur til Sigríð-
ar, Gunnars, Steinunnar og Guðrún-
ar og annarra aðstandenda.
Jón Torfason.
Þegar ég hugsa um Hörð Ágústs-
son sé ég hann alltaf fyrir mér á ferð.
Hörður tíu ára á hestakerru í Vatns-
mýrinni að flytja mjólk í Reykjavík-
urþorp. Hörður ungur listamaður á
reiðhjóli um París á blómaskeiði ab-
strakts og existensíalisma. Hörður á
gangi í endurreisninni í Flórens og
Feneyjum. Hörður að koma af Birt-
ingsfundi með Thor og Einari Braga.
Hörður milli nemenda í Mynd og
hand á frjóum óróatímum (örugglega
að kenna SÚM-urunum að teikning-
in er móðir myndlistanna). Hörður á
vondum vegum um allar sveitir með
Skarphéðni ljósmyndara að skrá og
teikna og mynda torflist á fallanda
fæti. Hörður að spássera um Stykk-
ishólm og Eskifjörð að kanna norsk
glæsihús. Hörður arkandi í bænum
milli vopnabræðra og valdsmanna til
að verja byggingararfinn í Reykjavík
fyrir jarðýtum og heimsku. Hörður
uppáklæddur með Sigríði sinni á
leiðinni á Bessastaði að taka við verð-
launum fyrir Húsagerðarsöguna.
Samt kynntist ég Herði Ágústs-
syni ekki fyrr en hann var hér um bil
hættur ferðum og sífellt bundnari við
sinn stað. Pípan og göngustafurinn
voru að vísu enn helstu þarfaþing á
fyrsta ádíens í aðsetri fræðimannsins
nr. 135 við Laugaveg, nokkurn veg-
inn á sama stað í kjallaranum og her-
bergin í næsta húsi þar sem ég kom
til ömmu í gamla daga, en það sagði
meistarinn prófarkalesaranum eins
og í fréttum á fyrsta fundi. Og þá var
enn ekið um gamla bæinn á virðu-
legum og nokkuð fyrirferðarmiklum
dökkum Volvó – ég hlustaði bara á
ökumann og horfði einbeittur upp í
himininn yfir Þingholtunum meðan
vegfarendur áttu fótum fjör að launa.
En síðan lagðist af kompan góða með
himinháum bókastöflum, skjalaskáp
víðfeðmum, tegerð og tóbaksreyk, og
líka dvalir höfundar í lestrarsölum
Seðlabanka og Þjóðskjalasafns.
Jafnframt jukust annir hjálpar-
sveina. Grænuhlíðarhúsið varð næsti
samkomustaður okkar, sjálf stofan
frú Sigríðar lögð undir en aðstoðar-
maðurinn öðruhvoru sendur „út“
gegnum garðinn framhjá girnilegum
jarðarberjum í vinnustofu listmálar-
ans þar sem fórur fræðimannsins
höfðu fengu inni. Pípan hvarf að
læknisráði, og bráðum var komið
nýtt göngutæki í stafsins stað fyrir
þennan stóra grannvaxna öldung
með þyngdarpunktinn í námunda við
höfuðið. Þetta nýja tól þótti ekki sér-
lega göfugt en nauðsyn kennir völt-
um manni smám saman á göngu-
grind. Ja, ég bara datt, segir hann
skálkslegur og plástraður á næsta
fundi og telur önnur tíðindi merkari.
Og þó fórum við saman í ferðalag í
byrjun árs! Undirritaður var hafður í
tvöföldu hlutverki ökumanns. Fyrst
afar varlega eftir Miklubraut og
Hringbraut með þau Sigríði. Spurt
um framkvæmdir á Hringbraut. At-
hugasemdir við nýtt útsýni bakvið
Alvar Aalto. Og hver leyfir eiginlega
þetta klastur aftan á húsið hans Sig-
urðar Guðmundssonar? Inn í Þjóð-
minjasafnið öfugum megin, og nú er
að ná í hjólastól og aka Herði um
nýju sýninguna. Við völdum dag þar
sem von var fárra gesta annarra og
gáfum okkur góðan tíma. Það þurfti
að líta rækilega á sýningargripina og
Hörður heilsar þeim öllum einsog
gömlum kunningjum. Gefnar skipan-
ir um navigasjón. Stýrimaður hlýðir
og hlustar svo með Siggu. Fyrirlest-
ur um sess myndarinnar í listasögu
Íslendinga. Bókmenntirnar alls ekki
einar. Vefnaðurinn og mikilvægi
kvenna í handverkssögunni. Strokið
líkanið af Gíslakirkju. Erlendar nýj-
ungar í útsaumi en norræna hefðin
lengi einráð í útskurðinum. Séra
Hjalti. Gullinsniðið sem leiðarhnoða í
íslensku kirkjunum. Klassísk minni í
torfbæjum íslenskra höfðingja. Þró-
un gangabæjarins nyrðra og syðra.
Laufás. Mosfell. Moldarkofatal á 20.
öld og minnimáttarkennd þjóðar sem
skilur ekki fortíð sína. Biskuparnir –
andlegir, veraldlegir og listrænir
leiðtogar. Svo er drukkið kaffi á
fyrstu hæð og aftur rætt um arki-
tektúr Sigurðar Guðmundssonar og
viðbæturnar við hann. Örlítið mildari
tónn. Sjálfur hefur listamaðurinn ný-
lega leyft sýningu Mannssonarverk-
anna í fordyri sjálfrar Hallgríms-
kirkju. Kennarinn réðst forðum daga
á Guðjón og þá kalla alla í Birtingi –
en nú er fræðimaðurinn löngu byrj-
aður að verja verk þeirra hinna sömu
fyrir eftirkomendunum. Svona geng-
ur þetta víst til. – Og hvernig er þetta
nú þarna kringum þig á Laugaveg-
inum, Mörður minn, er nokkuð búið
að eyðileggja húsið á Frakkastíg 9?
Stafgólf og stoðir og syllur og
dvergar, sperrur og standþil og pall-
ar og tröppur… Einhvern tíma yfir
kaffi í Grænuhlíð þegar vinnustundin
var liðin – eða var það strax í komp-
unni? – sagði Maître að hann hefði
SJÁ SÍÐU 38
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
SIGÞÓRS HERMANNSSONAR,
Grænutungu 1,
Kópavogi.
Ásta S. Karlsdóttir,
Bóel Sigurgeirsdóttir, Hermann Kristinsson,
Sigurlín Hermannsdóttir, Ingólfur Sigurjónsson,
Kristbjörg Hermannsdóttir,
Rúnar Hermannsson,
Sigríður Stefánsdóttir, Karl Guðmundsson,
Guðrún Karlsdóttir, Jens Hilmarsson,
Stefán Karlsson
og systkinabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
KRISTINN KARL JÓNSSON
húsasmíðameistari,
Gnoðarvogi 30,
lést á Landakotsspítala miðvikudaginn 7. sept-
ember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Hjartans þakkir til lækna og starfsfólks deildar 4L á Landakotsspítala fyrir
góða umönnun.
Helga K. Sveinsdóttir,
Jón Karlsson, Sigrún Gunnarsdóttir,
Alexandra Jónsdóttir,
Mikael Karl Jónsson.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR GÍSLI ÞÓRÐARSON,
Dalbraut 18,
Reykjavík,
sem andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
föstudaginn 16. september, verður jarðsunginn
frá Háteigskirkju föstudaginn 23. september
kl. 11.00.
Sigurður Snævar Gunnarsson, Erla Pálmadóttir,
Ingimar Þór Gunnarsson, Þorgerður Steinsdóttir,
Sveinn Óttar Gunnarsson, Guðný Svavarsdóttir,
Gísli Arnar Gunnarsson, Halla Guðrún Jónsdóttir,
Gunnur Rannveig Gunnarsdóttir, Helgi Helgason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og systir,
AÐALHEIÐUR HALLDÓRSDÓTTIR,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
aðfaranótt laugardagsins 17. september.
Jarðarförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sigurður Lárusson, Guðrún Greipsdóttir,
Hafsteinn Númason, Berglind María Kristjándóttir,
Guðrún Hafdís Eiríksdóttir, Gunnar Magnús Gunnarson,
Guðlaugur Eiríksson, Dagmar Hallgrímsdóttir,
Ásta Ellen Eiríksdóttir, Ólafur Einar Júlíusson,
barnabörn, barnabarnabörn,
systkini og aðrir aðstandendur.
Móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐRÚN EINARSDÓTTIR,
Gilsstreymi,
Lundarreykjadal,
lést laugardaginn 17. september.
Jarðarförin fer fram frá Lundarkirkju laugardaginn
24. september kl. 13:30.
Sesselja Hannesdóttir, Helgi Hilmarsson,
Helgi Hannesson, Margrét Kristjánsdóttir,
Torfi Hannesson,
Einar Hannesson, Sigríður Rafnsdóttir,
Sigríður Hannesdóttir,
Helga Hannesdóttir, Einar Ole Pedersen
og fjölskyldur.